Fréttablaðið - 03.08.2005, Blaðsíða 66

Fréttablaðið - 03.08.2005, Blaðsíða 66
Laugardag 6. ágúst Föstudag 12. ágúst frá kl. 9.00 til 17.00 alla virka daga. ■ ■ TÓNLEIKAR  20.00 Slóvanski kórinn Obala Koper kemur fram á Sumartónleik- um í Skálholtskirkju, en það er ein af nýjungum Sumartónleika í ár að bjóða upp á kvöldtónleika á virkum dögum. Á efnisskrá verða verk eftir Sergej Rachmaninov, Felix Mendels- sohn Bartholdy, Vytautas Miskinis, Mario Castelnuovo Tedesco, Ambroz Copi, Aldo Kumar og þjóðlög frá Istra í Slóveníu. ■ ■ FUNDIR  20.00 Félag ábyrgra feðra efnir til almenns fundar miðvikudaginn 3. ágúst kl. 20.00 í Félagsmiðstöðinni Árskógum 4 (neðst í Seljahverfinu). Allir velkomnir ■ ■ KEPPNIR  21.00 Dragkeppni Íslands haldin í áttunda sinn. Keppnin fer fram á Gauki á Stöng að þessu sinni. Tónlistarmaðurinn Valgei Guð- jónsson spilaði aftur með Stuð- mönnum í fyrsta skipti í meira en áratug er sveitin tróð upp í Fjöl- skyldugarðinum á laugardaginn að viðstöddum um 8.000 þúsund manns. „Þetta voru mjög ánægjulegir tónleikar. Þarna léku eiginlega tvær hljómsveitir, fyrst steig á svið hin upphaflega útgáfa Stuð- manna sem spilaði bara einu sinni saman á árshátíðinni í Mennta- skólanum í Hamrahlíð árið 1970, og svo lék sveitin eins og hún er skipuð í dag. Það var virkilega gaman að spila aftur með Stuð- mönnum, en eins og stundum hef- ur verið sagt þá hef ég engu gleymt og ekkert lært. Stórkost- legt var að heyra fólk syngja með hástöfum en ég held að það sé ekkert ánægjulegra fyrir tónlist- armenn en þegar fólk hefur lagt það á sig að læra textana þeirra,“ segir Valgeir. Valgeir segir hins vegar ekki hafa verið rætt um að hann gangi aftur til liðs við sveitina. „Þetta voru bara þessir einu sérstöku tónleikar en rosalega var þetta skemmtilegt.“ Jakob Frímann Magnússon Stuðmaður segir mikil hátíða- brigði hafa verið af nærveru Val- geirs og annarra frummanna Stuðmanna, þeirra Gylfa Kristins- sonar og Ragnars Daníelssonar, á tónleikunum um helgina. Tónleik- arnir voru helgaðir minningu tón- listarmannsins Long John Baldry sem söng lagið She Broke My Heart með Stuðmönnum um árið en hann féll frá á dögunum. Jakob segir að Stuðmenn fari nú í kærkomið frí fram til 27. ágúst þegar sveitin kemur fram á hinni árlegu Gróttuhátíð á Seltjarnarnesi. ■ Valgeir ánæg›ur me› endurkomu sína M YN D /A N TO N B R IN K VALGEIR GUÐJÓNSSON Tónlistarmaðurinn geðþekki lék með Stuðmönnum í fyrsta sinn í meira en 10 ár þegar sveitin tróð upp í Fjölskyldugarðinum á laugardaginn. Hér sést Valgeir stíga á sviðið á laugardaginn með mannhafið í baksýn. Sir Sean Connery ætlar að hætta að leika í kvikmyndum vegna þess að hann er kominn með leið á „fífl- unum“ sem nú ráða ríkjum í Hollywood. Connery, sem er 74 ára, segist ekki ætla að leika aftur nema hann fái svimandi hátt tilboð sem hann geti ekki hafnað. Talsmaður Conn- ery sagði þó að hann hefði leikið í Bond-myndinni Never Say Never Again og því væri ekki hægt að úti- loka neitt í framtíðinni. Síðasta mynd Connery, The League of Extraordinary Gentlemen, kom út árið 2003. Í við- tali við nýsjálenskt dagblað segist Connery einnig hafa hafnað hlut- verki Gandalfs í Hringadróttins- sögu af því að hann skildi ekki hlutverkið. Auk þess segist hann hafa hætt við að skrifa sjálfsævi- sögu sína vegna þess að útgefand- inn vildi að hann kafaði dýpra ofan í einkalíf sitt en hann kærði sig um. ■ Hættur a› leika SEAN CONNERY Leikarinn sem gerði garðinn frægan sem James Bond hefur gefið Hollywood upp á bátinn. SÆNSKIR PLÖTUSNÚÐAR Þeir Social og Leaf ásamt Eldari Ástþórssyni (til hægri) hjá Breakbeat.is sem stendur fyrir komu þeirra til landsins. Svíar fleyta skífum Sænsku plötusnúðarnir Leaf og Social spila á klúbbakvöldi Break- beat.is á Pravda í kvöld. Þeir eru báðir fastir plötusnúðar á Strukt- ur-kvöldunum í Gautaborg, en það eru mánaðarleg kvöld með svip- uðu sniði og Breakbeat.is-kvöldin Leaf spilaði síðast hér á landi á Iceland Airwaves-hátíðinni þar sem hann hitaði upp fyrir London Elektricity. Hann hefur verið lengi í bransanum og spilað með virtum drum & bass plötusnúðum á borð við Alex Reece og Dom & Roland. Sænska innrásin á Pravda hefst klukkan 21.00 í kvöld og er frítt inn til 22.30. ■ HUGSAÐU STÓRT SÍMI 564 0000 Sýnd kl. 5.20, 8 og 10.40 Sýnd í lúxus kl. 10.40 B.i. 16 ára Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 Sýnd í lúxus kl. 5.30 og 8 B.i. 16 ára Sýnd kl. 5.30 B.i. 14 ára - Síðustu sýningar Sýnd kl. 10.30 B.i. 16 ára SKEMMTILEGASTA STÓRMYND SUMARSINS Nú eru það fangarnir gegn vörðunum! MasterCard forsýning kl.8 2 fyrir 1 tilboð fyrir korthafa Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 MEÐ BRUCE WILLIS Í TOPPFORMI HVERJU MYNDIR ÞÚ FÓRNA FYRIR FJÖLSKYLDUNA? MAGNAÐUR SPENNUTRYLLIR AF BESTU GERÐ HUGSAÐU STÓRT SÍMI 564 0000 „...MYND SEM HÆGT ER AÐ LÍKJA VIÐ DIE HARD, SPENNANDI OG SKEMMTILEG...“ ★★★ -ÓÖH DV „ÞRUSUVEL HEPPNUÐ SPENNUMYND“ ★★★1/2 -ÓÖH K&F HUGSAÐU STÓRT Sýnd kl. 5.30 og 10.30 B.i. 16 ára Sýnd kl. 5.45, 8.30 og 10.45 B.i. 16 ára Sýnd kl. 8 og 10 B.i. 16 ára SKEMMTILEGASTA STÓRMYND SUMARSINS Nú eru það fangarnir gegn vörðunum! Sýnd kl. 6, 8.30 og 11 MEÐ BRUCE WILLIS Í TOPPFORMI MAGNAÐUR SPENNUTRYLLIR AF BESTU GERÐ Sýnd kl. 5.30 B.i. 10 ára - Síðustu sýningar 400 kr. í bíó! Gildir á allar sýningar merktar með rauðu SÍMI 551 9000 HVERJU MYNDIR ÞÚ FÓRNA FYRIR FJÖLSKYLDUNA? „...MYND SEM HÆGT ER AÐ LÍKJA VIÐ DIE HARD, SPENNANDI OG SKEMMTILEG...“ ★★★ -ÓÖH DV „ÞRUSUVEL HEPPNUÐ SPENNUMYND“ ★★★1/2 -ÓÖH K&F MasterCard forsýning kl.8 2 fyrir 1 tilboð fyrir korthafa 66-67 (30-31) BÍÓhúsin 2.8.2005 20:06 Page 2
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.