Fréttablaðið - 02.11.2005, Side 24
[ ]
Á morgun hefst IceMUN, Ice-
landic Model United Nations,
ráðstefna á vegum íslenskra
háskólanema. IceMUN er
hermilíkan af starfsemi Sam-
einuðu þjóðanna (UN) og ætla
íslenskir og erlendir háskóla-
nemar að ræða um mannrétt-
indamál í Súdan.
Þurý Björk Björgvinsdóttir, sem
ber þann stóra titil að vera aðal-
ritari IceMUN og einn af skipu-
leggjendum ráðstefnunnar, segist
full tilhlökkunar fyrir helginni
enda er mikil skipulagning að
baki. „Við erum búin að funda
síðan í byrjun sumars og skipu-
lagningin hefur gengið vel. Þetta
er í þriðja sinn sem ráðstefnan er
haldin hér á Íslandi,“ segir Þurý.
„Bæði nemar úr Háskóla Íslands
og Háskólanum á Akureyri munu
taka þátt ásamt skiptinemum og
einnig kemur hingað hópur nema
frá Finnlandi.“
Þurý segir Model UN aðallega
gott tækifæri fyrir háskólanema
til að kynnast alþjóðasamstarfi
og alþjóðasamvinnu og diplóm-
atískum heimi stjórnmálanna. „Í
ár ætlum við að setja upp hermi-
líkan af öryggisráðinu og mann-
réttindanefndinni. Þátttakendur í
hermilíkaninu taka sér hlutverk
sendifulltrúa aðildarþjóða og
fylgja utanríkisstefnum ríkis-
stjórna þeirra í einu og öllu,“ segir
Þurý. „Málefnið sem við tökum
fyrir er ástandið í Darfur-héraði í
Súdan og verður fjallað um málið
frá mismunandi sjónarhornum
eftir ráðum og það verður unnið
eftir starfsreglum og aðferðum
Sameinuðu þjóðanna,“ segir Þurý.
„Fólk er að taka þátt í þessu af
mikilli alvöru,“ segir Þurý. „Í
kokteilboðunum sem fylgja ráð-
stefnunni myndar fólk þrýstihópa
og er að lobbíera bak við tjöld-
in og safna fylgi við ályktanir
sínar,“ segir Þurý og hlær. „Fólk
lifir sig alveg inn í þetta enda er
þetta góður undirbúningur fyrir
framtíðina.“ Þurý segir erlenda
háskóla og fyrirtæki horfa hýrum
augum á reynslu af Model UN.
Upphaf ráðstefnunnar er opinn
fyrirlestur sem haldinn verður af
Dr. Mukesh Kapila, forstöðumanni
Department of health action in
crisis hjá World Health Organis-
ation (WHO). „Dr. Mukesh hefur
unnið að mannréttindamálum í
Súdan fyrir Sameinuðu þjóðirn-
ar og hann var að margra mati sá
sem opnaði augu heimsins fyrir
ástandinu í Súdan.“ Fyrirlestrarn-
ir verða haldnir í húsi Íslenskrar
erfðagreiningar og marka þeir
upphaf ráðstefnunnar sem stend-
ur fram á sunnudag.
johannas@frettabladid.is
Íslenskir háskólanemar
í líki Sameinuðu Þjóðanna
eru farin að nálgast. Þeir sem eru ekki byrjaðir að læra ættu að
fara að gera eitthvað í því. Það er ennþá möguleiki á því að þetta
bjargist fyrir horn.
Prófin
Þurý Björk Björgvinsdóttir, aðalritari modelUN, segir brýn málefni rædd í hermilíkani
Sameinuðu Þjóðanna um helgina.
Endurmenntun háskólans held-
ur námskeið í samvinnu við
UNIFEM á Íslandi.
Endurmenntun gengst fyrir
námskeiði þar sem fjallað er um
alþjóðamál með áherslu á mis-
munandi stöðu og hlut kynjanna.
Námskeiðið er ætlað áhuga- og
fagfólki sem vill afla sér þekk-
ingar á þessu sviði. Markmið
námskeiðsins er að þátttakendur
skilji hvernig straumar og stefnur
á alþjóðavettvangi hafa mismun-
andi áhrif og afleiðingar eftir því
hvort kynið á í hlut.
Námskeiðið verður í fjórum
hlutum þar sem fyrirlesarar verða
með erindi og leiða umræður um
eftirfarandi þætti: Alþjóðakerfið
og konur, stríð og konur, þróunar-
samvinna og konur og fólksflutn-
ingar og konur.
Fyrirlestrar á námskeiðinu
eru í höndum níu kvenna; Lilju
Hjartardóttur, Rósu Erlings-
dóttur, Birnu Þórarinsdóttur og
Magneu Marinósdóttur sem allar
eru stjórnmálafræðingar, Drífu
Hrannar Kristjánsdótt-
ur og Hrundar Gunn-
steinsdóttur þróunar-
fræðinga, Amal Tamini
varaformanns Samtaka
kvenna af erlendum
uppruna, Guðbjarg-
ar Lindu Rafnsdóttur,
dósents í félagsfræði
við HÍ og Guðrúnar
Jónsdóttur, starfskonu
Stígamóta. Laun fyr-
irlesara renna óskipt í
ofbeldissjóð UNIFEM
á Íslandi.
Kennt verður fjögur
kvöld, mánudag og
miðvikudag í næstu og
þarnæstu viku.
Staða kynjanna í
alþjóðastjórnmálum
Námskeiðið byggist á fyrirlestrum og
fræðslu, léttum samræðum, æfingum
og heimaverkefnum. Lykilhugtakið er
tilfinningarækt að því er fram kemur í
frétt á síðu Háskólans. Það segir líka
að sé sambandið gott megi búast við
árangri á flestum öðrum sviðum, í vinnu
og starfi og ekki síður í barnauppeldi
og fjölskyldumálum yfirleitt. Svo er það
spurningin hvernig gangi að leysa úr
ágreiningi sem óhjákvæmilega kemur
upp og með hvaða hugarfari fólk nálg-
ast hvort annað. Það eru sálfræðingarnir
Jóhann Ingi Gunnarsson og Sæmundur
Hafsteinsson sem verða leiðbeinendur
á námskeiðinu sem ætlað er pörum.
Fyrir pörin
AÐ STYRKJA SAMBANDIÐ ER YFIR-
SKRIFT NÁMSKEIÐS SEM ENDUR-
MENNTUN HÁSKÓLANS GENGST
FYRIR 19. OG 26. NÓVEMBER.
Rósa Erlingsdóttir er meðal fyrirlesara á námskeiði um
alþjóðastjórnmál og konur.
Tilfinningarækt er lykilhugtak sambúð-
arnámskeiðsins.
Gunnar Helgi Birgisson nemandi í Listaháskóla Íslands.
Listaháskóli Íslands opnar
almenningi dyr að öllum deild-
um sínum næsta föstudag, þann
4. nóvember, milli klukkan
tíu og tvö. Þá er upplagt fyrir
áhugasama að koma í skólann
og kynnast starfseminni. Leik-
listardeildin og tónlistardeildin
eru við Sölvhólsgötu. Leiklist-
ardeildin býður gestum að taka
þátt í sýnishorni af inntökuprófi
sem samanstendur af leiktúlkun,
líkamsþjálfun, raddbeitingu og
söng. Í tónlistardeildinni verða
opnir tónleikar, æfingar og sýn-
ishorn af hljóðverkum nemenda.
Í myndlistardeildinni að
Laugarnesvegi 91 verður öll
starfsemi og verkstæði opin gest-
um og gangandi auk sýningar á
fjölbreyttum verkum nemenda.
Hönnunar- og arkitektúrdeild
í Skipholti 1 verður einnig með
alla starfsemi sína opna en þar
er að finna fata- og textílhönnun,
þrívíða hönnun, grafíska hönnun
og arkitektúr.
Nemendur og kennarar veita
upplýsingar og viðtöl í öllum
deildum.
Allir í Listaháskólann
Opið hús í Listaháskólanum á föstudaginn.
„Námskeiðið bar tvímælalaust þann árangur sem ég vonaðist eftir og gott
betur en það. Þjónustan er frábær og skipulagið til fyrirmyndar...
Námskeiðið margborgaði sig.“ Esther Ösp Valdimarsdóttir, 19 ára nemi.
...næsta námskeið er í janúar 2006.
Skráning á biðlista er hafin á www.h.is og 586-9400
Akureyri – 9. nóvember – skráning stendur yfir