Fréttablaðið - 02.11.2005, Side 14
2. nóvember 2005 MIÐVIKUDAGUR14
nær og fjær
„ORÐRÉTT“
„Jú, jú það er bara nóg að gera við að
undirbúa hestaferðir næsta árs,“ segir Einar
Bollason framkvæmdastjóri ferðaþjónustu-
fyrirtækisins Íshesta með meiru. Hann segir
ferðaþjónustu á Íslandi standa frammi fyrir
mestu áskorun greinarinnar um langt
árabil. „Og það er að reyna að selja
landið á samkeppnishæfu verði þrátt
fyrir þetta fáránlega háa gengi
krónunnar,“ segir hann og er
mikið niðri fyrir.
Hann segir að ef ferða-
þjónustunni takist að halda
fjölda ferðamanna sem koma
til landsins á næsta ári, á svip-
uðu róli og í ár, að þá verði það
ekkert minna en stórsigur. „Það
hefur orðið að minnsta kosti
tíu prósenta meðalhækkun á
öllum kostnaði á þessu
ári, til dæmis bensíninu
og alls kyns þjónustu
að ég tali ekki um launa-
hækkanir og annað. Og
við getum ekki bara velt
þessu áfram heldur
hafa menn verið
að taka þetta á sig
meira og minna til
að missa ekki við-
skipti.“
En hvað er til
ráða? „Það þýðir
ekkert annað en
að girða sig í brók
og takast á við vand-
ann, það er ekki hátt-
ur okkar ferðaþjón-
ustufólks að vera með eitthvert væl, við erum
bjartsýnisfólk að eðlisfari“, segir Einar og hlær
hrossahlátri eða þannig. Og hann er ánægður
með árið þrátt fyrir barlóminn; árið metár hjá
Íshestum með um 22 þúsund farþega í lengri
og skemmri ferðum.
„Það ánægjulegasta er að við erum að fá
fleiri farþega til okkar yfir vetrartímann en sum-
artímann“, bætir hann við og segir hreint ótrú-
legt hvað þetta fólk láti bjóða sér þegar veðrið
er annars vegar. „Það er kannski að fara hérna
í útreiðatúra í skítakulda og roki, 10-15 metrum
á sekúndu og það hallar sér bara upp í storm-
inn og kemur svo blaðskellandi aftur brosandi
út að eyrum.“ En hann lætur þess getið að
þetta eigi miklu heldur við um útlendingana
en Íslendingana. „Þegar svona viðrar vilja þeir
miklu frekar vera inni og hafa það huggulegt“,
segir Einar Bollason.
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? EINAR BOLLASON HESTAMAÐUR
Ótrúlegt hvað fólk lætur bjóða sérÞeir eru ómerkilegir
„Þeir eru búnir að telja
þessum Pólverjum trú um
það, þvert ofan í það sem
þeir vita, að þeir eigi heimt-
ingu á einhverju sem þeir
eiga enga heimtingu á.“
Sveinn Andri Sveinsson lögmaður í
Morgunblaðinu um pólska verkamenn
og íslenska launþegahreyfingu.
Hefurðu heyrt um
Pavarotti?
„Ég hef líka þurft að hugsa
um heilsuna af hreinum og
klárum viðskiptahagsmun-
um því það borgar sig fyrir
söngvara að vera í góðu
formi og vel útlítandi.“
Gunnar Guðbjörnsson óperusöngvari
um heilsuátakið sitt í Fréttablaðinu.
HÁTÍÐ LJÓSSINS Hindúar á Indlandi halda hátíð ljóssins hátíðlega nú um stundir og kveikja
á kertum sem aldrei fyrr. Á myndinni má sjá tvær konur tendra ljós á kertum guði sínum til
dýrðar.FRÉTTABLAÐIÐ/AP
„Jájá, það er mikið um að fólk
komi og líti á græjur. Ég hef ekki
fundið jafn mikla spennu svo
snemma árs í tuttugu ár,“ segir
Viðar Garðarsson í Skíðaþjón-
ustunni á Akureyri. Tíðin síðustu
daga hefur vakið upp skíðaáhug-
ann í fjölmörgum og fréttir af
snjóframleiðslu í Hlíðarfjalli við
Akureyri og í Böggvistaðafjalli
við Dalvík hafa enn frekar kynt
undir áhuga fólks.
Viðar segir brettakrakkana
koma fyrsta, svo gönguskíðafólk-
ið og loks svigskíðafólkið. Þannig
sé gangurinn í þessu.
Í sama streng taka skíðakaup-
menn á höfuðborgarsvæðinu,
brettakrakkarnir eru byrjaðir
að koma í búðirnar og græja sig
fyrir veturinn en einnig sé svolít-
ið spurt um skíði. Þau eru víðast
hvar enn í gámum eða á lagerum
og ekki komin fram í verslanir en
á því verður breyting von bráð-
ar. „Það er talsvert spurt,“ er
samhljóma svar þeirra sem selja
búnað í brekkurnar. -bþs
SNJÓBRETTAFÓLKIÐ Fer fyrst á stúfana
þegar snjór sest í brekkur. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Skíðaáhugafólk er komið í startholurnar fyrir veturinn enda jörð hvít víðast hvar:
Spennan ekki meiri í 20 ár
Ármann Kr. Ólafsson,
aðstoðarmaður fjármála-
ráðherra, á Íslandsmet í
aðstoðarmennsku við ráð-
herra. Hann hefur aðstoðað
ráðherra í rúm tíu ár og hóf
störf í sínu þriðja ráðuneyti
fyrir fáeinum vikum.
Ferill Ármanns sem aðstoðar-
manns hófst vorið 1995 þegar hann
réðist sem aðstoðarmaður Halldórs
Blöndal í samgönguráðuneytinu.
Þegar kjörtímabilinu lauk 1999 og
Halldór lét af ráðherradómi leitaði
Árni Mathiesen eftir starfskröft-
um Ármanns í sjávarútvegsráðu-
neytinu og nú nýverið fluttust þeir
félagarnir í fjármálaráðuneytið
þar sem Árni varð ráðherra.
Ármann hefur því aðstoðað tvo
ráðherra í þremur ráðuneytum og
er, eftir því sem næst verður kom-
ist, eini maðurinn sem verið hefur
ráðherrum til aðstoðar í svo mörg-
um ráðuneytinum.
Nokkur dæmi eru um að menn
hafi verið aðstoðarmenn tveggja
ráðherra og eru Árni Magnússon
félagsmálaráðherra og Finnur Ing-
ólfsson forstjóri í þeim hópi. Finn-
ur aðstoðaði Halldór Ásgrímsson
og Guðmund Bjarnason og síðar
aðstoðaði Árni þann saman Finn
og sama Halldór.
Haft hefur verið á orði að völd
aðstoðarmanna ráðherra séu
mikil, jafnvel geipimikil. „Ég
myndi nú ekki segja það,“ segir
Ármann en viðurkennir jafnframt
að aðstoðarmenn ráðherra geti
haft áhrif á gang sumra mála þó
misjafnt sé með hve miklum hætti
það er.
Dæmin að ofan, og önnur, sýna
að stundum er leiðin úr aðstoð-
armennsku yfir í ráðherradóm
greiðfær. Ármann útilokar ekki
að hann kunni að rata slíka leið
í framtíðinni. „Enginn veit hvar
hann endar í þessu lífi og varla
verð ég aðstoðarmaður að eilífu,“
segir hann. Samhliða sínu fasta
starfi situr Ármann í bæjarstjórn
Kópavogs fyrir Sjálfstæðisflokk-
inn og er nú forseti bæjarstjórnar.
Hann hefur hug á að halda áfram á
þeim vettvangi en segir það verða
að koma í ljós hvort hann einhvern
tíma snúi sér að landsmálunum.
Annars fer það ágætlega saman
að vera aðstoðarmaður ráðherra
og bæjarfulltrúi. „Það er heppilegt
að því leyti að yfirmaðurinn skilur
út á hvað pólitískt starf gengur,“
segir Ármann og hlær.
Hann lætur vel af vistinni í
fjármálaráðuneytinu enda snerta
störfin þar flest svið stjórn-
málanna. „Hér fáumst við við
afskaplega víðfemt svið en mál-
efnin eru mun þrengri í fagráðu-
neytunum. Svo er stórskemmtilegt
að fjalla daglega um efnahagsmál.
Það er pólitísk reynsla sem nýtist í
öllu sem menn hugsa og fást við á
vettvangi stjórnmálanna.“
bjorn@frettabladid.is
MEÐ ERRÓ Á VEGGNUM Þetta verk Errós er Ármanni hugleikið enda man hann eftir því
síðan hann fletti listaverkabók listamannsins í sveitinni í gamla daga. Ármanni til sérstakrar
ánægju blasti verkið við honum þegar hann fluttist í fjármálaráðuneytið en það hefur
prýtt skrifstofu aðstoðarmanns fjármálaráðherra síðan Geir H. Haarde var aðstoðarmaður
Alberts Guðmundssonar árið 1983.FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Ármann Kr. á Íslands-
met í aðstoðarmennsku