Fréttablaðið - 20.05.2005, Blaðsíða 44
32 20. maí 2005 FÖSTUDAGUR
Maður þarf ekki að vera gæddur spá-dómsgáfu græna geimvitringsins ogjedi-meistarans Yoda til þess að vita
að Stjörnustríðsmyndin Episode III: The
Revenge of the Sith verði ein vinsælasta og
tekjuhæsta bíómynd ársins 2005. Annað er
einfaldlega ómögulegt.
Hér lýkur George Lucas þessum gríðarvin-
sæla stórmyndabálki sínum með miklum lát-
um og ljóst að hinir fjölmörgu aðdáendur hans
um heim allan eiga eftir að gráta sáran yfir því
að sjá þetta mikla ævintýri ekki aftur á hvíta
tjaldinu. Þetta verður til að mynda í síðasta
sinn sem þeir geta upplifað þá stemmningu að
klæða sig upp fyrir biðröð eftir miðum í ein-
hverju Stjörnustríðsgervinu auk þess sem eft-
irvæntingin eftir nýjum sýnishornum eða
fyrstu ljósmyndunum úr næstu mynd mun
einnig heyra sögunni til og blákaldur raun-
veruleikinn taka við.
Star Wars var frumsýnd í Cannes á dögun-
um og á blaðamannafundi til að kynna mynd-
ina voru allar helstu stjörnur myndarinnar
mættar. Natalie Portman, sem fer með hlut-
verk Padmé Amidala, sagði að það hefði verið
frábært að eiga þess kost að leika Amidölu
þrisvar sinnum í jafn mörgum myndum en
þannig gafst henni tækifæri til að þróa per-
sónuna og breyta henni og bæta.
George Lucas var spurður að því hvaðan
innblásturinn að Star Wars hefði komið. Hann
sagði að grunnhugmyndin hjá sér hefði verið
að segja sögu Anakins og tveggja barna hans
en hann gerði sér ljóst að efnið væri of viða-
mikið til að það kæmist fyrir í einni mynd.
Fyrstu þrjár myndirnar eru því ein stór mynd
sem var klippt í þrennt.
Hvað varðar slæma gagnrýni sem Episode
I og II hafa fengið sagðist George ekki kippa
sér upp við hana þar sem hann liti á allar
myndirnar sex sem eina heild og hugsaði ekki
mikið um hvern hluta fyrir sig. Hann skiptir
Star Wars-aðdáendum í tvo hópa, annars veg-
ar þá sem eru yngri en 25 ára og hins vegar þá
sem eru eldri. Þeir síðarnefndu séu hrifnari af
gömlu myndunum og hafi gagnrýnt þær nýju
ómaklega. Hann bendir einnig á að þessi hóp-
ur sé stór í fjölmiðlaheiminum og því fari
meira fyrir skoðunum hans. Hann segist því
bíða spenntur eftir því að ungu aðdáendurnir
vaxi úr grasi og öðlist áhrif í umræðunni en
hann gerir fastlega ráð fyrir því að nýju
myndirnar fái allt öðruvísi og jákvæðari um-
fjöllun eftir um það bil tíu ár.
Samuel L. Jackson var spurður um muninn
á George Lucas og Quentin Tarantino sem
leikstjórum en hann lék einnig veigamikið
hlutverk í Pulp Fiction, sem keppti í Cannes
fyrir um áratug.
„George er rólegri en Tarantino og það
heyrist minna í honum en báðir hafa þeir gef-
ið mér svigrúm til að móta persónur mínar.
Þeir vita báðir vel hvað þeir vilja og leggja
skýrar línur en gefa svo leikurunum lausan
tauminn,“ sagði Jackson.
Hann sagðist vera hæstánægður með að
vera hluti af vinsælum myndum eins og Star
Wars, ekki síst þar sem þær höfðuðu til barna
sem svo yrðu stærri og sæju Pulp Fiction. „Ég
er því alltaf að græða aðdáendur og í hvert
skipti sem ég kem til Cannes með mynd virð-
ist ferill minn færast yfir á nýjar brautir
þannig að ég bíð spenntur eftir því sem koma
skal.“
Episode III: The Revenge of the Sith verð-
ur frumsýnd í dag í sex kvikmyndahúsum hér
á landi en forsala aðgöngumiða hefur gengið
vonum framar.
MÁTTURINN ER MEÐ SVARTHÖFÐA
Myrkrahöfðinginn Hinn „útvaldi“
Sonur Anakin og Padmé.
Tvíburabróir Leiu
Viðgerðarvélmenni Samskiptavélmenni
Fósturforeldrar Luke Skywalker Viðskiptamógúll og
uppreisnarsinni
Wookie, aðstoðarm.
uppreisnarsinna
Jedi-riddari og lærifaðir Anakin Skywalker
Jedi-meistari og læri-
faðir Obi-Wan Kenobi
Háttsettur meðlimur
í Jedi-ráðinu
Jedi-meistariEiginkona Anakin Skywalker og fyrrum
drottning og þingmaður í Naboo
Landsstjóri Alderaan.
Fósturfaðir Leiu
Dóttir Anakin og Padmé.
Tvíburasystir Luke (Loga)
Smyglari og
uppreisnarsinni