Fréttablaðið - 03.08.2005, Blaðsíða 10
10 3. ágúst 2005 MIÐVIKUDAGUR
Samfylkingin á Akureyri heldur lokað prófkjör fyrir sveitarstjórnarkosningarnar:
Stefnir í átök um efstu sætin
KOSNINGAR Líklega munu að
minnsta kosti sex einstaklingar
sækjast eftir fjórum efstu sæt-
unum á lista Samfylkingarinnar
á Akureyri í komandi sveitar-
stjórnarkosningum. Oktavía Jó-
hannesdóttir leiddi listann síð-
ast og gera flestir Samfylking-
armenn á Akureyri því skóna að
hún muni sækjast eftir því á ný.
Hún segist ekki hafa gert upp
hug sinn og muni ekki gera það
fyrr en í haust.
Hermann Jón Tómasson skip-
aði annað sæti á listanum í síð-
ustu kosningum en stefnir nú á
það fyrsta.
Sigrún Stefánsdóttir var í
þriðja sæti en hefur hug á að
færa sig upp um eitt og Jón Ingi
Cæsarsson hefur sett stefnuna á
annað eða þriðja sætið en hann
var í því fjórða síðast.
Helena Karlsdóttir var ekki á
listanum fyrir þremur árum en
segir hugsanlegt að hún bjóði
sig fram í eitt af þremur efstu
sætunum og Hermann Óskars-
son, sem var í 13. sæti, er að
hugleiða að bjóða sig fram í eitt
af fjórum efstu sætunum.
Ingi Rúnar Eðvarðsson sem
skipaði fimmta sæti listans síð-
ast segist ekki ætla að taka sæti
á listanum að þessu sinni.
- kk
Vöxtur hefur orðið í ám norðan Vatnajökuls vegna hlýindanna undanfarið:
Bílar skemmdust vegna fló›a
HÁLENDIÐ Nokkrir bílar skemmd-
ust í Lindá við Herðubreiðarlind-
ir um helgina þegar vatn flóði
yfir vélar þeirra.
Hrafnhildur Hannesdóttir,
landvörður í Herðubreiðarlind-
um, segir að í hlýindunum og
góðviðrinu að undanförnu hafi
vaxið mjög í Jökulsá á Fjöllum.
Þá hækkar einnig í Lindá sem bíl-
ar þurfa að fara yfir á leið sinni í
Herðubreiðarlindir og Öskju.
„Við höfum haft í nægu að
snúast alla helgina við að draga
bíla upp úr Lindá. Vélar skemmd-
ust í sumum en aðrir hafa komist
í gang aftur.“ Hrafnhildur segir
að þrátt fyrir þetta hafi enginn
verið hætt kominn vegna flóð-
anna.
Talsverð umferð hefur verið
við Öskju og í Herðubreiðarlind-
um um Verslunarmannahelgina
og gisti umtalsverður fjöldi á
tjaldstæðum og í skálum í
Herðubreiðarlindum og í Dreka-
gili við Öskju. „Umferðin var
minni í Kverkfjöll, sennilega
vegna þess að í mestu vatna-
vöxtunum flæddu Kreppa og
Jökulsá yfir vegina í grennd við
brýrnar í Krepputungu,“ segir
Hrafnhildur. - jh
fivinga›ur til kaupa á ís
og vatni fyrir milljónir
Kristinn Pétursson fiskverkandi segir landvinnsluna sæta afarkostum
vi› vigtun hráefnis til vinnslu. Sjófrystingin og útflytjendur á ferskfiski
í gámum búi vi› mun r‡mri skilyr›i. Hann krefst ska›abóta.
FISKVINNSLA „Í rauninni hefur
fiskvinnsla Gunnólfs á Bakka-
firði verið þvinguð til að kaupa
vatn og ís með fiski fyrir um 40
milljónir króna á undanförnum
tólf árum,“ segir Kristinn Pét-
ursson, fiskverkandi á Bakka-
firði. Hann undirbýr nú máls-
höfðun gegn íslenska ríkinu til
greiðslu skaðabóta, enda sé um
að ræða brot á samkeppnislög-
um og lögum um mál og vog.
„Þegar fiskur
er vel kældur
í sumarhitum
getur hlutfall
vatns og íss
farið í 15 pró-
sent. Reglurn-
ar kveða á um
að við megum
draga frá þrjú
prósent áður
en við greið-
um uppsett verð fyrir veginn
afla. Af hverjum tíu kílóum sem
við kaupum getur hæglega eitt
þeirra verið vatn og ís eins og
nú háttar til.“
Kristinn segir allt annað uppi
á teningnum varðandi útflutn-
ing á bolfisksafla í gámum. „Í
fyrra voru flutt út um 53 þúsund
tonn af ferskum fiski í gámum,
einkum til Bretlands. Fiskkaup-
endur þar sæta engum afarkost-
um líkt og við. Menn áætla í
mörgum tilvikum þyngdina í
gámunum hér á landi og kaup-
endurnir ytra fá oftar en ekki
yfirvigt. Það sér hver heilvita
maður að þetta eru afleit sam-
keppnisskilyrði. Ég sætti mig
ekki við þessar öfgar og einelti
gagnvart landvinnslunni og fer
með málið fyrir dómstóla. Eng-
inn ætti að vera hissa á því að á
níu mánuðum skuli tapast 500
störf í fiskvinnslu hér á landi,“
segir Kristinn.
Aðalsteinn Baldursson, for-
maður matvælasviðs Starfs-
greinasambandsins, tekur í
svipaðan streng. „Ég heyri af
fiskvinnslufyrirtækjum sem fá
ekki einu sinni að bjóða í afla ís-
lenskra skipa jafnvel þótt þau
bjóði jafn gott verð eða betra,“
segir Aðalsteinn. Hann bætir
við að skýrslugerð og nefndar-
störf séu einskisverð ef öllum
tillögum sé stungið undir stól.
Nefnd undir stjórn Gunnars
I. Birgissonar fjallaði árið 2001
um starfsskilyrði í land- og sjó-
vinnslu. Hún lagði til við sjávar-
útvegsráðherra, að í löndunar-
höfn yrði heimilt að draga allt
að sjö prósent frá vegna íss og
vatns í stað þriggja prósenta.
Þessu hlutfalli hefur ekki verið
breytt. johannh@frettabladid.is
ÍSAFJARÐAR
5.099kr.
Milli Reykjavíkur og
AKUREYRAR
5.289kr.
Verð miðast við
flug aðra leiðina.
Bara á
www.flugfelag.is
Takmarkað
sætaframboð!
Milli Reykjavíkur og
flugfelag.is
EGILSSTAÐA
5.999
Milli Reykjavíkur og
kr.
HORNAFJARÐAR
5.899
Milli Reykjavíkur og
kr.
GRÍMSEYJAR
6.500kr.
Milli Reykjavíkur og
GJÖGURS
5.099kr.
Milli Reykjavíkur og
SAUÐÁRKRÓKS
5.099kr.
Milli Reykjavíkur og
BÍLDUDALS
5.099
Milli Reykjavíkur og
VOPNAFJARÐAR/
ÞÓRSHAFNAR
7.500
Milli Reykjavíkur og
kr.
kr.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
E
H
F.
/S
IA
.I
S
F
LU
2
91
21
0
8/
20
05
flugfelag.is
4.409kr.
Milli Reykjavíkur og
VESTMANNAEYJA
Börn, 2ja–12 ára,
í fylgd með fullorðnum,
greiða 1.940 kr.
aðra leiðina.
3. - 9. ágúst
OKTAVÍA JÓHANNESDÓTTIR Oddviti Sam-
fylkingarinnar á Akureyri segist ekki hafa
gert upp við sig hvort hún sækist eftir að
leiða listann í komandi sveitarstjórnarkosn-
ingum.
FISKVINNSLA Þess eru dæmi að íslensk fiskvinnslufyrirtæki fái ekki að bjóða í afla þótt þau bjóði gott verð.
KRISTINN PÉTURSSON
FISKVERKANDI
HERÐUBREIÐ OG LINDÁ Vaðið yfir Lindá er nærri ármótum Jökulsár á Fjöllum og Lindár
og getur verið viðsjárvert þegar hækkar í Jöklu.
10-11 2.8.2005 20:24 Page 2