Fréttablaðið - 03.08.2005, Blaðsíða 21
Flestar konurnar eru á aldr-
inum 18-24 ára.
Fóstureyðingum hefur fjölgað jafnt
og þétt milli ára í Englandi og
Wales, samkvæmt tölum frá heil-
brigðisráðuneyti Bretlands.
Árið 2002 fóru 176.000 enskar
konur í fóstureyðingu en í fyrra
voru þær 185.400 og er aukningin
um 5,3%. Flestar voru konurnar á
aldrinum 18-24 ára en fækkun er
milli ára í aldursflokknum 16-18
ára. Flestar voru fóstureyðingarnar
framkvæmdar fyrir þrettándu viku
meðgöngu og um sextíu prósent
fyrir tíundu viku. Eitt prósent fóst-
ureyðinganna var framkvæmt
vegna fósturgalla sem myndi leiða
til mikillar fötlunar eða dauða í
fæðingu ef meðgangan fengi að
renna sitt skeið. Á Englandi er
leyfilegt að eyða fóstrum fram á
tuttugustu og fjórðu viku með-
göngu en miklar umræður eru nú
um að þrengja þennan tímaramma.
Á Íslandi er miðað við tólf vikur.
Í hraða nútímans getur verið
erfitt að slaka á. Fanný Jón-
mundsdóttir hefur gefið út tvo
nýja geisladiska sem hjálpa
fólki að öðlast sálarró.
Fanný Jónmundsdóttir hefur árum
saman leiðbeint fólki um slökun,
hugleiðslu og orkuæfingar. Fyrir
tíu árum síðan gaf hún út kasettur
með slökunartónlist og nú hefur
hún endurtekið leikinn og gefið út
tvo spánnýja geisladiska með slök-
unaræfingum, tónlist og sjávarnið.
„Það var kominn tími á að gefa
út eitthvað nýtt. Grunnurinn er
reyndar alltaf sá sami því þótt ýms-
ar nýjar kenningar spretti fram í
sambandi við slökunina þá byggir
þetta allt á sama grunni. Til að ná
slökun og hugarró þarftu að leita
inn á við og það er gott að hafa ein-
hver verkfæri eins og til dæmis
tónlistina til að hjálpa sér.“
Diskarnir tveir byggja fyrst
og fremst á tónlist og sjáv-
arnið. Annar diskur-
inn er hugsaður
fyrir þá sem vilja
slaka vel á fyrir
svefninn og sofa vel
en hinn diskurinn
veitir slökun og sjálf-
styrkingu fyrir daglegt
amstur.
„Þetta byggir á heilmiklum
rannsóknum og það hefur margsýnt
sig að tónlist af þessu tagi er góð
fyrir heilsuna. Tónlistin er í taktin-
um 60 slög á mínútu sem er sami
taktur og hjartað slær í þegar mað-
ur slakar vel á. Við það að hlusta á
tónlistina hægist á hjartslættinum.“
Fanný segir að diskarnir hafi
gefið góða raun og fólk á öllum
aldri nýti sér þá. Ýmsir fagmenn
hafi einnig tekið þeim vel og til að
mynda noti Náttúrulækningafélag-
ið diskana.
Geis lad iskarnir
fást í öllum
helstu bóka-
verslunum og þá
má einnig nálgast
víða annars stað-
ar. Til dæmis hjá
Skífunni, Betra lífi
og á bókasöfnum.
3MIÐVIKUDAGUR 3. ágúst 2005
Fóstureyðingum hefur fækkað í aldurs-
hópnum 16-18 ára í Englandi og Wales.
Spirulina inniheldur
meira af æskilegum
næringarefnum
en nokkur önnur
þekkt planta, korn
eða jurt og er því
einhver kjarnbesta
fæða sem völ er á.
Spirulina jafnar
matarlystinaog hefur
hreinsandi áhrif á
líkamann. Spirulina er
náttúrlegur orkupakki.
BÆTIEFNI Á BETRA VERÐI!
Skólavörðustíg 16
101 Reykjavík
Vertu fallega
sólbrún(n)
- innan frá
Vísindalega staðfest. Imedeen Tan
Optimizer - hylki verka innan frá og
veita gylltan húðlit, sem helst lengur en
þig hefur nokkurn tímann dreymt um.
Hylkin undirbúa húðina fyrir
sólina, minnka roða og viðkvæmni fyrir
sól, verja húðina gegn öldrun af
völdum sólar og örva myndun á fallegri
sólbrúnku.
„Þetta hefur gengið mjög vel og á meðan
þetta hjálpar öðrum held ég áfram,“ segir
Fanný.
Útsölustaðir m.a:Yggdrasil, Fjarðarkaup,
Maður lifandi, Lífsins lind -Hagkaup, Lyfjaval
og Árnes apotek Selfossi.
Sendum í póstkröfu
S: 462-1889
heilsuhorn@simnet.is
www.simnet.is/heilsuhorn
KALK ÚR JURTARIKINU
SEM NÝTIST
EINSTAKLEGA VEL
Flensan sem þú færð í dag
getur verið stökkbreytt á
morgun.
Flensuveirur geta skipt um gen á
ógnarhraða til að bregðast við
sýklalyfjum og búa til ný afbrigði
sem eru ónæm fyrir þeim. Vís-
indamenn hafa hingað til talið að
genaskiptingin verði hægt og ró-
lega milli árstíða en rannsóknir
sem gerðar voru við Heilbrigðis-
stofnun Bandaríkjanna sýna svo
ekki verður um villst að til dæm-
is inflúensa af A-stofni skiptir út
mörgum genum og veiran breyt-
ist því stórvægilega á mjög stutt-
um tíma. Þessar niðurstöður
valda áhyggjum af ónæmi flensu-
veira gegn bólusetningum og
einnig er óttast að fuglaflensan
gæti tekið upp á því að stökk-
breytast á þennan hátt og smitast
því auðveldlega milli manna.
Gyðingar láta umskera litla drengi
en nýjar rannsóknir benda til þess
að það hafi fyrirbyggjandi áhrif á
HIV-smit.
HIV-veiran þrífst
í forhúð
UMSKURÐUR KARLA GÆTI
MÖGULEGA KOMIÐ Í VEG FYRIR
HIV-SMIT HJÁ ÞEIM.
Nýjar rannsóknir benda til þess
að umskurður karla gæti haft
fyrirbyggjandi áhrif á HIV smit
hjá þeim. Rannsóknin var gerð í
Suður-Afríku á meira en 3.000
mönnum af Frönsku eyðnirann-
sóknarstofnuninni og niðurstöð-
urnar kynntar á ráðstefnu í Bras-
ilíu. Þær leiða í ljós að umskurð-
ur kom í veg fyrir sjö af hverjum
tíu smitum. Fyrri rannsóknir hafa
sýnt fram á að umskornir menn
eru síður smitaðir af HIV en
óumskornir. Talið er að frumur í
forhúðinni séu viðkvæmari fyrir
HIV en aðrar frumur á svipuðum
slóðum svo smithætta minnki
með því að fjarlægja hana.
Heilsufulltrúar Sameinuðu þjóð-
anna vilja þó fá meiri sannanir
áður en þeir mæla með um-
skurði sem aðferð til að koma í
veg fyrir alnæmissmit.
Flensuveirur stökkbreytast hraðar og meira en talið var.
Flensur stökkbreytast
hraðar en talið var
Fóstureyðingum
fjölgar á Englandi
Annar diskurinn er hugsaður fyrir þá sem
vilja sofa vel og ná að slaka vel á fyrir
svefninn. Hinn byggir á slökun sem kemur
sér vel yfir daginn.
Slökunartónlist í takt
við hjartsláttinn
AMERICAN DAD
MÁNUDAGA KL. 21:00
FYLGSTU MEÐ!
20-21 (02-03) allt heilsa 2.8.2005 20:26 Page 3