Fréttablaðið - 02.11.2005, Side 79
Sjaldan er ein báran stök. Þetta á
að minnsta kosti við Kate Moss.
Eftir að hafa verið ljósmynduð
við að taka kókaín missti hún af
milljónasamningum, fékk viður-
nefnið kókaín-Kate og neyddist til
að flýja undan ásókn fjölmiðla til
Bandaríkjanna þar sem hún skráði
sig loks í meðferð.
Á sunnudaginn birti breska
blaðið News of the World frétt
þess efnis að ólátabelgurinn Pete
Doherty væri kominn með nýja
stúlku upp á arminn þrátt fyrir að
vera enn opinberlega í sambandi
við fyrirsætuna. Sú „heppna“
heitir Nuha og er 23 ára gamall
listnemi. Þau kynntust á tónleika-
ferðalagi Babyshambles og hafa
átt í eldheitu ástarsambandi án
þess að Moss hafi haft um það
minnsta grun. Greinilegt er að
Pete hefur ekki haft í hyggju að
styðja við bakið á kærustunni
sinni heldur reka frekar rýting í
bakið á henni. Það ætlaði allt um
koll að keyra þegar Doherty mætti
með listnemann upp á arminn í
teiti sem vinir Moss héldu. Það
verður því að teljast næsta víst að
sambandi rokkarans og fyrirsæt-
unnar sé nú lokið. Kate öðlast þó
eflaust samúð breskra fjölmiðla
á næstu dögum en Pete verður
úthúðað, að öllum líkindum sem
skepnu, ef breskir fjölmiðlar eru
samir við sig. Rokkarinn brást
ókvæða við þegar blaðamenn
News of the World reyndu að ná
tali af honum og sparkaði meðal
annars í bíl þeirra.
Kate er nú á leiðinni til Eng-
lands þar sem hún þarf að svara til
saka fyrir kókaínið. Væntanlega
mun hún nýta ferðina og láta Pete
finna til tevatnsins. Moss staldrar
þó stutt við því hún hyggst flytjast
til Bandaríkjanna ásamt dóttur
sinni.
PETE OG KATE Þau hafa lengi verið eitt
umdeildasta par Bretlands. Pete er þegar
kominn með aðra stúlku þótt kærastan
hans sé í meðferð og hafi síður en svo haft
það náðugt.
Doherty stendur
ekki við bakið á Moss
Rokksveitin Dimma heldur tvenna
tónleika á Gauknum næstkomandi
föstudag í tilefni af útkomu fyrstu
plötu sveitarinnar sem kemur út
8. nóvember.
Platan inniheldur tíu frum-
samin lög auk myndbands við
lagið Cockeye Gutterworm. Á
tónleikunum mun Dimma leika í
fyrsta skipti öll lögin af plötunni
og líklega eitthvað af nýrri plötu
Michaels Bruce, gítarleikara og
lagahöfundar Alice Cooper-sveit-
arinnar, en þrír meðlimir Dimmu
spiluðu með Bruce á plötunni
The Second Coming of Michael
Bruce.
Á báðum tónleikunum spila
einnig færeysku rokksveitirnar
Sic og 48 Pages sem hafa getið sér
gott orð fyrir kraftmikið rokk.
Báðar hafa þær spilað hér á landi
áður.
Fyrri tónleikarnir á Gaukn-
um eru fyrir alla aldurshópa og
byrja þeir kl. 17.00 en seinni tón-
leikarnir hefjast á miðnætti og er
aðgangseyrir 500 krónur.
Útgáfutónleikar Dimmu
DIMMA Rokksveitin Dimma spilar á Gauknum ásamt tveimur færeyskum hljómsveitum.
MYND/VILHELM
FRÉTTIR AF FÓLKI
Hótelerfinginn Paris Hilton er í við-ræðum um að leika Zsa Zsa Gabor
í nýrri kvikmynd. Gabor
var eitt sinn gift langafa
Parisar, Conrad
Hilton, og tengist
því leikkonunni að
einhverju leyti.
Myndin segir
meðal annars frá
sigri Gabor árið
1936 í keppninni
Ungfrú Ungverja-
land.
Ricky Gervais, sem sló í gegn í
þáttunum The Office,
ætlar að gera kvikmynd
ásamt félaga sínum
Stephen Merchant.
„Ég vil gera
eitthvað sem
enginn hefur
áður gert, eða
bæta það sem
hefur verið gert
áður,“ sagði
Gervais. Staðfesti
hann einnig að
hann langaði til að
gera kvikmyndir byggðar á barnabókum
sínum Flanimals.
Leikkonan Jennifer Aniston leikur næst í kvikmyndinni Derailded ásamt
breska leikaranum Clive
Owen. Aniston, sem virð-
ist vera að jafna sig eftir
skilnaðinn við Brad Pitt,
mun leika konu úr við-
skiptalífinu sem er
nauðgað. Aniston
er einnig með tvær
aðrar dramatískar
myndir á verkefna-
listanum.
Samkvæmt samningi sem popp-
arinn Michael Jackson hefur gert
við fyrrum eiginkonu sína, Debbie
Rowe, má hún ekki segja börnun-
um sínum tveimur að hún sé móðir
þeirra.
Verður þetta bann endurskoðað
þegar börnin verða eldri. Einnig
má hún aðeins hitta börnin, þau
Prince Michael I sem er átta ára
og Paris sem er 7 ára, stöku sinn-
um.
Jackson og Rowe skildu árið 1999.
Rowe fékk að hitta börnin í fyrsta
sinn í fimm ár í ágúst síðastliðn-
um á hótelherbergi í Los Angeles.
Fóstra barnanna fór með börnin á
fund móður sinnar en Jackson var
þá staddur í Barein.
Jackson er um þessar mund-
ir að taka upp nýtt smáskífulag
þar sem hann syngur með öðrum
þekktum tónlistarmönnum.
Má ekki segja að
hún sé mamman
MICHAEL JACKSON Popparinn vill ekkert
með fyrrverandi eiginkonu sína hafa.
Söngkonan Madonna segir að Gwen Stefani, sem
sló í gegn í hljómsveitinni No Doubt, sé algjör
hermikráka.
„Hún hermdi eftir mér. Við vinnum með mörgu
sama fólkinu. Hún giftist Breta, hún er með ljóst
hár og hún hefur áhuga á tísku,“ segir Madonna.
„En mér er alveg sama. Mér finnst hún fín stelpa
og mjög hæfileikarík.“
Gwen er hermikráka
MADONNA Söngkonan Madonna segir að Gwen Stefani sé
algjör hermikráka.
með þrjár
í rúminu
BACHELOR
DV2x10 -lesið 1.11.2005 20:30 Page 1