Fréttablaðið - 02.11.2005, Side 49
Formaður LÍÚ sagði að jarðir hefðu
auðvitað gengið kaupum og sölum. „En
engri íslenskri ríkisstjórn hefur hingað til
hugkvæmst að nota aðferð Mugabes for-
seta Zimbabwe, að taka jarðir af eigendum
þeirra og skipta þeim upp á milli annarra.
Það tíðkaðist í þjóðnýtingarstefnu komm-
únismans, sem allir vita hvaða árangri
skilaði en í vestrænum samfélögum telst
slíkt óþekkt.“
Til skamms tíma hafa aðilar í sjávarút-
vegi mátt búa við þess háttar stjórnfyrir-
komulag sagði Björgólfur. Nýtingarréttur
hefði verið skertur með fyrirvaralitlum
stjórnvaldsákvörðunum og hann færður
til annarra án þess að bætur kæmu fyrir. Í
umræðunni um þjóðnýtingu hefði verið
horft fram hjá því að verðmæti auðlindar-
innar lægi ekki síst í rekstri þeirra fyrir-
tækja sem hefðu byggt afkomu sína á nýt-
ingu hennar. Ef grundvellinum væri kippt
undan þeim rekstri væri hætt við að mikil
verðmæti glötuðust.
Björgólfur sagði að barátta LÍÚ hefði
ekki síst miðað að því að berjast fyrir
þessum grundvallarréttindum. „Án þeirra
getur sjávarútvegur ekki skilað þeim ár-
angri og arðsemi sem samfélagið krefst af
honum. Án þeirra geta fyrirtækin ekki
starfað með eðlilegum hætti og haldið
áfram á þeirri braut hagræðingar og auk-
innar verðmætasköpunar sem kvótakerfið
hefur sannanlega haft í för með sér.“
NÝTINGARRÉTTURINN ÚTVEGSMANNA
Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegsráð-
herra, hefur frekar verið talsmaður
kvótatilfærslu enda hafa Vestfirðingar
kvartað hástöfum undan núverandi
kvótakerfi. Í þessum tilfærslum hefur
kvóti verið tekinn af burðugum útgerð-
um og afhentur öðrum. Einar Kristinn
sagði í ræðu á aðalfundinum að hluti
fiskveiðistjórnunarkerfisins byggðist
beinlínis á byggðatengdum úrræðum.
Rétt væri að veiðiréttur smábátaflotans
svokallaða hefði aukist ár frá ári.
„Okkur getur greint á um nákvæmt
fyrirkomulag fiskveiðistjórnunarinnar
og ýmsa þætti hennar, en kjarni málsins
lítur að nýtingarréttingum. Um þau mál
hafa á hinn bóginn staðið miklar deilur
hér á landi. Í þeim deilum hef ég skipað
mér við hlið íslenskra útvegsmanna
enda hef ég talið það vera forsendu
skynsamlegrar auðlindanýtingar að fyr-
ir lægi hvar veiðirétturinn lægi og enn
fremur að ekki gengi að stjórnvöld
byggðu inn í þann nýtingarrétt sjálf-
virka skerðingu eins og sumir stjórn-
málamenn hafa talað fyrir,“ sagði Einar
og hann væri talsmaður þess að nýting-
arrétturinn væri útvegsmanna. Skyn-
samlegra sé að veiðirétturinn sé í hönd-
um þeirra sem hefðu með nýtingu
aðlindarinnar að gera.
MARKAÐURINN MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 2005 13
Ú T T E K T
„Fundirnir voru fjörugri í
gamla daga,“ segir Páll H.
Pálsson, stofnandi Vísis í
Grindavík, sem hefur sótt
aðalfundi Landssambands
útvegsmanna í yfir 40 ár.
Hér áður fyrr hafi menn
virkilega tekist á, sérstak-
lega þegar rætt var um
skiptingu veiðiheimilda
milli báta og togara á upp-
hafsárum kvótakerfisins.
Páll man tímana tvenna
þegar kemur að sjávarút-
veginum. Hann segir
marga unga menn í útgerð
í dag ekki þekkja það að
vera blankir. Þegar hann
var að byggja upp sitt fyr-
irtæki, sem stofnað var
árið 1965, hafi fjölskyldan
lagt allt sitt í reksturinn.
Eftir það var athugað hvað
eftir væri til að borga hon-
um laun.
Í þessu samhengi rifjar
Páll upp gamla sögu þegar
þau hjónin ætluðu að elda
góðan mat á sunnudegi.
Fyrr um daginn bankaði
vélstjóri sem vann hjá
honum uppá og vantaði
fyrir einni flösku. „Ég dró
þá bara upp veskið og lét
hann hafa fyrir einni
flösku,“ segir Páll og bros-
ir. Í staðinn varð sunnu-
dagsmatur fjölskyldunnar
eitthvað fátæklegri en
upphaflega stóð til. Svona
var þetta í gamla daga.
Vísir í Grindavík er enn
í eigu fjölskyldu Páls og
gengur vel. Sjálfur hefur
Páll starfað til sjós og
lands og hafði unnið við
sjávarútveg áður en Vísir
var stofnaður. Aðspurður
hvort hann hafi mætt á að-
alfund LÍÚ árlega segir
hann það nærri lagi. Hann
sé meira fyrir að fylgjast
með umræðunum en að
taka þátt í þeim sjálfur.
Páll segir að Kristján
Ragnarsson, fyrrverandi
formaður LÍÚ, sé einn eft-
irminnilegasti fulltrúinn á
aðalfundi fyrr og síðar.
Það hafi aldrei verið nein
lognmolla í kringum Krist-
ján og hann hafi haft gam-
an af.
Fr
ét
ta
bl
að
ið
/E
.Ó
L.
Fr
ét
ta
bl
að
ið
/V
ilh
el
m
EINKAR K. GUÐFINNSSON HLÝÐIR Á RÆÐU BJÖRGÓLFS JÓHANNSSONAR FORMANNS LÍÚ. Björgólfur Jóhannsson sagði að nýtingarréttur hefði verið skertur með fyrirvaralitlum stjórnvaldsákvörðunum og hann færður til
annarra án þess að bætur kæmu fyrir. Í umræðunni um þjóðnýtingu hefði verið horft fram hjá því að verðmæti auðlindarinnar lægi ekki síst í rekstri þeirra fyrirtækja sem hefðu byggt afkomu sína á nýtingu hennar.
PÁLL H. PÁLSSON STOFNANDI VÍSIR Í GRINDAVÍK Ungir menn í útgerð í dag þekkja ekki að vera blankir.
Fundirnir voru fjörugri
Páll H. Pálsson hefur sótt aðalfundi LÍÚ í yfir 40 ár.
n í sjónmáli
12_13_Markadur lesið 1.11.2005 15:31 Page 3