Fréttablaðið - 03.08.2005, Blaðsíða 64
28 3. ágúst 2005 MIÐVIKUDAGUR
Hljómsveitin Trabant heldur tón-
leika á staðnum Rust eða Ryð í
Kaupmannahöfn næstkomandi
laugardagskvöld. Tónleikarnir
eru þeir fyrstu sem sveitin heldur
í Skandinavíu eftir að plata þeirra
Emotional fór í dreifingu þar ný-
verið. „Það er kominn tími á að
fylgja útkomu plötunnar eftir
með tónleikum í Kaupmannahöfn.
Við lékum á tónleikum í Konung-
lega Danska Leikhúsinu í Kaup-
mannahöfn í fyrra þar sem verið
var að frumsýna leikritið Galskap
sem leikstýrt var af Agli Heiðari
Antoni Pálssyni. Það var svaka-
legt stuð og við vonumst til að
þessir tónleikar verði ekki síðri
en þeir. Þetta er fyrsta skrefið í
innrás Trabant í Skandinavíu,“
segir Þorvaldur Gröndal
trommari í Trabant, sem segir
Rust vera einhverja meðalrokk-
búllu er rúmi nokkur hundruð
manns.
Trabant var að koma frá Bret-
landi þar sem sveitin lék á tvenn-
um tónleikum í London og ætla
þeir félaganir að halda aftur til
Bretlands með haustinu og fylgja
eftir nýrri smáskífu sem verður
gefin út þar í landi. Plata þeirra
Emotional kemur svo út á Bret-
landi í byrjun næsta árs. ■
HLJÓMSVEITIN TRABANT Plötuumslag Emotional, nýjustu skífu hljómsveitarinnar
Trabant. Trabant leikur á tónleikum í Kaupmannahöfn um helgina sem eru liður í kynn-
ingu þeirra á plötunni sem var að fara í dreifingu í Skandinavíu.
Sjokkrokkarinn Alice Cooper kemur
hingað til lands í næstu viku ásamt
föruneyti sínu. Cooper hefur verið á
tónleikaferðalagi um Evrópu og lýk-
ur því í Kaplakrika 13. ágúst.
Hingað kemur hann frá Noregi
þar sem hann gengur fram af áhorf-
endum með öflugri sviðsframkomu.
Hljómsveitirnar sem hita upp fyrir
Cooper eru Dimma, Sign, Dr. Spock
og Brain Police.
ALICE COOPER Sjokkrokkarinn Alice
Cooper er á leiðinni til Íslands.
Kemur í næstu viku
Leikarinn Ricky Gervais, sem sló í
gegn í gamanþáttunum The Office,
segir að einn af draumum sínum
hafi ræst þegar hann fékk að semja
handrit að þætti um Simpson-fjöl-
skylduna.
Gervais lék einnig í þættinum,
sem verður sýndur í Bandaríkjun-
um í mars á næsta ári. „Þegar ég
byrjaði í gríninu dreymdi mig um
að koma brandara að í The Simp-
sons,“ sagði Gervais. „Núna er ég
búinn að semja heilan þátt. Ég bíð
bara eftir því að vakna upp af þess-
um draumi einn daginn.“
Persónan sem Gervais leikur í
þættinum er byggð á hinum mjög
svo pirrandi skrifstofustjóra David
Brent úr The Office. Í þættinum,
sem kallast „Wife Swap“ skiptast
hann og Homer á eiginkonum.
Gervais flytur á heimili Simpson-
fjölskyldunnar og býr þar með
Marge á meðan Homer flytur inn til
eiginkonu Gervais.
Gervais segist hafa skemmt sér
konunglega við gerð þáttarins
ásamt hinum handritshöfundunum.
„Þeir vitnuðu í The Office fyrir mig
og til að sýna þeim að ég væri eins
góður og þeir vitnaði ég í The Simp-
sons á móti,“ sagði hann. „Við slóg-
um hver annan svo fast á bakið að
við vorum orðnir eldrauðir.“ ■
Gervais og Homer
skiptast á eiginkonum
RICKY GERVAIS Grínistinn sem sló í gegn
í The Office lét draum sinn rætast og skrif-
aði handrit að þætti um Simpson-fjölskyld-
una.
[ TÓNLIST ]
UMFJÖLLUN
Ég held að það geti flestir verið
sammála því að það vanti
töffarastelpur í rokkið í dag. Eða
þá bara stelpur í tónlist yfir höf-
uð! Hvað er það sem er að stoppa
ykkur stúlkur? Við elskum þegar
þið takið ykkur til og stofnið
hljómsveitir. Kýlið á þetta, og
engar áhyggjur, þið þurfið ekkert
að kunna að spila.
London-sveitin The Duke
Spirit er því þó nokkur léttir.
Þetta er fimm manna hljómsveit
með myndarlega ljósku í
fremstu víglínu sem lítur út eins
og yngri systir Elízu í Kolrössu
Krókríðandi og syngur örlítið
eins og Karen O úr Yeah Yeah
Yeah’s. Anorexíurokkdrottningin
P.J. Harvey hefur svo greinilega
verið áhrifavaldur líka ... í söng,
ekki í mataræði.
Rætur tónlistarinnar ná í
sama kaktus og Jesus and Mary
Chain sóttu safa sinn, sem sagt
ekkert sérlega ósvipað Singa-
pore Sling heldur, nema hvað
þessi sveit á það til að semja
grípandi lög annað slagið. Þetta
er því eitursvalt, og bara nokkuð
ánægjulegt í leiðinni.
Ég er samt byrjaður að óttast
svolítið um breskt rokk. Svo
virðist sem sveitir fái ekki plötu-
samning lengur nema að þær
minni plötufyrirtækin á ein-
hverja eldri sveit. Það er ákveðin
stöðnun í gangi, sem er undar-
legt þar sem breskt rokk hefur í
gegnum tíðina verið þekkt fyrir
ferskleika og nýbreyttni. Þess
vegna hljóma flestar rokksveitir
sem eru að koma frá Bretlandi
núna nokkuð kunnuglega, eins og
þessi. Mér finnst það hálfgerð
móðgun við yngri kynslóðir að
halda að það sé alltaf hægt að
endurvinna gamla rétti ofan í
þau, bara með því að hita þá að-
eins í örbylgjunni. Ekki það að
þessi plata sé slæm, hún er
reyndar bara nokkuð fín. Mig er
bara farið að þyrsta í að rokkið
farið að enduruppgötva sig aftur
í stað þess að stæla það sem
þegar er búið að gera.
Birgir Örn Steinarsson
Formúlu-töffaraheit
THE DUKE SPIRIT
CUTS ACROSS THE LAND
NIÐURSTAÐA: The Duke Spirit er ný
töffarasveit frá London sem var að gefa út
fyrstu plötu sína. Þetta er töffararokk eftir
formúlunni, tekur litlar áhættur, en útkom-
an er vel yfir meðallagi. Ekki skemmir að
það er ljóska í fremstu víglínu með blús-
aða sandpappírsrödd.
Plata Franz
fær nafn
Næsta plata skosku hljómsveitar-
innar Franz Ferdinand, sem held-
ur tónleika hér á landi 2. septem-
ber, hefur fengið nafnið You
Could Have It So Much Better.
Upphaflega átti platan ekki að
heita neitt, heldur átti hún að
þekkjast af litnum einum og sér.
Platan kemur út 3. október en
fyrsta smáskífulagið Do You Want
To kemur út 19. september. ■
FRANZ FERDINAND Skoska hljómsveitin
Franz Ferdinand gefur út nýja plötu 3.
október.
Furðusirkus Jim Rose hélt af landi
brott síðastliðinn laugardag eftir
vel heppnaða sýningu á Broadway á
fimmtudagskvöldið. „Þetta gekk al-
veg frábærlega vel. Allt gekk
snurðulaust fyrir sig og áhorfendur
skemmtu sér konunglega,“ segir Ís-
leifur Þórhallsson hjá Event, sem
stóð fyrir komu sirkussins. „Þeir
voru ánægðir með viðbrögð áhorf-
enda og sögðu sýninguna með þeim
skemmtilegri sem þeir hefðu haldið
í langan tíma.“
Jim Rose og föruneyti dvaldi hér
á landi í heila viku og hafði það náð-
ugt í blíðviðrinu. Þau fóru á Laugar-
vatn og í Bláa lónið á milli þess sem
þau spókuðu sig um í miðbænum.
Þau gerðu meðal annars barinn
Sirkus að sínum heimabar, sem
kemur kannski ekki á óvart.
Ísleifur segir að enginn hafi
labbað út úr salnum á Broadway
þrátt fyrir að sirkusinn hafi boðið
uppi á ýmislegt ókræsilegt. „Ég
held að fólk hafi vitað hvað það var
að fara út í. Það vantaði samt ekki
viðbrögðin. Menn gripu fyrir augun
og tóku andköf en það var ekkert
annað óeðlilegt í gangi,“ segir hann.
Hann bætti því við að sam-
kvæmt samdóma áliti áhorfenda
hefði ógeðslegasta atriðið verið
þegar einn úr sirkusnum dældi úr
kút með ýmsu ógeði ofan í magann
á sér í gegnum slöngu. Síðan ældi
hann því upp og dældi því síðan aft-
ur í magann. Á meðal annarra atriða
var fyrsta kynfæratogið á milli
konu og karls, þar sem fulltrúi
kvenþjóðarinnar var Amber Pie.
Fest var keðja á milli kynfæra
þeirra beggja og toguðu þau hvort í
sína áttina þangað til annað gafst
upp. Amber bar sigur úr býtum og
sýndi og sannaði að kvenkynið er
sterkara.
Piltur í salnum datt síðan í lukku-
pottinn þegar hann fékk bláan
smokk í lok sýningarinnar. Hann
fékk að setjast uppi á svið og beið
þar þangað til hann fékk að hitta
Amber baksviðs eftir sýninguna.
Ekki fylgir sögunni hvað gerðist á
milli þeirra þann klukkutíma sem
þau máttu eyða saman.
Annars voru Jim Rose og félagar
hæstánægðir með komuna hingað
og bjuggust við því að koma aftur til
Íslands einhvern tímann í framtíð-
inni. ■
SIRKUS JIM ROSE Sirkusinn skemmti sér konunglega hér á landi í heila viku.
Kúturinn með slöng-
unni ógeðslegastur
Útrás Trabant byrjar í Köben
64-65 (28-29) ungt fólk 2.8.2005 20:02 Page 2