Fréttablaðið - 03.08.2005, Blaðsíða 42
MIÐVIKUDAGUR 3. ÁGÚST 2005 MARKAÐURINN16
F Y R I R T Æ K I
Jón Sigurðsson seðlabankastjóri
segist eiga erfitt með að velja úr
þeim aragrúa ráðlegginga sem er
að finna í Biblíunni: „Spurningin
kemur alveg flatt upp á mig, þetta
er ekki eitthvað sem ég leiði hug-
ann að svona frá degi til dags.
Annars fæ ég mínar lífsreglur úr
Biblíunni og á erfitt með að nefna
eitt ráð öðru fremur.“
Jón segist hafa orðið kristinn
25 ára gamall, þá hafi hann sökkt
sér í trúarritin og ekki stoppað
síðan: „Ég les bæði Biblíuna og
sálmabækurnar. Þar eru mjög
margar ráðleggingar og þær
langsamlega bestu sem ég hef
fengið á lífsleiðinni.“
Jón flettir Biblíunni iðulega
og segist alltaf finna eitthvað
nýtt og spennandi, stundum fletti
hann jafnvel upp af handahófi:
„Ég hef ábyggilega flett Biblí-
unni hundrað þúsund sinnum og
alltaf finn ég eitthvað sem ég get
notað.“ - jsk
B E S T A R Á Ð I Ð
Promens varð til í maí síðastliðnum þegar fé-
lagið tók yfir dótturfélög Sæplasts-samstæð-
unnar sem eru ekki í umbreytingarferli.
Þetta dótturfélag Atorku
Group hefur nú tekið stórt
stökk fram á við með
kaupum á breska
plastiðnaðarfyrir-
tækinu Bonar Plast-
ics sem var í eigu
Low and Bonar.
Geir A. Gunnlaugs-
son, forstjóri Promens, seg-
ir að með kaupunum rætist gamall
draumur stjórnenda Promens og Sæplasts.
Þá hafi nefnilega lengi dreymt um að eignast
Bonar Plastics, einn helsta samkeppnisaðil-
ann sinn.
PROMENS ÞREFALDAST
Bonar Plastics er nærri þrefalt stærra en
Promens og þegar kaupin ganga í gegn í sum-
arlok verður til eitt stærsta iðnaðarfyrirtæk-
ið sem er í eigu Íslendinga. Gert er ráð fyrir
að velta sameinaðs félags verði um 140
milljónir evra eða hátt í ellefu
milljarðar króna. Áætlanir
gera ráð fyrir að hagn-
aður fyrir afskriftir og
fjármagnsliði verði
um einn milljarður
króna. Um 1.250
manns starfa fyrir
samstæðuna sem verður
með starfsemi í nítján verk-
smiðjum í þremur heimsálfum.
Stjórnendur Promens sjá ýmis tækifæri í
því að yfirtaka Bonar Plastics. Fyrir það
fyrsta vex starfsemin til muna með þessari
þriggja milljarða fjárfestingu.
Þá er líklegt að vöxtur framleiðslu með því
að hverfissteypa vörur úr plasti verði mun
meiri en með annars konar framleiðsluað-
ferðum. Kostnaður á hverja einingu í fram-
leiðslu er til dæmis mun lægri en með öðrum
aðferðum.
Í stuttu máli fer framleiðsla á hverfi-
steyptum vörum fram með þeim hætti að
plastefni eru sett í mót. Mótið er svo sett í
heitan ofn þar sem það er hitað og snúið um
tvo ása. Efnið dreifist um mótið og vegna hit-
ans þá bráðnar það og binst svo saman. Það er
síðan kælt og látið snúast áfram. Síðan er efn-
ið losað úr mótinu.
ÖFLUGT FYRIRTÆKI
Kaupin á Bonar Plastics eru ekki síst til þess
fallinn að styrkja markaðsstöðu fyrirtækis-
ins. Bonar hefur sterka markaðsstöðu og
starfar í tveimur heimsálfum, þróunarstarf
þess hefur verið öflugt og félagið er framar-
lega í tækninýjungum. Við kaupin sameinast
helstu samkeppnisaðilarnir í hverfisteyptum
vörum úr plasti og vonast menn til að rekst-
urinn gefi meira af sér, þar sem samkeppnin
hefur verið hvað hörðust, auk þess sem sam-
eina megi sölu- og markaðsstarf félaganna.
Þá er framleiðsla Bonar Plastics fjöl-
breytt. Geir segir að um 65 prósent af fram-
leiðslu fyrirtæksins fari til þriðja aðila, það
er annarra framleiðenda á iðnaðarvörum.
Helstu viðskiptavinir samstæðunnar eru
DaimlerChrysler, Caterpillar, John Deere,
Peugeot, Renault og Volvo.
Um 35 prósent af framleiðslunni hefur
fyrirtækið selt sjálft. Eigin vörur eru einkum
ker og tankar sem notuð eru til geymslu og
flutninga fyrir lyfja- og matvælaiðnaðinn.
Samsteypan ætlar sér að hækka hlutdeild
eigin vara upp í 45 prósent.
„Í Evrópu og Norður-Ameríku vex þessi
iðnaður í samræmi við vöxt þjóðartekna en
vöxturinn er mun hraðari í þróunarríkjum,“
segir Geir. Fjórar verksmiðjur Bonar Plast-
ics eru í Bandaríkjunum og Kanada en átta í
Evrópu, þar af þrjár í Frakklandi. Ætlunin er
að sameina verksmiðju Sæplasts í Kanada við
starfsemi Bonar Plastics í sama landi.
Geir telur að tækifærin liggi í útrás starf-
seminnar í Austur-Evrópu og Asíu. Eitt af
fyrstu verkefnum hins nýja sameinaða félags
er stækkun í Póllandi. Þar ætlar fyrirtækið
að fjárfesta í nýrri verksmiðju fyrir 120-150
milljónir króna.
ÁHERSLAN Á IÐNAÐARGEIRANN
Magnús Jónsson, stjórnarformaður Atorku
Group, segir að félagið leggi mikla áherslu á
að starfa með sterku liði stjórnenda. Það ein-
kenni stærstu eignarhluti félagsins. Fyrir
utan Promens séu stærstu eignir Atorku í
bresku iðnaðarfyrirtækjunum Low and Bon-
ar og NWF Group. Atorka á um fimmtungs-
hlut Low and Bonar og um tíu prósent í NWF.
„Okkar áherslur eru mikið til erlendis
þessa dagana og kaupin á Bonar Plastics eru
bara eitt dæmi um það sem við erum að vinna
í dag,“ segir hann.
Eftir söluna á Bonar Plastics er kjarna-
starfsemi Low and Bonar á tveimur sviðum, í
gólfefnaframleiðslu og garn- og vefnaðar-
framleiðslu.
Að mati Magnúsar er NWF er spennandi
og arðbært félag sem vex um 7-10 prósent ár-
lega á markaði sem er nánast mettaður.
Fyrirtækið er því að taka stærri bita af kök-
unni á hverju ári. Fyrirtækið er byggt upp á
fjórum einingum, flutningastarfsemi, fóður-
framleiðslu fyrir landbúnað einkum naut-
griparækt, olíudreifingu og smásölu með
garðvörur.
Promens
Eigandi: Að fullu í eigu Atorku Group
Framkvæmdastjóri: Geir A. Gunnlaugsson
Starfsmenn: Um 1.250 eftir kaupin á Bonar Plastics
Áætluð velta: Ellefu milljarðar króna á næsta ári
Gamall draumur rætist
Eitt stærsta iðnaðarfyrirtæki landsins verður til í haust þegar Promens og Bonar
Plastics sameinast. Promens, sem er byggt á grunni Sæplasts, verður þá með
starfsemi í nítján löndum. Eggert Þór Aðalsteinsson kynnti sér fyrirtækið og
framtíðarsýn stjórnenda og eigenda þess.
FAHD KONUNGUR SÁDI-ARABÍU
Fahd lést á mánudag og hækkaði olíuverð í
kjölfarið. Arftaka hans, Abdullah krónprins,
tókst þó að lægja öldurnar og segir olíu-
stefnu landsins haldast óbreytta.
Konungur
deyr og olíu-
verð hækkar
Abdullah krónprins
hefur nú tekið við
krúnunni og ætlar ekki
að breyta stefnu lands-
ins í olíumálum.
Olíuverð náði methæðum í kjöl-
far fregna af andláti Fahds kon-
ungs Sádi-Arabíu. Var fatið kom-
ið yfir 62 dali á mánudag. Hvergi
er framleidd meiri olía en í Sádi-
Arabíu og óttuðust sérfræðingar
óróa í landinu eftir fráfall Fahds.
Abdullah krónprins, sem er 81
árs gamall, hefur formlega tekið
við stjórnartaumum í landinu en
hann hefur þó í rauninni ráðið
öllu sem hann hefur viljað ráða í
veikindum Fahds konungs.
„Það eru engar umframbirgð-
ir af olíu til í heiminum og því
veldur minnsta truflun miklum
verðhækkunum,“ sagði Larry
Goldstein, forseti Olíuiðnaðar-
samtaka Bandaríkjanna, og bætti
við: „Mig grunar nú samt að ekki
verði miklar breytingar á stjórn-
arháttum í Sádi-Arabíu.“
Fyrsta embættisverk
Abdullah var að nefna hálfbróður
sinn og varnarmálaráðherra
Saudi-Arabíu, Prins Sultan, sem
arftaka sinn og sérlegan aðstoð-
armann. Abdullah notaði tæki-
færið og lýsti því yfir að stefna
landsins í olíumálum héldist
óbreytt. Verð á olíu lækkaði í
kjölfarið og stendur nú í rúmlega
61 dölum á fat. - jsk
ELÍNBJÖRT JÓNSDÓTTIR OG TRYGGVI P. FRIÐRIKSSON, EIGENDUR GALLERÍS FOLDAR Markaður með myndlist
er byrjaður að taka við sér eftir að málverkafölsunarmálunum lauk. Vaxandi áhugi er meðal almennings á að fjárfesta í
myndlist og hafa viðtökur verið góðar við vaxtalausum lánum frá KB banka til kaupa á samtímamyndlist.
JÓN SIGURÐSSON SEÐLABANKA-
STJÓRI Jón segist fá sínar lífsreglur úr
Biblíunni og að erfitt sé að velja eitt ráð
umfram annað.
Fær lífsreglur úr Biblíunni
Fr
ét
ta
bl
að
ið
/V
ilh
el
m
Fr
ét
ta
bl
að
ið
/P
je
tu
r
Fr
ét
ta
bl
að
ið
/P
ál
l B
er
gm
an
n
Fr
ét
ta
bl
að
ið
/A
FP
Ódýrt
easyHotel
Lággjaldahótel í eigu
easyJet.
Lágfargjaldaflugfélagið easyJet,
sem FL Group á hlut í, hefur opn-
að lággjaldahótel undir nafninu
easyHotel. Þar kostar herbergi
fyrir tvo tuttugu
pund eða tæpar
2.500 krónur. Eng-
in hefðbundin
þægindi eru til
staðar á borð við
móttöku, sund-
laug, kæliskáp en
hægt er að horfa á
sjónvarp fyrir
auka greiðslu. Því
fyrr sem herberg-
in eru pöntuð því
minna er greitt
fyrir þau þannig
að það borgar sig að vera tíman-
lega í því. Stelios segir öll her-
bergin vera eins og því verði eng-
ar óvæntar uppákomur. - dh
FERÐAST
ÓDÝRT Stelios
Haji-Ioannou,
aðaleigandi ea-
syHotel, stillir sér
upp fyrir framan
hótelið í London.
16-17 Mark 17 lesið 16 hálfl 2.8.2005 15:52 Page 2