Fréttablaðið - 03.08.2005, Blaðsíða 58
„Mér virtist prinsinn vera mjög
geðþekkur ungur maður,“ sagði
Ómar Ólafsson, yfirflugstjóri
hjá flugfélaginu Vængjum, í
samtali við Vísi árið 1975 eftir
að hafa flogið með Karl Breta-
prins frá Keflavík til Vopna-
fjarðar. Þar dvaldi Karl í góðu
yfirlæti við veiðar í Hofsá
næstu daga og
hafði 28 laxa
upp úr krafs-
inu. Honum
líkaði vistin
svo vel að
hann sneri aft-
ur á hverju
sumri næstu
fimm árin.
Pétur Valdi-
mar Jónsson,
bóndi á Teigi
við bakka
Hofsár, segist
muna vel eftir
p r i n s i n u m .
„Það fór ekki
fram hjá
manni að hann var á svæðinu,“
rifjar hann upp. Pétur mætti
Karli stundum í hliðum í ánni
sem þeir opnuðu hvor fyrir öðr-
um og skiptust á kveðjum en
kynntist honum að öðru leyti
ekki. „Hann var bara eins og
hver annar veiðimaður, ákaf-
lega alþýðlegur og fljótur að
þekkja bíla bændanna í kring og
veifaði þeim alltaf. Að öðru leyti
fór lítið fyrir honum.“
Pétur segir að heimsókn
Karls hafi ekki vakið mikla eft-
irtekt í sveitinni en hún gerði
það sannarlega í fjölmiðlum og
öryggisgæsla var afar ströng til
að koma í veg fyrir að blaða-
menn og ljósmyndarar kæmust
í tæri við Karl. „Það var ferlegt
stress hérna fyrsta árið og lög-
regluvörður hér allt í kring, en
svo róaðist þetta í seinni skiptin
sem hann kom.“ Í ágúst árið
1979 var Karl staddur í Hofsá
þegar þau tíðindi bárust að írski
lýðveldisherinn hefði ráðið jarl-
inn af Mountbatten, náfrænda
Karls, af dögum í sprengjutil-
ræði. „Hann rauk burt daginn
eftir og það var í síðasta skipti
sem hann kom hingað,“ segir
Pétur og tekur undir að senni-
lega sé Bretaprins frægasti
maður á heimsvísu sem hefur
rennt fyrir lax í Hofsá.
Pétur segist ekki hafa hugsað
sér að halda sérstaklega upp á
daginn enda hefur hann öðrum
hnöppum að hneppa þar sem
heyskapurinn er í hámarki. ■
22 3. ágúst 2004 MIÐVIKUDAGUR
JOSEPH CONRAD (1857-1924)
lést þennan dag.
ÞRÍR ÁRATUGIR SÍÐAN KARL BRETAPRINS VEIDDI FYRST Í HOFSÁ:
Veifaði alltaf bændunum
„Slúður er það sem enginn viðurkennir að
líka við en allir njóta.“
Joseph Conrad var pólskur rithöfundur sem lifði ævintýralegu lífi í
franska sjóhernum en gaf út fyrstu bók sína á ensku.
timamot@frettabladid.is
ANDLÁT
Magnús Benedikt Guðni Guðmunds-
son, frá Kljá, lést á St. Franciskuspítalan-
um í Stykkishólmi fimmtudaginn 28. júlí.
Höskuldur Stefánsson, Ranavaði 3, Eg-
ilsstöðum, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu í
Neskaupstað föstudaginn 29. júlí.
Guðbjörg Þórðardóttir kennari, Grana-
skjóli 23, Reykjavík, lést á Landspítala
við Hringbraut laugardaginn 30. júlí.
Jóna Benediktsdóttir, frá Vöglum, Eyja-
fjarðarsveit, lést 31. júlí.
JAR‹ARFARIR
13.00 Þórður Jón Guðlaugsson, fyrr-
verandi útibússtjóri Sparisjóðs
Norðfjarðar á Reyðarfirði, Ljár-
skógum 5, Reykjavík, verður
jarðsunginn frá Víðistaðakirkju í
Hafnarfirði.
14.00 Berta Bergsdóttir, dvalarheimil-
inu Höfða, Akranesi, verður jarð-
sungin frá Akraneskirkju.
KARL Á REYKJAVÍKURFLUGVELLI Karl kom árlega til landsins næstu fimm árin og renndi fyrir lax í Hofsá. Á þessari mynd sést hann
meðal annars með Kristjáni Má Unnarssyni fréttamanni.
Biskupakirkjan í Bandaríkjunum
samþykkti þennan dag árið 2003
að tilnefna mann til biskups-
embættis sem lýst hafði því op-
inberlega yfir að hann væri sam-
kynhneigður. Séra Gene Robin-
son var samþykktur með meiri-
hluta atkvæða nefndar þar sem
bæði sátu prestar og leikmenn.
Robinson er fráskilinn faðir
tveggja barna og hafði á þessum
tíma átt sambýlismann til fjórtán
ára.
Robinson sagði af þessu tilefni
að hann væri þess fullviss að
geta betur þjónað samkyn-
hneigðum innan kirkjunnar með
því að vera góður biskup frekar
en að vera samkynhneigður
biskup.
Samkunda biskupa varð að sam-
þykkja tilnefningu Robinsons og
seinkaði þeirri samþykkt um
einn dag þar sem upp komu
ásakanir um óviðeigandi kyn-
ferðishegðun af hans hálfu. Þær
voru hins vegar látnar niður falla
og 5. ágúst kusu tveir þriðju hlut-
ar biskupasamkundunnar að
Robinson yrði fyrsti samkyn-
hneigði biskup Biskupakirkjunn-
ar. Hann var svarinn í embætti í
nóvember 2003 og tók við starfi
í mars á næsta ári. Allan þennan
tíma heyrðust mótmælaraddir úr
ýmsum áttum. 3. ÁGÚST 2003
ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR
1957 Tunku Abdul Rahman prins
verður fyrir valinu sem leið-
togi Malasíu sem hlýtur
sjálfstæði frá Bretum á
sama tíma.
1958 Kjarnorkukafbáturinn
Nautilus siglir til Norður-
pólsins.
1969 Um tuttugu þúsund manns
eða tíundi hver Íslendingur
er á Sumarhátíð í Húsa-
fellsskógi þar sem Trúbrot
spilar fyrir dansi.
1980 Hrafnseyrarhátíð er haldin
til að minnast þess að 100
ár eru liðin frá andláti Jóns
Sigurðssonar.
1984 Ringo Starr, trommuleikari
Bítlanna, kemur til Íslands.
Hann er heiðursgestur á
útihátíð í Atlavík þar sem
hann tekur lagið með
Stuðmönnum og Gunnari
Þórðarsyni.
Samkynhneig›ur ma›ur ver›ur biskup
Tilkynningar um merkisatbur›i,
stórafmæli, andlát og jar›arfarir
í smáletursdálkinn hér a› ofan
má senda á netfangi›
timamot@frettabladid.is.
Augl‡singar á a› senda á
auglysingar@frettabladid.is e›a
hringja í síma
550 5000.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og
hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns,
föður, tengdaföður, afa og langafa,
Tryggva Ingimars Kjartanssonar
Brekkugötu 10, Akureyri.
Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki Heimahlynningar og
á Dvalarheimilinu Hlíð.
Kristbjörg Jakobsdóttir
Aðalsteinn Tryggvason Hólmfríður Dóra Sigurðardóttir
Haukur Tryggvason Sigrún Kjartansdóttir
Kjartan Tryggvason Sólrún Stefanía Benjamínsdóttir
Jakob Tryggvason Guðrún Andrésdóttir
Sigurður Rúnar Tryggvason Inga Margrét Ólafsdóttir
Halldór Ingimar Tryggvason Guðný Sverrisdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
90 ÁRA afmæli
Sameiginlegt afmæli, eiga hjónin
Ómar S. Harðarson (50 ára) og
Ingibjörg Kolbeinsdóttir (40 ára) í
ágúst.
Af því tilefni efna þau til móttöku í
SEM-salnum, Sléttuvegi 3, Reykjavík,
fimmtudaginn 4. ágúst frá
kl. 17.00-19.00.
Allir vinir, vandamenn og
núverandi eða fyrrverandi
samstarfsfólk eru velkomin.
www.steinsmidjan.is
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Gunnar Jóhannsson
smiður,
Blikabraut 10, Keflavík,
lést á Garðvangi, Garði, sunnudaginn 30. júlí. Jarðarförin auglýst
síðar.
Hildur Gunnarsdóttir Vilhjálmur Skarphéðinsson
Jóhann Gunnarsson Anna María Aðalsteinsdóttir
Guðmundur Gunnarsson Gróa Hávarðardóttir
Guðrún Bríet Gunnarsdóttir
Kolbrún Gunnarsdóttir Gísli Garðarsson
Hrefna Gunnarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær faðir okkar, afi og bróðir,
Óskar Egill Axelsson (Sissi)
Njálsgötu 80, Reykjavík,
lést á Landspítalanum 26. júlí. Útförin hefur farið fram. Hinn
látni hvílir í Gufuneskirkjugarði.
Ása Óskarsdóttir
Oddný Óskarsdóttir Hannes K. Gunnarsson
og afabörn
Ingimundur Axelsson
Steinunn Axelsdóttir
Hallgrímur Hallgrímsson Guðlaug Jónsdóttir
Lárus Konráðsson Hugrún Sigurðardóttir
Páll Konráðsson Kristjana Ingibergsdóttir
Erla Lárusdóttir Bjarni Álfþórsson
Aðalheiður Ingimundardóttir og fjölskylda.
AFMÆLI
Jóhanna Björnsdóttir,
húsfreyja á Bjarghúsum,
Vestur-Hópi, nú til heimil-
is á Langholtsvegi 26,
verður 75 ára á morgun.
Hún tekur á móti gestum
hinn 4. ágúst í Húnabúð í
Skeifunni 11 frá kl. 18.00.
Sævar Gunnarsson,
formaður Sjómanna-
sambands Íslands, er 62
ára.
Ólafur F.
Magnús-
son borgar-
fulltrúi er
53 ára.
Eyjólfur
Sverrisson knattspyrnu-
maður er 37 ára.
Tómas
Lemarquis
leikari er 28
ára.
FÆDDUST fiENNAN DAG
1801 Joseph Paxton landslagsarkitekt
og hönnuður Kristalshallarinnar.
1912 Gene Kelly dansari.
1926 Tony Bennett söngvari.
1940 Martin Sheen leikari.
1963 James Hetfield söngvari Metallica.
HOFSÁ Karl Bretaprins veiddi alls 28 laxa
fyrsta sumarið sem hann renndi fyrir fisk
hér á landi.
PÉTUR VALDIMAR
JÓNSSON
58-59 (22-23) tímamót 2.8.2005 19:18 Page 2