Fréttablaðið - 04.11.2005, Qupperneq 10
4. nóvember 2005 FÖSTUDAGUR
BRETLAND Dómgreindarskortur
er sú einkunn sem bresku blöðin
gefa Tony Blair, forsætisráðherra
sínum, í leiðurum í gær fyrir að
hafa stutt David Blunkett nánast
gagnrýnislaust þrátt fyrir augljós
mistök þess fyrrnefnda.
Miðvikudagurinn er án efa
einn sá erfiðasti sem Tony Blair
hefur gengið í gegnum á átta ára
langri forsætisráðherratíð sinni.
Einn dyggasti stuðningsmaður
hans, David Blunkett, ráðherra
atvinnu- og lífeyrismála, sagði af
sér embætti eftir að upp komst
að hann hafði vanrækt að greina
þingnefnd frá tekjum sínum og
hagsmunatengslum frá því fyrir
kosningarnar í vor. Til að bæta
gráu ofan á svart munaði svo
minnstu að neðri deild þingsins
næði að fella mikilvægt stjórnar-
frumvarp um varnir gegn hryðju-
verkum.
Allt fram á síðustu stundu
hvatti Blair vin sinn til að sitja
í ráðherrastól sínum enda þótt
gagnrýnin á Blunkett ykist úr
öllum áttum. Eftir að hann til-
kynnti svo afsögn sína kom í ljós
að honum hafði einnig láðst þar
til á þriðjudaginn, þegar málið
var komið í hámæli, að greina
frá aukatekjum sem hann hafði
haft af ræðuhöldum og tengdum
uppákomum upp á ríflega 2,5
milljónir króna.
Síðar um daginn samþykkti
neðri deildin með aðeins eins
atkvæðis mun útþynnt frumvarp
Charles Clarke innanríkisráðherra
um bann við „vegsömun“ hryðju-
verka eftir að Clarke neyddist til
að draga til baka umdeild ákvæði
þess um að heimilt væri að halda
grunuðum hryðjuverkamönnum í
allt að níutíu daga án ákæru.
Bresku blöðin fjalla um vand-
ræði Blairs í forystugreinum
sínum í gær. Lundúnablaðið Times
gagnrýnir forsætisráðherrann
fyrir að hafa tekið á afsögn
Blunketts fyrir ellefu mánuðum
af léttúð og sýnt dómgreindar-
skort þegar hann skipaði vin sinn
svo aftur í embætti ráðherra í vor.
„Það er umhugsunarefni hvers
vegna Blair sýndi þessa hegðun.
Ef til vill var hann blindaður af
vinarþeli í garð náins samstarfs-
manns, sem er lofsverður eigin-
leiki í fari manneskju en ekki for-
sætisráðherra.“
Daily Telegraph, sem er hallt
undir Íhaldsflokkinn, rifjar upp
þegar Peter Mandelson, annar
náinn samstarfsmaður Blairs,
varð í tvígang á árunum 1998-99
að segja af sér ráðherraembætti
vegna fjármálaóreiðu. „Allir leið-
togar geta gert mistök þegar þeir
velja sér samstarfsmenn. Blair á
hinn bóginn virðist ekki geta eða
vilja læra af þeim mistökum sem
hann gerir, annaðhvort vegna
hroka eða barnaskapar.“
Nick Robinson, ritstjóri stjórn-
málafrétta BBC segir „ekki sér-
staklega heilsusamlegt í pólitísku
tilliti að tengjast forsætisráðherr-
anum þessa dagana,“ og leiðara-
höfundur dagblaðsins Guardian,
eins tryggasta bakhjarls Verka-
mannaflokksins, segir að „allir
forsætisráðherrar missi trúð-
verðugleika sinn að lokum. Þessi
er í alvarlegum vandræðum.“
sveinng@frettabladid.is
Svartur dagur
hjá Tony Blair
Afsögn Davids Blunkett í fyrradag er talin hafa
skaðað Tony Blair. Leiðarahöfundar bresku blað-
anna létu forsætisráðherrann hafa það óþvegið í gær.
HEFUR BEÐIÐ HNEKKI Tony Blair sætir gagnrýni úr öllum áttum fyrir að vanmeta hversu
alvarleg mistök vinur hans David Blunkett gerði sem síðan leiddu til afsagnar hans.
NORDICPHOTOS/AFP
FUGLAFLENSA Talið er að fugla-
flensu af H5N1-stofni sé að finna
í Ungverjalandi en svanur sem
flaug þaðan til Króatíu á dögunum
var smitaður af veikinni.
Þetta kom fram í yfirlýsingu land-
búnaðarráðherra Króatíu sem AP-
fréttastofan greindi frá.
Svæðið sem svanurinn fannst á
var sótthreinsað í kjölfarið og
öllu fiðurfé á bæjum í nágrenn-
inu slátrað. Þetta stökkbreytta
afbrigði fuglaflensunnar hefur
þegar greinst í Rúmeníu, Tyrk-
landi og Rússlandi. ■
Fuglaflensan breiðist út:
Talin vera í
Ungverjalandi
ALLUR ER VARINN GÓÐUR Frakkar undirbúa
viðbrögð við fuglaflensu og hyggjast verja
sem nemur 12 milljörðum króna til sótt-
varna. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
FASTEIGNASALA „Það er ódrengilegt
af Hauki að gera því skóna að ég
taki þátt í því að stofna Landssam-
tök fasteignasala þar sem ég hafi
ekki fengið nægan stuðning til að
komast í stjórn Félags fasteigna-
sala á aðalfundi,“ segir Franz Jez-
orski fasteignasali.
„Staðreyndin er sú að fund-
urinn var ólögmætur þar sem
stjórnin tók ekki við umboðum
frá mönnum sem ekki komust á
fundinn og þannig tryggði stjórn-
in tæpa stöðu sína.“
Franz hefur einnig nokkuð út
á málflutning Björns Þorra Vikt-
orssonar, formanns Félags fast-
eignasala að setja. „Björn Þorri
getur trútt um talað þegar hann
segir í Fréttablaðinu í gær að
fólk ætti ekki að láta menn sem
ekki eru löggildir fasteignasalar
sjá um sölu á fasteignum sínum.
Hann líkir því við það að láta ein-
hvern sem ekki hefur lært tann-
lækningar gera við tennur. Ég
taldi það nú sjálfur en á Miðborg,
sem er fasteignasalan sem Björn
Þorri rekur, eru átta starfsmenn
og þar af eru fimm sem ekki eru
löggiltir fasteignasalar, þannig að
þar eru örugglega menn sem ekki
eru tannlæknar að gera við tenn-
ur svo myndlíking hans sjálfs sé
notuð,“ segir Franz.
-jse
Deilur Landssamtaka fasteignasala og Félags fasteignasala:
Segir stjórnina ólögmæta
FRANZ JEZORSKI Franz segir viðbrögð stjórn-
armanna Félags fasteignasala annars vegar
ódrengileg og hins vegar illskiljanleg.
���������������������������
���
The Drawing School
Studiestart
d. 9. januar 2006
Mere info på
www.animwork.dk
The Animation Workshop
Kasernevej 5 - 8800 Viborg
Tlf: 87 25 54 00 - Fax: 87 25 54 11
info@animwork.dk - www.animwork.dk
Lær at Tegne
- forskole
til kreative
videregående
uddannelser
Danmarks
bedste
tegneskole
Einu sinni var jörðin full af
risaeðlum. Sumar voru gríðarstórar
og átu blöðin af trjánum, sumar
voru með hættuleg vopn eins og
gadda og horn, og sumar höfðu
beittar tennur og réðust á aðrar
risaeðlur.
Með skemmtilegum texta og
frábærum myndum er sagt frá
fimmtán risaeðlutegundum sem
allar voru til fyrir milljónum ára
– á risaeðlutímanum.
Spennandi bók!