Fréttablaðið - 03.08.2005, Blaðsíða 28
Björgvin Guðmundsson
skrifar
Eftir að Burðarás seldi frá sér
Eimskip lá fyrir að félagið þurfti
að sækja um fjárfestingabanka-
leyfi til Fjármálaeftirlitsins, seg-
ir Björgólfur Thor Björgólfsson,
stjórnarformaður Burðaráss.
„Það er hvatinn að því að við
byrjuðum að skoða hvort betra
væri sækja um fjárfestinga-
bankaleyfi sjálf eða sameinast
öðrum fjárfestingarbanka.“
Um verslunarmannahelgina
var svo unnið að sameiningu
Burðaráss við Straum Fjárfest-
ingarbanka, sem tekur starfsemi
félagsins yfir. Ákveðnar eignir
renna inn í Landsbankann. Hefur
þessi flétta verið samþykkt í
stjórnum allra félaganna með
fyrirvara um samþykkt hlut-
hafa. Gert er ráð fyrir því að
hluthafafundir verði haldnir um
miðjan september. Eftir samein-
inguna verður Landsbankinn og
Straumur meðal fjölmennustu
almenningshlutafélaga á Íslandi;
Straumur með um 21 þúsund
hluthafa og Landsbankinn með
rúm 27 þúsund hluthafa.
„Stækkunarmöguleikar bank-
ans hafa aukist gríðarlega,“
sagði Sigurjón Þ. Árnason,
bankastjóri Landsbankans, þeg-
ar þessi áform voru kynnt í gær.
Hann sagði þess misskilnings
hafa gætt í fjölmiðlum að unnið
hafi verið að yfirtöku á sænska
fjárfestingabankans Carnegie
innan Landsbankans. „Við lítum
á þetta sem góðan fjárfestingar-
kost og gerum ekki ráð fyrir að
kaupa meira í fyrirtækinu.“
„Við erum í stakk búin til að
takast á við verkefni erlendis
meira en við höfum gert. Við höf-
um ekki keypt neina stórar
stofnanir erlendis heldur höfum
við keypt minni fyrirtæki sem
hafa passað inni í þann vöxt sem
við ætlum út í. Þau koma með
verkefni til okkar sem við ætlum
okkur svo að sinna“ segir
Björgólfur Guðmundsson,
stjórnarformaður Landsbank-
ans. „Það er okkar aðaláhersla að
vera með fyrirtæki sem skapa
okkur ný verkefni.“
Markaðurinn sagði frá því í
síðustu viku að frekari kaup eða
yfirtaka á Carnegie hefðu verið
undirbúin innan Landsbankans
en málinu slegið á frest. Í Sví-
þjóð gilda ekki sömu reglur og í
Bretlandi þar sem fjárfestum er
óheimilt að taka félag yfir í sex
mánuði eftir að þeir neita yfir-
tökuáformum.
Vika Frá áramótum
Actavis Group 1% 8%
Bakkavör Group 1% 60%
Burðarás 0% 37%
Flaga Group 1% -22%
FL Group 1% 49%
Grandi 1% 6%
Íslandsbanki 1% 24%
Jarðboranir 0% 7%
Kaupþing Bank 1% 26%
Kögun 0% 26%
Landsbankinn 4% 59%
Marel 0% 19%
SÍF 0% -2%
Straumur 1% 32%
Össur 11% 14%
*Miðað við gengi í Kauphöll á föstudaginn
MIÐVIKUDAGUR 3. ÁGÚST 2005 MARKAÐURINN2
F R É T T I R
G E N G I S Þ R Ó U N
Hvatinn var breyting
á rekstri Burðaráss
Bankastjóri Landsbankans segir misskilning að Landsbankinn
undirbúi yfirtöku á sænska fjárfestingarbankanum Carnegie.
410 4000 | www.landsbanki.is
Við færum þér fjármálaheiminn
Nú býðst þér að eiga milliliðalaus verðbréfaviðskipti með E*TRADE í gegnum
netið á stærsta verðbréfamarkaði heims, Wall Street í Bandaríkjunum, og á
mörkuðum í Svíþjóð, Finnlandi og Danmörku.
Kynntu þér málið á www.landsbanki.is
„Þessi tíðindi eru fagnaðarefni
og samruninn er til þess að efla
markaðinn,“ segir Þórður Frið-
jónsson, forstjóri Kauphallar Ís-
lands, aðspurður um samruna
Burðaráss við Landsbankann og
Straum.
Hann bendir á að þetta sé einn
stærsti samruni eða yfirtaka sem
fram hefur farið á Íslandi og lítil
breyting verði innan Kauphallar-
innar þrátt fyrir að félögunum
fækki um eitt. „Efnahagurinn
verður sá sami, félögin sem eftir
verða styrkjast og hluthöfum
fjölgar,“ segir hann.
Kauphöllinni var tilkynnt um
að viðræður væru í gangi milli
félaganna um helgina og telur
Þórður að vinnubrögð stjórnenda
félaganna séu í fullu samræmi
við lög og reglugerðir. - eþa
Magnús Kristinsson, stjórnarfor-
maður Straums, er hæstánægður
með kaupin á Burðarási. „Við
erum að kaupa eitt elsta hlutafé-
lag landsins sem hefur á að skipa
mjög hæfu starfsfólki og góðu
eignarsafni.“ Eftir kaupin verður
Straumur einn stærsti sérhæfði
fjárfestingarbanki Norðurland-
anna.
Hann fagnar því að fá Björg-
ólfsfeðga inn í hluthafahóp
Straums-Burðaráss með beinum
hætti og segir að þeir gangi til
liðs við aðra öfluga fjárfesta.
Straumur greiðir um 33ja pró-
senta yfirverð fyrir eigið fé
Burðaráss. Aðspurður um það
verð sem greitt hafi verið fyrir
Burðarás þá segir Magnús að
verðið sé vel ásættanlegt. Meðal
félaga sem Straumur fær í sitt
safn eru Icelandic Group, Ís-
landsbanki og Skandia auk fjölda
óskráðra bréfa.
Magnús sagðist hafa misst af
Þjóðhátíðinni í Eyjum vegna mik-
illa fundarhalda um verslunar-
mannahelgina en það hafi verið
þess virði. - eþa
Hagnaður Íslandsbanka, KB
banka, Landsbankans og Straums
á fyrstu sex mánuðum ársins
voru 54 milljarðar króna en allt
árið í fyrra nam hagnaður bank-
anna 46 milljörðum króna.
Aukinn hagnað bankanna má
rekja til umsvifameiri rekstrar
þeirra, bæði hér á landi og er-
lendis. Hagnaður af sölu eigna,
gengishagnaður af eignum í öðr-
um félögum, auknar vaxtatekjur
vegna mikillar útlánaaukningar
og auknar tekjur vegna fyrir-
tækjaverkefna skýra hagnað
fjármálafyrirtækjanna að stór-
um hluta.
Heildareignir bankanna nema
tæpum 4.300 milljörðum króna og
er KB banki með mestu eignirnar,
1.900 milljarða. Eignaaukning
bankanna skýrist að mestu leyti
af kaupum þeirra á erlendum
bönkum, bæði á Norðurlöndunum
og í Bretlandi. Sífellt stærri hluti
af tekjum bankanna kemur frá
útlöndum og stendur KB banki
þar fremst en sjötíu prósent af
tekjum bankans koma frá útlönd-
um á fyrstu sex mánuðum ársins.
Hluthafar í öllum bönkunum
samanlagt eru 61 þúsund. - dh / Sjá
nánar bls. 8
Hagnaður bankanna 54 milljarðar
Hagnast meira á fyrstu sex mánuðum ársins en allt árið í fyrra.
Kauphallarforstjóri
fagnar fréttunum
Stjórnarformaður ánægður
með kaupin á Burðarási
Verðið er gott að mati forsvarsmanna Straums.
Væntingar
um Carnegie
Hlutabréf í sænska fjárfesting-
arbankanum Carnegie tóku kipp
upp á við þegar tilkynnt var um
uppstokkun Burðaráss sem með-
al annars á fimmtungshlut í sæn-
ska bankanum. Hækkuðu bréf í
Carnegie um sex prósent vegna
orðróms um að Landsbankinn,
sem fær hlut Burðaráss í sínar
hendur, ætli sér að taka bankann
yfir.
Gengi Carnegie stendur í tæp-
um 95 krónum á hlut og hefur
ekki verið hærra í meira en þrjú
ár. - eþa
Við verðmat á Burðarás við
skiptingu milli Straums og Ís-
landsbanka voru ýmsar viðmið-
anir notaðir við að verðleggja öll
félögin þrjú sem tengjast við-
skiptunum. Við ákvörðun skipti-
hlutfalla hefur meðal annars
verið miðað við skráð markaðs-
verð hlutabréfa í félögunum,
fjárhagslega stöðu þeirra, af-
komu, markaðsstöðu og framtíð-
arhorfur. Í Morgunkornum
greiningardeildar Íslandsbanka
kemur fram að sé miðað við
lokagengi félaganna þriggja á
föstudag var en þá var gengi
Landsbankans 19,2 krónur á
hlut, gengi Straums 12,6 og
Burðaráss 16,4. Miðað við þessi
verð greiða hluthafar Burðaráss
49 milljarða króna fyrir 58 millj-
arða króna hlut í Straumi, sem
jafngildir fimmtán prósenta af-
slætti. Að sama skapi greiða
hluthafar Landasbankans 41
milljarð fyrir 48 milljarða hlut í
Burðarás, sem jafngildir einnig
um fimmtán prósenta afslætti.
„Fljótt á litið virðast því hluthaf-
ar Landsbankans hagnast mest á
þessum viðskiptum,“ segir í
Morgunkornum. - dh
MAGNÚS KRISTINSSON, ÞÓRÐUR MÁR JÓHANNESSON OG BJÖRGÓLFUR THOR
BJÖRGÓLFSSON Stjórnarformaður og forstjóri Straums unnu að sameiningu Burðaráss
við Straum um verslunarmannahelgina ásamt stjórnarformanni Burðaráss. Allir voru sáttir
við niðurstöðuna á fundi í gær þar sem sameiningin var kynnt.
FAGNAR FRÉTTUNUM Forstjóri
Kauphallarinnar telur að uppstokkun
Burðaráss geti eflt markaðinn og styrkt
stöðu Landsbankans og Straums.
MAGNÚS KRISTINSSON OG ÞÓRÐUR
MÁR JÓHANNESSON Stjórnarformaður
Straums varð að sleppa Þjóðhátíðinni
vegna strangra fundarhalda um helgina.
Segja hluthafa Lands-
bankans hagnast mest
Ýmsar viðmiðanir voru notaðar til að verðleggja
félögin þrjú: Burðarás, Landsbankann og Straum.
HLUTHAFAR LANDSBANKANS Í GÓÐUM MÁLUM Björgólfur Guðmundsson, stjórnar-
formaður Landsbankans, og Sigurjón Þ. Árnason, bankastjóri Landsbankans.
02_03_Markadur 2.8.2005 16:23 Page 2