Fréttablaðið - 10.08.2005, Síða 53
Hagnaður Actavis á öðrum árs-
fjórðungi var 11,3 milljónir evra
eða 911 milljónir króna og er það
undir væntingum greiningardeilda
bankanna. Tekjur og rekstrarhagn-
aður eru meiri en spár bankanna
gerðu ráð fyrir.
Heildartekjur félagsins námu
122 milljónum evra eða tæpum tíu
milljörðum króna á öðrum árs-
fjórðungi og jukust um fjórtán pró-
sent milli ára. Sala eigin vöru-
merkja jókst um 28 prósent á árs-
fjórðungnum en sala til þriðja aðila
dróst saman að mestu leyti vegna
tafa á afhendingum til helstu við-
skiptavina.
Róbert Wessman, forstjóri
Actavis, segir uppgjörið sýna já-
kvæða þróun sem hafi átt sér stað í
sölu á eigin vörumerkjum með öfl-
ugum vexti í Rússlandi og Tyrk-
landi. „Sala til þriðja aðila var
undir væntingum og skilaði lægri
tekjum og hagnaði fyrir skatta, af-
skriftir og fjármagnsliði en vænt-
ingar stóðu til,“ segir hann.
Stjórnendur félagsins búast við
betri afkomu á seinni helmingi árs-
ins. - dh
19MIÐVIKUDAGUR 10. ágúst 2005
Skífan Laugavegi 26 opið alla daga til 22 • Skífan Smáralind • Skifan Kringlunni • www.skifan.is
...skemmtir þér ; )
KOMIN
Í SKÍFUNA
á sumartilboði aðeins 1999 kr.
POTTÞÉTT 382FÖLD GEISLAPLATA
1.999 kr.
MESTA HÆKKUN
ICEX-15 4.484,24
KAUPHÖLL ÍSLANDS [ HLUTABRÉF ]
Fjöldi viðskipta: 399
Velta: 2.949 milljónir
+0,37%
MESTA LÆKKUN
Actavis 42,60 +0,00% ... Bakkavör
40,50 +1,00%... Burðarás 17,40 +0,58%... FL Group 14,60 -0,34% ... Flaga
4,35 +1,14% ...HB Grandi 8,45 -0,59% ... Íslandsbanki 14,40 +0,35% ...
Jarðboranir 20,90 +0,00% ... KB banki 581,00 +0,69% ... Kögun 58,00
+0,00% ... Landsbankinn 20,60 +0,98% ... Marel 62,90 -1,56% ... SÍF 4,80
+0,00% ...Straumur 13,50 +0,00% ... Össur 86,00 -1,15%
Marel -1,56%
Össur -1,15%
Flaga -1,14%
Atlantic Petroleum 1,64%
Bakkavör 1,00%
Landsbankinn 0,98%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU:
Umsjón: nánar á visir.is
Hagna›ur undir væntingum
TÆPIR TÍU MILLJARÐAR Í TEKJUR Á ÖÐRUM
ÁRSFJÓRÐUNGI Róbert Wessman, forstjóri
Actavis.
AFKOMA ACTAVIS Á ÖÐRUM ÁRS-
FJÓRÐUNGI – Í MILLJÓNUM EVRA
Hagnaður 11,3
Spá Íslandsbanka 18
Spá Landsbanka 16,3
Spá KB banka 18,9
MAERSK EYKUR OLÍUFRAMLEIÐSLU SÍNA
Einn af olíuborpöllum Maersk í Norðursjó.
A.P. Möller
kaupir olíulindir
DANMÖRK Danska fyrirtækjasam-
steypan A.P. Möller Maersk hefur
keypt eignir bandaríska olíufyrir-
tækisins Kerr-McGee í hinum
breska hluta Norðursjávar fyrir
um 190 milljarða íslenskra króna.
Um er að ræða tíu borholur en þar
af eru fimm í notkun. Við kaupin
eykst framleiðslugeta fyrirtækis-
ins um fimmtán prósent.
A.P. Möller er stærsta fyrir-
tækjasamstæða Danmerkur og
Maersk, dótturfélag samstæðunn-
ar, er stærsta gámaflutningafélag
í heimi. A.P. Möller seldi nýlega
Maersk Air flugfélaginu Sterling,
sem er í eigu eignarhaldsfélags-
ins Fons, sem er í eigu Pálma Har-
aldssonar og Jóhannesar Kristins-
sonar. - dh
BJÖRGUNARSVEITARMENN
Keppa við tímann við að bjarga mönnun-
um út úr námunum.
Námumenn enn fastir:
Kapphlaup
vi› tímann
SHANGHAI, AP Björgunarsveitar-
menn keppast við að dæla vatni úr
kolanámu í suðurhluta Kína til að
bjarga 102 mönnum sem sitja þar
fastir. Flóð olli þvi að mennirnir
festust inni. Vatnsyfirborðið
hækkar um 50 sentímetra á
klukkustund og fara lífslíkur
mannanna dvínandi eftir því sem
lengri tími líður.
Hu Jintao, forseti Kína, sem
hefur lofað að bæta öryggi námu-
verkamanna, skipar héraðsyfir-
völdum að leggja allt kapp á að
bjarga mönnunum. Það gerir
björgunarmönnum erfiðara fyrir
að ekki er ljóst hvaðan vatnið sem
flæðir í námuna kemur. Yfirvöld í
Kína verjast allra frétta af mál-
inu.