Fréttablaðið - 20.05.2005, Blaðsíða 56
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000
Besti
vinurinn
Léttur öllari
Skemmtileg
Íslandssaga
Það getur stundum verið snúið aðvera íslenskur kvenmannsbelg-
ur í Ameríku. En ekki vegna þess
að eitthvað sé að heimamönnum.
Hér er örugglega kurteisasta og
elskulegasta fólk á byggðu bóli.
Ástæðan er öllu heldur sú aðferð
sem brúkuð er til þess að koma litla
stórmennskubrjálaða Íslandi á
kortið. Nýjasta afrekið er kynning
á landi og þjóð í þætti Opruh.
EKKI sá ég téða kynningu og hafði
svo sem ekki hitt neinn sem sá
hana, fyrr en ég fór í boð eitt síð-
astliðið laugardagskvöld, þar sem
konur tvær höfðu séð þáttinn. Þær
spurðu umsvifalaust hvernig ís-
lenskt þjóðfélag stæðist ef fólk
gerði ekkert annað en að drekka
brennivín og gera dodo.
ÞAÐ vakti furðu þeirra að ég,
íslensk kona, skyldi vera mætt,
ódrukkin og uppistandandi, í boð.
Þær höfðu einhvern veginn gert
sér þá hugmynd um íslenskar kon-
ur að þær kæmust aldrei af bakinu.
Lægju bara útaf, með gallonsflösku
af spíra og rör í lúðrinum til þess
að þurfa ekki að lyfta sér of mikið
upp á meðan þær tækju á móti
gestum og gangandi af hinu kyninu.
Skemmtileg Íslandssaga það.
EFTIR því sem lengra leið á kvöld-
ið, fréttu fleiri af þættinum, því
konurnar tvær voru lúsiðnar í
fréttaburðinum. Ég gat vel spæjað
hversu margir fengu að vita allt um
okkur íslensku subburnar, því þær
bentu á mig í hvert sinn sem þær
hófu nýja sögustund. Menn hristu
höfuðið og horfðu sorgmæddir á
þetta rarítet frá Íslandi og þegar
boðinu lauk og mín var að kveðja,
vatt sér að henni maður sem sagði
ósköp vinalega: „Þú ættir að koma
því til skila til fólks á Íslandi að
þetta sé ekki heppileg markaðs-
setning. Það er eins og það búi bara
húsvagnahyski þar,“ og svo rifjaði
hann það upp að fyrir nokkrum
misserum hefði „eitthvert“ flugfé-
lag boðið helgarferðir upp á ís-
lenskar konur.
ÉG var ekkert að segja honum að
það sama flugfélag væri nú að
hefja beint flug til San Fransiskó.
Lét bara eins og það væri ekki
lengur flogið til Íslands, dreif mig
heim og velti fyrir mér að sækja
um ríkisborgararétt í Færeyjum.
Þaðan fréttist fátt.
SÚSÖNNU SVAVARSDÓTTUR
BAKÞANKAR
Hjá ESSO fæst úrval gasgrilla á sjó›heitu ver›i. fiú getur
fengi› grilli› sent heim samdægurs, án endurgjalds,
samansett og tilbúi› til notkunar.* Au›veldara getur fla›
ekki veri›. Grilla›u me› ESSO í sumar!
Grilla›u í kvöld!
*Bo›i› er upp á heimsendingu á höfu›borgarsvæ›inu.
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
G
R
IL
L
I‹
S
E
N
T
HEIM
SAMANS
ET
T
O
G
T
IL
B
Ú
I‹