Fréttablaðið - 03.08.2005, Blaðsíða 70
34 3. ágúst 2005 MIÐVIKUDAGUR
Ég get ekki upp-lýst hverjir það
eru sem standa
að þessu, þetta er
á byrjunarstigi og
ekkert hefur verið
ákveðið með
framleiðslu. Þetta
er hins vegar
mjög spennandi
verkefni og von-
andi kemst það einhvern tímann á
framleiðslustig,“ segir Óttar Sveins-
son metsölurithöfundur. Unnið
hefur verið að undirbúningi að gerð
kvikmyndar um metsölubókina Út-
kall á jólanótt eftir Óttar Sveinsson í
Hollywood í Bandaríkjunum síðustu
mánuði en Óttar segir of snemmt
að segja til um það hvort af mynd-
inni verði. Bókin Útkall á jólanótt
segir frá því þegar flutningaskipið
Suðurland fórst á Atlantshafi á leið
sinni til Murmansk í Sovétríkjunum
en sex skipverjar fórust í slysinu og
fimm komust af. Bókin er sjötta bók
Óttars í hinum svokölluðu Útkalls-
bókum sem Óttar hefur skrifað um
árabil.
Brekkusöngvarinn Árni Johnsenmætti vaskur í Kastljósið á
sunnudagskvöld og varði Þjóðhátíð í
Eyjum sem hina mestu menningar-
samkomu. Sjálfum er Árna
þó oft heitt í hamsi á
Þjóðhátíð og þá að
sama skapi laus hönd-
in. DV greindi frá því í
gær að Árni hefði
slegið Hreim Örn
Heimisson,
söngvara
Lands og
sona, þar
sem hann
söng á sviði á sunnudaginn ásamt
fleiri söngvurum. Hreimur íhugar nú
að kæra Árna, sem hefur áður lent í
ryskingum á Þjóðhátíð en þess er
skemmst að minnast þegar hann
lenti í stympingum við
Erp Eyvindarson og
Rottweilerhundana
á Þjóðhátíð árið
2002 og nokkrum
árum áður veittist
hann að Páli Ósk-
ari Hjálmtýssyni
og félaga hans bak-
sviðs í Eyjum.
RESCUE ME
MIÐVIKUDAGA KL. 21:00
Ég hef verið á ferð um Sviss og
Liechtenstein frá því á sunnudag.
Ferðafélagar mínir eru sex sam-
kynhneigðir blaðamenn og hass-
haus frá Wales. Einn af þeim fyrr-
nefndu er Harry sem kemur frá
Rúmeníu. Hann vann með leyni-
þjónustunni þar í landi en var sett-
ur á hæli eftir að hann kom út úr
skápnum. Hann segist enn vera að
jafna sig og reykir tvo pakka
á dag.
Ég hitti ferðafélaga
mína fyrst í Genf þar
sem ferðin hófst og er
smám saman að kynn-
ast þeim betur. Til
dæmis Malda
frá Þýska-
landi. Hann
er hommi
og „at-
vinnumót-
mælandi“. Hann ætlaði að fara til
Gleneagles og mótmæla á leið-
togafundinum á dögunum en
meiddist á fæti og hætti við ferð-
ina því hann „treysti“ sér ekki til
að hlaupa undan löggunni.
Frá Genf fórum við með lest til
Lausanne. Þar tók á móti okkur
Lutz Bohn, sem minnti mig á
Hollywood-leikara. Hann var sí-
fellt að reyna vera fyndinn og ég
held að hinn danski Jesper hafi
orðið skotinn í honum. Hann hló í
það minnsta að öllum bröndurun-
um.
Um kvöldið fórum við út að
borða á „gay friendly“ stað þar
sem ég upplýsti ferðafélaga mína
um leyndarmál mitt, að ég
væri sem sagt gagnkyn-
hneigður. „Ekkert til að
skammast sin fyrir,“ sagði
Mikael frá Slóvakíu.
Frá Lausanne lá leiðin áfram
með lest til Liechtenstein þar sem
vinnuhópar fyrir ráðstefnuna eru
að störfum. Hugmyndin er að við
fylgjumst með þeim og leggjum
jafnvel eitthvað til málanna áður
en sjálf ráðstefnan hefst. Meira
um það næst.
Á FERÐ UM SVISS Freyr og félagar
ferðast um í lest milli staða á leið sinni til
ráðstefnunnar.
[ VEISTU SVARIÐ ]
Svör við spurningum á bls. 8
1
3
2
Abdullah.
Ástralíu.
Kimi Räikkönen.
Dragkeppni Íslands verður haldin
í áttunda sinn í kvöld og verður
keppnin með örlítið breyttu sniði
frá því áður. „Í ár verða ekki ein-
ungis dragdrottningar sem keppa
heldur einnig dragkóngar,“ segir
Björn Gunnlaugsson, listrænn
stjórnandi keppninnar, sem stadd-
ur var í Hagkaup að kaupa gervi-
neglur þegar Fréttablaðið hafði
samband við hann.
„Keppnin hefst þannig að við
skellum öllum saman á sviðið og
þar taka þau hópsöng og dans-
atriði. Helga Braga verður kynnir
og heldur uppi fjörinu og hitar
mannskapinn upp á meðan kepp-
endur gera sig klára í aðalatriðin
sín en þau hefur hver keppandi
hannað sjálfur. Við ákváðum að
gefa keppendum algjörlega
frjálsar hendur í þetta sinn og því
gætu atriðin innihaldið söng,
dans, leikþætti, ljóðalestur, fim-
leikaþrautir og fleira,“ segir
Björn, sem sér um keppnina
ásamt Georgi Erlingssyni sem er
framkvæmdastjóri keppninnar.
Að sögn Björns taka þátttak-
endur keppnina mjög alvarlega og
undirbúningur getur tekið marg-
ar vikur. „Það þarf að hanna útlit-
ið, finna sér hárkollur eða gervi-
skegg, hanna búningana og æfa
atriðið. Undirbúningur á keppnis-
daginn sjálfan má svo ekki byrja
seinna en um hádegi því oft er jú
nauðsynlegt að fjarlægja óæski-
leg hár, greiða hárið og gera farð-
ann klárann.“
Í dómnefnd kvöldsins sitja
margir þekktir einstaklingar og
má þar til dæmis nefna eina elstu
dragdrottningu Íslands sem kýs
að kalla sig „vondu drottninguna“
og er jafnframt formaður dóm-
nefndar. Auk hennar sitja þau
Sylvía Nótt sjónvarpsstjarna,
Helgi Þór Arason Idolstjarna,
Love Guru og Esther Talía Casey
leik- og söngkona.
Keppnin hefst klukkan níu á
Gauki á Stöng og kostar þúsund
krónur inn. hilda@frettabladid.is
DRAGKEPPNI ÍSLANDS: BÆÐI KYNIN KEPPA Í KLÆÐSKIPTINGUM
Kóngar og drottningar
EYDDI TÍMA MEÐ
FJÖLSKYLDUNNI
Ég skemmti mér konunglega.
Ákvað að sleppa því að fara á
útihátíð af því að mér bauðst að
eyða tíma með fjölskyldu minni
en það er nokkuð sem ég fæ
ekki oft tækifæri til að gera. Við
fórum því saman í sumarbústað
og eyddum helginni í að spila á
spil, leika golf, grilla góðan mat,
fara í sund og njóta þess að vera
saman. Þetta var akkúrat það
sem ég þurfti til að endurnærast.
Heiðar Austmann útvarpsmaður.
HELGIN FÓR Í RÓLEGHEIT
Þetta var hvíldarhelgi því ég var
nýkomin úr viku hestaferð. Helgin
fór því í rólegheit og í að hvíla
lúin bein og sérstaklega lúna
vöðva. Við höfðum það því nota-
legt bæði heima og fórum svo úr
bænum og upp í sumarbústað á
sunnudag og áttum rólegar stund-
ir þar. Ekki dugar neitt annað eftir
svona langa og skemmtilega
hestaferð.
Ásta Möller, þingkona Sjálfstæð-
isflokksins.
VAR Í VINNUNNI
ALLAN TÍMANN
Ég skemmti mér rosalega vel. Ég
var í vinnunni allan tímann að fín-
pússa dagskrá menningarnætur.
Það er fátt skemmtilegra en að
skipuleggja þessa heljarinnar dag-
skrá 20. ágúst næstkomandi sem
vonandi höfðar til margra. Ég fór
ekki í neina útilegu en ég fer í til-
hlökkunarferð núna um helgina
og það er spennandi menning-
arnótt framundan.
Sif Gunnarsdóttir, verkefnisstjóri
Menningarnætur.
HVERNIG SKEMMTIRÐU ÞÉR UM HELGINA?
3 SPURÐIR
... fá Íslendingar fyrir almennt
góða hegðun um verslunar-
mannahelgina.
HRÓSIÐ
FRÉTTIR AF FÓLKI
REISUBÓKARBROT
FREYR GÍGJA BLAÐAMAÐUR ER Á LEIÐ Á RÁÐSTEFNU UM RÉTTINDABARÁTTU UNGS SAMKYNHNEIGÐS FÓLKS Í EVRÓPU
Á fer› me› samkynhneig›um
SKRAUTLEG DRAGDROTTNING
Þessi tróð upp í Gay Pride göngunni
í fyrra.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
»
FA
S
T
U
R
» PUNKTUR
Lárétt: 2 æra, 6 smáorð, 8 tíndi, 9 gugg-
in, 11 í röð, 12 giskum, 14 flanar, 16
utan, 17 örn, 18 verkur, 20 tónn, 21 tréí-
lát.
Lóðrétt: 1 garð, 2 belti, 4 steintegund, 5
svei, 7 fréttir, 10 lifir í sjó, 13 dvelja, 15
umrót, 16 stefna, 19 gerist í hnefaleikum
Lausn.
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
Lárétt: 2sómi, 6ef, 8las, 9grá, 11 rs, 12
getum, 14ganar, 16án, 17ara, 18tak,
20as, 21trog.
Lóðrétt: 1vegg, 3ól, 4marmara, 5iss, 7
fregnar, 10áta, 13una, 15rask, 16átt,
19ko.
70-71 (34-35) FÓLK 2.8.2005 20:22 Page 2