Fréttablaðið - 02.11.2005, Qupperneq 30
Hjálmar Blöndal
skrifar
Um 5,2 prósent innflytjenda á Íslandi stunda sjálf-
stæðan atvinnurekstur, sem er töluvert lægra hlut-
fall en í nágrannalöndunum. Þetta er meðal niður-
staðna í nýrri rannsókn Magnúsar Orra Schram,
sérfræðings hjá Rannsóknarmiðstöð Háskólans í
Reykjavík í Nýsköpunar- og frumkvöðlafræðum.
„Það er allt að helmingi meira af sjálfstæðum at-
vinnurekendum í löndunum í kringum okkur í hópi
innflytjenda. Þetta skýrist meðal annars af því að
við erum ungt innflytjendaland og við erum með
kerfi sem tengir innflytjendur mjög við sinn at-
vinnurekanda. Þeir þurfa að fá atvinnuleyfi áður en
þeir fá búsetuleyfi þannig að það er kannski eðli-
legt að við séum með lægra hlutfall,“ segir Magnús
Orri.
Hann segir að þegar litið sé til Íslendinga sé
þetta hlutfall um sjö af hundraði enda þótt þau gögn
séu ekki fyllilega samanburðarhæf til að bera þessa
tvo hópa saman. Karlmenn eru virkari í sjálfstæð-
um atvinnurekstri meðal Íslendinga en hjá innflytj-
endum er þetta hlutfall jafnt.
George Holmes er innflytjandi frá Indlandi sem
nýverið stofnaði sinn eigin veitingastað, Indian
Mango á Frakkastíg. Hann segir að það hafi alltaf
blundað í honum að hefja atvinnurekstur. „Hér eru
öll skilyrði hagstæð. Duglegt fólk kemst áfram í
þessu samfélagi og það kom aldrei neitt annað til
greina hjá mér en að starfa sjálfstætt. Ég vissi að
ég myndi gera vel og það hefur gengið eftir því ég
hef haft mikið af gestum. Ég hef ferðast frá því ég
fæddist og hef þurft að standa á eigin fótum og það
finnst mér gott að gera hér. Ég held að innflytjend-
ur eigi góða möguleika á sjálfstæðum atvinnu-
rekstri og ég skora á fólk að auka fjölbreytileikann
í samfélaginu,“ segir George. - hb
Vika Frá áramótum
Actavis Group 1% 11%
Bakkavör Group 2% 83%
Flaga Group 13% -33%
FL Group -2% 41%
Grandi 1% 16%
Íslandsbanki 3% 38%
Jarðboranir 2% 9%
Kaupþing Bank -1% 35%
Kögun 0% 16%
Landsbankinn 4% 90%
Marel 1% 31%
SÍF -2% -10%
Straumur 3% 42%
Össur -3% 20%
*Miðað við gengi í Kauphöll á mánudaginn
MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 2005 MARKAÐURINN2
F R É T T I R
G E N G I S Þ R Ó U N
Færri frumkvöðlar
meðal innflytjenda
Veitingahúsaeigandi segir öll skilyrði hagstæð á Íslandi til
að hefja atvinnurekstur.
410 4000 | www.landsbanki.is
B2B | Banki til bókhalds
Betri þjónusta og upplýsingagjöf til viðskiptavina og lánardrottna
Fyrirtækjabanki
Páll Þór Magnússon, hjá Sundi,
hefur ákveðið að falla frá mála-
ferlum á hendur Kristjáni Lofts-
syni, stjórnarformanni Kers,
vegna ummæla sem Kristján lét
falla í Ríkisútvarpinu í tengslum
við átök meirihluta og minnihluta
hluthafa í Festingu á útmánuðum
þessa árs.
Einnig hefur verið tilkynnt um
að Festing ehf. hafi keypt alla
hluti Sunds og J&K eignarhalds-
félags, um nítján prósent, í Fest-
ingu og er ætlunin að lækka
hlutafé félagsins sem því nemur.
Jóhann Halldórsson, fram-
kvæmdastjóri Festingar, lætur af
störfum og selur einnig bréf sín í
því.
Eftir kaupin eru Ker, Kjalar,
sem er eignarhaldsfélags Ólafs
Ólafssonar, og Vogun, sem er í
eigu Kristjáns og Árna Vil-
hjálmssonar, langstærstu eigend-
ur Festingar. - eþa
Hagstofa Íslands hyggst taka til
endurskoðunar hvernig vísitala
fasteignaverðs er metin, í kjölfar
mastersritgerðar sem unnin var
við Háskóla Íslands nú nýverið.
„Það hefur lengi staðið til að
endurmeta þessa vísitölu og
þessi athugun er eitt lóð á þeirri
vogarskál,“ segir Rósmundur
Guðnason, deildarstjóri í vísi-
töludeild Hagstofu Íslands. Það
var Ásdís Kristjánsdóttir sem
gerði ritgerðina og var fjallað um
hana í síðasta tölublaði Markað-
arins en Ásdís taldi að skekkja
gæti verið til staðar í mælingu á
vísitölunni sem gæti leitt til þess
að heimili landsins töpuðu millj-
örðum vegna ofáætlaðrar verð-
tryggingar.
„Það er alltaf hætta á að vísi-
tölur ofmeti verðbreytingar, sér-
staklega þegar verðmælingar
eru miklar. Þessar tölur sem
þarna eru notaðar í skýrslunni
eru þó ekki alveg réttar held ég
en það gæti þó nokkuð verið til í
mörgu. Við höfum ekki séð
grunngögn þessarar skýrslu
nægilega vel en við munum taka
þetta til athugunar,“ segir Rós-
mundur. - hb
Verslunarsamsteypan Hagar tap-
aði 708 milljónum króna sam-
kvæmt sex mánaða uppgjöri
fyrir tímabilið 1. mars til 31.
ágúst og er afkoman langt undir
væntingum stjórnenda félagsins.
Til samanburðar hagnaðist félag-
ið um 1.269 milljónir á sama
tímabili í fyrra en þá féll til
mikill söluhagnaður.
Stjórnendur félagsins kenna
hörðu verðstríði á matvörumark-
aði um að árangur félagsins hafi
verið undir væntingum.
Rekstrarhagnaður (EBITDA)
var 614 milljónir króna sem er
svipaður hagnaður og á síðasta
ári en rekstrarkostnaður nam um
5,5 milljörðum og jókst um fjór-
tán prósent. Framlegð í hlutfalli
af sölu er um 20 prósent og lækk-
ar úr 27 prósentum frá sama
tímabili í fyrra. Eigið fé með
víkjandi láni er 5,9 milljarðar og
lækkar sem nemur tapinu. Eigin-
fjárhlutfall Haga var um sextán
prósent í lok tímabilsins.
Fjármunamyndun í félaginu
var neikvæð á tímabilinu. - eþa
Slakt uppgjör Haga
Stríð á matvörumarkaði setur strik í reikninginn.
Lausn í Festingu
Verðbólga hugsanlega ofmetin
Vilja miðla í Danmörku
Vaxtamunur við útlönd er nú
rúmlega sjö prósent. Búist er við
því að Seðlabankinn muni halda
áfram á vaxtahækkunarbraut og
stýrivextir erlendis hafa hækkað
lítillega en ekki er búist við því
að þeir nái að vega upp á móti
vaxtahækkunum hér heima.
Orðrómur er um vaxtahækk-
anir á evrusvæðinu á næstunni.
Peningamál koma út í desember
og er búist við því að bankinn
hækki vexti um að minnsta
kosti hálft prósent.
Mestur hefur
vaxtamunur orðið
rúmlega níu prósent
árið 2001 en því
hefur verið spáð að
Seðlabanki Íslands
hækki vexti í tólf
prósent í desember
2006. Þá má búast
við að vaxtamunur-
inn geti náð sögulegu
hámarki. - hb
KB banki ætlar að byggja upp
verðbréfamiðlun í Danmörku.
Hreiðar Már Sigurðsson forstjóri
sagði á kynningarfundi á
mánudagsmorgun að í augna-
blikinu væru engin kauptæki-
færi á danska markaðnum. Því
myndu þau byggja þessa starf-
semi upp innan bankans.
Samkvæmt heimildum Mark-
aðarins hefur fyrrum
forstöðumaður í Danske bank,
Peter Secher, verið ráðinn til að
sinna þessu uppbyggingarstarfi.
Tekur hann til starfa 1. janúar.
Hreiðar Már sagði stefnuna
einnig tekna á miðlun breskra
hlutabréfa í KB banka í London,
en vildi ekki staðfesta í samtali
við Markaðinn að eitt fyrirtæki
væri til skoðunar umfram önn-
ur. – bg
GEORGE HOLMES, EIGANDI INDIAN MANGO „Ég vissi að ég
myndi gera vel og það hefur gengið eftir því ég hef haft mikið af
gestum. Ég hef ferðast frá því ég fæddist og hef þurft að standa á
eigin fótum og það finnst mér gott að gera hér.“
KRÓNAN Stýrivextir eru um 10,25
prósent hér á landi en milli tvö og þrjú
prósent á evrusvæðinu og í Bandaríkjunum.
S T Ý R I V E X T I R
Bandaríkin 2,75 prósent
Evrusvæði 2,25 prósent
Ísland 10,25 prósent
Of mikill vaxtamunur
HAGAR TAPA Verðstríð á matvörumarkaði
skýra að stórum hluta taprekstur Haga á
tímabilinu 1. mars til 31. ágúst.
Deilur um Ker leystar
Ólafur Ólafsson ræður nú ótruflaður ríkjum í Keri
sem á olíufélagið Esso. Straumur seldi sinn hluta.
Straumur Burðarás Fjárfestingar-
banki hefur selt hlut sinn í Keri og
Eglu. Kaupendur eru félögin sjálf.
Eignirnar komu í hlut bankans
þegar eignum Burðaráss var skipt
á milli Landsbankans og Straums.
Þórður Már Jóhannesson segir
niðurstöðuna ánægjulega. „Við selj-
um eign sem kom í okkar hlut við
sameiningu Straums og Burðaráss
og bankinn innleysir góðan hagnað
af þessum eignum.“ Innleyst-
ur hagnaður Straums er um
700 milljónir króna af við-
skiptunum.
Guðmundur Hjaltason,
forstjóri Kers, segir
menn ánægða með
niðurstöðuna. „Með
þessu er eignarhald
félaganna orðið skýrt og
deilur vegna samskipta við fyrri
eigendur lagðar niður.“
Eftir viðskiptin er Kjalar sem
er í eigu Ólafs Ólafssonar með tæp-
lega 87 prósenta hlut í Keri og Ker
og Kjalar með yfir 90 prósenta hlut
í Eglu sem er annar stærsti eigandi
í KB banka. Ker er auk þess ráð-
andi hluthafi í Samskipum og Síf.
Grettir sem er í eigu Sunds,
Landsbankans og Tryggingamið-
stöðvarinnar eignaðist þriðjungs
hlut í Keri í kjölfar sameininga Sjó-
víkur við SH. Sú eign var í and-
stöðu við ráðandi eigendur Kers og
væringar í eigendahópnum í
kjölfarið. - hh
FJÖLBÝLISHÚS Í KÓPAVOGI Getur verið
að verðbólga sé ofmetin hér á landi vegna
skekkju við útreikninga á vísitölu fasteigna-
verðs?
ÓLAFUR ÓLAFSSON Ker hefur
keypt út minnihluta Straums
Burðaráss í félaginu. Ólafur Ólafs-
son er aðaleigandi félagsins.
02_03_Markadur lesið 1.11.2005 15:55 Page 2