Fréttablaðið - 11.06.2005, Síða 44
11. júní 2005 LAUGARDAGUR16
Vissir þú ...
...að Sergiy Naidych frá Úkraínu
sigldi seglbretti í 71 klukkustund
og þrjátíu mínútur á Raydschev-
vatni í Úkraínu árið 2002 og er
það lengsta seglbrettamaraþon í
heimi?
...að EMI-útgáfan telur að rúm-
lega einn milljarður diska og seg-
ulbanda af Bítlaplötum hafi selst
til þessa.
...að talið er að sex hundruð
milljónir manna hafi fylgst með
því í beinni útsendingu í sjón-
varpi þegar geimfarar Apollo 11
stigu fyrstir manna á tunglið eða
fimmtungur mannkyns?
...að stærsta útgefna bók heims
nefnist Bhutan og er 116 litsíðna
bók sem vegur 60,3 kíló, er 1,52
metrar á hæð og 2,13 metra
breið þegar hún er opnuð?
...að El Apóstol var fyrsta teikni-
myndin í fullri lengd eða alls sjö-
tíu mínútur en hún er frá Argent-
ínu?
...að fyrsta kvikmyndahús heims
þar sem sýningartjöldin ná í heil-
an hring er staðsett í Evrópugarði
lifandi mynda í Futuroscope
nærri Poitiers í Frakklandi?
...að stærsta handtaska heims er
3,7 metrar á hæð, 3,54 metrar á
breidd og 1,6 metrar á dýpt og
var framleidd af Santa Marinella
leðurfylgihlutaframleiðandanum í
Brasilíu?
...að lengsta teikning eftir númer-
um er 378 fermetrar og var unnin
á Eyja-hátíðinni í Búdapest í Ung-
verjalandi 28. júlí árið 2003?
...að bandaríski sjóherinn hefur
flestar flugvélar í þjónustu sinni
af öllum sjóherum, eða rúmlega
fjögur þúsund?
...að mest notaða alþjóða síma-
leiðin er á milli Bandaríkjanna og
Kanada samkvæmt upplýsingum í
TeleGeography en talað var í 10,9
milljarða mínútna á milli land-
anna árið 2002?
...að Ray Tomlinson frá Bandaríkj-
unum sendi fyrsta tölvupóstinn
árið 1971 þegar hann vildi láta
reyna á hvort tvær tölvur gætu
skipst á skilaboðum?
...að fyrsta þekkta löggjafarþingið
eða ukkim var tveggja deilda
samkoma í Erech í Írak árið 2800
fyrir Krist? Elsta starfandi löggjaf-
arsamkundan er hins vegar
Alþingi Íslendinga sem stofnað
var árið 930 eftir Krist.
...að kvikasilfur hefur lægsta
bræðslu- og suðumark allra
málma, eða -38,829 ˚C og
356,62 ˚C?
Sími 691 0381
Kristín Björg
Rope Yoga 4 og 8 vikna námskeið
mánudaga, miðvikudaga og föstudaga kl. 7.30 – 8.35 og 18.30
Blómstraðu og njóttu þess í sumar
Breyttu stirðleika í mýkt og styrk.
S: 588 5518 Opnunartími • Mörkinni 6
mán. – fös. 10 – 18 • lau. 10 – 16
Landsins mesta úrval
af yfirhöfnum
» FRÁBÆR SJÓNVARPSDAGSKRÁ ALLA DAGA FÖ
ST
U
D
A
G
U
R
LA
U
G
A
R
D
A
G
U
R
SU
N
N
U
D
A
G
U
R
M
Á
N
U
D
A
G
U
R
ÞR
IÐ
JU
D
A
G
U
R
M
IÐ
VI
K
U
D
A
G
U
R
FI
M
M
TU
D
A
G
U
R