Fréttablaðið - 02.11.2005, Síða 8
8 2. nóvember 2005 MIÐVIKUDAGUR
SVEITARSTJÓRNARMÁL Þrír frambjóð-
endur sækjast eftir að ná fjórða
sæti á lista Sjálfstæðisflokks í
Reykjavík fyrir komandi borg-
arstjórnarkosningar, þau Jórunn
Frímannsdóttir, Örn Sigurðsson
og Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir.
Þorbjörg og Jórunn leggja báðar
talsverða áherslu á velferðarmál,
sérstaklega hvað varðar aldraða.
Samgöngumál eru einnig í brenni-
depli og virðast þau öll vera hlynnt
úrbótum á gatnamótum Miklu-
brautar og Kringlumýrarbrautar
og byggingu Sundabrautar.
Örn Sigurðsson vill hins vegar
leggja algjöran forgang í skipulags-
mál og telur að með bættu skipu-
lagi myndist forsendur til úrbóta
í mörgum öðrum málum, svo sem
bættum samgöngum, minni meng-
um og fleiri lóðum til bygginga.
Kjartan Magnússon er eini
sjálfstæðismaðurinn sem sækist
eftir þriðja sæti á lista flokksins
í Reykjavík. Kjartan hefur setið
í borgarstjórn um nokkurt bil og
hyggst um margt byggja á reynslu
sinni af þessum málum. Kjartan
setur samgöngumál og íþrótta- og
æskulýðsmál á oddinn.
saj@frettabladid.is
Kjartan Magnússon, 3. sæti.
„Ég hef setið í borgarstjórn und-
anfarin ár og hef lagt fram margar
tillögur. Ég held að verkin tali,“ segir
Kjartan Magnússon, en hann er eini
frambjóðandinn í þriðja sæti á lista
Sjálfstæðisflokks til borgarstjórnar.
Kjartan leggur sérstaka áherslu á
samgöngumál og íþrótta- og æsku-
lýðsmál.
„Þau mál sem ég legg áherslu á
að leysa í samgöngumálunum eru
mislæg gatnamót Miklubrautar og
Kringlumýrarbrautar og svo er ákaf-
lega mikilvægt að koma Sundabraut-
inni af stað,“ segir Kjartan. Kjartan er
einnig hlynntur byggð í eyjunum við
Sundin. „Þar tel ég að fyrsti áfanginn
sé augljóslega Geldinganesið og
held að við gætum hreinlega einhent
okkur í það.“
Hann telur að með byggð í Geldinga-
nesi og víðar sé hægtað tryggja að
lóðaframboð í borginni sé nægi-
legt. „Hér þarf einfaldlega að auka
lóðaframboðið og þannig gera ungu
fólki kleift að koma sér upp þaki
yfir höfuðið án þess að koma sér í
stjórnlausa skuldaklafa.“ Hann telur
að skattalækkanir eigi að koma til
með skynsamlegri nýtingu á fjár-
magninu.
Jórunn Frímanns-
dóttir, 4. sæti.
„Efst á mínum lista
eru velferðarmálin,
menntamálin og
samgöngumálin.“
„Svo þurfum
við einfaldlega að veita þessa
þjónustu,“ segir hún. „Það eru
velferðarmál aldraðra sem ég tel
að sé brýnast að einbeita sér að.
Svo og sameining og hagræðing í
heimaþjónustu og heimahjúkrun.
Þarna þarf að samnýta þá krafta
sem til eru.“
Örn Sigurðsson,
4. sæti. „Skipu-
lagsmál í Reykjavík
hafa verið vanrækt
illilega og þar
blasir við hræði-
legur uppsafnaður
vandi.“ Hann segir skipulagsmálin
ávallt vera grundvallaratriði í
borgarsamfélagi. „Með því að taka
spjótið úr sjúklingnum, það er að
segja Vatnsmýrinni, þá fer sjúkl-
ingurinn strax að hressast dálítið.
Það skapast óendanleg tækifæri
með því að byggja inn en ekki út.“
Þorgbjörg Helga
Vigfúsdóttir, 4.
sæti. „Það eru vísi-
tölutengdir skattar
af fasteignum sem
hafa hækkað um
40 prósent á einu
ári. Það þarf að finna þessu annan
farveg og lækka þessi gjöld.“ Þor-
björg telur að draga eigi úr mið-
stýringu í menntakerfinu, auka
fjölbreytni og skapa heildstæða
stefnu í dagvistunarmálum.
„Ég fylgi afstöðu borgarstjórnar-
flokksins í málefnum byggðar í
miðborginni.“
BYGGINGAR Við Vallabraut á Akra-
nesi er stór húsgrunnur óvarinn með
öllu. Grunnurinn er í nágrenni við
leikskólann Vallasel.
„Það eru bara nokkrar keilur
þarna með gulum borða. Þetta
er stórhættulegt. Við vorum með
barnaafmæli í fyrradag og þorðum
hreinlega ekki að sleppa börnunum
út,“ segir Hulda Ólöf Einarsdóttir,
leikskólaleiðbeinandi á Akranesi.
„Menn fá engan frest með að
kippa þessu í liðinn,“ segir Skúli
Lýðsson, byggingarfulltrúi hjá
Akraneskaupstað. Hann segir leik-
skólann Vallasel vera vel girtan
af en það breyti ekki því að þarna
eigi börn leið um og grunnurinn sé
hættusvæði.
Það er fyrirtækið Búmenn stend-
ur að verkinu en verktakafyrirtækið
Skóflan er undirverktaki og sér um
gröftinn. Guðmundur Guðjónsson
hjá Skóflunni segir að fyrirtækið
sé undirverktaki og komi ekki að
umsjón verksins í sjálfu sér.
Framkvæmdir hafa legið niðri
að undanförnu vegna veðurs. Veldur
það foreldrum og bæjaryfirvöldum
á Skaganum nokkrum áhyggjum að
ekki skuli vera girðing um grunn-
inn.
„Maður veit aldrei hvað getur
gerst ef barn dettur þarna ofan í,“
segir Hulda Ólöf. - saj
Ógirtur húsgrunnur við leikskólann Vallasel á Akranesi veldur áhyggjum:
Börnunum haldið innandyra af ótta
ÓGIRTUR HÚSGRUNNUR Eins og sjá má er um stóran og djúpan grunn að ræða. Hér sést
leikskólinn Vallasel á hægri hönd.
UPPLÝSINGATÆKNI Norska vafrafyr-
irtækið Opera kynnti í gær sam-
starf við raftækjaframleiðandann
Thales um að Opera-vafrinn verði
hluti af TopSeries skemmtikerfi
Thales fyrir flugvélar.
Þannig eiga flugfarþegar véla
sem nota TopSeries innan tíðar að
geta vafrað um Internetið á ferð-
um sínum, en kerfið er sagt passa
í flestar gerðir Boeing og Airbus
farþegavéla.
Vafri Opera er sagður henta
vel í alþjóðaumhverfi millilanda-
flugsins því hann er í boði á fjölda
tungumála, þar á meðal arabísku.
Christen Krogh, varaforseti hönn-
unardeildar Opera, fagnar áfang-
anum og spáir því að vafrinn eigi
eftir mikla útbreiðslu á jaðartækj-
um og sérsniðnum skjám, enda sé
hann hannaður með smáskjái og
fjölda stýrikerfa í huga. - óká
Opera í 30 þúsund fetum:
Með netvafra
fyrir flugvélar
JÓN S. VON TETZSCHNER Jón er forstjóri
Opera Software, en fyrirtækið stofnaði
hann með norskum vini sínum.
VEISTU SVARIÐ
1 Hve mörgu fé var slátrað á vegum Norðlenska í sláturtíðinni?
2Hvað heitir krónprinsessan á Spáni?
3Hvað eru margir á kjörskrá Sjálf-stæðisflokksins fyrir prófkjörið í
borginni?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 46
STJÓRNMÁL Prófkjör Samfylking-
ingarinnar í Hafnarfirði verður
haldið nú á laugardag. 21 fram-
bjóðandi er um átta sæti, fjórtán
karlar og sjö konur. Nú hefur
Samfylking sex bæjarfulltrúa af
ellefu og er því líklegt að harðast
verði barist um sex efstu sætin.
Stefnt er að því að birta úrslit
prófkjörsins um klukkan 22 á
laugardagskvöld.
Tveir núverandi bæjarfulltrúar
Samfylkingarinnar gefa ekki kost
á sér að nýju, Jóna Dóra Karlsdótt-
ir og Hafrún Dóra Júlíusdóttir.
Aðrir fjórir bæjarfulltrúar gefa
kost á sér til endurkjörs, en það
hefur vakið eftirtekt að Gunnar
Svavarsson, núverandi forseti bæj-
arstjórnar býður sig fram í sjötta
sæti listans, baráttusætið.
Prófkjörið fer fram á skrifstofu
Samfylkingarinnar, á Strandgötu
21, frá klukkan 10 til 18 á laug-
ardag. Utankjörfundaatkvæða-
greiðsla hefst í dag og fer fram á
sama stað.
Hafnfirðingar, skráðir í Sam-
fylkingu fyrir lok kjörfundar
mega taka þátt í prófkjörinu.
Atkvæði teljast gild ef merkt
er með tölustaf, frá 1 til 8, fyrir
framan nafn þess frambjóðanda
sem kjósandi vill gefa atkvæði
sitt í viðkomandi sæti.
Samfylkingin stendur fyrir
framboðsfundi í Álfafelli, íþrótta-
húsinu við Strandgötu á fimmtu-
dagskvöld klukkan 20.30. Hver
frambjóðandi mun hafa um þrjár
mínútur til að kynna sig og fram-
boðsmál. - ss
Prófkjör Samfylkingar í Hafnarfirði haldið á laugardag:
Tveir bæjarfulltrúar
gefa ekki kost á sér
Skipulagsmálin vanrækt
Samgöngumál í Reykjavík eru ofarlega í hugum þeirra fjögurra sem sækjast eftir þriðja og fjórða sæti á
lista Sjálfstæðisflokks fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Örn Sigurðsson telur að margt muni batna í
borginni ef hægt verður að þétta byggðina. Málefni aldraðra ber einnig á góma hjá frambjóðendum.
1. sæti Lúðvík Geirsson
Árni Hjörleifsson (1.-6.)
Ásta María Björnsdóttir (1.-8.)
Eyjólfur Sæmundsson (1.-8.)
Hallur Guðmundsson (1.-8.)
Ingimar Ingimarsson (1.-8.)
Margrét Guðmundsdóttir (1.-8.)
Reynir Ingibjartsson (1.-8.)
2. sæti Ellý Erlingsdóttir
3. sæti Guðmundur Rúnar Árnason
Jón Kr. Ólafsson
Þorlákur Oddsson (3.-5.)
4. sæti Margrét Gauja Magnúsdóttir
Hulda Karen Ólafsdóttir (4.-5.)
Trausti Baldursson (4.-6.)
5. sæti Guðfinna Guðmundsdóttir
Gísli Ósvaldur Valdimarsson
(5.-7.)
Helena Mjöll Jóhannsdóttir (5.-
8.)
6. sæti Gunnar Svavarsson
7. sæti Sigurgeir Ólafsson (7.-8.)
Tómas Meyer (7.-8.)
BARIST UM ÁTTA EFSTU SÆTIN 21 fram-
bjóðandi taka þátt í framboði Samfylkingar-
innar í Hafnarfirði fyrir bæjarstjórnarkosning-
ar næsta vor.
SAMFYLKING
alltaf að baka
það er bakarí í öllum búðunum okkar
þar sem við bökum oft á dag
við erum
hvítlauks-
hringir
329 kr.
hann gaf mér þennan
ómótstæðilega
hring!