Fréttablaðið - 02.11.2005, Blaðsíða 35
Dagur hinna dauðu er haldinn hátíðlegur á
þessum degi víðs vegar um heim. Siðurinn
er upprunninn í Mexíkó en er einnig virt-
ur á Filippseyjum, í ýmsum ríkjum Suður-
Ameríku og í þeim ríkjum Norður-Amer-
íku þar sem er hátt hlutfall íbúa af
mexíkóskum ættum. Þrátt fyrir drunga-
legt nafn hátíðarinnar snýst hátíðin fyrst
og fremst um að heiðra minningu látinna
ættingja og vina með skemmtanahaldi og
gleði.
Helgisiði þar sem lífi þeirra látnu er
fagnað má reka allt aftur til tíma þjóða
Mið-Ameríku til forna. Hátíðin féll á
níunda mánuð sólardagatals Astekanna, í
byrjun ágúst, og stóðu hátíðahöldin yfir
allan mánuðinn. Þegar spænsku nýlendu-
herrarnir komu til Mið-Ameríku á 16. öld
þótti þeim nóg um þá heiðnu siði sem þar
ríktu. Í tilraun sinni til að snúa fólkinu til
kaþólsks siðar skipuðu þeir svo fyrir að
hátíðin færðist yfir í nóvember til þess að
hún félli á sama tíma og aðrar hátíðir í
kaþólskum sið eins og allra heilagra
messa og allra sálna messa. Hátíðin
blandaðist svo saman við hrekkjavöku
Spánverjanna og úr varð dagur hinna
dauðu.
Undirbúningur fyrir hátíðina stendur
yfir árið um kring og gjöfum er safnað til
að færa þeim látnu. Þegar líður að hátíð-
inu eru grafir snyrtar og þær eru svo
skreyttar með gjöfunum sem safnað
hefur verið saman á árinu. Blómakransar
eru lagðir á leiðin, leikföng eru færð látn-
um börnum og flöskur af tekíla eða öðru
þeim fullorðnu. Allt er þetta gert til að
lokka sálirnar að leiðunum. Sumir eyða
jafnvel nóttinni allri við grafir ættingja
sinna. Oft er matur eða drykkur sem hafði
verið í uppáhaldi þeirra látnu líka fram-
reiddur á heimilum ættingja þeirra. Eftir
hátíðina borða ættingjarnir matinn en
trúa því að hann skorti næringargildi þar
sem sálirnar hafi tekið anda matarins.
Á meðan á hátíðinni stendur er al-
gengt að sjá hauskúpur um allt. Um göt-
urnar gengur fólk með hauskúpugrímur
og borðar sælgætishauskúpur sem búið
er að grafa í nafn þess látna. Ýmislegt
annað matarkyns er sérstaklega útbúið
fyrir daginn, oftar en ekki í formi haus-
kúpu. - hhs
S Ö G U H O R N I Ð
Dagur
hinna dauðu
MARKAÐURINN MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 2005 7
Ú T L Ö N D
MEXÍKÓSKIR DRENGIR FAGNA HINUM DAUÐU Hauskúpur í hinum ýmsu myndum eru algeng sjón á degi
hinna dauðu.
Kauphöllin í Tókýó stöðvaði öll viðskipti með
hlutabréf í gærmorgun eftir að tölvukerfi
hennar bilaði. Verið var að uppfæra
tölvukerfi kauphallarinnar til þess að
hægt væri að anna þeirri auknu eftir-
spurn sem myndast hefur eftir við-
skiptum í kauphöllinni. Hún er sú
önnur stærsta sinnar tegundar í
heiminum. Þar skipta átján milljarð-
ar dollara virði af hlutabréfum um
hendur daglega. Viðskipti hófust ekki
aftur fyrr en klukkan hálf tvö eftir há-
degi. Við lok viðskipta í kauphöllinni
hafði Nikkei-hlutabréfavísitalan hækkað
um 1,9 prósent og hefur ekki verið eins há
síðan í maí 2001. - hhs
Bilun í Tókýó
Norsku laxeldisfyrirtækin
Cermaq, Fjord Seafood og Pan
Fish skiluðu mjög góðri afkomu á
þriðja ársfjórðungi. Greiningar-
deild Íslandsbanka segir frá því
að samanlagður hagnaður þeirra
hafi numið um 6,5 milljörðum
króna. Meginástæða góðra af-
komutalna er hátt heimsmarkaðs-
verð á laxi auk þess sem fram-
leiðslukostnaður hefur lækkað
vegna sameininga fyrirtækja.
Cermaq, sem fór á markað
seint í október eftir að norska
ríkið hafði selt um 35 prósenta
hlut, hefur hækkað um tólf pró-
sent frá skráningu en bæði Pan
Fish og Fjord Seafood hafa
hækkað umtalsvert á árinu eftir
mikla rekstrarerfiðleika undan-
farin ár. - eþa
Laxinn
gefur vel
LAXELDI Hagnaður stóru norsku laxeldisfyrirtækjanna var mikill vegna hás afurðaverðs og
minni kostnaðar.
06_07_Markadur lesið 1.11.2005 15:13 Page 3