Tíminn - 07.09.1975, Qupperneq 8
Síinnudagur Y. septiemb'er 1975.
8
TÍ^ÍÍNN
Samvinnutryggingar
töpuðu 94 millj. kr. á
tveim árum
Vond afkoma trygg-
ingafélaga vegna
sjótjóna
Rætt við
Hallgrím
Sigurðsson,
framkvæmdastjóra
Samvinnutrygginga
Hallgrimur Sigurðs-
son, lögfræðingur tók
fyrir nokkru við fram-
kvæmdastjórastarfi i
Samvinnutryggingum,
en hann á að baki sér
langan starfsferil innan
samvinnuhreyfingar-
innar.
Hallgrimur er þó ef til
vill kunnastur fyrir störf
sin sem framkvæmda-
stjóri Viðlagasjóðs, en
hann sá meðal annars
um uppgjör á tjónum
Vestmannaeyinga i eld-
gosinu mikla.
Við hittum Hallgrim
að máli i skrifstofu hans
nú á dögunum og var er-
indið einkum og sér i
lagi að forvitnast um
hag Samvinnutrygginga
á timum vondrar tiðar
og váskaða, ennfremur
að segja ögn frá mann-
inum, sem nú stýrir
stærsta vátryggingafé-
lagi landsins. Spurðum
við Hallgrim fyrst um
fyrri störf hjá Sam-
vinnufélögunum:
Nýr framkvæmdastjóri
Samvinnutryggmga
— Ég kom til starí'a hjá Oliufé-
laginu hf. svo að segja strax að
loknu lögfræðiprófi við Háskóla
tslands, en það var árið 1952. Þar
starfaði ég svo i rúma tvo ára-
tugi, lengst af sem skrifstofu-
stjóri félagsins, auk annars.
— Nú þetta var orðinn langur
timi, og ég óskaði eftir tilbreyt-
ingu, svo það varð úr, mest fyrir
áeggjan Jóhannesar • heitins
Eliassonar, bankastjóra, að ég
fór til Hafskips hf, en var þar þó
aðeins tvo mánuði, þar eð mér
fannst starfið ekki henta mér. Þá
stóö svo á, að Viðlagasjóður var á
höttunum eftir framkvæmda-
stjóra, og ég tók að mér og hóf
störf þar 1. júni árið 1973. 1. mai
1974 tók ég svo framkvæmda-
stjórastarfi hjá Samvinnutrygg-
ingum.
Þá er þess að geta, að nokkur
skipulagsbreyting var gerð á
Samvinnutryggingum, þegar Ás-
geir Magnússon lét af fram-
kva:mdastjörastarfinu hér. Sam-
vinnutryggingar eru eiginlega
þrjú féiög, þ.e. Samvinnutrygg-
ingar. Liftryggingafélagið And-
vaka og Endurlryggingafélag
Samvinnutrygginga hf.
fjármálastjórn fyrir Andvöku og
Endurtryggingafélagið auk sölu
fyrir Andvöku, en Endurtrygg-
ingafélagið tók að sér aðstoð við
kaup á endurtryggingum Sam-
vinnutryggingg og annast ýmsa
vinnu i þvi sambandi,
Þá varð sú skipting á sölu
slysatrygginga, að Andvaka tók
að sér sölu almennra slysatrygg-
inga, sem áður höfðu verið hjá
Samvinnutryggingum.
Auk fyrrnefndra mannaskipta,
hættu Björn Vilmundarson, deild-
arstjóri Söludeildar og Björn
Gunnarsson, deildarstjóri
Skýrsluvéladeildar störfum hjá
Samvinnutryggingum á árinu
1974.
A árinu voru Áhættudeild og Af-
greiðsludeild lagðar niður, en
stofnsettar Sjódeild og Ábyrgðar-
og slysadeild. Sjódeildin var
stofnuð úr eftirstöðvum Áhættu-
deildar, en Afgreiðsludeild sam-
einuð Söludeild.
1 árslok var fyrirtækinu skipt i
sjö deildir: Ábyrgðar- og slysa-
deild, deildarstjóri Bragi Lárus-
son, Bókhaldsdeild, deildarstjóri
Þorsteinn Stefánsson, Fjármála-
deild, deildarstjóri Benedikt Sig-
urðsson, Sjódeild, deildarstjóri
Sverrir Þór, Skýrsluvéladeild,
deildarstjóri Sigurður Jónasson,
Söludeild, deildarstjóri Héðinn
Emilsson og Tjónadeild, deildar-
stjóri Gunnar Sigurðsson. Brunó
Hjaltested er fulltrúi fram-
kvæmdastjóra. Hreinn Berg-
sveinsson sér um starfsmanna-
hald meðfram starfa sinum i
Fjármáladeild og Baldvin Þ.
Kristjánsson annast almennings-
tengsl eins og áður.
Aöalfundur
Samvinnutrygginga
— Nú er lokið aðalfundi Sam-
vinnutrygginga. Hvernig var af-
koman á árinu?
— Aðalfundur Samvinnutrygg-
inga, Liftryggingafélagsins And-
vöku og Endurtryggingafélags
Samvinnutrygginga hf. var hald-
inn i Reykjavik 13. júni siðastlið-
inn og var fundurinn að þessu
sinni haldinn i Reykjavik. Rétt til
fundarsetu eiga 23 fulltrúar
kjörnir af aðalfundi SIS, en auk
þess eru tveir fulltrúar starfs-
manna hjá Samvinnutrygging-
um, eða FSSA, en það er nýmæli,
eins konar skref i átt til atvinnu-
lýðræðis meðal samvinnumanna.
Verið er með öðrum orðum að
gefa starfsfólki tækifæri til þess
að hafa áhrif á stjórnun félagsins.
Stjórn félagsins var endurkjör-
in og hana skipa þessir menn:
Erlendur Einarsson, forstjóri
StS formaður.
Jakob Frimannsson, fv. fram-
kvæmdastjóri KEA.
Ingólfur Ólafsson, kaupfélags-
stjóri (KRON).
Hallgrimur Sigurðsson, lögfræðingur, nýr framkvæmdastjóri Samvinnutrygginga. Hallgrimur er
fæddur 1925, sonur Guðlaugar Hjörleifsdóttur og Sigurðar Kristinssonar forstjóra SÍS. Stud. Mennta-
skóianum i Reykjavik 1945. Cand. juris frá Ifáskóla islands 1952. Hallgrimur er kvæntur Ingigerði
Kristinu Gisladóttur.
Jón Rafn Guðmundsson, sem
verið hafði aðstoðarfram-
kvæmdastjóri Samvinnutrygg-
inga varð þá framkvæmdastjóri
hinnar siðarnefndu félaga, en ég
framkvæmdastjóri Samvinnu-
trygginga.
Ný starfsskipting
Þessari breytingu á fram-
kvæmdastjórninni fylgdi óhjá-
kvæmilega ný starfsskipting og
má segja að þessar séu helztar:
Samvinnutryggingar tóku að
sér bókhald og ýmsa vinnu við
„EFAST UM AÐ NÝJA VIÐLAGA
TRYGGINGIN KOMI AÐ FULLU
GAGNI EF SVIPAÐRA ATBURÐA
DREGUR OG í VESTMANNA
EYJUM OG Á NORÐFIRÐI"