Fréttablaðið - 03.08.2005, Blaðsíða 18
Rakarar græða á samruna
Menn spyrja sig gjarnan þegar stórviðskipti eiga
sér stað: „Hvað græði ég nú á þessu öllu saman?“
Von er að spurt sé, en auk þess að hluthafar hagn-
ist á uppgangi á verðbréfamörkuðum gætir þess á
ýmsum stöðum þegar vel gengur. Þegar frágengið
var um skiptingu Burðaráss milli Landsbankans og
Straums var boðað til blaðamannafundar. Björg-
ólfsfeðgar eru annáluð snyrtimenni og fannst eftir
setuna við samningaborðið að þeir þyrftu aðeins
að hafa sig til í tilefni dagsins. Því ruku þeir feðgar
til rakarans síns og voru klipptir í hvelli og mættu
svo nýklipptir og fínir á fundinn. Þeir feðgar eru
tíðir gestir hjá rakaranum, en þarna var tekin ein
aukaklipping í tilefni dagsins og rennur sú væntan-
lega beint inn í hagkerfið.
Hluthöfum fjölgar
Samruni Burðaráss við Landsbankann og Straum
er forvitnilegur fyrir þær sakir að hluthöfum á ís-
lenska markaðnum fjölgar mjög þrátt fyrir fækkun
fyrirtækja um eitt. Burðarás er næstfjölmennasta
almenningshlutafélag landsins með um 19.300
hluthafa. Um tólf þúsund aðilar eru eigendur að
Landsbankanum og fjögur þúsund í Straumi. Eftir
kaup Landsbankans á öðrum hluta Burðaráss fjölg-
ar eigendum hans upp í
27.700 en við sam-
runa Straums og
Burðaráss verða
hluthafar um 22
þúsund. Með því
að skipta Burðarási
upp fjölgar hluthöf-
um á íslenska mark-
aðnum um fjórtán
þúsund í einu vetfangi.
MESTA HÆKKUN
ICEX-15 4.387,77
KAUPHÖLL ÍSLANDS [ HLUTABRÉF ]
Fjöldi viðskipta: 431
Velta: 4.279 milljónir
+1,87%
MESTA LÆKKUN
MARKAÐSFRÉTTIR...
Verð á hráolíu hefur lækkað á
heimsmarkaði en verðið fór yfir
62,30 dali tunnan í viðskiptum í
New York á mánudaginn.
Gengi jensins hefur hækkað
gagnvart helstu myntum í kjölfar
ummæla japanska seðlabanka-
stjórans Fukui um að hagvöxtur
sé að aukast þar í landi og verð-
bólga geti myndast fyrir árslok.
Á öðrum ársfjórðungnum skil-
aði Statoil 67 milljarða króna
hagnaði samanborið við við 44
milljarða íslenskra króna á sama
tímabili í fyrra. Hagnaður Statoil
jókst því um 55 prósent milli ára.
Gengi bréfa í olíufyrirtækjum
eins og Royal Dutch, Chevron-
Texaco, BP, Exxon Mobil og Norsk
Hydro hefur hækkað mikið frá
áramótum, eða um 10 til 30 pró-
sent.
18 3. ágúst 2005 MIÐVIKUDAGUR
KOMNIR INN Í ESSO Burðarás hefur
keypt af Gretti hlutabréf í eignarhaldsfélög-
unum Eglu og Keri, sem á Olíufélagið
ESSO.
Bur›arás
kaupir í Keri
og Eglu
Burðarás hefur keypt af Fjárfest-
ingarfélaginu Gretti hluti í Keri
og Eglu fyrir 10,7 milljarða króna.
Kaupverðið verður annars vegar
greitt með peningum að upphæð
725 milljónir króna en hins vegar
með útgáfu nýs hlutafjár í Burða-
rási og greiðslu með eigin bréfum
að upphæð tíu milljarðar króna.
Ker er eignarhaldsfélag sem á
Olíufélagið að öllu leyti og tvo
þriðju hluta hlutafjár í Samskip-
um. Grettir átti líklega um þriðj-
ungshlut í Keri. Egla er næst-
stærsti eigandinn í KB banka með
um ellefu prósenta hlut. Hlutur
Burðaráss í Eglu er um fjögur
prósent.
Ólafur Ólafsson, stjórnarfor-
maður í Samskipum, er ráðandi
hluthafi í Keri og Eglu.
- eþa
Peningaskápurinn…
Actavis 42,20 +0,72% ... Bakkavör
38,90 +0,26%... Burðarás 17,00 +3,66%... FL Group 14,50 -1,36% ...
Flaga 4,74 +0,00% ...HB Grandi 8,45 -0,59% ... Íslandsbanki 14,45
+3,96% ... Jarðboranir 21,50 -0,46% ... KB banki 557,00 -0,18% ... Kög-
un 58,50 +0,00% ... Landsbankinn 20,60 +7,29% ... Marel 58,50
+0,17% ... SÍF 4,78 +0,00 ...Straumur 13,25 +5,16% ... Össur 87,00
+0,58%
Landsbankinn +7,29%
Straumur +5,16%
Íslandsbanki +3,96%
FL Group -1,36%
Grandi -0,59%
Og Vodafone -0,47%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU:
Umsjón: nánar á visir.is
OG VODAFONE Reykjavíkurborg hefur
samið við Og Vodafone um fjörutíu ljós-
leiðaratengingar fyrir helstu starfsstöðvar
sínar.
Borgin semur
vi› Og Vodafone
Reykjavíkurborg hefur samið við
Og Vodafone um fjörutíu ljósleið-
aratengingar fyrir helstu starfs-
stöðvar sínar til næstu fjögurra
ára. Er ætlunin að tengja saman
grunnskóla og ýmsar stofnanir
Reykjavíkurborgar. Flutnings-
geta er frá hundrað megabætum á
sekúndu til eins gígabæts með
möguleika á stækkun í tíu gíga-
bæt.
Og Vodafone annast jafnframt
viðbragðseftirlit fyrir Reykjavík-
urborg vegna ljósleiðaratenging-
ana. Verðmæti samningsins er um
111 milljónir króna.
-jsk
18-55 (18-19) viðskipti 2.8.2005 20:26 Page 2