Fréttablaðið - 02.11.2005, Side 86
2. nóvember 2005 MIÐVIKUDAGUR42
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÁRÉTT 2 skák 6 vafi 8 hamfletta 9
nögl 11 samanburðartenging 12 glæsi-
bíll 14 yndis 16 í röð 17 útsæði 18 for
20 smáorð 21 umkringja.
LÓÐRÉTT 1 labbaði 3 austfirðir 4
brjósthimna 5 gæfa 7 straumur 10
hætta 13 útdeildi 15 fræ 16 draup 19
holskrúfa.
LAUSN
HRÓSIÐ
...fær Sálin hans Jóns míns fyrir
að trekkja enn að eftir öll þessi
ár, en uppselt er á tónleika hljóm-
sveitarinnar í Kaupmannahöfn.
LÁRÉTT: 2 tafl, 6 ef, 8 flá, 9 kló, 11 en,
12 kaggi, 14 unaðs, 16 lm, 17 fræ, 18
aur, 20 að, 21 króa.
LÓÐRÉTT: 1 gekk, 3 af, 4 fleiðra, 5 lán,
7 flaumur, 10 ógn, 13 gaf, 15 sæði, 16
lak, 19 ró.
Þorgerður Jörundsdóttir bar sigur
úr býtum í samkeppni Bókaút-
gáfunnar Æskunnar um mynd-
skreytta barnabók. Þorgerður
Katrín Gunnarsdóttir mennta-
málaráðherra afhenti nöfnu sinni
verðlaunin í Vinabæ í gær.
Bókin, sem er sú fyrsta frá Þor-
gerði, heitir Þverúlfssaga grimma
og fjallar um lítinn þvermóðsku-
fullan strák sem á í stappi við for-
eldra sína og flýr á vit ævintýr-
anna. Auk þess að semja bókina
bjó Þorgerður til klippimyndirn-
ar sem þar er að finna. Þorgerð-
ur hefur áður fengið verðlaun
Fræðsluráðs Reykjavíkur fyrir
þýðingu á barnabókinni Ævintýri
Nálfanna - Flóttinn árið 1997.
Þorgerður er fimm barna
móðir og eignaðist lítinn strák,
þann fjórða í röðinni, fyrir aðeins
tveimur vikum. „Aðalsöguhetj-
an á sér fyrirmynd á heimilinu,“
segir hún um bókina. „Síðan eru
ljósmyndirnar í klippimyndunum
af sex ára gömlum syni mínum,
Jörundi Óskarssyni.
Þorgerður á einnig tveggja og
þriggja ára gamla stráka og tólf
ára stelpu. Hún segir að barna-
uppeldið passi vel með skrifunum.
„Það fer allt saman við barnaupp-
eldi. Maður finnur sér bara tíma,
það er nú bara þannig,“ segir hún.
Hún segist þó ekki eiga lager af
sögum í skúffunni hjá sér. „Ég hef
ekkert gert voðalega mikið af því
að semja. Helst hef ég samið smá-
ræði fyrir krakkana, einhverjar
bullsögur. Þetta er í fyrsta sinn
sem ég geri eitthvað fyrir sjálfa
mig,“ segir hún.
Aðspurð segist Þorgerður vera
óttaleg alæta á bækur og lesi
mikið. „Ég les mikið eftir Philip
K. Dick, Terry Pratchett og Neil
Gaiman, sem skrifar bæði fyrir
börn og fullorðna. Tove Janson
og Astrid Lindgren eru líka í
endalausu uppáhaldi. Þær eru
klassík.“
Þorgerður er með aðra sögu
í vinnslu sem hana langar til að
koma á koppinn. Hún vill ekkert
gefa upp um innihald hennar að
svo stöddu. freyr@frettabladid.is
BARNABÓKAVERÐLAUN ÆSKUNNAR: FIMM BARNA MÓÐIR VANN
Semur bullsögur
fyrir krakkana sína
„Fimmtudaginn 10. nóvember
næstkomandi munu bókabúð-
ir á höfuðborgarsvæðinu loka á
hádegi vegna þess hégómlega
sorgarviðburðar að út kemur
bókin, Túristi, eftir Stefán Mána.“
Svona hefst fjöldapóstur sem
áðurnefndur Stefán sendi frá sér í
gærmorgun. „Mér fannst miðnæt-
uropnunin vegna bókar Arnalds
Indriðasonar svo sniðug að mig
langaði til að gera eitthvað svipað
en ekki alveg keimlíkt,“ útskýrir
Stefán þegar hann er inntur eftir
þessu uppátæki sínu. „Þetta er
eins og flestir brandarar mínir,
það hlær enginn nema ég,“ held-
ur hann áfram. Stefán tekur þó
fram að bókabúðirnar hafi ekkert
ákveðið í þessum efnum en hann
vilji biðla til þeirra að taka þátt í
þessu með honum.
Bók Stefáns Mána á eflaust
eftir að vekja mikla athygli því
hann blandar saman raunveru-
leika og skáldskap líkt og kollegi
hans Kristjón Kormákur gerir í
bókinni Frægasti maður í heimi.
„Hugmyndin á bak við bókina
er ekkert ósvipuð en ég held að
þetta sé öðruvísi nálgun,“ segir
rithöfundurinn en bætir við að
réttast sé að bíða eftir verkinu.
„Annars er raunveruleikinn og
skáldskapur að renna saman og
þetta er einfaldlega stemningin í
dag,“ segir höfundirinn ennfrem-
ur en áréttar að hann reyni að
sigla milli skers og báru. „Annars
er það mitt álit að það sé enginn
munur á raunveruleika og skáld-
skap.“ - fgg
Hlær að sjálfs sín fyndni
STEFÁN MÁNI Sendi út fjöldapóst þar sem hann auglýsti lokun bókabúða á hádegi þann
10. nóvember vegna útkomu bókar hans.
FRÉTTIR AF FÓLKI
Þegar Svava Johansen keypti Bolla Kristinsson út úr Sautjánveldinu
bjuggust margir við breytingum enda
er Svava mikil framkvæmdamanneskja
í eðli sínu. Kaupin voru varla
gengin um garð þegar Svava
byrjaði að breyta. Það hefur
ekki farið fram hjá gangandi
vegfarendum á Laugaveginum
að þar er eitthvað mikið í
gangi því búið er að loka
Sautján Jeans og hafa
iðnaðarmenn verið þar
að störfum að undan-
förnu. Heyrst hefur að
Svava ætli að opna
herrafataverslun undir
nafninu
Kultur en samnefnd versl-
un er rekin í Kringlunni
fyrir konur. Hún ætlar að
selja hágæðavörur frá
Paul Smith, Bruunz
Bazaar og fleiri flottum
merkjum. Gárungar
hafa velt því fyrir sér
hvort nýi kærastinn,
Björn Sveinbjörns-
son, komi nálægt
versluninni enda
gefur það auga leið
að það myndi trekkja
að ef hann væri við
búðarborðið.
Mótfallinn
pyntingum
Mér finnst sjálfsagt að
flugvélar fljúgi inn og
út úr lofthelgi ef samn-
ingar eru til staðar um
það. Ég er hins vegar
algjörlega mótfallinn
pyntingum á fólki. Það
hins vegar kemur flug-
vélaumferð ekkert við.
FRIÐBJÖRN ORRI
KETILSSON, félagi í
Frjálshyggjufélaginu.
Eigum ekki að taka
þátt í svona
Mér finnst þetta allt
ömurlegt. Heimurinn er
að breytast til hins verra.
Hvort sem þetta eru
hryðjuverkamenn eða
hvað þá á ekki að flytja
fólk í pyntingarbúðir.
Ég er á móti þessu frá
upphafi til enda og við
eigum ekki að taka þátt í
svona löguðu.
ELLEN KRISTJÁNS-
DÓTTIR, söngkona.
Ólíðandi
Með þessu erum við
náttúrulega að leggja
okkar af mörkum í
sambandi við að fara
með menn í einhverjar
pyntingarbúðir og það
er auðvitað ólíðandi.
En þetta er sosum í
takt við annan stuðn-
ing sem við höfum verið að sýna hérna við þennan
stríðsrekstur Bandaríkjanna. Ef það væru einhverjar
töggur í okkur þá myndum við neita.
STEFÁN PÁLSSON, formaður Samtaka herstöðvaand-
stæðinga.
ÞRÍR SPURÐIR
Hvað finnst þér um að flugvélar með grunaða hryðju-
verkamenn innanborðs fái að millilenda á Íslandi?
Þegar bók Steinunnar Ólínu, Í fylgd með fullorðnum, er skoðuð vel
kemur í ljós að Jón Ásgeir nokkur er
skráður sem hönnuður bókarkápunnar.
Ekki er vitað hvort umrædd-
ur Jón Ásgeir sé forstjóri
Baugs eða um annan
mann að ræða en föð-
urnafnið er ekki tilgreint.
Það gæti jú allt eins verið
að Jón Ásgeir dundaði
sér við bókarkápuhönn-
un í frístundum líkt
og Páll Magnússon
útvarpsstjóri les fréttir í
aukavinnu.
Humar
1.290, kr/kg
Ótrúlega gott verð á fínum humri.
Höfðabakka 1 - sími 587 50 70
VERÐLAUNAHÖFNDUR Þorgerður, sem eignaðist lítinn dreng á dögunum, segir að Þverúlfs-
saga grimma eigi sér fyrirmynd á heimilinu.1 dálkur 9.9.2005 15:17 Page 1 [ VEISTU SVARIÐ ]
Svör við spurningum á bls. 8
1. 118 þúsund fjár
2. Letizia
3. Um 17 þúsund