Fréttablaðið - 02.11.2005, Síða 32
MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 2005 MARKAÐURINN4
F R É T T I R
Gott lánstraust
Íslenska ríkið heldur jafn góðu
lánstrausti og áður. Alþjóðlega
matsfyrirtækið Standard &
Poor’s hefur staðfest lánshæfis-
einkunn ríkisins á langtíma-
skuldbindingar.
Sérfræðingur S&P segir ein-
kunn Íslands byggja á stöðugur
stjórnkerfi, mjög auðugu og
svegjanlegu hagkerfi ásamt góðri
stöðu opinberra fjármála. Það
sem vinnur á móti frekari hækk-
un einkunnarinnar er mikil er-
lend fjármögnunarþörf og miklar
erlendar skuldir hagkerfisins.
Til að viðhalda traustinu þarf
að standa við langtímastefnu
stjórnvalda í ríkisfjármálum. - hh
Söluferli P. Samúelssonar
hf., umboðs- og söluaðila
Toyota á Íslandi, er vel á
veg komið. Fasteignasali
hefur metið fasteignir fé-
lagsins en félagið á tals-
vert af fasteignum bæði á
höfuðborgarsvæðinu sem
og úti á landi. Samkvæmt
ársreikningi félagsins
fyrir árið 2003 nam velta
þess 11,6 milljörðum
króna, EBITDA-hagnaður
var 550 milljónir og eigið
fé var bókfært á 1.240 milljónir.
Telja verður að velta félagsins og
hagnaður hafi aukist nokkuð frá
árinu 2003 og hafa tölur
um hagnað upp á tæpan
milljarð króna verið
nefndar. Félagið hefur
ekki skilað inn ársreiknigi
fyrir árið 2004. Bókfærð-
ir fastafjármunir sam-
kvæmt uppgjöri ársins
2003 eru 105 milljónir en
raunvirði þeirra nokkuð
hærra. Að teknu tilliti til
þessara þátta og upp-
færslu þeirra miðað við
liðið rekstrarár og þess
sem senn er á enda, telja menn að
verð félagsins sé á bilinu 5 til 7
milljarðar króna. - hb
Björgvin Guðmundsson
skrifar
Snorri Jakobsson, hagfræðingur
í greiningardeild KB banka,
segir nú hægt að taka lán hjá
Íbúðalánasjóði og fjárfesta aftur
á hærri vöxtum á skuldabréfa-
markaði í bréfum útgefnum af
Íbúðalánasjóði. Ávöxtunarkrafa
Íbúðabréfa til um það bil tuttugu
ára standi í 4,19 prósentum en út-
lánavextir til sama tíma standi í
4,15 prósentum. Vextir á Íbúða-
bréfum til tíu ára standi enn
hærra.
Snorri segir að fjárfestir þurfi
ekki að leggja út fjármagn til
þess að hagnast á vaxtamunin-
um. Ef vaxtaþróun sé svo hag-
stæð geti fjárfestir átt kost á að
greiða upp lán sitt og selja
skuldabréf sín með hagnaði. Þar
sem Íbúðalánasjóður og bankarn-
ir fjármagna útlán á skuldabréfa-
markaði fáist ekki betur séð en
að ríkið sé að greiða niður útlána-
vexti til almennings. Slík aðgerð
sé þensluhvetjandi og gangi
þvert á öll lögmál hagstjórnar við
núverandi aðstæður. Á sama
tíma reyni Seðlabanki Íslands
til hins ítrasta að slá á þensl-
una með hækkun stýrivaxta.
Snorri segir að hækkun vaxta
Seðlabankans hafi leitt til hækk-
unar raunvaxta á markaði. Af
þeim sökum ættu útlánavextir
íbúðalána að vera komnir upp í
4,75 prósent miðað við markaðs-
aðstæður í dag en séu enn í 4,15
prósentum.
Jóhann G. Jóhannsson, sér-
fræðingur hjá Íbúðalánasjóði,
segir þá ekki hafa þurft að fjár-
magna sig á þessum vöxtum sem
Snorri nefnir. Að öllu óbreyttu
þyrfti Íbúðalánasjóður að hækka
vexti færi hann í skuldabréfaút-
boð miðað við aðstæður á mark-
aði í dag. Hins vegar sé ekki ljóst
hvenær af því verði. Það eina
sem liggi fyrir er að það verði
fyrir lok þessa árs. Þangað til
verði fylgst með þróuninni á
markaðnum og hvernig vextir
þróist.
Aðspurður segir Jóhann að
viðskiptabankarnir ættu að þurfa
að hafa vexti hærri en Íbúðalána-
sjóðir. Það sé dýrara fyrir þá að
fjármagna sig, þeir þurfi að
greiða skatt ólíkt Íbúðalánasjóði
og skila hluthöfum arði. Þess
vegna þyrftu vextir þeirra að
vera minnst 0,5 prósentustigum
hærri en Íbúðalánasjóðs.
Segir ríkið niður-
greiða vexti
Hægt er að taka lán hjá Íbúðalánasjóði og fjárfesta aftur á
hærri vöxtum í bréfum útgefnum af Íbúðalánasjóði.
JÓHANN G. JÓHANNSON Íbúðalána-
sjóður hefur ekki þurft að fjármagna útlán á
núverandi markaðsvöxtum.
SNORRI JAKOBSSON Íbúðalánasjóður
hefur kosið að fylgja markaðsvöxtum ekki
eftir.
Tapa á háu gengi
Dýrt að vinna aftur markaði fyrir sjávarafurðir.
Unnar Már Pétursson, fjármálastjóri Þormóðs ramma – Sæbergs,
sagði á aðalfundi Landssambands íslenskra útvegsmanna að
langvarandi hágengi íslensku krónunnar leiddi til
þess að íslensk sjávarútvegsfyrirtæki töpuðu í
samkeppninni um erlenda markaði.
Sigurjón Þ. Árnason, bankastjóri Lands-
bankans, sagði það gífurlega tímafrekt og
dýrt að vinna aftur markaði sem töpuðust. Að
þessu þyrfti að huga.
Unnar tók sem dæmi hvað fimmtán pró-
senta styrking krónunnar þýddi fyrir
rekstrarhagnað ýmissa útgerða næstu tólf mánuð-
ina. Miðaði hann þá við að verðbólgan yrði áfram 4,6
prósent. Rekstrarhagnaður ísfisktogara myndi minnka um 0,2 pró-
sent. Rekstrarhagnaður frystitogara myndi minnka um 7,8 prósent.
Hagnaður þeirra sem væru að vinna frystar afurðir myndi minnka
um 17 prósent og 18,2 prósent í söltun.
Unnar sagði þetta sýna að styrking krónunnar hefði gríðarleg
áhrif á afkomu þessara greina. Þau fyrirtæki sem hefðu sýnt góðan
rekstrarhagnað fyrir tólf mánuðum væru í slæmri stöðu í dag. – bg
Stofnfjáreigendum í Spari-
sjóði Skagafjarðar hefur verið
boðið að selja stofnfjárbréf sín
á þrisvar sinnum hærra verði
en þeir keyptu á. Ekki hefur
fengist uppgefið hver ásælist
þessi bréf og þá um leið ítök í
sparisjóðnum. Þá er ekki held-
ur vitað hvort þetta tengist
hópum sem hafa tekist á um
stjórnun sjóðsins; fólki innan
Kaupfélags Skagfirðinga og
gömlu stofnfjáreigendurnir
svokölluðum. Nýlega náðust
sættir milli þessara aðila.
Sá sem hefur boðið í þessa
hluti er Halldór Friðrik Þor-
steinsson, framkvæmdastjóri
HF verðbréfa. Hann vill ekki
upplýsa fyrir hvern hann sé að
reyna að kaupa. Það sé trúnað-
armál.
Stofnfjárbréf í sparisjóðn-
um eru tæplega 1.800 sam-
kvæmt upplýsingum Markað-
arins. Stjórn sjóðsins þarf að
samþykkja sölu á stofnfjár-
bréfum. Engin slík beiðni hef-
ur komið fyrir stjórnina enn-
þá. - bg
Fyrirtækin hækki
eiginfjárhlutfallið
Hátt gengi leikur sjávarútvegsfyrirtæki grátt.
„Miðað við þessar aðstæður er
kannski nauðsynlegra að eigin-
fjárhlutfall sjávarútvegsfyrir-
tækja sé hærra en ella,“ sagði
Sigurjón Árnason, bankastjóri
Landsbankans, á aðalfundi
Landssambands útvegsmanna á
föstudaginn. Staðan á Íslandi
væri slæm því gengi krónunnar
væri of sterkt. Ekki væri rétt
fyrir stjórnendur sjávarútvegs-
fyrirtækja að bíða þangað til
málið leystist. Hver og einn yrði
að nýta sér alla möguleika til
hagræðingar. Einnig þyrfti að at-
huga hvort það hentaði fyrir-
tækjunum að færa bókhald í er-
lendri mynt. Það yrði þá gert til
þess að draga úr gengisáhrifum á
skattalega afkomu.
„Peningastefnan ein og sér
getur ekki tryggt efnahagslegan
stöðugleika,“ sagði Björn Rúnar
Guðmundsson, hagfræðingur í
greiningardeild Landsbankans.
Efnahagspólitíkin væri ekki
nógu heilsteypt og tæki ekki
nægilegt mið af aðstæðum. „Ég
held að stjórnvöld geri sér ekki
grein fyrir því að veikleikar, sem
eru innbyggðir í fjármálamark-
aðinn bæði vegna þess hversu
lítill hann er og vegna þess hve
verðtrygging fjárskuldbindinga
er víðtæk, geri það að verkum að
hlutverk ríkisfjármálanna verð-
ur að vera enn meira.“ – bg
AÐALFUNDUR LÍÚ Hart var sótt að Arnóri
Sighvatssyni, aðalhagfræðingi Seðlabanka
Íslands, þegar rætt var um gengi krónunnar
á aðalfundi LÍÚ.
Spurt um stofnfjárbréf
Sparisjóður Skagafjarðar vekur áhuga fjárfesta.
Toyota í söluferli
Þar sem Íbúðalánasjóður og bankarnir fjármagna útlán á skuldabréfamarkaði
fáist ekki betur séð en að ríkið sé að greiða niður útlánavexti til almennings.
Slík aðgerð sé þensluhvetjandi og gangi þvert á öll lögmál hagstjórnar viðnú-
verandi aðstæður.
PÁLL SAMÚELSSON,
STJÓRNARFORMAÐ-
UR TOYOTA Gæti
fengið 5 til 7 milljarða
króna fyrir félagið.
04_05_Markadur lesið 1.11.2005 15:11 Page 2