Fréttablaðið - 21.05.2005, Síða 76

Fréttablaðið - 21.05.2005, Síða 76
■ ■ KVIKMYNDIR  16.00 Kvikmyndasafn Íslands sýnir í Bæjarbíói, Hafnarfirði, dönsku grín- og söngvamyndina Sommer i Tyrol í leikstjórn Eriks Balling, en myndin var áður sýnd í Bæjarbíói á sjöunda áratugnum. Aðalleikarar myndarinnar eru Dirk Passer, Ove Sprogøe og Lone Herts. ■ ■ TÓNLEIKAR  13.30 Japanski ásláttarleikarinn Stomu Yamash’ta frumflytur nýtt verk eftir Ragnhildi Gísladóttur á tónleikum í Skálholtskirkju. Flytj- endur með honum eru Ragnhild- ur Gísladóttir, Sigtryggur Bald- ursson og Sjón ásamt Barna- og kammerkór Biskupstungna og Skólakór Kársness. Heimspekingar og listfræðingar velta því fyrir sér hvort náttúran eigi heima í „ríki markmiðanna“ á ráðstefnu í næsta mánuði. Í næsta mánuði verður haldin ráð- stefna á Selfossi þar sem heim- spekingar, listfræðingar, lista- menn og fleiri áhugamenn um náttúruna fjalla um stöðu náttúr- unnar í samtímanum. Yfirskrift ráðstefnunnar er „Náttúran í ríki markmiðanna“, og er þar verið að vísa í þýska heimspekinginn Immanúel Kant. Kant leit svo á að allar mann- eskjur, svo fremi sem hægt sé að kalla þær skynsemisverur, hljóti að teljast markmið í sjálfum sér og því megi enginn notfæra sér annað fólk í eigin þágu án þess jafnframt að taka fullt tillit til hvers einstaklings. Kant virðist ekki hafa gert ráð fyrir því að líta beri á náttúruna sem markmið í sjálfri sér, þar sem náttúran er ekki skynsemis- vera eftir því sem best verður vit- að. Á þessari ráðstefnu verður hins vegar spurt hvort náttúran eigi ekki samt heima í „ríki mark- miðanna“, það er hvort hún sé ekki markmið í sjálfu sér rétt eins og skynsemisverurnar góðu. Erindi halda bandarísku heim- spekingarnir Emily Brady og Holmes Rolston III og franski heimspekingurinn Roger Pouivet, hollenski listfræðingurinn Antje von Gaevenitz, franski miðalda- fræðingurinn Eric Palazzo og þýska listakonan Mariele Neu- decker ásamt Íslendingunum Páli Skúlasyni og Mikael M. Karlssyni, sem báðir eru heimspekingar, Ósk Vilhjálmsdóttur listamanni, Þor- varði Árnasyni náttúrufræðingi og Brynhildi Davíðsdóttur sem er prófessor í visthagfræði við Boston University. „Síðan heldur Vigdís Finnboga- dóttir lokaerindi á ráðstefnunni en Ólafur Ragnar Grímsson opnar hana með fyrirlestri, sem ekki er bara stutt ávarp heldur fyrirlest- ur sem tengist efni ráðstefnunn- ar,“ segir Ólafur Páll Jónsson heimspekingur, sem skipulagði þessa ráðstefnu ásamt Æsu Sigur- jónsdóttur listfræðingi og Jóni Hjartarsyni, framkvæmdastjóra Fræðslunets Suðurlands. „Okkur langaði að taka fyrir náttúruna út frá sjónarhóli bæði heimspekinnar og listarinnar og erum sammála um að sú nálgun eigi mjög vel við því þá vakna strax spurningar um gildi eða verðmæti. Fókusinn er samt alltaf á náttúruna. Hvaða máli skiptir hún? Hvernig á að umgangast hana? Umræða um þessi mál hér á landi hefur alltaf verið beintengt ákveðnum deilumálum en hug- myndin með þessari ráðstefnu er ekki að fara inn í þær deilur held- ur ræða um þessi málefni á svolít- ið fræðilegum grundvelli. En svo getur verið að út úr því komi ým- islegt sem hefur afleiðingar fyrir deilurnar.“ Ráðstefnan „Náttúran í ríki markmiðanna“ verður haldin 11. og 12. júní í Fjölbrautarskóla Suð- urlands á Selfossi. ■ 52 21. maí 2005 LAUGARDAGUR EKKI MISSA AF… ... sýningu á rjóma íslenskra vefsíðna og margmiðlunarefnis í Öskju, náttúrufræðihúsi Háskóla Íslands í Vatnsmýrinni milli klukk- an 13 og 16. ... fyrirlestri Oddnýjar Eirar Æv- arsdóttur um safnara og sýningu á japanskri bíómynd um ófreskj- una Godzilla á safnarasýningunni í Gerðubergi á morgun. ... tónleikum flautuleikarans Pamela de Sensi og hörpuleikar- ans Sophie Marie Schoonjans í Neskirkju á morgun. Sænsku rithöfundarnir Anders Roslund og Börge Hellström hrepptu Glerlykilinn fyrir bestu norrænu glæpasöguna árið 2005. Bók þeirra heitir Odjuret, eða Ókindin og í henni segir frá barnaníðingi sem myrðir tvær ungar stúlkur á hryllilegan hátt. Verðlaunin voru afhent úti í Kaupmannahöfn í gær á veit- ingahúsinu Café Jonas, sem heitir í höfuðið á listaskáldinu góða, Jónasi Hallgrímssyni. Ævar Örn Jósepsson var til- nefndur fyrir Íslands hönd fyrir glæpasögu sína, Svartir englar, en hreppti ekki hnossið að þessu sinni. „Íslendingarnir hérna voru að tala um að þetta væri hálfgert Selmusvekkelsi,“ segir Erla Sigurðardóttir, ritstjóri í Kaupmannahöfn, sem var viðstödd verðlaunaafhend- inguna. „Fulltrúarnir frá hinum lönd- unum voru líka mjög hrifnir af bók Ævars og margir svo- lítið hissa á því að Svíarnir skyldu hljóta þetta.“ Ævar Örn var reyndar í hálf- undarlegri aðstöðu vegna þess að hann var í senn til- nefndur fyrir Íslands hönd til verðlaunanna og jafnframt formaður norrænu samtak- anna Skandinaviska krim- inalsälskapet, sem veitir verðlaunin. Hann kom þó hvergi nálægt dómnefndinni. Kl. 16.00 Hinir árlegu vortónleikar Gradualekórs Langholtskirkju verða haldnir í dag. Á efnisskránni eru að vanda íslensk og er- lend verk fyrir barnakóra. Gestur á tón- leikunum verður Graduale Futuri, sem er yngri barnakór kirkjunnar. Stjórnandi er Jón Stefánsson og undirleikari Arn- gerður María Árnadóttir. menning@frettabladid.is Selmusvekkelsi í Kaupmannahöfn Náttúran á meðal vor ! HVAÐ? HVENÆR? HVAR? 19 20 21 22 23 Laugardagur MAÍ STÓRA SVIÐ 99% UNKNOWN - Sirkussýning CIRKUS CIRKÖR frá SV´ÍÞJÓÐ Þri 14/6 kl 20, Mi 15/6 kl 20, Fi 16/6 kl 20, Fö 17/6 kl 20 Aðeins þessar sýningar 25 TÍMAR Dansleikhús / samkeppni LR og Íd í samstarfi við SPRON. Fi 9/6 kl 20 - 2.500,- Einstakur viðburður DRAUMLEIKUR e. Strindberg. Samstarf: Leiklistardeild LHÍ. Fö 27/5 kl 20 Síðustu sýningar HÍBÝLI VINDANNA leikgerð Bjarna Jónssonar eftir Vesturfarasögu Böðvars Guðmundssonar Su 22/5 kl 20, Fi 26/5 kl 20 Síðustu sýningar HÉRI HÉRASON e. Coline Serreau Lau 28/5 kl 20 Síðasta sýning KALLI Á ÞAKINU e. Astrid Lindgren Í samstarfi við Á þakinu Su 22/5 kl 14 - UPPS., Lau 4/6 kl 14 UPPS. Su 5/6 kl 14 - UPPS., Su 12/6 kl 14, Su 12/6 kl 17, Lau 18/6 kl 14, Su 19/6 kl 14, Su 26/6 kl 14 NÝJA SVIÐ/LITLA SVIÐ/ÞRIÐJA HÆÐIN ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR Einleikur Eddu Björgvinsdóttur. Su 22/5 kl 20, Fi 26/5 kl 20 - UPPS., Fö 27/5 kl 20, Lau 28/5 kl 20, Su 29/5 kl 20, Fi 2/6 kl 20, Fö 3/6 kl 20 THE SUBFRAU ACTS - GESTALEIKSÝNING The paper Mache og Stay with me Fi 26/5 kl 20, Fö 27/5 kl 20 Börn 12 ára og yngri fá frítt í Borgarleikhúsið í fylgd fullorðinna - gildir ekki á barnasýningar Miðasölusími 568 8000 • midasala@borgarleikhus.is Miðasala á netinu www.borgarleikhus.is • Miðasalan í Borgarleikhúsinu er opin: 10-18 mánudaga og þriðjudaga, 10-20 miðviku-, fimmtu- og föstudaga 12-20 laugardaga og sunnudaga EDITH PIAF Á AUSTURLANDI 1. OG 2. JÚNÍ! Stóra sviðið kl. 20:00 DÍNAMÍT – Birgir Sigurðsson 7. sýn. í kvöld lau. 21/5, 8. sýn. fim. 26/5 örfá sæti laus, 9. sýn. fös. 3/6, 10. sýn. lau. 11/6, 11. sýn. sun. 12/6. KLAUFAR OG KÓNGSDÆTUR – H.C Andersen Sun. 22/5 kl. 14:00 örfá sæti laus, lau. 28/5 kl. 14:00 nokkur sæti laus, sun. 5/6 kl. 14:00. Síðustu sýningar í vor. EDITH PIAF – Sigurður Pálsson Sun. 22/5 uppselt. Síðasta sýning í vor. ÞETTA ER ALLT AÐ KOMA – Hallgrímur Helgason/leikgerð Baltasar Kormákur Fös. 27/5 nokkur sæti laus, lau. 28/5, lau. 4/6 nokkur sæti laus, fim. 9/6, fös. 10/6. Aðeins örfáar sýningar vegna fjölda áskorana. MÝRARLJÓS – Marina Carr Sun. 29/5. Allra síðasta sýning Litla sviðið kl. 20:00 KODDAMAÐURINN – Martin McDonagh Mið. 25/5 nokkur sæti laus, fim. 26/5 örfá sæti laus. Síðustu sýningar í vor. Ekki er hægt að hleypa inn í salinn eftir að sýning er hafin. Smíðaverkstæðið kl. 20:00 RAMBÓ 7 – Jón Atli Jónasson Sun. 22/5 örfá sæti laus, fös. 27/5, lau. 28/5 Valaskjálf Egilsstöðum: EDITH PIAF Á AUSTURLANDI – söngdagskrá Mið. 1/6 kl. 20:00, fim. 2/6 kl. 20:00. Miðasala á Bókasafni Héraðsbúa. Opið alla virka daga frá kl. 14-19. Sími 471 1546 . . ÓLAFUR PÁLL JÓNSSON Ráðstefna heimspekinga, listfræðinga, listamanna og annarra náttúruunnenda verður haldin á Selfossi í næsta mánuði.             !!"! #$!%&$'(                ! "#                              !   "  #          $          $    %&   %&   %    '    %    #      %     ( )"  "   *  + "   ,   )  " #     !       %  '    -.  -/011
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.