Fréttablaðið - 02.11.2005, Page 74
2. nóvember 2005 MIÐVIKUDAGUR30
LEIKHÚS
VALGEIR SKAGFJÖRÐ
Frelsi
eftir Hrund Ólafsdóttur / Sýnt á Smíða-
verkstæði Þjóðleikhússins / Leikstjóri:
Jón Páll Eyjólfsson / Leikmynd og
búningar: Ólafur Ísfjörð / Tónlist: Hallur
Ingólfsson / Lýsing: Sólveig Eggertsdóttir
/ Leikarar: Anna Kristín Arngrímsdóttir,
Arnbjörg Hlíf Valsdóttir, Gísli Pétur Hin-
riksson, Ísgerður Elfa Gunnarsdóttir, Lilja
Guðrún Þorvaldsdóttir, Ólafur Steinn
Ingunnarson og Sigurður Skúlason.
Niðurstaða: Jóni Páli tekst með aðstoð
leikhópsins að sviðsetja fyrirtaks sýn-
ingu sem ætti að höfða til ungs fólks.
Fyrst skal bjóða Hrund Ólafs-
dóttur velkomna í hóp íslenskra
leikskálda. Hún hefur skrifað
afskaplega frambærilegt verk
sem tengir okkur við samtímann
og allir fá pínulítið á baukinn og
það fyllilega verðskuldað.
Textinn sem hún skrifar renn-
ur vel og lipurlega. Styrkur hans
liggur meðal annars í því að
hann hefur framvindu og rás við-
burðanna þróast í eðlilegu flæði
milli vel útfærðra atriða.
Verkið hefur yfir sér raunsæis-
legan blæ en leikstjórinn sprengir
upp senurnar með flottum lausn-
um og ekki liggja leikararnir á
liði sínu við að gæða textann lífi
og blæbrigðaríkum tilfinningum.
Hrund leiðir okkur inn í heim
sem einkennist af samskipta-
leysi, skeytingarleysi, skorti á
kærleika og samkennd. Þannig
var heimurinn sem 68-kynslóðin
vildi umbylta en er núna búin að
skapa sér nýjan heim sem snýst
að miklu leyti um ímyndaðar og
sjálfskapaðar gerviþarfir þar
sem þeir sem eiga peningana hafa
völdin og skammta okkur hinum
eftir geðþótta.
Nú vilja afkomendur hennar
blása til nýrrar byltingar. (Eða
hvað?) En byltingin étur alltaf
börnin sín og það er eins og okkur
sé fyrirmunað að læra. Þrátt fyrir
allt frelsið. Frelsi mannsins felst í
því að vera hann sjálfur og verða
það sem hann getur orðið. En
frelsið hefur ekki merkingu nema
í skipulagðri tilveru og skipulögð
tilvera er skapandi. Þar af leið-
andi vill maðurinn frelsi til að
skapa og fara nýjar leiðir. En við
höldum samt áfram að gera sömu
mistökin aftur og aftur og við
segjum: „Þetta er bara svona!“
Jóni Páli tekst með aðstoð
leikhópsins að sviðsetja fyrir-
taks sýningu sem ætti að höfða
til ungs fólks. Ekki væri úr vegi
að foreldrar og unglingar færu
saman í leikhúsið til að upplifa
þetta bráðskemmtilega verk sem
er bæði fyndið, dramatískt og
fær okkur til að horfast í augu
og spyrja: ,,Höfum við í alvöru
áhuga á meðbræðrum okkar og
systrum?“
Tveir ungir leikarar þreyta hér
frumraun sína, þau Ísgerður Elfa
Gunnarsdóttir og Ólafur Steinn
Ingunnarson. Ísgerður vinnur
vel úr sínu hlutverki og skapar
trúverðuga áhrifagjarna stúlku
sem gengst upp í að umgangast
eldri krakka. Ólafur Steinn leik-
ur eitt lykilhlutverkanna og á hér
glæsilegt debút. Kemur sterkur
inn og sýnir okkur margar hlið-
ar á sínum karakter og hvernig
hann þróast í framvindu verks-
ins. Hann hvíldi fallega í því sem
hann var að gera.
Gísli Pétur Hinriksson leikur
besta vininn, einfeldning, drumb
sem er alltaf skrefinu á eftir
öllum hinum. Frábær túlkun.
Arnbjörg Hlíf fer stöðugt
vaxandi sem leikkona. Hún leik-
ur Brynhildi, hortuga en bráð-
greinda menntaskólastúlku sem
orðið hefur fyrir slæmri lífs-
reynslu. Sú persóna er reyndar
afar vel skrifuð af höfundi. Arn-
björg nýtir sér allt sem textinn
hefur upp á að bjóða og gefur til
viðbótar mikið af sjálfri sér og
fyrir vikið verður til eftirminni-
leg persóna.
Anna Kristín Arngrímsdóttir
leikur hina armæðufullu móður
hennar af ríku innsæi og næm-
leik.
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
leikur móður unga piltsins og þar
er sama uppi á teningnum; ára-
tuga reynsla og kunnátta í faginu
skilar henni alla leið.
Sigurður Skúlason lendir hér í
því sem er oft svo erfitt - að leika
karakter sem ekki er hægt að
hafa samúð með. Stundum kallað
„vanþakkláta hlutverkið“. Sigurð-
ur fer svo listilega með hlutverk
hins ofbeldisfulla og mislynda
heimilisföður sem kúgar allt og
alla í kringum sig að hrollur fór
um mann í hvert skipti sem hann
birtist á sviðinu. Það fer kannski
ekki mikið fyrir honum í leikrit-
inu en nærvera hans yfirskyggir
allt í þeim senum sem hann kemur
fyrir í, jafnvel þótt rétt sjáist
grilla í hann í daufi ljósi aftarlega
á sviðinu.
Heildaryfirbragðið: smart,
kraftmikið og á stundum svo
átakanlega satt.
ÚR LEIKRITINU FRELSI Gísli Pétur, Ísgerður og Arnbjörg Hlíf í hlutverkum sínum.
Lifi byltingin!
Stóra svið
Salka Valka
Fi 3/11 kl. 20 Blá kort Lau 12/11 kl. 20
Fi 17/11 kl. 20 Fi 24/11 kl. 20
Fö 25/11 kl. 20
Woyzeck
Lau 5/11 kl. 20 Rauð kort
Fi 10/11 kl. 20 Græn kort Fö 11/11 kl. 20 Blá
kort Fö 18/11 kl. 20 Lau 19/11 kl. 20
Kalli á þakinu
Su 6/11 kl. 14 UPPSELT Su 13/11 kl. 14
Su 20/11 kl. 14 Su 27/11 kl. 14
Id - HAUST
Wonderland, Critic ´s Choice?
og Pocket Ocean
4/11 kl. 20 FRUMSÝNING
Su 6/11 kl. 20 Su 13/11 kl. 20
Su20/11 kl. 20 Mi 23/11 kl. 20
Aðeins þessar 5 sýningar!
Nýja svið/Litla svið
Lífsins tré
Fi 3/11 kl. 20 Fö 4/11 kl. 20 UPPSELT
Lau 5/11 kl. 20 Fi 10/11 kl. 20
Fö 11/11 kl. 20 Fö 18/11 kl. 20
Alveg brilljant skilnaður
Su 6/11 kl. 20 UPPSELT
Su 13/11 kl. 20 UPPSELT
Su 20/11 kl. 20 UPPSELT
Su 27/11 kl. 20 AUKASÝNING
Síðustu sýningar!
Manntafl
Lau 12/11 kl. 20 Fi 17/10 kl. 20 Fi 24/10 kl.20
Miðasala á netinu
Einfalt og þægilegt er að kaupa leikhúsmiða á
heimasíðu Borgarleikhússins
www.borgarleikhus.is Þar er einnig að finna ým-
san fróðleik um verkin sem sýnd verða í vetur.
��������
�������
���������������������
�� � � �
������
����������
����
����������
��� ����
������
�����
����������������������������������������������������������������������� �����������
�
����������������������������
���������������������������
����������������������������������������
���������������������������������������
������������ �������������� �� �����������
����������������������������������������������������������������
����������������������������������������������� ����������
���������������������������
������������������������
��������������
������������
��
Miðar í síma 511 4200 og á www.kabarett.is
Síðustu sýningar
– geisladiskurinn kominn út.
05. nóv. UPPSELT
11. nóv. UPPSELT
Aukasýningar verða fös. 18. fös. 25. og lau. 26. SALA ER HAFIN
eftir Thomas MEEHAN, Charles STROUSE & Martin CHARNIN
SÍÐUSTU SÝNINGAR
Frábær fjölskylduskemmtun!
- Fréttablaðið
HHHH -DV
Hinsegin óperetta eftir
Gaut G. Gunnlaugsson og Gunnar Kristmannsson
Síðasta máltíðinSýnt í Iðnó
"Hugmynd Gunnars og Gauts er snjöll og dáruskapurinn
fer aldrei yfir þau fínu mörk að verða að fíflagangi.
Það gerir grínið enn betra."
Bergþóra Jónsdóttir - mbl
Næstu sýningar:
fim. 3.nóv. kl. 20:00 og lau. 5.nóv. kl. 17:00
Miðasala í Iðnó í síma 562-9700,
idno@xnet.is og á www.midi.is
1 dálkur 9.9.2005 15:19 Page 6
1 dálkur 9.9.2005 15:19 Page 6
1 dálkur 9.9.2005 15:19 Page 6
1 dálkur 9.9.2005 15:19 Page 6