Fréttablaðið - 10.08.2005, Síða 35
sinni á fundinum. Varaði hann við uppstokkun
félagsins og sérstaklega sjávarútvegshlutans.
Ekki var farið að ráðum Benedikts og
stjórnaði Magnús Gunnarsson, sem stjórnar-
formaður Eimskipafélagsins, skútunni
næstu mánuðina á eftir. Hans aðalverkefni
fólst í að selja Brim, sjávarútvegshluta
Eimskipafélagsins. Í nóvember sama ár
voru kvóti og húseignir Dvergasteins á
Seyðisfirði seld án þess að söluverð væri
gefið upp, en það sagt hafa óveruleg áhrif á
reikninga Eimskipafélagsins. Fljótlega eftir
áramót 2003 og 2004 fór svo að draga til
tíðinda. Tilkynnt var um sölu á Haraldi
Böðvarssyni hf. til Granda og ÚA (Útgerðar-
félag Akureyringa) til Guðmundar Krist-
jánssonar og fjölskyldu frá Rifi á Snæfells-
nesi. Samanlagt var söluvirði þessara félaga
Eimskipafélagsins á þessum tíma 16,8 millj-
arðar króna.
Daginn eftir, 15. janúar 2004, er Skag-
strendingur seldur Fiskiðjunni Skagfirðingi
á Sauðárkróki fyrir 2,7 milljarða króna.
Ennþá voru fleiri eignir eftir innan Brims,
meðal annars Boyd Line, sem síðan var selt
fyrir 1,7 milljarða króna í byrjun febrúar
sama ár. Í ársskýrslu fyrir árið 2004 kemur
fram að hagnaður Eimskipafélagsins af sölu
eigna Brims hafi numið 4,1 milljarði króna.
Í lok janúar hafði stjórn Eimskips einnig
samþykkt að selja húsnæði sitt við Pósthús-
stræti í miðbæ Reykjavíkur undir rekstur
hótels. Söluverðið var um 510 milljónir
króna og hagnaðist félagið um 90 milljónir.
Stuttu síðar selur Eimskip eignarhlut sinn í
Skeljung og hagnast um rúman milljarð á
þeirri eign, sem var til komin áður en
Björgólfsfeðgar náðu undirtökunum í félag-
inu.
ÁRANGUR Á FIMM MÁNUÐUM
„Rúmir fimm mánuður eru frá því að nýir
aðilar tóku forustuna í félagi okkar. Á þeim
tíma hefur gengi hlutabréfanna hækkað um
34 prósent, en frá 1992 hefur árleg ávöxtun
verið rétt tæp 16 prósent. Eignir okkar – hlut-
hafanna allra, nærri 16 þúsund manns – hafa
á þessum tíma aukist um 11 þúsund milljónir
króna,“ sagði Björgólfur Thor eftir að hann
var kjörinn á aðalfundi í stjórn Eimskipa-
félagsins, sem síðan var breytt í móðurfélag-
ið Burðarás, 22. mars 2004. Lagði hann mikla
áherslu á að Burðarás ætti að einbeita sér
fyrst og fremst að fjárfestingum.
„Nauðsynlegt er nú fyrir Ísland að eiga
sterkan og öflugan fulltrúa á sviði fjárfest-
inga í heiminum, líkt og það var nauðsynlegt
fyrir land og þjóð að eiga öflugt flutninga-
félag fyrr á árum. Burðarás verður þessi full-
trúi Íslands og mun félagið nýta sér það fé og
þekkingu, sem myndast hefur innan félags-
ins, við uppbyggingu nútímalegra og arðvæn-
legra fyrirtækja,“ sagði Björgólfur við þetta
tækifæri.
Árið 2004 var líka fjárfest í Íslandsbanka,
breska bankanum Singer & Friedlander og
sænska fjárfestingarbankanum Carnegie og
Kaldbakur sameinaður Burðarási. Þá hefur
verið fjárfest í Skandia, Novator, Cherry-
företag og hluthafar fá bréf í Avion Group við
skráningu þess félags.
SÍÐASTA ÚTSPILIÐ Í BILI
Björgólfur Thor var svo endurkjörinn for-
maður stjórnarinnar á aðalfundi 4. mars síð-
astliðinn. Þá styttist í endanlega umbreytingu
félagsins, sem áður hafði þann megintilgang
að sinna flutningastarfsemi. Eimskipshlutur-
inn, um 94 prósent, var seldur til viðskipta-
félaga þeirra Björgólfsfeðga í Avion Group,
Magnúsar Þorsteinssonar, fyrir tæpa 22 millj-
arða króna. Hluti er
greiddur með peningum
og hluti með hlutabréfum
í Avion Group sem hlut-
hafar Burðaráss og nú
einnig Straums fá í hend-
urnar. Skipafélagið verð-
ur svo rekið ásamt flug-
starfseminni undir
móðurfélaginu Avion
Group, sem verður skráð
í Kauphöll Íslands fyrir
lok janúar á næsta ári,
gangi allt upp. Hagnaður
hluthafa Burðaráss vegna
þessara viðskipta er sagð-
ur vera um 15 milljarðar
króna fyrir skatta.
Í byrjun ágúst síðast-
liðins var svo ákveðið að
sameina Burðarás
Straumi og Landsbankan-
um; tveimur félögum
sem réðu á sínum tíma
miklu um örlög Burðar-
áss, sem þá hét Eimskipa-
félag Íslands. Straumur
mun heita Straumur –
Burðarás Fjárfestingar-
banki. Landsbankinn
mun taka út verðmætar
eignir sem hann hyggst
nýta sér til áframhald-
andi verkefna erlendis.
Umbreytingarferl i
Eimskipafélagsins endar
því þar sem það hófst fyrir tveimur árum.
MARKAÐURINN MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 2005 11
Ú T T E K T
NESSON Varaði
thafa.
MAGNÚS GUNNARSSON Seldi
sjávarútvegsfélög Eimskips.
FRIÐRIK JÓHANNSSON Stýrði
Burðarási í umbreytingarferlinu.
SIGURJÓN Þ. ÁRNASON Eimskip
verðmætara í sundur en saman.
ÞÓRÐUR MÁR JÓHANNESSON
Vann að uppstokkun Eimskips.
BJARNI ÁRMANNSSON Náði að
tryggja hagsmuni Íslandsbanka.
Fr
ét
ta
bl
að
ið
/V
ilh
el
m
BJÖRGÓLFUR THOR BJÖRGÓLFSSON Á AÐALFUNDI EIMSKIPS „Rúmir fimm mánuður eru frá því að nýir aðilar tóku forustuna í félagi okkar. Á þeim tíma hefur gengi hlutabréf-
anna hækkað um 34 prósent, en frá 1992 hefur árleg ávöxtun verið rétt tæp 16 prósent. Eignir okkar – hluthafanna allra, nærri 16 þúsund manns – hafa á þessum tíma aukist um 11
þúsund milljónir króna,“ sagði Björgólfur Thor eftir að hann var kjörinn á aðalfundi í stjórn Eimskipafélagsins, sem síðan var breytt í móðurfélagið Burðarás, 22. mars 2004.
li Eimskips lokið
19. september 2003
Flugleiðir
Íslandsbanki
Sjóvá-Almennum
Innleystur hagnaður: 5.109 milljónir króna
14. janúar 2004
Haraldur Böðvarsson
Útgerðarfélag Akureyringa
Skagstrendingur
Boyd Line Management o.fl.
Innleystur hagnaður: 4.105 milljónir króna
28. janúar 2004
Húseign við Pósthússtræti 2
Innleystur hagnaður: 90 milljónir króna
31. maí 2005
Eimskipafélag Íslands
Innleystur hagnaður: 15.500 milljónir króna
Samtals hagnaður fyrir
skatta vegna sölu eigna: 24.800 milljónir króna
*Greiddur var 15 prósenta arður til hluthafa af nafnvirði hlutabréfa fyrir árið
2003 og 20 prósenta arður fyrir árið 2004. Auk þess hagnaðist Burðarás,
móðurfélag Eimskipafélagsins, vegna annarra fjárfestingartekna.
T J Ó R N A R F O R M E N N I R N I R B A N K A M E N N I R N I R
S E L D U E I G N I R E I M S K I P A F É L A G S I N S
S Ö L U H A G N A Ð U R U M
2 5 M I L L J A R Ð A R K R Ó N A .