Fréttablaðið - 02.11.2005, Síða 6
6 2. nóvember 2005 MIÐVIKUDAGUR
KJÖRKASSINN
Á að byggja á eyjum á Faxaflóa?
Já 39%
Nei 61%
SPURNING DAGSINS Í DAG?
Eiga íslensk stjórnvöld að leyfa
fangaflutninga leyniþjónustu
Bandaríkjanna um Ísland?
Segðu þína skoðun á Vísi.is
FANGAR Allt bendir til að flugvél-
ar á vegum bandarísku leyni-
þjónustunnar CIA með grunaða
hryðjuverkamenn innanborðs
hafi millilent á Íslandi og í Dan-
mörku, Noregi og Svíþjóð á leið
sinni til ríkja þar sem pynting-
ar eru stundaðar. Ekki er ljóst
hversu mikla vitneskju stjórnvöld
í þessum löndum hafa haft um eðli
flutninganna.
Það eru ekki ný tíðindi að
bandarísk stjórnvöld hafi um
nokkurra ára skeið flutt grun-
aða hryðjuverkamenn til ríkja
sem vitað er að beiti pyntingum
við yfirheyrslur fanga, til dæmis
Jórdaníu, Sýrlands og Líbíu, en
slíkt brýtur í bága við sáttmála
Sameinuðu þjóðanna gegn pynt-
ingum. Þannig greindi bandaríska
tímaritið Newsweek frá því fyrr
á þessu ári að CIA hefði nokkr-
ar flugvélar á leigu sem notaðar
væru til slíkra flutninga, svo-
nefndar draugaflugvélar. Vélarn-
ar líta að öllu leyti út fyrir að vera
ætlaðar til borgaralegra nota. Því
vekja ferðir þeirra minni athygli
en ella enda eru aðrar kröfur
gerðar um upplýsingar um borg-
arlegt flug en hernaðarlegt.
Talsverðar umræður hafa
skapast í Danmörku um hvort
slíkir flutningar hafi farið um
danska lofthelgi. Í sumar spurðu
þingmenn Per Stig Møller utanrík-
isráðherra út í málið og kom fram
í svörum ráðherrans að dönsk
yfirvöld hefðu látið þá skoðun
sína í ljós við Bandaríkjamenn að
„Danir óski ekki eftir að lofthelgi
landsins sé notuð í tilgangi sem
ekki samrýmist alþjóðasáttmál-
um.“ Af þessu má ráða að dönsk
stjórnvöld hafi haft grun um að
ekki væri allt með felldu.
Í októberlok spurði svo Frank
Aaen, þingmaður stjórnarand-
stöðunnar, Flemming Hansen
samgönguráðherra í hvaða erind-
agjörðum flugvél á vegum flugfé-
lags sem vitað er að CIA skiptir
við hafi verið á Kastrup-flugvelli
í 23 klukkustundir mars á þessu
ári. Staðfest hefur verið að sú
flugvél millilenti á Keflavíkur-
flugvelli í rúman sólarhring.
Jafnframt vildi Aaen vita hvort
flugvél á leið frá Reykjavík til
Búdapest fyrir um þremur vikum
síðan hefði farið um danska loft-
helgi. Að sögn dagblaðsins Politik-
en sagðist ráðherrann hvorki hafa
vitneskju um hverjir hefðu verið
um borð né hver tilgangur ferða-
lagsins hefði verið.
Í síðasta mánuði fjallaði norska
vikuritið Nytid um ferðir slíkra
véla um norska lofthelgi og er því
meðal annars haldið fram að flug-
völlur í Stavangri hafi verið not-
aður til millilendinga. Blaðið stað-
hæfir að árið 2001 hafi tveir menn
verið teknir höndum í Svíþjóð og
þeir síðan fluttir nauðugir til
Egyptalands þar sem þeir sættu
pyntingum. Jafnframt er greint
frá því að flugvél með einkennis-
stafina N227SV sem CIA er sögð
hafa verið með á leigu hafi farið
um norska lofthelgi á leið sinni frá
Möltu til Keflavíkur um miðjan
desember 2004, en ekkert er vitað
hverjir voru um borð. Talsmaður
norska utanríkisráðuneytisins
kvaðst í samtali við blaðið enga
vitneskju hafa um slíkar ferðir.
sveinng@frettabladid.is
PER STIG MØLLER Danski utanríkisráðherr-
ann lét þá skoðun sína í ljós við Banda-
ríkjamenn að fangaflutninga um danska
lofthelgi væri ekki óskað.
FANGAFLUGVÉL Að sögn norska blaðsins Nytid var CIA með flugvélina N227SV á leigu
þegar hún flaug frá Möltu til Keflavíkur í óþekktum tilgangi.
Fimmtán fangaflugvélar
taldar hafa lent í Keflavík
Bandaríska leyniþjónustan CIA hefur ítrekað flutt fanga um lofthelgi Norðurlandanna, þar með talið
Íslands, til annarra landa þar sem pyntingar eru sagðar viðgangast. Stjórnvöld í Danmörku virðast hafa
grunað að ekki væri allt með felldu og fóru fram á að flutningarnir færu ekki um danska lofthelgi.
FANGAFLUG Steingrímur J. Sigfús-
son formaður vinstri grænna hefur
óskað svara frá Geir H. Haarde
utanríkisráðherra við spurningum
um hugsanlegar ferðir bandarísku
leyniþjónustunnar með fanga um
íslenska lofthelgi og um viðkomu
slíkra véla á Keflavíkurflugvelli.
„Ég rökstyð fyrirspurn mína á
Alþingi með þeim gögnum sem ég
hef,“ segir hann.
Þingfundir verða aftur í næstu
viku að lokinni kjördæmaviku
þingmanna og má búast
við svörum utanríkisráð-
herra um miðja vikuna.
Steingrímur spyr
hvort ráðuneytinu sé
kunnugt um að flugvél-
ar á vegum bandarísku
l e y n i þj ó n u s t u n n a r
með fanga eða meinta
hryðjuverkamenn, hafi
farið um íslenska
lofthelgi.
Hann spyr jafnframt hvort
utanríkisráðherra telji meðferð
fanga, sem ekki njóti verndar og
réttinda sem venjulegir borgar-
ar, brot á alþjóðalögum og hvort
íslensk stjórnvöld ætli að meina
flugvélum með fanga eða meinta
hryðjuverkamenn aðgang að
íslenskri lofthelgi og afnot af
íslenskum flugvöllum.
Íslandsdeild mannréttindasam-
takanna Amnesty International
vekur athygli á að algert bann við
pyndingum og illri meðferð feli
einnig í sér algert bann við að
flytja fanga til ríkis þar sem
hætta sé á að hann verði
pyntaður eða látinn sæta
grimmilegri meðferð.
„Erlendum stjórnvöld-
um ber að sækja um
yfirflugs- og lendingarleyfi vegna
flugvéla sem fara inn í lofthelg-
ina eða lenda,“ segir Ragnheiður
Elín Árnadóttir, aðstoðarmaður
utanríkisráðherra. Hún segir
að borgaralegt flug sé ekki háð
slíkum kvöðum og þurfi aðeins
að tilkynna um áætlun sína.
„Við höfum ekki fengið umsókn-
ir vegna annars flugs og getum
ekki staðfest að í flugvélunum
hafi verið fangar.“ - jh
Stjórnvöld spurð hvort þau hafi vitað um flug leyniþjónustu Bandaríkjanna:
Geta ekki staðfest fangaflugið
STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON Formaður
Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs.
RAGNHEIÐUR ELÍN ÁRNA-
DÓTTIR Aðstoðarmaður
utanríkisráðherra.
FIMMTÁN VÉLAR Í KEFLAVÍK
Af þeim 44 flugvélum sem spurt var um á
danska þinginu fóru sjö um danska lofthelgi
og þrjár lentu á dönskum flugvöllum. Sam-
kvæmt upplýsingum frá flugmálayfirvöldum
í Keflavík lentu fimmtán þessara véla á Kefla-
víkurflugvelli á tímabilinu 1. janúar 2001 til
3. október 2005, sumar þeirra oft.
N169KT - 7. júní 2001
N1HC - 1. júlí 2001
N42Hn - 23. september 2001
N5117H - 2. október 2001
N157A - 14. okt 2001
N221SG - 31. mars 2002
N50BH - 23. júní 2002
N1016M - 19. apríl 2003
N35NK - 7. desember 2004
N168D - 6. apríl 2005
N212AZ - Vélin lenti 15 sinnum á tímabilinu
N470JF - Vélin lenti 15 sinnum á tímabilinu
N315CR - Vélin lenti 11 sinnum á tímabilinu
N33NJ - Vélin lenti 8 sinnum á tímabilinu
N822US - Vélin lenti 4 sinnum á tímabilinu
Aukaferð
Barcelona
2. desember frá kr. 49.990
Heimsferðir bjóða nú aukaferð til Barcelona 2.-5. des. á frábærum kjörum.
Einstakt tækifæri til að kynnast einni mest spennandi borg Spánar. Það er frábært
að versla og njóta í Barcelona, endalaust
úrval verslana og veitingastaða og verðlag
mjög hagstætt. Gríptu tækifærið og
skrepptu í helgarferð til Barcelona,
slakaðu á, kauptu jólagjafir á hagstæðu
verði og, umfram allt, njóttu lífsins.
Verð kr.
49.990
Flug, skattar og gisting, m.v. 2 í
herbergi á Hotel Rialto með
morgunverði, 2. desember. Netverð
á mann.
Helgarferð - 3 nætur
VERKALÝÐSMÁL Forsvarsmenn
Samiðnar funduðu með lögmanni
starfsmannaleigunnar 2B, Sveini
Andra Sveinssyni, seinni partinn í
gær. Engin niðurstaða varð af fund-
inum, en til stendur að funda aftur
í dag. Fimmtán af átján Pólverjum
frá starfsmannaleigunni 2B sem
áttu að fara heim á mánudag eru
enn á Kárahnjúkum. Pólverjarnir
neituðu að yfirgefa svæðið fyrr en
þeir hefðu fengið í hendur launa-
seðla sína, með uppgjöri við starfs-
mannaleiguna.
Að sögn Odds Friðrikssonar
ákváðu hins vegar þrír að halda til
Reykjavíkur í gær og eru á heim-
leið. Mennirnir hafa dvalið hér á
landi í þrjá mánuði og unnið fyrir
Suðurverk við Kárahnjúka. „Ann-
ars er mál Pólverjanna nú í höndum
verkalýðsfélagsins,“ segir hann og
vísaði til fundahaldanna með lög-
manni 2B.
Þorbjörn Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Samiðnar, sagðist
ekki treysta sér til að spá fyrir um
endalok viðræðnanna við 2B, en
kvaðst vonast til að pólsku verka-
mennirnir yrðu ekki fyrir fjárhags-
tjóni og að í lausn málsins myndi
líka semjast um heimferð þeirra.
„Fundurinn var gagnlegur og
menn ræddu málið af skynsemi og
yfirvegun. Við einsettum okkur að
finna skynsamlega lausn,“ segir
Sveinn Andri, en treystir sér ekki
fremur en Þorbjörn að spá fyrir um
hvort samkomulag myndi nást. - óká
Forsvarsmenn Samiðnar og lögmaður starfsmannaleigunnar 2B ehf.:
Funda um laun Pólverjanna
ÞORBJÖRN GUÐMUNDSSON Framkvæmda-
stjóri Samiðnar fundar með lögmanni
starfsmannaleigunnar 2B ehf. um launa-
mál pólskra verkamanna.
VEÐURFAR Lögregluyfirvöld í Ólafs-
firði, í samráði við Veðurstofu
Íslands, lýstu í gær yfir viðbúnað-
arástandi vegna snjóflóðahættu í
Ósbrekkufjalli gegnt byggðinni í
firðinum.
Á hættusvæðinu er hesthúsa-
byggð en Kristinn Hreinsson,
bæjarritari á Ólafsfirði, segir ekki
hættu á að snjóflóð falli á manna-
bústaði. Talsverður snjór hefur
safnast upp í Ósbrekkufjalli síð-
ustu daga.
„Hestamenn eru hvattir til að
fara með gát um svæðið og helst
á enginn að vera þar á ferð nema
brýna nauðsyn beri til,“ segir
Kristinn. - kk
Ofankoma í Ólafsfirði:
Hættuástand í
hesthúsabyggð
ÍSRAEL, AP Ísraelsher tók tvo eft-
irlýsta herskáa Palestínumenn
af lífi í gær með því að sprengja
bíl þeirra í tætlur með stýriflaug.
Örskömmu fyrir árásina hafði
Mahmoud Abbas, leiðtogi Palest-
ínumanna, ekið eftir sama vegi
í grennd við flóttamannabúðir á
Gazasvæðinu.
Herskáir Palestínumenn brugð-
ust við árásunum með því að hvetja
til hefndarárása. En þrátt fyrir
hina auknu spennu á Gaza áform-
uðu fulltrúar Palestínumanna og
Ísraelsstjórnar að hittast í dag.
Reyna á að útkljá ágreining um
það hvernig tryggja beri öryggi
á landamærum Gaza og Egypta-
lands eftir að Ísraelar yfirgáfu
Gazasvæðið í september. ■
Deila Ísraels og Palestínu:
Stýriflaugaárás
á Gazasvæðinu
Á VETTVANGI Palestínumenn skoða flak
bílsins sem Ísraelar sprengdu með flug-
skeyti á Gaza í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP