Fréttablaðið - 04.11.2005, Side 2
2 4. nóvember 2005 FÖSTUDAGUR
������ ��������� ���� ������
��������� �� ���������� ������ ��
������������������������������
������������������������������
���� ������ ������ ������ �����
�����������������������������
�������� ���� ��������� �������
��� ������� ��� ������� ������ ����
���� ����� �������� �������� ���
���������������������� �����
������������������������������
��� ��� ������ ����������� ������
������� �������������� ��� ����
����������������������������������
�������� ��� ���������� ���� ����
���������������������������������
������������������������������
�� ����� ��������� �����������
����� ������ �������������� �����
������������������ ����� ����
��������
���������
SPURNING DAGSINS
Ómar, svífstu einskis í kosn-
ingabaráttunni?
„Mér er málið skylt.“
Ómar Stefánsson, bæjarráðsmaður, býður
sig fram í fyrsta sæti Framsóknarflokksins
í Kópavogi. Kvartað var yfir auglýsingaskilti
sem hann festi á á girðingu í eigu bæjarins.
FANGAR Talsmenn Evrópusam-
bandsins, Evrópuráðsins, Alþjóða
Rauða krossins og óháðra mann-
réttindasamtaka boðuðu í gær
allir rannsókn á því hvað hæft
væri í fregnum um að bandaríska
leyniþjónustan CIA ræki leynileg
fangelsi í Austur-Evrópulönd-
um, þar sem hún héldi meintum
hryðjuverkamönnum föngnum og
stundaði yfirheyrslur yfir þeim.
Talsmenn Rauða krossins
sögðust hafa sent Bandaríkja-
stjórn fyrirspurn um málið og
farið fram á aðgang að fangelsun-
um ef tilvist þeirra skyldi verða
staðfest. Fulltrúar Alþjóða Rauða
krossins hafa verið þeir einu sem
fengið hafa að heimsækja meinta
al-Kaída-liða sem haldið er föngn-
um í herbúðum Bandaríkjahers
í Guantanamo á Kúbu og víðar,
en þeir hafa ítrekað lýst áhyggj-
um af óstaðfestum fréttum af
því að bandarísk yfirvöld feldu
vissa fanga þar sem eftirlitsmenn
Rauða krossins næðu ekki til.
Forsvarsmenn Evrópuráðs-
ins, sem er sú stofnun sem hefur
það hlutverk að hafa eftirlit með
mannréttindamálum í álfunni,
boðuðu einnig rannsókn. Tals-
menn mannréttindasamtaka tóku
í sama streng.
Friso Roscam Abbing, talsmað-
ur framkvæmdastjórnar Evrópu-
sambandsins, sagði upplýsinga
verða leitað hjá öllum ríkisstjórn-
um ESB-ríkjanna 25.
Fulltrúar Bandaríkjastjórnar
hafa neitað að tjá sig um málið
eftir að dagblaðið The Washington
Post birti grein þar sem fullyrt
er að CIA hafi í fjögur ár - í nafni
„stríðsins gegn hryðjuverkum“
- haldið úti kerfi leynilegra fang-
elsa erlendis, þar á meðal í nokkr-
um Austur-Evrópulöndum. Blaðið
hefur núverandi og fyrrverandi
leyniþjónustumenn og erindreka
bæði frá Bandaríkjunum og öðrum
löndum fyrir fréttinni.
Ráðamenn í tíu löndum vísuðu
því á bug í gær að slík leynifang-
elsi væru hýst í þeirra lögsögu.
Rúmenía, Pólland, Lettland, Ung-
verjaland og fyrrverandi Sov-
étlýðveldin Georgía og Armenía
voru þar á meðal.
audunn@frettabladid.is
Rannsaka ásakanir
um leynifangelsi
Evrópusambandið, Alþjóða Rauði krossinn og Evrópuráðið boða rannsókn á
ásökunum um að bandaríska leyniþjónustan CIA reki leynileg fangelsi í Austur-
Evrópu og víðar þar sem meintir hryðjuverkamenn séu faldir og yfirheyrðir.
FANGI Í GUANTANAMO Fulltrúa Rauða krossins hefur grunað að bandarísk yfirvöld feldu
vissa fanga fyrir eftirliti. FRÉTTABLAÐISINS / AP
4.
SÆTID
JÓRUNN
Kosningaskrifstofan í Glæsibæ er opin kl. 12 - 22.
Sími 517 0 617. www.jorunn.is
Talsmenn Mannréttindavaktarinn-
ar (Human Rights Watch), sögðu í
New York í gær að samtökin hefðu
heimildir fyrir því að CIA hafi flutt
meinta hryðjuverkamenn sem
teknir voru höndum í Afganistan til
Póllands og Rúmeníu.
Mark Garlasco, hermálasér-
fræðingur hjá samtökunum, sagði
þessa ályktun dregna af greiningu
á flugdagbókum úr flugvélum sem
CIA notaði til slíkra fangaflutninga
á tímabilinu 2001 til 2004, en sam-
tökin hefðu fengið þessar dagbæk-
ur í hendur.
„Vísbendingar eru um að farið
hafi verið með fangana frá Afganist-
an til staða í Evrópu og víðar,“ tjáði
Garlasco AP-fréttastofunni.
Hann sagði tvo staði liggja sér-
staklega undir grun, en það væru
Szymany-flugvöllur í Norðaustur-
Póllandi, en í grennd við hann væru
höfuðstöðvar pólsku leyniþjónust-
unnar. Hinn staðurinn væri Mihail
Kogalniceanu-herflugvöllurinn í
Rúmeníu.
Forsætisráðherra Rúmeníu, Calin
Popesku, vísaði því alfarið á bug í
gær að CIA hefði nokkra aðstöðu
í landinu. Aðstoðarmaður pólska
forsetans Aleksander Kwasniewski
sagði að pólsk stjórnvöld hefðu
„engar upplýsingar“ um slíka starf-
semi í Póllandi.
Gruna Pólland og
Rúmeníu
■ Mannréttindavaktin um CIA:
DÓMSMÁL Íslenska ríkið var dæmt
í Hæstarétti í gær til að greiða
ungum manni rúmlega 9 milljónir
í bætur.
Fyrir tæpum níu árum féll mað-
urinn í heitan hver og var honum
metinn 50 prósent varanlegur
miski og örorka í kjölfarið.
Hverinn er á landi í eigu ríkisins.
Héraðsdómur hafði áður dæmt
drengnum sömu bætur sem þá
áttu að greiðast af Orkubúi Vest-
fjarða, Þörungaverksmiðjunni hf.
og íslenska ríkinu. Hæstiréttur
breytti þessu og sýknaði Orku-
bú Vestfjarða og Þörungaverk-
smikðjuna hf.
- ks
Maður féll í hver:
Fær í bætur
níu milljónir
STJÓRNMÁL Össkur Skarphéðins-
son, þingmaður Samfylkingarinn-
ar, segir að hér á landi ríki sjóræn-
ingjaástand í málefnum erlends
vinnuafls.
Hann tók upp málefni starfs-
mannaleigna og erlends vinnuafls
utan dagskrár á Alþingi í gær, en
hann hefur sjálfur unnið að gerð
skýrslu um starfsmannaleigur
fyrir Evrópuráðið.
„Mér er ekki kunnugt ennþá um
neitt land í Evrópu þar sem ástand-
ið varðandi starfsmannaleigur er
jafn slæmt og hér á Íslandi.“ Hann
bætti við að víða væru lög um
starfsmannaleigur og slík lög í Pól-
landi væru miklu fullkomnari en
víða annars staðar og að sjálfsögðu
hér á landi.
Árni Magnússon félagsmála-
ráðherra sagði löglaust athæfi
íslenskra fyrirtækja gagnvart
erlendum starfsmönnum skammar-
legt. „Eru íslensku fyrirtækin ekki
að taka fullan þátt í því... Menn eiga
ekki að firra sig ábyrgð og segja að
sér komi málið ekki við.“
Árni kvaðst ætla að leggja fram
frumvarp um starfsmannaleigur
fyrir jól.
Ögmundur Jónasson, þingmað-
ur vinstri grænna sagði ekkert að
vanbúnaði að samþykkja tilbúið
lagafrumvarp vinstri grænna um
starfsmannaleigur. - jh
Félgasmálaráðherra boðar frumvarp um starfsmannaleigur fyrir jól:
Versta ástandið hér á landi
ÁRNI MAGNÚSSON Félagsmálaráðherra ætlar
að leggja fram frumvarp um starfsmanna-
leigur fyrir jól.
BANDARÍKIN, AP Kviðdómur í New
Jersey í Bandaríkjunum komst í
gær að þeirri niðurstöðu að lyfja-
fyrirtækið Merck hefði gert lækn-
um nægilega
grein fyrir
aukaverkun-
um af gigtar-
lyfinu Vioxx
og hefði því
ekki blekkt
neytendur við
markaðsetn-
ingu lyfsins.
F y r i r t æ k i ð
væri því ekki
s k a ð a b ó t a -
skylt gagnvart
sextugum póstburðarmanni sem
lögsótti fyrirtækið og sagðist hafa
fengið hjartaáfall vegna notkunar
lyfsins.
Þetta er annar dómurinn sem
fellur í máli sem höfðað er á hend-
ur Merck vegna lyfsins en fyrr á
árinu komst dómstóll í Texas að
andstæðri niðurstöðu. ■
Dómur í New Jersey:
Merck ekki
skaðabótaskylt
GIGTARLYFIÐ VIOXX
Tekið af markaði vegna
aukaverkana. AP
STJÓRNMÁL „Við erum að ræða
það en ég á ekki von á öðru en
þessi tillaga um opið prófkjör
verði samþykkt,“ sagði Björn Ingi
Hrafnsson, aðstoðarmaður for-
sætisráðherra, þegar Fréttablað-
ið hafði samband við hann seint
í gærkvöldi. Þá stóð yfir fundur
kjördæmaráða flokksins í Reykja-
vík á Grand hóteli.
Þar var verið að ganga frá því
með hvaða hætti prófkjör flokks-
ins yðri háttað í Reykjavíkurkjör-
dæmunum en það verður haldið
28. janúar næstkomandi.
Tillagan sem Björn nefndi er
á þá leið að haldið verði prófkjör
sem er opið öllum Reykvíkingum
en þó með því skilyrði að kjósend-
ur undirriti stuðningsyfirlýsingu
við stefnu Framsóknarflokksins
áður en þeir greiða atkvæði. Anna
Kristinsdóttir borgarfulltrúi sem
einnig var á fundinum í gær, sagði
að verið væri að ræða breytingar á
orðalagi varðandi tillöguna en svo
yrðu greidd atkvæði um hana og
átti hún von á því líkt og Björn að
hún yrði samþykkt en engin önnur
tillaga var lögð fram. -jse
Fundur kjördæmaráða Framsóknarflokksins:
Opið prófkjör í Reykjavík
BJÖRN INGI HRAFNSSON OG ANNA KRISTINSDÓTTIR Bæði Björn Ingi og Anna voru sam-
mála um það í gærkvöldi að tillaga um opið prófkjör flokksins í Reykjavík yrði samþykkt.