Fréttablaðið - 02.11.2005, Page 53

Fréttablaðið - 02.11.2005, Page 53
MARKAÐURINN MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 2005 17 S K O Ð U N Viðskiptahallinn slær hvert metið af öðru. Greining Íslands- banka segir hallann meiri en hún spáði og var þó sæmilega í lagt. „Gengisbreytingar hafa mikil áhrif á þróun útflutningsverð- mætis, en heildarverðmæti út- flutnings var um 141 ma. króna á fyrstu 9 mánuðum ársins. Þannig hefur verðmæti útflutnings á þessu tímabili aukist um tæp 4% milli ára á föstu gengi, en á gengi hvers árs lækkaði verð- mætið um tæplega 6% á sama tímabili. Magn útfluttra vara minnkaði um rúm 2% en verð út- flutnings lækkaði að jafnaði um 3,7% milli ára á ofangreindu tímabili.“ „Verðmæti útfluttra sjávar- afurða var rúmir 83 ma. króna á tímabilinu, sem er 7,6% lækkun frá fyrra ári, en að magni til minnkaði útflutningur sjávar- fangs um 4,4%. Útflutningur iðnaðarvara, þ.m.t. stóriðju, minnkaði að heildarverðmæti um 7,4% milli ára, en að magni til var lækkunin rúmlega 3%.“ „Gífurleg aukning hefur orðið á innflutningi milli ára sem eink- um má rekja til aukinnar einka- neyslu og stóriðjufjárfestinga. Verðmæti innfluttra vara reynd- ist 212,6 ma. króna frá ársbyrjun til septemberloka í ár, og jókst um tæplega þriðjung frá fyrra ári á föstu gengi, en sé tekið tillit til gengisþróunar var aukningin 23%. Mest er aukningin í fjár- festingarvörum, tæplega 38% að magni til, og eru stóriðjufjár- festingar þar drjúgar. Innflutn- ingur neysluvara hefur einnig aukist mikið milli ára, eða um rúmlega 27% í magni mælt. Munar þar mestu um nærri 70% aukningu milli ára í innflutningi einkabifreiða, en mikil aukning varð einnig í varanlegum neyslu- vörum á borð við heimilis- og raftæki (40%), og hálfvaranleg- um neysluvörum, til að mynda fatnaði (18,5%).“ „Lítið lát er á neyslugleði landsmanna á innfluttum varn- ingi, enda kaupmáttur almenn- ings mikill og gengi hagstætt. Árferðið er hins vegar óhagstætt útflutningsgreinum, eins og end- urspeglast í tölunum hér að ofan, og ljóst er að ýmsar þeirra þola illa jafn hátt gengi krónu og raunin er nú. Þetta ójafnvægi á viðskiptum við útlönd, sem einnig sér stað í tölum um neyslu Íslendinga erlendis og ferðalög útlendinga hingað til lands, end- urspeglar þjóðarútgjöld umfram þjóðartekjur, sem á endanum kallar á leiðréttingu á gengi krónunnar, en Greining spáir því að slík leiðrétting feli í sér um fjórðungslækkun frá núverandi gengi og eigi sér stað á næstu tveimur árum.“ Viðskiptahallinn slær sífellt ný met – stærsti fjölmiðillinn LEITIN HEFST HÉR! Hvort sem þú ert einstaklingur í atvinnuleit eða stjórnandi að leita að góðum starfskrafti er allt – atvinna lausnin fyrir þig. allt – atvinna er dreift með Fréttablaðinu inn á 95 þúsund heimili alla sunnudaga. Leiðindalíf án áhættu Við kollegarnir höfum svolítið verið að leika okkur með bréf KB banka upp á síðkastið. Það hefur nefnilega gengið ágætlega að byggja upp smá stokk í bank- anum þegar líða fer að uppgjöri. Selja svo í uppsvinginu strax eftir uppgjörið. Bankinn er náttúrlega þrusu maskína, en það sem maður er að leika sér með er að það eru allir sjóðir stútfullir af bréfum í bankanum og eiginlega bara spákaupmenn að leika sér með þetta. Þá gildir náttúrlega að vera fremstur meðal jafningja. Það er þannig að þegar menn hafa séð sömu hlutina gerast nokkrum sinnum í röð, þá kemur að því að þeir gerast ekki. Það gerðist núna og af því að maður er jafn næmur og raun ber vitni, þá innleysti ég hagnaðinn á föstudaginn. Seldi allt á genginu 610. Ég var alveg viss um að bankinn yrði yfir væntingum, en ég var líka jafn sannfærður um að allir væru mér sammála. Senaríóið var því að fyrst allir vissu, þá yrði alltaf spennufall eftir uppgjörið. Maður tók því uppsveifluna af gengi KB banka meðan allir voru í hamingjukasti yfir uppgjörinu hjá Landsbank- anum, innleysti hagnað og fór fínt út að borða með frúnni fyrir brot af ágóðanum. Svo keypti ég aftur smá hlut á 593 á mánudaginn og sé bara til með það. Ég held að þessi banki eigi fullt inni, en eins og ég hef áður sagt, þá stendur það bank- anum fyrir þrifum að erlendir fagfjárfestar hafa ekki enn keypt í honum. Ég held að það muni gerast, en það getur liðið dáldill tími þangað til. Á meðan er sniðugt að leika sér annars staðar. FL Group er soldið spenn- andi, ég vil gjarnan reyna að komast í smá hlut í útboðinu. Ég held að það hljóti að vera pínu spælandi fyrir litlu hluthafana að þeim sé ekki boðið í útboðið. Ég held að FL menn hafi verið of hræddir þar. Þeir ættu allavega að hugleiða þann kost að hleypa litlu hluthöfunum í útboðið. Þetta er hvort eð er allt þræl sölutryggt og ef þeir litlu vilja ekki vera með, þá það. En menn hefðu átt að gefa þeim kost á því. Ég er einn af þeim sem halda að það sé spennandi séns sem þeir taka með Sterling. Þetta er að vísu áhætta, en ávinningurinn er að sama skapi góður ef vel tekst til. Hvað er líka gaman að áhættulausu lífi? Ríkisskulda- bréf eru áhættulaus. Hefur ein- hver gaman af þeim? Spákaupmaðurinn á horninu S P Á K A U P M A Ð U R I N N Þ J Ó Ð A R B Ú S K A P U R I N N Lítið lát er á neyslugleði landsmanna á innfluttum varningi, enda kaupmáttur almennings mikill og gengi hagstætt. 16-17 Markadur lesið 1.11.2005 15:18 Page 3

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.