Fréttablaðið - 03.08.2005, Blaðsíða 12
12 03. ágúst 2005 MIÐVIKUDAGUR
Tekur myndir af
ferfættum vinum
Inger Helene Bóasson ljósmyndari býður upp á þá þjónustu að taka myndir af
gæludýrum. Hún segir að Íslendingar sýni áhuga en hafi enn sem komið er lítið
lagt leið sína með ferfætlinga á ljósmyndastofu.
Gæludýraeign landsmanna hefur
aukist gríðarlega á síðustu árum
svo og þjónusta í kringum þau. Eitt
af því sem eigendum gæludýra
finnst ómissandi eru myndir af vin-
um sínum. Ekki hefur tíðkast að
fara með dýr sérstaklega á ljós-
myndastofur en á því gæti orðið
breyting.
Inger Helene Bóasson er ein
þeirra sem bjóða Íslendingum upp á
að taka myndir af ferfættum og
loðnum vinum. Hún er fædd og upp-
alin í Noregi en er íslensk að einum
fjórða og hefur dvalist á Íslandi
annað veifið. Hún rak sína eigin
ljósmyndastofu í Drammen í Nor-
egi í tuttugu ár en ákvað árið 2001
að rífa sig upp, selja bæði fyrirtæki
og íbúð, flytja til Íslands, kaupa sér
jeppa og ferðast frjáls og óháð um
landið og taka myndir af því sem
hana lysti.
Hún segir Íslendinga sýna þó
nokkurn áhuga á því að láta taka
myndir af gæludýrum en enn sem
komið er hafi fáir látið verða af því.
Hún segir að vissu leyti erfiðara
að taka myndir af dýrum. „Þau
skilja auðvitað ekki þegar maður
talar við þau en ég held að allt snú-
ist þetta um tilfinningu,“ segir
Inger, sem viðurkennir þó að erfitt
geti verið að hafa hömlur á tveimur
líflegum kettlingum sem ekki vilji
sitja kyrrir. „Maður tekur þá mikið
fleiri myndir og verður að velja úr
eftir á,“ segir Inger hlæjandi en hún
er sjálf uppalin á sveitabæ í Noregi.
Inger hefur skoðað töluvert af
myndum á netinu hjá eigendum
gæludýra. „Það er svo mikið í kring-
um myndina sem skemmir þannig
að dýrið nýtur sín ekki,“ segir
Inger, sem telur að bakgrunnurinn
skipti höfuðmáli þegar taka á góða
mynd af dýri.
Inger tekur myndir af öllum dýr-
um sem beðið er um þó hún sé hrifn-
ari af þeim minni. Skrítnasta dýrið
var þó stór bóaslanga sem hún
myndaði í Noregi. „Ég var ekkert
hrædd og það var bara þægilegt að
koma við hana,“ minnist Inger, sem
býður fólki einnig upp á það að
koma í heimahús til að mynda dýr-
in.
Hægt er að skoða fleiri myndir á
heimasíðu Inger, www.photo-
ihb.com solveig@frettabladid.is
ÁSTKÆRA YLHÝRA
Er gaman a›?
Nýjasta og heitasta æðið í mál-
farsruglingi er að þekkja ekki
muninn á að og af, en þar sem
ambögur eru lífseigari en flestar
fatabylgjur er ástæða til að eyða
á þetta fyrirbæri nokkrum orðum.
Sumir tala og skrifa um að „hafa
gaman AГ einhverju í stað þess
að hafa gaman af. Það er svo
sem ekkert mál að klúðra þessu
með því að skrifa bara eftir
talanda, en það má skipta gamn-
inu út fyrir ýmislegt, til dæmis
peninga, til að sjá hversu asna-
legt þetta er í rauninni. „Svika-
hrappur hafði milljónir að gamalli
konu“ er vonandi nógu gapandi
klúðurslegt til að vekja þá sem
ekki eru klárir á þessu atriði.
magnus@frettabladid.is
Við ferðalangar komum bara nokkuð vel
undan verslunarmannahelginni. Urðum
ekki varir við mikla umferð enda reynd-
um við að sneyða hjá henni eins og kostur
var. Lundaveiðin gekk þó ekki sem skyldi
enda næstum algert logn. Þó fengum við
fimm upp úr krafsinu og bíður matseld
þeirra betri tíma.
Við erum þegar þetta er ritað staddir á
Hótel Hamri í Borgarnesi þar sem við
fengum að reyna í fyrsta sinn að spila
golf. Okkur fórst það bara nokkuð vel úr
hendi að eigin mati og aldrei að vita nema
menn fari að stunda þetta svona í ellinni.
Þegar við komum í söluskálann Baulu á
sunnudag hittum við Helgu vinkonu
Bjarka sem ákvað að bjóða okkur í mat en
þá um kvöldið skelltum við okkur í heitan
pott við sumarbústað í Skorradal en þá
höfðum við komist alla leið í Borgarnes.
Við erum farnir að gera út í bænum
núna. Fáum því að sofa heima hjá okkur
og keyrum dag hvern þangað sem við
hættum degi fyrr. Það var yndislegt að
sofa í eigin rúma og að koma heim og taka
allt upp úr töskum og setja á sinn stað.
Það er frábært að búa ekki lengur í
töskum.
Ferðinni fer nú alveg að ljúka. Við
lokum hringnum klukkan þrjú við Rauða-
vatn á morgun og ætlum að ganga með-
fram Hringbraut, Sóleyjargötu og að Ing-
ólfstorgi þar sem boðið verður upp á eitt-
hvað sprell í tilefni dagsins um fimmleytið.
Hlökkum til að sjá sem flesta þá. Kær
kveðja, Guðbrandur og Bjarki.
Spilu›u golf á hótel Hamri
HALTUR LEIÐIR BLINDAN: PÓSTKORT FRÁ BJARKA OG GUÐBRANDI
nær og fjær
„Starfi› sameina›i
flannig stórhættuleg
eiturefni og jó›l. fia› er
varla hægt a› bi›ja um
miki› meira.“
ÓTTARR PROPPÉ BÓKSALI Í FRÉTTA-
BLAÐINU.
„Kærastan mín átti a›
fara í flug um kvöldi›
og ba› lögregluna um
a› sækja vegabréfi›
sitt upp í íbú› en fla›
var bara hlegi› a›
okkur.“
ORRI PÉTURSSON, ÍBÚI Í LONDON, Í
FRÉTTABLAÐINU.
OR‹RÉTT„ “
Þriðja líkamsárás
Árna á þjóðhátíð
Hefur Árni sungið
sinn síðasta
brekkusöng?
Íþróttamannvirki hljóta nöfn:
Brattahlí› og
Byltan
Nýrisin íþróttamannvirki á
Bíldudal og Patreksfirði hafa
hlotið nöfn. Patreksfirðingar
munu stunda sínar leikfimi-
æfingar í Bröttuhlíð en Bíl-
dælingar geta hrist kroppinn í
Byltunni.
Bæjarstjórnin í Vesturbyggð
hafði leitað eftir innblæstri frá
almenningi með nöfn á mann-
virkin. Hún valdi úr fjögur nöfn
á hvert hús og síðan gafst fólki
kostur á að kjósa um nöfnin á
netinu. Bæjarstjórnin ákvað síð-
an endanlega nafngift með nið-
urstöður könnunarinnar til hlið-
sjónar.
Þótti bæjarfulltrúum
Brattahlíð viðeigandi fyrir
Patreksfirðinga og Byltan gott
nafn fyrir Bíldælinga. - sgi
GLÆSILEGUR Góður ótruflandi bak-
grunnur er mikilvægur þegar teknar eru
myndir af dýrum. Þannig njóta þau sín
best að mati Inger.
LOÐINN VINUR Inger segir það taka lengri tíma að ná góðum myndum af dýrum en
mönnum enda ekki hægt að segja þeim hvernig þau eigi að standa eða sitja.
LJÓSMYNDARINN Inger Helene Bóasson seldi bæði íbúð og fyrirtæki í Noregi og fluttist til Íslands árið 2001 til að vera frjáls og taka
myndir af því sem hana langaði til.
IN
G
ER
H
EL
EN
E
B
Ó
SS
O
N
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
LI
12-13 tilveran / myndir 2.8.2005 22:04 Page 2