Tíminn - 07.09.1975, Side 32
32
TÍMINN
Sunnudagur 7. september 1975.
BÖRN HAFSINS
fjöruna, að báturinn fór
á flot og barst frá landi.
Þegar börnin vöknuðu,
sáu þau himin og haf, en
hvergi land. Þau fóru þá
að gráta, en enginn
heyrði til þeirra. Bátinn
rak fyrir vindinum, en
ekki vissu þau hvert
stefndi.
Gömul saga frá Japan
Saga þessi getur
minnt okkur á það, að
landið Japan eru marg-
ar eyjar, — óteljandi
eyjar stórar og smáar.
Einnig vekur hún at-
hygli okkar á þvi, að
hrisgrjón eru ræktuð
þar, og hrisgrjónin voru
hér áður fyrr aðalfæða
almennings i Japan og
eru það reyndar ennþá,
eins og i fleiri löndum i
Asiu. Sagan heitir Börn
hafsins og er á þessa
leið.
harðfisk og hrisgrjön,
potta og pönnur, garð-
hrifur og spaða, og strá-
regnhlifar og stráskó og
hlifðarföt handa verka-
fólkinu, sem faðir þeirra
var vanur að fá á eynni i
vinnu við gróðursetn-
ingu plantnanna.
Bömin áttu nú að gæta
bátsins, en foreldrar
þeirra fóru i kaupstað-
inn, til þess að ráða sér
vinnufólk.
Báturinn var dreginn
upp i fjöruna. Veður var
heitt og börnin urðu
syfjuð. Þau lögðust til
svefns og sofnuðu i bátn-
um. Nú kom háflóð.
Flæddi svo hátt upp i
Einu sinni var bóndi á
bæ. Það var siður hans,
að sá hrisgrjónum i akur
sinn kringum bæinn.
Þegar litlar hrisplöntur
voru komnar upp, tók
hann þær varlega upp og
flutti þær út i eyju eina,
þar sem hann hafði ráð
yfir hrisgrjónaakri og
gróðursetti þær þar, þvi
að hann ræktaði svo
grænmeti fyrir fjöl-
skyldu sina, þar sem
hrisplönturnar voru áð-
ur. Þær vom siðan flutt-
ar út i eyna á bát, sem
hann geymdi bundinn
við stjóra i vogi einum.
Það var eitt vor um
útgræðslutima, að bóndi
sagði við sjálfan sig: —
Litli drengurinn minn og
litla stúlkan min eru
orðin býsna dugleg að
hjálpa mér. Ég held að
ég ætti að lofa þeim með
mér út i eyjuna.
Systkinin ruku upp til
handa og fóta. Þau
hjálpuðu til að bera á
Látinn hrisplöntur,
Eftir langan tima sáu
þau eyju. Þangað rak
bátinn, og þau gátu róið
siðasta spölinn i land.
Siðan festu þau bátinn
vel og gengu á land.
Eyjan var óbyggð.
Drengurinn sagði að
þeim væri bezt að treina
matinn sem lengst. Þau
höfðu nokkrar matar-
birgðir, sem áttu að
vera sem nesti fyrir
vinnufólkið við gróður-
setningu hrisplantn-
anna. Drengurinn sagði
við systur sina: — Það
kemur kannski bráðum
skip og sér okkur, eða
fiskimaður kemur i land
að fá sér vatn. Okkur
verður áreiðanlega
bjargað, en við verðum
að spara matinn, þvi að
siðan biður okkar ekki
annað en hungurdauð-
inn.
— Við þurfum ekki að
deyja af sulti, sagði þá
systir hans. — skulum
taka hrisplönturnar og
gróðursetja þær, áður en
þær visna. Þetta þótti
bróður hennar þjóðráð.
Þau leituðu nú að góð-
um stað fyrir akur, og
fundu hann nálægt læk.
Siðan fóru þau niður að
báti og sóttu verkfæri.
Var nú nóg að starfa hjá
systkinunum. Þau stifl-
uðu lækinn og veittu
honum yfir akurinn,
gróðursettu svo plönt-
urnar. Þá tóku þau til
við að byggja sér litið
hús, og alltaf höfðu þau
nóg að starfa.
Nóg var að berjum á
eyjunni. Stóð heima, að
þau voru nú að verða
fullþroskuð. Börnin fóru
nú að eins og litlu fugl-
arnir. Þau týndu ber og
lifðu mestmegnis á þeim
um sumarið ásamt með
nestinu, sem þau höfðu
heimanað.
Undir haustið voru
hrisgrjónin orðin full-
þroskuð. Börnin höfðu
hirt svo vel um akurinn,
að þau fengu ágæta upp-
skeru og nægan forða til
ársins.
Nú leið ár eftir ár, sem
þau voru á eyjunni. Þau
ræktuðu jörðina og lifðu
af þvi, sem hún gaf af
sér. Loks vildi svo til, að
skip sigldi þar fram hjá.
Þá sáust börnin, sem
reyndar voru nú orðin
stór.
Skipið flutti þau heim
til foreldranna, sem
höfðu syrgt þau i mörg
ár, og urðu nú heldur
fagnaðarfundir.
Systkinin gáfu nú for-
eldrunum eyjuna sina
frjósömu, sem þau höfðu
fundið og ræktað. Þurfti
fjölskyldan nú ekki að
kviða skorti framar, þvi
að eyjan góða gaf mik-
inn ávöxt af sér.
Eyjan heitir enn Imo-
se-jima, en það þýðir
Systkinaey.
Fólk við vinnu sina á hrisakri.
Tæknifræðingur
Rafmagnsveita Reykjavikur óskar að
ráða rafmagnstæknifræðing, sterk-
straum.til starfa hjá innlagnadeild. Starf-
ið er fólgið i yfirumsjón með afgreiðslu
heimtauga og samþykktar raflagnateikn-
inga.
Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu vorri
og veitir deildarstjóri innlagnadeildar all-
ar nánari upplýsingar um starfið.
Pl 1RAFMAGNS
ÍM VEITA
ÍA. T REYKJAVlKUR
Nýtt símanúmer:
4-40-94
Ingibjartur Þorsteinsson
pípulagningameistari