Fréttablaðið - 02.11.2005, Qupperneq 47
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ { skrifstofan } ■■■■ 2
Blý sem er ekki blý
Þó nafnið bendi til þess er ekkert blý að finna í blýöntum. Blýið er í raun
grafít, sem er blandað saman við leir og vatn og pressað saman í stangir
við mikinn hita. Ástæðan fyrir því að talað er um blý í blýanta er vegna
þess að Englendingurinn sem fyrst uppgötvaði grafít taldi sig hafa fund-
ið blý. Samkvæmt blýantasafninu í Cumberland geisaði mikill stormur í
Borrowdale á Englandi um miðja 16. öld, sem reif upp tré með rótum og
undir þeim kom ljós í dökkt efni sem í fyrstu var talið vera blý. Um 200
árum seinna uppgötvaði ensku vísindamaður að efnið var ekki blý, heldur
tegund af kolefni. Efnið var nefnt grafít, eins og gríska orðið sem þýðir
„að skrifa“, vegna þess að fólk notaði efnið til þess. Fyrstu blýantarnir voru
molar af grafíti sem smiðir og listamenn notuðu mikið, þar sem hægt var
að skrifa á hluti án þess að rispa eða skemma efniviðinn.
sögumoli }
Afar skemmtilegur vinnustaður
SÆVAR SKAPTASON Ferðaþjónusta bænda er afar skemmtilegur vinnustaður, sem sinnir bæði ferðamönnum og bændum.
Skrifstofa Ferðaþjónustu
bænda hefur vaxið mikið
síðustu árin og er starfið,
sem er tvíþætt, afar gef-
andi að sögn Sævars
Skaptasonar, framkvæmda-
og skrifstofustjóra ferða-
þjónustunnar.
„Þungamiðjan í starfinu er annars
vegar allt í sambandi við ferða-
þjónustu bænda hér á landi. Hins
vegar skipuleggjum við ferðir til út-
landa undir nafninu bændaferðir.
Þetta eru ferðir allt frá Kína til Kali-
forníu, upp í Klettafjöllin, til Evr-
ópu og út um allt,“ segir Sævar
Skaptason, framkvæmda- og skrif-
stofustjóri Ferðaþjónustu bænda.
Starfið er mjög fjölþætt því
skrifstofan veitir þeim 150 býlum
sem bjóða upp á bændagistingu
margs konar þjónustu, sér um bók-
anir, heldur uppi gæðaeftirliti,
býður upp á þjálfun og skipuleggur
námskeið.
„Annað hvert ár eru allir okkar
bæir heimsóttir og úttekt, eða
gæðaeftirlit, fer fram. Við skipt-
umst á að fara í þessar ferðir,
starfsfólkið og ég. Eins förum við
náttúrlega til útlanda og kynnum
bændagistinguna á erlendum sýn-
ingum, bæði með því að taka þátt í
sýningum og með því að heim-
sækja viðskiptavini, þannig að það
er heilmikið í gangi og fólk er
mikið á ferðinni, það er ekki bara
bundið hérna við skrifstofustólinn,“
segir hann.
Fyrirtækið heldur upp á 25 ára
afmæli sitt þessa dagana. Þegar
Sævar tók við framkvæmdastjóra-
starfi Ferðaþjónustu bænda árið
1998 voru fjórir starfsmenn á skrif-
stofunni, en í dag starfa þar tólf til
fjórtán manns. „Það er heilmikið að
gerast hérna, heilmikil starfsemi,“
segir Sævar, sem áður starfaði á
ýmsum ferðaskrifstofum bæði hér
heima og í Þýskalandi.
Sævar telur mannlegu samskipt-
in það skemmtilegasta við vinnuna,
bæði við bændurna og ferðamenn-
ina. „Þetta er mjög gefandi starf að
því leyti til að árangurinn er mikið
undir okkur sjálfum sem vinnum
hérna kominn. Við höfum öll tæki
og tól, við höfum góða vöru að
selja og við höfum náð mjög
góðum árangri,“ segir Sævar.
Deilan um símann
Í kringum 1870 bjuggu tveir upp-
finningamenn, hvor í sínu horni, til
tæki sem gæti flutt hljóð á milli
staða með rafmagni. Þetta var fyrsti
síminn og mennirnir hétu Elisha
Gray og Alexander Graham Bell. Þeir
hlupu báðir til og stukku af stað á
einkaleyfisskrifstofuna til að fá
einkaleyfið. Aðeins klukkustund var
á milli mannanna en Bell varð fyrri
til. Fræg lagadeila spratt upp á milli
mannanna tveggja en henni lauk
með sigri Bells.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/N
O
R
D
IC
P
H
O
TO
/G
ET
TY
I
M
AG
ES
Síminn býður
auðveldar lausnir
MEÐ PIM-KERFI SÍMANS ER HÆGT AÐ
TENGJA FARTÖLVU VIÐ NETIÐ Í GEGNUM
FARSÍMANN OG NOTA GEMSANN TIL AÐ
SKOÐA TÖLVUPÓSTINN.
Síminn býður nú sérhæfðar lausnir til þráðlausra
samskipta, sem auðvelda fólki að sinna störfum
sínum þó það sé ekki á skrifstofunni, en sífellt
fleiri eru fjarri skrifborði sínu allan eða hluta
dagsins.
Með PIM-lausnum Símans getur fólk sótt net-
póstinn sinn beint í símann og flett upp gemsa-
númeri forstjórans. Eins er hægt að nettengja far-
tölvu í gegnum farsíma og svo lengi sem síminn er
innan GSM-kerfis Símans eða tengdur við erlent
símakerfi sem Síminn hefur samning við getur fólk
haft stöðugan aðgang að þeim upplýsingum sem
geymdar eru á tölvuforriti fyrirtækisins.
Síminn býður upp á aukna þjónustu sem auðveldar fólki
að vinna vinnuna sína þó það sé ekki á skrifstofunni.
06-07 skrifstofan lesið 1.11.2005 15:43 Page 3