Fréttablaðið - 03.08.2005, Blaðsíða 13
Tólf íslenskir skátar ásamt
tveimur fararstjórum dvelja nú í
góðu yfirlæti í risastóru skáta-
þorpi á Evrópumóti skáta sem
stendur yfir rétt fyrir utan
London um þessar mundir. Þar
eru nú komnir saman rúmlega
tíu þúsund skátar frá 68 þjóðríkj-
um og lifa í sátt og samlyndi við
leik og störf.
Íslensku skátarnir eru frá
Álftanesi og Reykjanesbæ og eru
á aldrinum fimmtán til átján ára.
„Þetta eru hressir krakkar sem
vildu nota verslunarmannahelg-
ina til að kynnast fólki annars
staðar úr heiminum og fást við
þroskandi og lærdómsrík verk-
efni,“ segir Einar Elí Magnússon,
annar fararstjóranna.
Mótið heitir Eurojam 2005 en
það er stytting á European
Jamboree, en síðara orðið er úr
indíánamáli og þýðir þar sem
margir koma saman. Rúmlega 25
þúsund manns mættu á setningar-
athöfnina síðastliðinn laugardag.
Mótið stendur fram til tíunda
ágúst en íslensku skátarnir ætla
að dvelja fjóra daga til viðbótar
ytra. Hægt er að fylgjast með æv-
intýrum þeirra á vefslóðinni
blog.central.is/eurojam. -bs
MIÐVIKUDAGUR 3. ágúst 2005 13
Íslenskir skátar á Evrópumóti:
Búa í tíu flúsund manna skátaflorpi
ÍSLENSKU SKÁTARNIR Krakkarnir eru
frá Álftanesi og Reykjanesbæ og á aldrin-
um fimmtán til átján ára.
SVELLKALDUR Vladímír Pútín Rússlands-
forseti var eitursvalur með þessi sólgler-
augu í heimsókn sinni til Finnlands.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
P
FRÁ KERLINGARFJÖLLUM Straumur
gesta í Kerlingarfjöll eykst stöðugt með ári
hverju.
Snjólaust í Kerlingarfjöllum:
Göngumenn
flykkjast a›
Það er af sem áður var þegar
Kerlingarfjöll voru eitt vin-
sælasta skíðasvæði landsins því
þar sést varla mjöll lengur.
Gönguhrólfar sýta það hins vegar
ekki og Kerlingarfjöll eru orðin
eitt vinsælasta göngusvæði lands-
ins. „Það er mikill umferð á svæð-
inu og hún eykst á hverju ári,“
segir Páll Gíslason, verkfræðing-
ur og framkvæmdastjóri Fann-
borgar. „Það þarf í sjálfu sér ekki
að koma á óvart,“ bætir hann við.
„Þetta er eitt fallegasta göngu-
svæði landsins. Það er óvíða hægt
að ganga um í ýmist gróðri, á
jökli, skriðum og á hverasvæðum
á nánast sama blettinum í 1200
metra hæð líkt og hér.“
Páll hefur ekki nákvæmar töl-
ur um hversu margir heimsæki
Kerlingarfjöll árlega en segir
óhætt að fullyrða að það séu nokk-
ur þúsund manns. „Það er í raun-
inni akkur í því að hafa fjöllin
snjólaus því það eru sífellt fleiri
að uppgötva þessa náttúruperlu.“
Það tekur um þrjár klukku-
stundir að aka frá höfuðborginni í
Kerlingarfjöll. -bs
LUKKULEG Hin heppna Rakel og félagar.
Töfragarður:
Tíu flúsund
gestir
Rekstur Töfragarðsins á Stokks-
eyri sem var opnaður í maí hefur
gengið vonum framar þrátt fyrir
töluverða vætutíð. Tíu þúsundasti
gesturinn kom í garðinn í gær og
fékk óvæntan glaðning að laun-
um. Rakel Sigurðardóttir rak tutt-
ugu þúsundasta fótinn yfir skör-
unginn í Töfragarði og fengu hún
og samferðafólk hennar frítt í
garðinn, fríar veitingar og miða í
Draugasetrið á Stokkseyri að
gjöf. - sgi
12-13 tilveran / myndir 2.8.2005 20:39 Page 3