Fréttablaðið - 02.11.2005, Qupperneq 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
> Markaðurinn
Sögurnar ... tölurnar ... fólkið ...
FYLGIR MEÐ FRÉTTABLAÐINU Í DAG
Aðalfundur LÍÚ
Tapa á
háu gengi
Sjávarútvegur
Sátt í
sjónmáli
Kauphöllin í Tókýó
Viðskipti
stöðvuð
Sögurnar... tölurnar... fólkið...
Miðvikudagur 2. nóvember 2005 – 31. tölublað – 1. árgangur Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
FL Group stærst | FL Group er
nú stærsti hluthafinn í easyJet
með 16,2 prósenta hlut. Eignar-
hlutur félagsins er orðinn meira
en tuttugu milljarða króna virði.
Undir væntingum | Hagnaður
Össurar var 52 milljónir króna á
þriðja ársfjórðungi. Á sama tíma í
fyrra nam hagnaðurinn 338 millj-
ónum.
Kaupþing áminnt | Sænska fjár-
málaeftirlitið áminnti Kaupþing
banka í Svíþjóð fyrir meðferð á
eignarhlutum í tveimur sjóðum
bankans. Málið varðar meðferð
eignarhluta sjóðanna í fyrirtæk-
inu Airsonett AB.
Síminn afskráður | 162 af 1252
hluthöfum Símans nýttu sér yfir-
tökutilboð sem nýir eigendur Sím-
ans gerðu þeim.
Nýr markaður | Kauphöll Íslands
opnar nýjan hlutabréfamarkað í
desember. Nýi markaðurinn er
sérstaklega fyrir minni fyrirtæki
og frumkvöðlafyrirtæki.
Stærstir í Evrópu | Íslenskir að-
ilar eru orðnir einu stærstu sölu-
aðilar Apple-vara í Evrópu eftir
að hafa keypt 38 prósent í norska
félaginu Office Line.
66 milljarðar | Hagnaður við-
skiptabankanna þriggja, Íslands-
banka, KB banka og Landsbank-
ans, á fyrstu níu mánuðum ársins
nam um 66 milljörðum króna eftir
skatta.
AB selur í Össuri | Sænski fjár-
festingasjóðurinn AB Industri-
värden hefur selt allt hlutafé sitt í
Össuri hf.
Stjórnendur hagnast | Sjö
stjórnendur hjá KB banka hafa
ákveðið að nýta sér kauprétt á
hlutum í bankanum. Markaðsvirði
hlutanna er um 929 milljónir
króna.
Opna Taco Bell
í stað Wendy’s
Eigendur vilja Taco Bell á
höfuðborgarsvæðið.
Fyrsti Taco Bell-staðurinn
verður opnaður hér á landi eftir
tíu daga á svæði varnarliðsins á
Keflavíkurflugvelli þar sem áður
var hinn þekkti Wendy’s-ham-
borgastaður. Taco Bell er með
þekktustu skyndibitakeðjum
heims og selur mexíkóskan
skyndibita. Það eru sömu eigend-
ur og að kjúklingastaðnum Kent-
ucky Fried Chicken sem koma að
rekstri Taco Bell.
„Við höfum auðvitað áhuga á
því að opna á höfuðborgarsvæð-
inu í framhaldinu. Við höfum
bæði staði í Mosfellsbæ og í Hafn-
arfirði sem gætu hentað undir
Taco Bell en þetta er tilrauna-
starfsemi og við verðum að sjá,“
segir Helgi Vilhjálmsson, eigandi
Kentucky, oft kenndur við Góu.
Hann segir að beðið sé með
eftirvæntingu eftir staðnum.
„Þeir eru að verða mjög hungrað-
ir þarna suður frá.“
Fyrsti Taco Bell-staðurinn var
opnaður í Bandaríkjunum árið
1962 og um 6.500 Taco Bell-staðir
eru þar í landi en aðeins um 280
utan Bandaríkjanna. Áttatíu
prósent af stöðunum eru rekinr
sjálfstætt samkvæmt viðskipta-
sérleyfum frá Taco Bell. - hb
Björgvin Guðmundsson
skrifar
„Í byrjun síðustu viku eftir að ný stjórn var kjörin
í Icelandic Group áttum við samtöl um samstarf
þessara fyrirtækja. Síðan unnum við nótt sem nýt-
an dag til að ná þessum samningum,“ segir Gunn-
laugur Sævar Gunnlaugsson, stjórnarformaður
Icelandic Group, sem hefur keypt þýskt fyrirtæki
sem framleiðir frystar sjávarafurðir.
Þýska fyrirtækið heitir Pickenpack – Hussman &
Hahn Seafood og er í eigu Finnboga Baldvinssonar
og Samherja. Finnbogi er forstjóri Pickenpack og
bróðir Þorsteins Más Baldvinssonar, forstjóra Sam-
herja. Verður þeim greitt með nýju hlutafé í
Icelandic Group og munu eiga 21,25 prósent í félag-
inu að því loknu. Miðað við markaðsverðmæti
hlutabréfanna í dag er kaupverðið 5,5 milljarðar
króna.
Gunnlaugur segir gífurlegan feng að fá Sam-
herja til samstarfs og Finnboga, sem verður for-
stjóri Icelandic í Evrópu. Hann hafi snúið rekstri
Hussman & Hahn við eftir að hafa keypt fyrirtækið
árið 2000. Það var síðan sameinað Pickenpack 2003.
Sameinað fyrirtæki er sagt stærsta framleiðslu-
fyrirtæki Þýskalands á sviði frystra sjávarafurða.
Í ár er áætlaður rekstrarhagnaður Pickenpack –
Hussman rúmur milljarður króna. Gert er ráð fyrir
að veltan verði fjórtán milljarðar árið 2006 og tekj-
ur Icelandic í Evrópu aukist á næsta ári um 28 pró-
sent.
„Það eru gríðarleg samlegðartækifæri fyrir
hendi. Við ætlum okkur að vera leiðandi í sölu á
fiski og þetta styður einnig við starfsemi okkar í
Asíu þaðan sem við fáum ufsann til vinnslu,“ segir
Gunnlaugur Sævar. Afkoma verksmiðja í Bretlandi
hafi ekki verið viðunandi og ætlunin sé að bæta þar
úr með hagræðingu í framleiðslu á frystum afurð-
um í samstarfi við Pickenpack.
Um 65 prósent af allri framleiðslu Pickenpack
eru fiskréttir sem fara í smásöluverslanir. Gunn-
laugur segir sölu á frosnum fiskréttum stöðuga en
vöxtur sé í sölu á kældum og ferskum afurðum. Það
eigi sérstaklega við Bretland. Kaupin á þýska fyrir-
tækinu séu því í samræmi við stefnu Icelandic
Group.
F R É T T I R V I K U N N A R
4 12-13 7
Hafliði Helgason
skrifar
Hluthafafundur FL Group sam-
þykkti í gær tillögur sem fyrir
fundinum lágu um aukningu
hlutafjár.
Hannes Smárason, forstjóri
félagsins kynnti skipulagsbreyt-
ingar félagsins í öflugt fjárfest-
ingarfélag.
Tillaga lá fyrir fundinum um
að auka hlutafé FL Group um 44
milljarða að markaðsvirði. Auk
þess lá fyrir tillaga um heimildir
stjórnar til útgáfu hlutafjár með-
al annars vegna kaupa á Sterl-
ing.
Vilhjálmur Bjarnason, hlut-
hafi í FL Group, greiddi einn at-
kvæði gegn tillögunni sem var
samþykkt af öðrum hluthöfum
sem mættir voru á fundinn.
Vilhjálmur lagði fram nokkrar
spurningar á fundinum meðal
annars þá sem hann hafði boðað í
kjölfar sögusagna um flutning
þriggja milljarða frá félaginu til
Luxemborgar sem ekki tengdust
rekstri FL Group. Vildi Vilhjálm-
ur að endurskoðendur vottuðu að
slíkt hefði ekki átt sér stað.
Skarphéðinn Berg Steinars-
son, stjórnarformaður FL Group
vísaði til þess að endurskoðendur
hefðu farið yfir uppgjör fyrri
hluta árs félagsins og myndu
endurskoða komandi uppgjör.
Þeir myndu horfa til þess sem og
annarra þátta sem lúta að reikn-
ingum félagsins. Vilhjálmur vildi
einnig vita hvort þorri viðskipta
með bréf easyJet væru á vegum
FL Group og þau ein og sér á bak
við hækkun félagsins. Skarphéð-
inn sagði félagið ekki hafa haft
óeðlileg áhrif á gengi í Kauphöll-
inni í London.
Útrásarvísitalan hækkar:
BTC og Saunalahti
hækka mest allra
Búlgarska símfyrirtækið BTC
hækkar mest allra félaga í útrás-
arvísitölunni, um 7,8 prósent á
milli vikna, og finnska símfyrir-
tækið Saunalahti hækkar næst-
mest, um 6,1 prósent. Breska
lággjaldaflugfélagið easyJet og
breska iðnaðarfyrirtækið NWF
koma svo næst með um 5,3 pró-
sent hækkun hvort félag. Útrás-
arvísitalan hækkar um 3,18 pró-
sent á milli vikna og er hún nú
108,9 stig.
Mest lækkar sænska fyrir-
tækið Cherryföretag, um 4,9 pró-
sent, og næstmest breska tísku-
vörukeðjan French Connection,
um 3,4 prósent. - hb
Ætla að vera leið-
andi í sölu á fiski
Icelandic Group kaupir þýskt fyrirtæki sem framleiðir fryst-
ar sjávarafurðir á 5,5 milljarða króna. Veltan í Evrópu eykst
um 28 prósent og möguleikar á hagræðingu í framleiðslu.
Samþykkja hlutafjáraukningu
Hluthafar FL Group samþykktu hlutafjáraukningu á fundi í gær. Einn hlut-
hafi var á móti og lagði fram nokkrar spurningar sem tengdust rekstrinum.
01_24_Markadur-lesið 1.11.2005 16:08 Page 3
Sími: 550 5000
MIÐVIKUDAGUR
2. nóvember 2005 — 296. tölublað — 5. árgangur
SKRIFSTOFAN
SÆVAR SKAPTASON
SKRIFSTOFUSTJÓRI:
Á skemmtilegum
vinnustað
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
Vinnustofa SÍBS • Hátúni 10c • Sími: 562 8500 • 562 8501 • Fax: 552 8819 • Heimasíða www.mulalundur.is
BIC Atlantis
penni
Verð 119 kr/stk
Ljósritunarpappír 394 kr/pakkningin
Geisladiskar þar sem gæðin skara framúr
fást í 10, 25, 50 og 100 stk einingum
VIÐ KAUP Á EGLA BRÉFABINDUM ERTU AÐ TRYGGJA MÖRGUM EINSTAKLINGUM BETRI FRAMTÍÐ
STABILO BOSS
Margir litir.
Verð 89 kr/stk
PILOT FEED GP4
Skriflitur 4 lita
VERÐ 296 KR
Þunnu möppurnar með mjúku og hörðu
baki. Þær sem allir eru að spyrja um
Teygjumöppur
af öllum gerðum
PILOT SUPER GRIP
VERÐ 98 KR
FÁST Í ÖLLUM BETRI BÓKAVERSLUNUM
Dagbækurnar fyrir árið 2006.
Letrum á þær eftir óskum
Nútímaleg skrifstofa
BLS. 2 Stílhrein hönnun
Metnaður lagður í
íslenska framleiðslu
BLS. 4 Hönnun hjá Á.
Guðmundssyni
Breytt um vinnustöðu
BLS. 6 Auður Ólafsdóttir
sjúkraþjálfari
Á skemmtilegum
vinnustað
BLS. 7 Sævar Skaptason
skrifstofustjóri
Skrifstofan í vasann
BLS. 7 Einfaldar lausnir hjá
Símanum
EFNISYFIRLIT
skrifstofan
[ SÉRBLAÐ UM NÚTÍMALEGT VINNUUMHVERFI – MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 2005 ]
RÉTTU PLÖNTURNAR
Blóm á skrifstofunni SJÁ BLS. 6
SÖGUMOLAR
Hvítt brauð sem strokleður
SJÁ INNI Í BLAÐI
01skrifstofan FORS NOTA 1.11.2005 15:41 Page 3
FANGAR „Íslensk stjórnvöld hafa
engar upplýsingar um flutn-
inga Bandaríkjamanna á föng-
um um íslenska lofthelgi, til eða
frá áfangastöðum, þar sem þeir
kynnu að hafa verið beittir pynd-
ingum,“ segir Ragnheiður Elín
Árnadóttir, aðstoðarmaður utan-
ríkisráðherra.
Flugmálastjórn staðfestir að
fimmtán flugvélar, sem gætu
hafa flutt fanga á vegum banda-
rísku leyniþjónustunnar, hafi haft
viðkomu á Keflavíkurflugvelli
á tímabilinu 1. janúar 2001 til 3.
október 2005. Hver þeirra hafi
lent frá fjórum sinnum og upp
í fimmtán sinnum hér á landi á
þessum tíma.
Ragnheiður segir að utanrík-
isráðuneytið láti nú kanna hjá
íslenskum flugmálayfirvöldum og
bandarískum stjórnvöldum hvort
mögulega hafi verið farið með
fanga um íslenska lofthelgi. „Við
höfum fengið lista frá Danmörku
yfir þau flugnúmer sem við sögu
koma. Samkvæmt áætlun vélar-
innar, sem lenti hér 8. mars síðast-
liðinn, voru aðeins tveir einstakl-
ingar um borð.“
Ragnheiður segir að utanrík-
isráðuneytið hafi enga vitneskju
um það hvort í þeirri flugvél né
öðrum hafi verið fangar. „Það
hefur hvergi verið staðfest og eru
því eins og hverjar aðrar sögu-
sagnir á þessu stigi,“ segir Ragn-
heiður.
Grunur um að bandaríska leyniþjónustan flytji fanga um Ísland:
Ekki með vitund stjórnvalda
HAMINGJA Íslendingar mælast enn
í hópi hamingjusömustu þjóða
heims samkvæmt nýjum mæling-
um World Database of Happiness.
Danir tróna á toppnum ásamt
Svisslendingum og Möltubú-
um með 8,0 í hamingjueinkunn.
Íslendingar fylgja fast á eftir með
frændum sínum Írum með 7,8.
Af Norðurlandaþjóðum eru
Norðmenn óhamingjusamastir
með 7,4 í einkunn en þeir geta þó
vel við unað miðað við óhamingju-
sömustu þjóðir heims sem eru
Tansaníumenn og íbúar Zimbabve
sem einungis mælast með 3,4 í
hamingjueinkunn. ■
Alþjóðleg hamingjumæling:
Íslendingar í
fremstu röð
Hlær einn að eigin
bröndurum
Rithöfundurinn
Stefán Máni vill láta
loka bókabúðum
þegar nýjasta
bók hans, Túr-
isti, kemur út.
FÓLK 42
Íslandsmet í aðstoðar-
mennsku
Ármann Kr.
Ólafsson,
aðstoðarmaður
fjármálaráðherra,
á Íslandsmet í
aðstoðarmennsku
við ráðherra. Hann
hefur aðstoðað ráð-
herra í rúm tíu ár.
TILVERAN 14
VÍSINDI Taugasérfræðingar við
háskóla í Missouri hafa komist að
því að karlkyns mýs syngja undur-
fagra söngva fyrir þær kvenkyns
mýslur sem þeir hafa fellt hug til.
Söngvarnir eru hins vegar á svo
hárri tíðni að mannseyrað greinir
þá ekki.
Vísindamennirnir létu mýsnar
þefa af baðmull vættri þvagi sem
innihélt kynörvandi ferómóna úr
kvenkyns músum. Eftir að hafa
hnusað af baðmullinni hófu mýsn-
ar að syngja af öllum lífs og sálar-
kröftum. Hingað til hefur aðeins
verið talið að hvalir, fuglar og
apar syngju með þessum hætti en
nú bætast mýs í hópinn.
Hægt er að hlýða á sönginn á
vefsíðu breska blaðsins Guardian
á slóðinni www.guardian.co.uk. ■
Dýrin eru rómantísk:
Mýsnar syngja
ástarsöngva
MÚSAMANSÖNGUR Mýs eru músíkalskari
en áður var talið.
VEÐRIÐ Í DAG
Valur styrkist
Valsarar afhjúp-
uðu tvo nýjustu
liðsmenn sína í gær.
Laun þeirra slaga hátt
upp í laun meðal-
manna í norsku
og sænsku
úrvalsdeildinni.
ÍÞRÓTTIR 36
DÁLÍTIL RIGNING SUÐAUSTAN
til. Stöku él við norðurströndina, einkum
síðdegis. Annars yfirleitt þurrt en fremur
skýjað. Hiti 2-6 stig syðra en við frost-
mark nyrðra.
VETRARLJÓSIN Í BÆNUM Fannir Esjunnar og höfuðborgin ljómuðu í tærri vetrarbirtunni í gær. Umferðar- og bílljósin sköpuðu skærrauða
andstæðu við hvíta vetrarbirtuna er þessi fótgangandi borgarbúi skaut sér yfir Lækjargötuna.FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
KOMINN
Á DVD Í
VERSLANIR!
FLUG „Flugöryggi á Keflavíkur-
flugvelli líður fyrir þennan nið-
urskurð. Áður höfðum við sex
tæki til snjóruðnings sem eru nú
aðeins þrjú. Það er ekki til mann-
skapur til þess að vinna þessa
vinnu. Þetta kemur niður á flug-
brautum og bremsuskilyrðum
fyrir flugvélar,“ segir Vernharð
Guðjónsson, formaður Landssam-
bands slökkviliðs- og sjúkraflutn-
ingamanna.
Slökkviliðsmenn á Keflavík-
urflugvelli hafa áhyggjur af
öryggi flugvéla á vellinum vegna
samdráttar og uppsagna á starfs-
mönnum.
Vernharð telur að niðurskurð-
ur á þessari þjónustu sé í beinu
samhengi við samdrátt hjá varn-
arliðinu á Keflavíkurflugvelli.
„Þetta er kannski táknrænt fyrir
það að varnarliðið sé hreinlega
að pakka saman,“ segir Vern-
harð og bendir á að nýverið hafi
gömul kafbátaleitarvél, sem lengi
hefur staðið á vellinum sem sýn-
ingargripur, verið rifin niður og
fjarlægð. „Það vantar einhverja
staðfestingu á því sem hér er á
ferðinni því að stjórnvöld gefa
ekkert upp.“
Ásgeir Húnbogason, vann við
viðgerðir á snjómoksturstækj-
um á vellinum en var sagt upp í
haust: „Ég lét Davíð Oddsson vita
af þessari stöðu mála í september.
Ég sendi honum tölvupóst ásamt
Sturlu Böðvarssyni samgönguráð-
herra og stjórnmálamönnum úr
öllum flokkum og lýsti ástandinu,“
segir Ásgeir og bætir við: „Mér
þykir áhugaleysi samgönguráð-
herra á málinu vera undarlegt.“
Jón Böðvarsson, flugvallar-
stjóri á Keflavíkurflugvelli, segir
spurninguna snúast um þá staðla
sem unnið sé eftir: „Ef þeir hafa
raunverulegar áhyggjur af flug-
öryggi þá væri fagmannlegt hjá
þeim að tala við þá aðila sem þeir
vinna fyrir. Síðan eru til reglur og
staðlar sem segja til um hvað þarf
til þess að reka flugvöll.“ - saj
Flugöryggi ógnað
vegna niðurskurðar
Formaður Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna segir flugör-
yggi á Keflavíkurflugvelli ógnað vegna niðurskurðar varnarliðsins. Flugvallar-
stjóri er því ósammála. Ráðherrar vissu um niðurskurðinn í september.
GARPUR HNEFILL:
Spáir í framtíðina
• börn • nám • ferðir
Í MIÐJU BLAÐSINS