Fréttablaðið - 10.09.2005, Side 29
[ TÍSKUVIKA Í NEW YORKNicole Miller sýnir vor- og
sumarlínuna BLS. 6
]
SMÁAUGLÝSINGAR
Flokkar
Bílar & farartæki
Keypt & selt
Þjónusta
Heilsa
Skólar & námskeið
Heimilið
Tómstundir & ferðir
Húsnæði
Atvinna
Tilkynningar
Góðan dag!
Í dag er laugardagur 10. september,
253. dagur ársins 2005.
REYKJAVÍK 6.36 13.25 20.11
AKUREYRI 6.17 13.09 19.59
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Maggnús Víkingur Grímsson á nokkur
einstök farartæki. Þar á meðal er
kraftmesti Kádiljákur landsins.
„Sumir vilja vera öðruvísi en aðrir og
stundum þurfa þeir hjálpartæki til þess. Ég
er svo venjulegur sjálfur að ég þarf óvenju-
leg tæki til að láta bera á mér,“ segir
Maggnús Víkingur hlæjandi þegar hann er
spurður út í tækjabakteríuna. Kádiljákur-
inn hans er af árgerð 2003 og Maggnús full-
yrðir að hann sé sá aflmesti á landinu. „Ég
keypti hann af kaupsýslumanni sem kom
honum ekki fyrir í bílskúrnum fyrir
Porsche-um. Hann lét setja í hann
supercharger-blásara til þess að breyta
upphaflegu vélinni úr 340 hestöflum í 540.
Þá þurfti að taka allt bremsukerfið í gegn
til að hann mætti vera á götunum með
svona aflmikla vél og svo þurfti að breyta
tölvukerfinu líka. Þetta var allt gert í Am-
eríku af dótturfyrirtæki Kádiljáks en þeir
selja ekki svona búnað öðruvísi en að ganga
frá honum sjálfir.“
Maggnús kveðst hafa verið hamingju-
samur eigandi nýs og breytts Ranger
Rovers þegar kunninginn rétti honum
lyklana að Kádiljáknum og sagði honum að
prufa. „Þá var fjandinn laus. Ég tættist á
bílnum um borgina og náði ekki af mér
brosinu fyrr en löngu eftir að ég var búinn
að leggja honum því þetta er ofurjeppi.“
Maggnús segir Kádiljákinn engan fjalla-
bíl heldur „sýndarmennsku“ borgarbíl.
„Ég hef voðalega gaman af að taka af
stað á grænu ljósi við hliðina á Porsche-
unum og skilja þá eftir en ef það gerist að
morgni til vakna allir í nærliggjandi húsum
því hávaðinn er svo mikill,“ segir Maggnús
Víkingur glettinn.
gun@frettabladid.is
Ná›i ekki af mér brosinu Heildarsala BMW jókst
óvenjumikið í nýliðnum ágúst-
mánuði, um tæp 24 % miðað
við sama mánuð í
fyrra. Söluaukningin
síðastliðna átta mán-
uði nemur 11% borið
saman við sama tíma-
bil í fyrra. Ágústmán-
uður var einnig
óvenjugóður fyrir
BMW hér á landi, sal-
an var næstum þrisvar
sinnum meiri en í
sama mánuði í fyrra.
Heildarsala BMW hef-
ur því aukist um rúm
55 prósent, sem er
ívið meira en nemur heildar-
söluaukningunni á bílamarkaði.
Naomi Campbell ætlar að
gefa laun sín fyrir tískuvikuna í
New York til fórnarlamba
fellibylsins Katrínar í New Or-
leans. Hún hefur boðið hvaða
tískuhönnuði sem er
vinnu sína, svo lengi
sem þeir borgi ferð
hennar til New Orleans.
Fyrsta fyrirsætustarfið
hennar var í New Or-
leans þegar hún var
fimmtán ára og segist
hún vilja gera allt til að
hjálpa.
Fáskrúðsfjarðargöng
voru formlega opnuð í
gær við hátíðlega at-
höfn. Göngin eru 5,9
km löng, þar af 5,7 km göng í
bergi og 200 m langir vegskál-
ar. Nýir aðkomuvegir eru 1,9
km Reyðarfjarðarmegin og 6,6
km Fáskrúðsfjarðarmegin.
Kádiljákurinn hans Maggnúsar Víkings er ofurjeppi og Triumph-hjólið er aflmesta fjöldaframleidda hjólið í heim-
inum í dag, 2.300 kúbik. Svo á hann líka Honda Goldfinger-hjól sem er alsett málverkum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
LIGGUR Í LOFTINU
[ BÍLAR - TÍSKA - FERÐIR ]
KRÍLIN
Pabbi,
er grasekkja
eiginkona
grænmetisætu
sem er dáin?
SMÁAUGLÝSINGAR
SÍMI: 550 5000
ÞÚ GETUR PANTAÐ
SMÁAUGLÝSINGAR
Á visir.is
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL.
BMW1
Lúxus í litlum bíl
BLS. 2
BÚDAPEST
Perlan við Dóná
BLS. 8