Fréttablaðið - 03.08.2005, Blaðsíða 20
D-vítamín
Á norðurslóðum þar sem sólin lætur lítið sjá sig getur verið nauðsynlegt að passa
upp á fæðuna til að fá nægilegt D-vítamín. Mjólkurvörur, egg, lifur og feitur fiskur
luma á miklu D-vítamíni og svo gerir gamla góða lýsið alltaf sitt gagn.[ ]
YOGASTÖÐIN HEILSUBÓT
Síðumúla 15, s. 5885711 og 6946103
YOGA YOGA SUMARYOGA
Líkamsæfingar, öndunaræfingar
slökun og hugleiðsla
Sértímar fyrir barnshafandi
Allir yoga unnendur velkomnir
www.yogaheilsa.is • yogaheilsa@yogaheilsa.is
Þú borðar þær með uppáhalds álegginu,
kannski ylvolgar úr ofninum,
ristaðar, með hvítlauksolíu,
stundum eins og pizzur
... eða eins og Strandamenn, glænýjar
með íslensku smjöri.
Fáðu þér Speltköku og Kartöfluköku í
næstu matvöruverslun.
Hollara brauð finnst varla.
Rammíslenskar Speltkökur og Kartöflukökur af Ströndum
100 ára hefð og ekkert nema hollusta
Opið virka daga kl. 10-20
laugardaga kl. 10-17
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
Ekki of seint að byrja að æfa
Rúmlega 400 manns eru skráðir í undirbúningshópinn sem hittist tvisvar í viku og æfir fyrir Reykjavíkurmaraþonið.
Undirbúningur fyrir Íslands-
banka Reykjavíkurmaraþonið
gengur vel. Hlaupið verður
einkar glæsilegt í ár og það er
ekki of seint að byrja að æfa.
Reykavíkurmaraþon fer fram 20.
ágúst næstkomandi. Hjördís Guð-
mundsdóttir er kynningarstjóri
Reykjavíkurmaraþons, eða Ís-
landsbanka Reykavíkurmaraþons
eins og það heitir nú. Hún hefur
nóg að gera þessa dagana enda er í
mörg horn að líta þegar viðburður
af þessari stærðargráðu er skipu-
lagður.
„Þetta er gríðarlega umfangs-
mikið hlaup og þar sem vegaleng-
irnar eru margar þá verður skipu-
lagið meira. Það er flókið að halda
hlaup á götum borgarinnar enda
þarf að loka götum og þess háttar.
Svo má ekki gleyma því að þetta er
í rauninni miklu meira en bara
hlaup. Þetta er heil fjölskyldu-
skemmtun. Í Lækjargötunni verð-
ur til dæmis lifandi tónlist og þar
koma ýmsir tónlistarmenn fram,“
segir Hjördís en þema maraþons-
ins er einmitt „músík og maraþon“.
„Tónlistin skapar skemmtilega
stemningu. Við spilum tónlist fyrir
þá sem hlaupa skemmtiskokkið og
svo hvetjum við tónlistarmenn til
að fara út á götu og spila fyrir
hlauparana. Það gekk vel í fyrra og
víða mátti sjá fólk með ferða-
græjur eða hljóðfæri við hlaupa-
brautina. Það var mjög skemmti-
legt og við vonum að stemningin
verði jafn góð í ár.“
Í fyrra var í fyrsta skiptið sett-
ur af stað skipulagður undirbún-
ingshópur fyrir maraþonið og var
reynslan svo góð að ákveðið var að
bjóða upp á slíkt aftur. Undirbún-
ingshópurinn er hugsaður fyrir þá
sem ætla sér að hlaupa tíu kíló-
metra og hófust æfingar í júní.
„Um 430 manns eru skráðir í
hópinn. Við erum með æfingar
tvisvar í viku þar sem hópurinn
hittist og mæting á þessar æfingar
hefur verið góð. Svo eru fjölmargir
sem eru skráðir í undirbúningshóp-
inn en búa úti á landi eða jafnvel
erlendis. Þeir fá æfingaáætlunina
og ýmis góð ráð frá kennaranum
send í tölvupósti og taka þannig
þátt. Það er mjög skemmtilegt,“
segir Hjördís og bætir því við að
það sé ekkert of seint að byrja í
undirbúningshópnum en hægt er
að skrá sig í hann á heimasíðu Ís-
landsbanka: www.isb.is.
Skráning í maraþonið fer vel af
stað og Hjördís á von á mörgum
hlaupurum. Eins og iðulega eru Ís-
lendingarnir þó seinir að skrá sig
og vill Hjördís hvetja fólk til að
skrá sig sem fyrst enda fer þátt-
tökugjaldið fljótlega hækkandi.
Hægt er að skrá sig til leiks á
heimasíðu hlaupsins: www.mara-
thon.is og þar má einnig nálgast all-
ar nánari upplýsingar um hlaupið.
Hjördís segir að hlaupið sé gríðarlega um-
fangsmikið og því hafi verið gagnlegt að
fá Íslandsbanka í lið með sér.
Við mælum
blóðfitu
Pantaðu tíma
í Lágmúla í síma 533 2308
Smáratorgi í síma 564 5600 Margir sem vinna nálægt raf-
magni vita ekki hvernig á að
bera sig að ef slys hendir.
Umgangast þarf rafmagnsslys á
töluvert annan hátt en önnur slys.
Samorka hefur í samstarfi við
Vinnueftirlitið, Landspítala-Há-
skólasjúkrahús og Löggildingar-
stofu dreift veggspjaldi þar sem
fyrsta hjálp við rafmagnsslys er
kynnt.
Þegar komið er að manni sem
er í snertingu við rafmagn er
lykilatriði að snerta hann ekki
með berum höndum heldur rjúfa
strauminn að honum. Ef ekki er
hægt að rjúfa strauminn verður
að grípa til mismunandi ráðstaf-
ana eftir því hvort um háspennu-
eða lágspennuslys er að ræða.
Þegar búið er að rjúfa strauminn
þarf að veita hjartahnoð ef ekkert
blóðstreymi finnst. Sérstaklega er
mælt með því að sjálfvirkt raf-
stuðtæki sé nálægt þar sem unnið
er við rafmagn og að hinn slasaði
sé tengdur við hann um leið og
mögulegt er.
Eins og með öll slys er lykil-
atriði að hafa strax samband við
Neyðarlínuna sem veitir leiðbein-
ingar um aðhlynningu. Frekari
upplýsingar er einnig að finna á
veggspjaldinu sem hægt er að
opna frá heimasíðu Samorku.
Rétt fyrsta hjálp bjargar mannslífum.
Fyrsta hjálp við rafmagnsslys Örtækni drepur
krabbameinsfrumur
RANNSÓKNIR SKAMMT Á VEG
KOMNAR EN GEFA GÓÐA VON.
Örtækni hefur verið
beisluð til að drepa
krabbameinsfrumur
án þess að skaða
heilbrigðan vef. Að-
ferðin felst í því að
stinga örlitlum sprotum inni í
krabbameinsfrumurnar og hita þá
svo upp með innrauðum leysigeisl-
um með þeim afleiðingum að
fruman drepst en heilbrigðar frumur
í kring haldast óskaddaðar. Sprotun-
um er sprautað inn í líkamann og
þeir finna krabbameinsfrumurnar af
því að þær eru öðruvísi en heil-
brigðar frumur. Lyfjameðferðin sem
nú er beitt gegn krabbameini drep-
ur heilbrigðar frumur um leið og
krabbameinsfrumurnar, sem veldur
hárlosi og ýmsum erfiðum auka-
verkunum. Rannsóknirnar voru
gerðar við Stanford-háskóla í
Bandaríkjunum og eru skammt á
veg komnar en gefa góða von.
20-21 (02-03) allt heilsa 2.8.2005 20:26 Page 2