Fréttablaðið - 20.05.2005, Blaðsíða 24
Blómkál
Blómkál inniheldur ensím sem geta komið í veg fyrir krabba-
mein og er að auki stútfullt af C- og B-vítamíni ásamt kalíum og
ögn af K-vítamíni. Blómkál er ljúffengt bæði hrátt og soðið.[ ]
S í m i : 5 6 8 6 4 4 0 | b u s a h o l d @ b u s a h o l d . i s
Stá lpottasett á góðu verði
Brúðhjónal istar og gjafakort
Sími 533 1020
NÝJAR VÖRUR
Skeifunni 11d
Matseldin afslöppun
frá daglegu amstri
Sigríður Harðardóttir hefur gaman af að elda og finnst það afslappandi eftir erfiðan dag.
Sigríður Harðardóttir, ritstjóri
og einn eigenda JPV-útgáfu,
er annálaður eðalkokkur og
lumar á mörgum uppskriftum.
Nú eru Sigríður og eiginmaður
hennar, Páll V. Bjarnason arki-
tekt, aðeins tvö í heimili, en þó
börnin séu farin að heiman eru
þau tíðir gestir í föðurhúsum og
oft fjölmennt við matborðið. Sig-
ríður segir að matavenjurnar hafi
tekið einhverjum breytingum í ár-
anna rás, en hún hafi þó alltaf lagt
áherslu á hollt og gott mataræði.
„Við Páll byrjuðum okkar bú-
skap í Bretlandi og fórum
snemma að prófa okkur áfram
með grænmeti. Það kom auðvitað
fyrir að við keyptum eitthvað sem
við kunnum engin skil á eins og
þegar ég fór á Portobello Road og
keypti girnilega, risastóra ban-
ana. Við vorum búin að gera ýms-
ar tilraunir áður en við fengum að
vita að þeir voru ætlaðir til að
sjóða eða steikja og nota sem með-
læti.“
Þegar Sigríður og Páll komu
heim og stofnuðu fjölskyldu seg-
ist Sigríður hafa rekið heimilið
eins og fyrirtæki eða stóbýli.
„Ég tók alltaf slátur og svo
keyptum við svín og naut sem við
verkuðum í frystikistuna. Við
vöndum okkur líka snemma á að
gera stórinnkaup einu sinni í viku,
sem þótti reyndar svolítið nýstár-
legt þá.“
Sigríður var útivinnandi með
þrjú lítil börn og Páll sá oftast um
innkaupin. „Við bjuggum í Hafn-
arfirði þannig að hann fór í Fjarð-
arkaup og tók þá oft stelpurnar
með. Hann var oft að dást að því
hvað hann fékk góða þjónustu, en
einhvern tíma þegar ég fór með
varð uppi fótur og fit. Þá kom í
ljós að afgreiðslustúlkurnar héldu
að hann væri ekkill með þrjú börn
og höfðu snúist í kringum hann
fullar aðdáunar. En það hefur
reyndar alltaf verið frábær þjón-
usta í Fjarðarkaupum,“ segir
Sigríður og skellihlær.
Hún segir að eiginmaðurinn
hafi aldrei verið mjög liðtækur í
eldhúsinu nema hvað hann sé
alltaf með árdegisverð á laugar-
dögum og sunnudögum. „Þá er
hann með egg, beikon og brauð og
hefur vakið aðdáun vinkvenna
minna, sem héldu lengi vel að
hann væri hinn fullkomni eigin-
maður,“ segir Sigríður og hlær
enn meir.
Sigríður eldar kvöldmat á
hverju kvöldi og finnst það bara
afslappandi eftir erfiðan dag.
„Nei, ég lendi aldrei í neinum al-
varlegum krísum með hvað ég á
að hafa í matinn,“ segir hún. „Ég
reyni að hafa þetta einfalt og
gott.“
Hún lumar á fjölda uppskrifta
sem hún hefur sankað að sér í
gegnum árin, en eina hefur hún þó
aldrei prófað sjálf. „Við dvöldum
einu sinni tímabundið hjá vinkonu
minni við Gardavatn, sem er af
ríku fólki og býr þar í reisulegu
húsi með vínkjallara og þjónustu-
fólk. Ráðskonan var vön að búa til
unaðslega spægipylsu og ég bað
hana um uppskrift.
„Já, það er ekkert mál,“ sagði
hún og gaf mér uppskriftina, sem
byrjaði svona:
1 svín.
Ég komst aldrei lengra,“ segir
Sigríður skellilhlæjandi.
Hún gefur lesendum uppskrift
að gómsætum laxarétti.
edda@frettabladid.is
Lax að hætti Sigríðar
1 flak af laxi
1 sítróna
1 límóna
nýmalaður pipar
salt (maldon er best)
hvítvín
Flakið lagt í smjörpappír, saltað og
piprað, sítrónu- og límónusneiðum
raðað á. Hvítvíni hellt yfir og bakað við
200 gráður í tólf til fimmtán mínútur.
BOOMERANG BAY:
Ástralskur sigurvegari
Boomerang Bay Cabernet Shiraz frá Ástralíu, sem kom á markað-
inn hér á landi í fyrra, hefur náð þeim einstaka árangri á skömm-
um tíma að verða söluhæsta 75 cl vínið í Vínbúð-
um og þ.a.l. langsöluhæsta ástralska rauðvínið. Það
hefur verið á kynningarverði á áströlskum dögum í
Vínbúðunum og mokast út en áströlsku dögunum
lýkur nú um helgina.
Rauðvínið Boomerang Bay Cabernet Shiraz kemur
frá hinum virta víngerðarmanni Grant Burge. Vín-
ið er þægileg blanda af þrúgunum cabernet og
shiraz og á mjög hagstæðu verði – þau eru nú
ekki mörg vínin frá Ástralíu sem fást fyrir
minna en þúsund krónur. Nafnið dregur vínið
af flóanum sem vínekrurnar standa við, Bjúg-
verpilsflóa, eins og hin skemmtilega útlegging
á Boomerang Bay er á okkar ástkæra ylhýra!
Von er á fleiri tegundum af Boomerang Bay í
Vínbúðir á komandi mánuðum að sögn inn-
flutningsaðilans Rolfs Johansen & Company.
Kynningarverð á áströlskum dögum 940 kr.