Fréttablaðið - 02.11.2005, Blaðsíða 54
MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 2005 MARKAÐURINN18
H É Ð A N O G Þ A Ð A N
Þórður Jónasson tók ungur við stjórn Lána-
sýslu ríkisins og hefur stýrt henni á breyt-
ingaskeiði íslensks fjármálamarkaðar. Árið
2002 fór hann til starfa hjá Alþjóðabankanum
í Washington og vann þar í þrjú ár.
„Það var tilviljun,“ segir Þórður um ráðn-
ingu sína hjá bankanum. „Það er erfitt að fá
vinnu hjá bankanum nema bankinn beinlínis
vilji mann.“ Hann segir hausaveiðara á veg-
um bankans hafa leitað einhvers sem hefði
þann bakgrunn að hafa unnið að þróun fjár-
málamarkaðar. „Hún byrjaði á að tala við fólk
í þessum lánageira og þannig gekk, þangað til
kollegi minn á Írlandi benti á mig.“
BANKINN VILDI LÆRA
Þórður lét slag standa og fjölskyldan fluttist
til Washington. „Maður tók þessu fyrst eins
og léttu gríni, en svo kom tilboðið og við grip-
um tækifærið.“ Hjá Alþjóðabankanum starfa
tíu þúsund manns.
Íslenska fjármálakerfið hefur tekið mikl-
um breytingum frá því að Þórður hóf störf
hjá lánasýslunni. Einkavæðing, hagkerfið
opnað og ríkið sótti sér lánsfé á markað. „Það
er af sem áður var þegar vöxtum var hand-
stýrt,“ segir Þórður. Reynslan af þessari þró-
un skuldabréfamarkaðar var það sem Al-
þjóðabankinn sóttist eftir. „Menn spurðu sem
svo: Þarna er þjóð sem virðist of lítil til þess
að setja upp hjá sér fjármálamarkað og henni
virðist hafa tekist það nokkuð vel.“ Bankinn
vildi læra af þessu.
Alþjóðabankanum vildi styrkja ráðgjöf á
sviði uppbyggingar fjármálamarkaða og í
lánsfjárstýringu. Þórður kom þarna inn í nýj-
an alþjóðlegan hóp fólks með svipaðan bak-
grunn og hann sjálfur. „Þarna
hitti maður fólk með svip-
aða reynslu, en sem hafði
kannski aðeins aðra sýn
á hlutina. Saman mynd-
aði þetta skemmtilega
heild. Svo var allt sett í
gang.“
Starfinu fylgdu mikil ferðalög. „Það var
auðvitað mesti ókosturinn við þetta hvað
maður var mikið fjarri fjölskyldunni.“ Hver
ferð var tvær til þrjár vikur og Þórður var í
burtu um það bil hundrað daga á ári.
ANDSTÆÐURNAR MIKLAR
Markmið Alþjóðabankans er að eyða fátækt í
heiminum og stuðla að sjálfbærri þróun. Í því
felst að byggja upp heilbrigð efnahagskerfi.
„Sú mynd sem margir hafa af þróunaraðstoð
er ekki sú mynd sem blasti við mér. Margir
halda að í Afríku búi fólk í strákofum og svo
fer maður og bankar upp á í Seðlabankanum
og þar mætir manni vel menntað fólk og sem
beitir vönduðum vinnubrögðum. Svo fer
maður ekki lengri vegalengd en héðan og til
dæmis í Kópavog og þar er fólk sem borðar
upp úr ruslatunnunum og fjörutíu prósent
þjóðarinnar lifa undir fátæktarmörkum. And-
stæðurnar eru miklar. Í þessum löndum eru
hins vegar stundum fjármálakerfi sem ganga
þokkalega vel og eru að innri gerð sambæri-
leg við það sem við þekkjum. Hagkerfin eru
hins vegar lítil að stærð miðað við fólksfjölda
og fátæktin mikil.“ Þórður bendir á að í fjár-
málakreppum síðustu ára hafi stundum tap-
ast meiri fjármunir en sem nemi þróunarað-
stoð yfir langt tímabil. Það sé því mikilvægt
að huga að fjármálastöðugleika og mikilvægt
sé að tryggja þessum löndum aðgang að fjár-
magni án þess að innstreymið verði svo mikið
að hagkerfin fari úr jafnvægi. „Ég hef unnið
í einstökum verkefnum fyrir Alþjóðabankann
eftir að ég sneri heim og meðal þess sem við
erum núna að vinna að er hvernig er hægt að
leysa það vandamál að koma meira fjármagni
inn í efnahagskerfi þróunarlanda, án þess að
valda ofþenslu.“
ERLEND ÚTGÁFA DÝPKAR MARKAÐINN
Undir stjórn Þórðar hefur Lánasýslan ásamt
samstarfsaðilum kynnt íslensk skuldabréf
fyrir erlendum fjárfestum. Upp
á síðkastið hafa erlendir
aðilar, ríki og bankar
gefið út skuldabréf í ís-
lenskum krónum. Út-
gáfa sem nemur yfir
hundrað milljörðum
króna. Þórður segir að þessi
útgáfa nemi um tíu prósentum af lands-
framleiðslu. Svipað er uppi á teningnum í
Nýja Sjálandi þar sem sambærileg útgáfa er
26 prósent af þeirra landsframleiðslu.
„Ástandið þar og hér er nú með ólíkindum
svipað. Þeir hafa horft upp
á þetta gerast tvisvar áður
og reynsla þeirra er að út-
gáfa sem þessi hefur gert
fjármálakerfið dýpra og
skilvirkara, en lykilatriðið
sem menn leggja áherslu á
þar er að menn hviki ekki
frá stefnunni og freistist til
að grípa inn í gengismál
þegar þessi þróun gengur til
baka. Meginreglan virðist
vera að menn verða að
sætta sig við meira flökt og
mega ekki grípa inn í nema
fjármálastöðugleikanum sé
ógnað.“
Því fleiri sem vilja kaupa
skuldabréf í íslenskum krón-
um, því auðveldara er fyrir
rikið að sækja sér lánsfé í
innlendum gjaldmiðli. „Nú
eru til dæmis belgískir tann-
læknar og ítalskar ekkjur orðin kaupendur að
skuldabréfum í krónum. Sú hugsun að selja
innlend skuldabréf einungis til innlendra
fjárfesta er búin. Nú eru fjölmargir erlendir
aðilar sem taka þátt í verðmyndun á markaði
með íslensk skuldabréf.“ Þórður segir að þar
sem tekjur ríkisins séu að megninu til skattfé
sem er í innlendum gjaldmiðli sé skynsam-
legt að reyna að hafa sem mest af skuldunum
í sama gjaldmiðli. Lánasýslan hóf á sínum
tíma í samstarfi við bankana að kynna íslensk
ríkisskuldabréf fyrir erlendum fjárfestum,
með þeim árangri að fjörutíu prósent bréf-
anna eru nú í eigu útlendinga.
UMHIRÐA MEÐ SVEÐJUM
Ríkið hefur litla þörf fyrir lánsfé nú um
stundir og hlutverk Lánasýslunnar að gefa út
skuldabréf til að skapa vaxtaviðmið sem
aðrir vextir taka mið af. Þórður segir það að
draga úr erlendum skuldum nokkuð sem
menn ættu að hugsa um við núverandi kring-
umstæður. „Það hefur verið í takt við góðær-
ið að halda ákveðinni viðveru á innlendum
markaði til þess að mynda grunnvexti og þar
til við þurfum að taka lán. Það mun koma að
því fyrr eða síðar.“
Fjölskyldan kom heim í júlí á þessu ári og
hafði þá fjölgað um einn í
hópnum. Fjögur fluttu út,
þar af eitt smábarn, og
fimm fluttu heim. Þórður
segir að frítíminn sé helgað-
ur fjölskyldunni, en þau
hjónin hafi aðeins byrjað að
fikra sig áfram með golf.
Þar fyrir utan reynir fjöl-
skyldan að fara saman á
skíði. Ferðalögin hafa gefið
honum tækifæri til að leika
á golfvöllum þar sem fáir
Íslendingar hafa spilað.
„Við spiluðum sem var engu
líkt á golfvelli í Tansaníu
þar sem kylfusveinarnir
slógust um að fá að vinna
fyrir mann og þeir sem sáu
um umhirðu vallarins voru
með sveðjur.“
Reynslan af starfi við Al-
þjóðabankann er nokkuð sem
Þórður segist ekki fyrir nokkurn mun vilja
hafa misst af og hann búi að þeim tengslum
sem mynduðust. „Ég tók starfinu af því mér
fannst þetta spennandi starf og möguleiki á
að heimsækja framandi slóðir. Svo smátt og
smátt gerir maður sér grein fyrir því að þetta
er þróunaraðstoð og maður lætur gott af sér
leiða í starfinu. Það er eitthvað sem breytir
manni.“
Hádegisverður fyrir tvo
á Laugaási
Humarsúpa
Steikt rauðspretta gratín
Drykkir
Sódavatn, vatn og kaffi
Alls 4.580 krónur
▲
H Á D E G I S V E R Ð U R I N N
Með Þórði
Jónassyni
forstjóra Lánasýslu ríkisins
Bankar eru sam-
félagsþjónusta
Enn og aftur er runninn upp sá
tími þegar bankarnir skila nýjum
tölum um hvernig það gengur að
blóðmjólka hinn almenna launa-
mann. Og viti menn – það hefur
aldrei gengið betur. Ef Aurasál-
inni telst rétt til þá er hagnaður
bankanna það sem af er ári í
kringum 60 milljarðar króna.
Sextíu milljarðar kunna að hljóma
sem klink í eyrum sumra kaup-
sýslumanna og forstöðumanna
auðhringa en þetta safnast þegar
saman kemur. Fyrir sextíu millj-
arða má til dæmis kaupa þrjú þús-
und hús á tuttugu milljónir króna.
Svo mætti hugsa sér að peningun-
um yrði deilt jafnt niður á alla Ís-
lendinga á kosningaaldri. Þeir
fengju þá kringum þrjú hundruð
þúsund kall á kjaft.
En þessi tölfræði segir auðvitað
ýmislegt. Ef hagnaðurinn af
hverjum viðskiptamanni í banka-
kerfinu er 300 þúsund á níu mán-
uðum – er þá ekki verið að blóð-
mjólka almenning? Það er aug-
ljóst að bankarnir þurfa ekki að
græða svona mikið – hvað ætla
þeir að gera? Kaupa fleiri miða á
Chelsea-leiki í Meistaradeildinni?
Aurasálin hefur lengi varað við
þeirri óheillaþróun sem er að
verða í íslensku þjóðlífi. Hinir
stóru stækka á kostnað hinna
minni og auðhringar og fjárfest-
ingarbankar eira engu og bókstaf-
lega gína yfir öllu. Og allt er þetta
út af gróða sem enginn veit svo
hvað á að gera við.
Dyggir lesendur Aurasálarinnar
vita að hún hefur gjarnan hrósað
íslenskum athafnamönnum fyrir
dugnað sinn og hugmyndaauðgi í
viðskiptum. Því kynni einhver að
halda að í máli Aurasálarinnar
gætti tvískinnungs, að hún sé
ósamkvæm sjálfri sér. Þetta er
ekki rétt. Aurasálin hefur alltaf
stutt útrás íslensks viðskiptalífs
en á sama tíma varað við þeirri
hættu sem felst í því að menn
græði of mikla peninga.
Margur verður af aurum api er sagt.
Þessu trúir Aurasálin. Aurasálin
hefur fylgst með því hvernig
starfsmenn banka og fjármála-
fyrirtækja hafa smám saman
hrokkið aftur nokkur skref í þróun-
arsögunni og eru margir hverjir
orðnir að öpum. Þetta á þó ekki við
um gjaldkera eða aðra slíka, heldur
fyrst og fremst um verðbréfaliðið.
Í verðbréfadeildum bankanna er
valinn api í hverju rúmi.
Aurasálin vonar að fljótlega dragi
hressilega úr gróða bankanna og
almenningur fái eitthvað af þess-
um peningum til baka. Það er dýrt
spaug að eiga glæsileg fyrirtæki
ef hver og einn þarf að borga 300
þúsund kall á níu mánuðum til
þess að standa undir gróðanum.
Eðlilegt væri að svona starfsemi
væri rekin á núlli, eða því sem
næst, þar sem bankastarfsemi er
fyrst og fremst samfélagsþjón-
usta. Það er hugmynd sem þeir
ættu að skoða þeir Hreiðar, Sigur-
jón og Bjarni.
A U R A S Á L I N
Þórður Jónasson
Starf: Forstjóri Lánasýslu ríkisins
Fæðingardagur: 25. júní 1968
Maki: Kolbrún Kristjánsdóttir
Börn Anna Lind f. 1992, Gígja Hrönn f. 2000,
Kristján f. 2003
SPENNANDI STARF Þórður Jónasson, forstjóri Lánasýslu ríkisins, hefur tekið mótandi þátt í breytingum íslensks fjármála-
markaðar. Hann var í þrjú ár hjá Alþjóðabankanum í Washington og segir þann tíma hafa breytt sér, þar sem hann sinnti
þróunaraðstoð við uppbyggingu fjármálamarkaða sem eru liður í þvi verkefni bankans að útrýma fátækt.
Alþjóðabankinn vildi íslenskan lærdóm
Alþjóðabankinn sóttist eftir kröftum Þórðar Jónassonar, forstjóra Lánasýslu ríkisins. Hann hafði stýrt
starfseminni á mótunarárum íslensks fjármálamarkaðar. Verkefnið var að byggja upp fjármálamarkað
í fátækari löndum heimsins í því skyni að útrýma fátækt. Hafliði Helgason ræddi við hann um
skuldabréf í krónum og mikilvægi fjármálamarkaðar fyrir framþróun fátækari landa.
Fr
ét
ta
bl
að
ið
/H
ar
i
18-19 Markadur lesið 1.11.2005 15:18 Page 2