Fréttablaðið - 03.08.2005, Blaðsíða 27
Góð og örugg ávöxtun á lausafé fyrir einstaklinga, fyrirtæki, sveitarfélög og
aðra fjárfesta. Kynntu þér ótvíræða kosti Peningabréfa hjá ráðgjöfum
Landsbankans.
* Nafnávöxtun frá 01.06.2005–30.06.2005 á ársgrundvelli.
Peningabréf eru fjárfestingarsjóður í skilningi laga
nr. 30/2003, um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði.
Athygli fjárfesta er vakin á því að fjárfestingarsjóðir
hafa rýmri fjárfestingarheimildir skv. lögunum
heldur en verðbréfasjóðir. Um frekari upplýsingar
um sjóðinn, m.a. hvað varðar muninn á
verðbréfasjóðum og fjárfestingarsjóðum og
fjárfestingarheimildir sjóðsins, vísast til
útboðslýsingar og útdráttar úr útboðslýsingu sem
nálgast má í afgreiðslum Landsbanka Íslands hf. auk
upplýsinga á heimasíðu bankans www.li.is
410 4000 | landsbanki.is
8,0%*
Peningabréf Landsbankans
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
2
88
74
07
/2
00
5
Atkins
Satt lífdaga
Sala Símans
Óttuðust
hátt verð
Íslenskir fótboltamenn
Ekki nógu dýrir
Sögurnar... tölurnar... fólkið...
Miðvikudagur 3. ágúst 2005 – 18. tölublað – 1. árgangur Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
Methagnaður KB banka | KB
banki hagnaðist um 24,77 millj-
arða á fyrstu sex mánuðum árs-
ins. Hagnaður KB banka á sama
tíma í fyrra nam 6,5 milljörðum
króna.
Síminn seldur | Síminn var seld-
ur Skipti hf. sem er félag í eigu
Exista, KB banka, Lífeyrissjóðs
verslunarmanna, Gildi - lífeyris-
sjóðs og fleiri smærri fjárfesta
fyrir 66,7 milljarða króna.
11 milljarða hagnaður Lands-
bankans | Landsbankinn hagnað-
ist um 11 milljarða króna á fyrstu
sex mánuðum ársins samanborið
við sex milljarða árið áður. Arð-
semi eigin fjár var 56 prósent á
tímabilinu.
Össur keypti | Össur keypti
bandaríska fyrirtækið Royce
Medical Holding, Inc. Royce hef-
ur um árabil verið einn af fremstu
framleiðendum stuðningstækja í
Bandaríkjunum.
Burðarás skipt upp | Burðarás
hefur verið skipt upp milli
Straums Fjárfestingarbanka og
Landsbankans en markaðsvirði
Burðaráss var um 91 milljarður
króna. Straumur fær stóran hluta
eignasafns Burðaráss en Lands-
bankinn styrkir mjög eigin fjár-
stöðu sína.
Atkins í aðhaldi | Megrunarfyr-
irtækið Atkins Nutritional á í
miklum rekstrarvanda og hefur
sótt um svokallaða gjaldþrots-
vernd í Bandaríkjunum.
Baugur kaupir | Baugur hefur
keypt bresku verslanakeðjuna
Jane Norman fyrir 13,5 milljarða.
Sem fyrr eru stjórnendur og KB
banki með í kaupunum. Jane
Norman sérhæfir sig í sölu á fatn-
aði til ungra kvenna á aldrinum 15
til 25 ára. Undir merkjum félags-
ins eru reknar 39 verslanir og 56
sérleyfisverslanir.
Arðgreiðslan
flyst á Straum
Burðarás hef-
ur skuldbund-
ið sig til að
greiða hluthöf-
um sínum um
fimm millj-
arða króna í
formi hluta-
bréfa í flutn-
ingafélaginu
Avion Group.
Skuldbinding
B u r ð a r á s s
vegna Avion-
arðgreiðslu til
hluthafa flyst
yfir til Straums-Burðaráss fjár-
festingarbanka gangi samruni
félaganna í gegn.
Burðarás fékk um níu millj-
arða króna í hlutabréfum í Avion
Group þegar Eimskipafélagið
var selt snemma sumars.
Greiðsla þessi fer fram um
hálfu ári eftir að Avion Group
fær skráningu í Kauphöll Íslands
og fá því hluthafar Straums bréf-
in í sínar hendur. Fyrirhugað er
að skráning Avion verði í síðasta
lagi í lok janúar á næsta ári. - eþa
Björgvin Guðmundsson
skrifar
„Markmið sameiningarinnar er að mynda stærri og
öflugri fjármálafyrirtæki sem eru betur í stakk búin
til að takast á við breyttar aðstæður í banka- og fjár-
festingastarfsemi,“ segir Björgólfur Thor Björg-
ólfsson, stjórnarformaður Burðaráss, um uppskipti
félagsins á milli Landsbankans og Straums Fjárfest-
ingarbanka. „Samruninn er einn af stærstu samrun-
um sinnar tegundar á Íslandi sé horft til hluthafa-
fjölda, fjárhagslegs styrks og eigin fjár.“
Sigurjón Þ. Árnason, bankastjóri Landsbankans,
segir markaðsvirði Burðaráss hafa verið fyrir helgi
97,5 milljarðar króna. Við skiptingu félagsins fær
Landsbankinn 40,3 milljarða króna. Þar af eru rúm-
ir 17 milljarðar greiddir með peningum. Stærstu
eignirnar sem renna til Landsbankans eru 10,5 millj-
arðar í sænska fjárfestingabankanum Carnegie,
fimm milljarðar í Marel og 2,2 milljarðar í Straumi
sjálfum.
Þórður Már Jóhannesson, forstjóri Straums, seg-
ir að um 57 milljarðar af markaðsverðmæti Burðar-
áss renni inn í sitt félag. Þar af séu fjórtán milljarð-
ar viðskiptavild og því greitt 33ja prósenta yfirverð
fyrir eigið fé félagsins. Aðrar eignir eru hlutabréf í
Íslandsbanka, Icelandic Group og Skandia. Að auki
tekur Straumur yfir skuldbindingar Burðaráss á
greiðslu arðs til hluthafa vegna sölu Eimskips.
Stjórnendum Straums og Landsbankans var tíð-
rætt um aukna fjárfestingargetu félaganna eftir
þessi viðskipti þegar þeir kynntu samrunann á Hót-
el Nordica í gær. Eigið fé hvors félags fyrir sig væri
í kringum hundrað milljarðar króna. Sigurjón sagði
að Landsbankinn gæti allt að tvöfaldað stærð sína.
Þórður sagði svigrúm til fjárfestinga í einstökum
verkefnum aukast um 175 prósent.
Straumur yfirtekur starfsemi Burðaráss og
þangað flytjast allir starfsmenn. Friðrik Jóhanns-
son, forstjóri Burðaráss, lætur af störfum til að
sinna öðrum verkefnum. Hann segist sáttur við við-
skilnaðinn. Eftir samrunann eignast hluthafar
Burðaráss um nítján prósent í Landsbankanum og
43 prósent í Straumi.
F R É T T I R V I K U N N A R
6 10-11 19
Björgvin Guðmundsson
skrifar
Erlendur Hjaltason, fram-
kvæmdastjóri Exista, hefur sagt
sig úr stjórn Vátryggingafélags
Íslands (VÍS). Gerir hann það til
þess að uppfylla skilyrði einka-
væðingarnefndar um að tengdir
aðilar megi ekki fara með meira
en 45 prósent í Símanum. Hefur
fjárfestahópur Exista þá uppfyllt
öll skilyrði sem kaupendum Sím-
ans voru sett í einkavæðingarferl-
inu.
Erlendur sat í stjórn VÍS ásamt
Lýði Guðmyndssyni, stjórnarfor-
manni Exista. Þar sitja einnig
Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri
KB banka, en Finnur Ingólfsson,
forstjóri VÍS, situr í stjórn KB
banka.
Samanlagt ráða Exista og KB
banki yfir 75 prósentum í Síman-
um eftir kaupin. Samkvæmt regl-
um einkavæðingarnefndar mega
þessi félög ekki vera tengd ef þau
ráða yfir svo stórum hluta. Áður
en Erlendur sagði sig úr stjórn VÍS
voru þessi félög hins vegar tengd
þar sem þau deildu fleiri en einum
stjórnanda í gegnum stjórn VÍS.
Fjárfestahópurinn mun skrifa
undir kaupsamning í þjóðmen-
ningarhúsinu á föstudaginn. Sjá út-
tekt síðu 10-11
Útrásarvísitalan hækkar:
Intrum Justitia
hækkar mest
Útrásarvísitalan hækkaði um
rúmt prósent í síðustu viku og er
hún nú komin í 113 stig. Þrjú fé-
lög hækkuðu um meira en fimm
prósent og hækkaði Intrum
Justita um rúm sjö prósent.
Breska fyrirtækið NWF, sem At-
orka á hlut í, hækkaði um tæp sex
prósent og einnig sænska fyrir-
tækið Scribona, sem Burðarás á
hlut í.
Gengi krónunnar veiktist lítil-
lega í síðustu viku og hækkaði því
Útrásarvísitalan meira en gengi
félaganna á erlendum mörkuðum.
Flest félögin í Útrásarvísitölunni
hækkuðu nokkuð í síðustu viku.
EasyJet lækkaði langmest fé-
laga í Útrásarvísitölunni eða um
rúm fimm prósent. Önnur félög
sem lækkuðu voru Cherryföretag,
Low & Bonar og Skandia. - dh
Landsbankinn fær 17
milljarða í reiðufé
Um fjörutíu milljarðar af eignum Burðaráss fara til Lands-
bankans en tæpir sextíu milljarðar til Straums. Fjárfesting-
argeta félaganna margfaldast eftir viðskiptin.
Sagði sig úr stjórn VÍS
Exista og KB banki voru tengdir aðilar samkvæmt skilyrðum einkavæðing-
arnefndar. Fjárfestarnir hafa nú uppfyllt öll skilyrði sem þeim voru sett.
ARÐURINN TIL EIG-
ENDA STRAUMS
Hluthafar Burðaráss,
nú Straums, fá fimm
milljarða greidda í
Avion-hlutabréfum.
01_20_Markadur 20 lesið 2.8.2005 16:21 Page 3