Fréttablaðið - 04.11.2005, Síða 18

Fréttablaðið - 04.11.2005, Síða 18
 4. nóvember 2005 FÖSTUDAGUR18 fréttir og fróðleikur Prófkjör sjálfstæðismanna fyrir borgarstjórnarkosningar hefjast í Valhöll í dag. Það er frekar regla en undantekning að prófkjör séu haldin í Sjálf- stæðisflokknum fyrir borgarstjórnarkosningar. Hve oft hefur verið haldið prófkjör? Allt frá árinu 1978 hefur prófkjör verið haldið fimm sinnum, en tvisvar hefur verið stillt upp á lista. Síðast var prófkjör haldið árið 1997 en þá bauð Inga Jóna Þórðardóttir sig fram gegn Árna Sigfússyni, þáverandi oddvita borgarstjórnarflokks sjálfstæðismanna. Árni sigraði prófkjörið örugglega, en hann hlaut 4.542 atkvæði í fyrsta sætið, en Inga Jóna fékk 1.184 atkvæði og hafnaði í þriðja sæti listans. Árni var orðinn borgarstjóri fyrir kosningarnar 1994, og hlaut þá örugga kosningu í fyr- sta sætið. Árni varð borgarstjóri í nokkrar vikur voruð 1994 eftir að Mark- ús Örn Antonsson dró sig í hlé, en Markús varð borgarstjóri eftir að Davíð Oddsson hætti í borgarstjórn 1991 til að sinna þjóðmálunum. Þegar Davíð hætti náðist ekki sátt um hvort Árni eða Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson tæki við og var því brugðið á það ráð að sækja borgarstjóra út fyrir raðir borgarfulltrúa, en Markús hafði áður verið borgarfulltrúi árum saman. Hvenær hefur verið stillt upp lista? Fyrir borgarstjórnarkosningar 2002 stillti Sjálfstæðisflokkurinn upp lista. Inga Jóna Þórðarsdóttir var þá oddviti borgarstjórnarflokksins, eftir fráhvarf Árna Sigfússonar og sóttist eftir að leiða listann. Hún hlaut ekki náð fyrir uppstillinganefnd og var Birni Bjarnasyni stillt upp sem oddvita. Þegar hann varð ráðherra aftur tók Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson við því hlutverki. Fyrir kosningarnar 1990 var einnig stillt upp lista og var þá Davíð Oddsson oddviti sjálfstæðismanna. Hvenær var barist um fyrsta sætið? Inga Jóna og Árni tókust á um fyrsta sæti lista Sjálfstæðisflokks árið 1997. Þá hafði ekki verið slagur um fyrsta sætið síðan 1981 þegar Davíð Oddsson sigraði prófkjörið. Albert Guðmundsson sóttist einnig eftir fyrsta sætinu, en lenti í þriðja sæti og Markús Örn Antonsson hlaut annað sætið. FBL-GREINING: PRÓFKJÖR SJÁLFSTÆÐISFLOKKS FYRIR BORGARSTJÓRNARKOSNINGAR Héldu síðast prófkjör árið 1997 Þrjár vikur eru síðan utankjörstaðaatkvæða- greiðsla hófst í Valhöll vegna prófkjörs Sjálf- stæðisflokksins. Ágúst A. Ragnarsson vinnur á skrifstofunni. Er búið að vera mikið álag vegna prófkjörs- ins? Já. Það er mikið hringt og við sjáum um gríðarlega upplýsinga- miðlun. Vegna utankjörstaðaatkvæða- greiðslu hefur verið stöðugur straumur af fólki í Valhöll í þrjár vikur. Fólk er einnig að skrá sig í flokkinn. Megnið af því fólki sem er að skrá sig tengist frambjóð- endum, en það eru margir sem eru líka að hrífast með þeirri spennu sem er í borginni fyrir þessu prófkjöri. Það endur- speglast til dæmis í skoðanakönnunum Gallup að flokkurinn er á flugi í borginni. Er búið að vera meira álag en fyrir síðustu borgarstjórnarkosningar? Það var ekki prófkjör fyrir síðustu borgar- stjórnarkosningar, en það var fyrir síðustu alþingiskosningar og það er meira álag á skrifstofunni en þá. Hvað er það helsta sem þið þurfið að gera? Við þurfum að sjá um það frá a til ö að flokksskrá sé í góðu lagi. Við sjáum um framkvæmd prófkjörsins og að allt er lýtur að frambjóðendum sé eins pottþétt og hugsast getur. SPURT & SVARAÐ PRÓFKJÖR SJÁLFSTÆÐISFLOKKS Mikið álag á Valhöll SVONA ERUM VIÐ > HLUTUR SJÁLFSTÆÐISFLOKKS Í HLUTBUNDNUM SVEITARSTJÓRNARKOSNINGUM Á ÖLLU LANDINU ÞAR SEM LISTI VAR BORINN FRAM. ÁGÚST A. RAGNARSSON Starfsmaður í Valhöll. Gísli Marteinn Baldursson býður sig fram til forystu fyrir Sjálf- stæðisflokkinn í Reykjavíkurborg. Hann hefur lagt áherslu á framtíð- ina, nýjar hugmyndir og nýtt fólk í aðdraganda prófkjörsins sem hefst í dag. Hann svarar því fyrst hvers vegna menn ættu að velja hann í efsta sæti framboðslistann. „Ég held að það sé nauðsynlegt fyrir Reykjavíkurborg að hún hleypi að nýrri kynslóð, nýjum hugmyndum og nýjum áherslum varðandi það hvernig best sé að stjórna borginni. Borgin hefur að mínu mati setið eftir á meðan viðskiptalífið og ríkið hafa tekið til kostanna og nútímavæðst. Drifkraftur og hreyfiafl þessara breytinga hefur verið ný kynslóð fólks með nýjar hugmyndir og ég held að það sé nauðsynlegt fyrir borgina og Sjálfstæðisflokkinn að hleypa því fólki og þeim hug- myndum að.“ Heldur hallar á þig í könnunum við upphaf prófkjörsins í dag. Hvernig metur þú stöðu þína? „Mér líst vel á. Það kann jafnan góðri lukku að stýra að vera á sigl- ingu, vera á uppleið eins og kann- anir sýna. Við höfum trú á því að við náum fleiri atkvæðum en Vil- hjálmur einfaldlega vegna þess að menn skynja og skilja betur þörf- ina fyrir eitthvað nýtt. Vilhjálmur hefur verið lengi í borgarmálunum. Hann hefur mikla reynslu af borgarmálum og pólitík. Það ber að virða. En sífellt fleiri eru að átta sig á því að kosn- ingarnar snúast ekki um fortíðina heldur framtíðina. Ég býð mig fram á þeim forsendum að borgin þurfi nýja og skýra framtíðarsýn og að Sjálfstæðisflokkurinn þurfi mann sem getur leitt flokkinn og borgina gegn um nauðsynlegar breytingar.“ Sjálfstæðisflokkurinn í höfuðborg- inni kynnti snemmsumars skipu- lagshugmyndir um eyjabyggð. Styður þú ekki þær hugmyndir? „Ég hef lýst því yfir árum saman að ég vilji byggja í Vatnsmýrinni. Það hefur alltaf verið mín stefna og verið öllum ljóst þegar verið var að vinna þessar hugmynd- ir um eyjabyggðina. Ég barðist fyrir því í okkar hópi en fékk ekki mikinn hljómgrunn. En margt er ágætt í þessum eyjabyggðarhug- myndum. Þegar ég er spurður um mínar áherslur og hvað ég mundi gera sem oddviti Sjálfstæðismanna mundi ekki byggja úti í Viðey. Ekki heldur úti í Engey. Ég tek undir þau meginsjónarmið að það beri að byggja vestar í borginni. Við eigum að byggja í Vatnsmýr- inni og þar með verður ekki þörf á að byggja í Engey sem mun kosta tugi milljarða króna áður en við getum tekið fystu skóflustung- una. Þá er betra að byggja á landi sem til er í Vatnsmýrinni og Geld- inganesinu. Og finna flugvellin- um annan stað í Reykjavík eða í grennd við höfuðborgarsvæðið sem við getum auðveldlega gert í sátt við alla landsmenn. Hvert er brýnasta viðfangsefnið og það fyrsta sem þú mundir ráðast í ef þú kæmist í borgarstjórastól- inn? „Ég vil hvorki að prófkjörið nú né kosningarnar í vor snúist um for- tíðina. Við eigum að vinna kosn- ingarnar í vor út á hugmyndir okkar um framtíðina en ekki út á vafasama fortíð R-listans. Þegar við komumst að í ráðhúsinum vil ég að þegar í stað verði farið að byggja þessa borg eins og íbú- arnir sjálfir vilja. Það þýðir að við þurfum að bjóða upp á nægi- legan fjölda lóða til þess að íbúar þurfi ekki að gerast flóttamenn í nágrannasveitarfélögum. Við þurfum að leysa umferðarhnúta. Koma almenningssamgöngum og samgöngum sem borgarbúar hafa valið sér, sem er einkabíllinn, í gott horf. Við þurfum að koma skóla- málum og málefnum aldraðra í forgang. Við þurfum að hafa val. Örva einkaframtakið með því að láta sama fjármagn fylgja nemendum hvort sem þeir fara í borgarrekinn skóla eða sjálfstæð- an skóla. Þannig fáum við meiri sveigjanleika, fjölbreytni og sam- keppni án þess að búa til tvöfalt kerfi.“ Hverjum gætir þú hugsað þér að starfa með í meirihluta ef svo færi að Sjálfstæðisflokkurinn næði ekki meirihluta í borgarstjórnarkosn- ingunum? „Ég hef fulla trú á að við náum meirihluta. En í því sambandi gæti ég unnið með hverjum sem er sem reiðubúinn er til þess að samþykkja þá framtíðarsýn mína að Reykjavík verði byggð upp sem fjölskylduborg þar sem óskir og þarfir borgarbúa eru í fyrsta sæti. Þar sem okkur borgarbúum er þjónað og hjálpað að lifa lífinu eins og við kjósum sjálf að lifa því, en ekki á þann hátt sem borg- aryfirvöld vilja að við lifum. Er prófkjör of kostnaðarsöm leið að lýðræðinu og vali á fulltrúum? „Þetta er feykileg vinna. En um leið og þetta eru meiri annir en ég hef áður kynnst er þetta eitt það skemmtilegasta sem ég hef tekið mér fyrir hendur. Þetta er hins vegar dýrt. Við höfum reynt að halda kostnaði í lágmarki en heilsíður í blöðum kosta býsna mikið. Við erum svo heppin að njóta framlags fólks sem leggur sig fram kauplaust. Og fyrir það er ég afar þakklátur,“ segir Gísli Marteinn Baldursson. GÍSLI MARTEINN BALDURSSON Ég held að það sé nauðsynlegt fyrir Reykjavíkurborg að hún hleypi að nýrri kynslóð, nýjum hugmyndum og nýjum áherslum varðandi það hvernig best sé að stjórna borginni. Borgin hefur að mínu mati setið eftir á meðan viðskiptalífið og ríkið hafa tekið til kostanna og nútímavæðst. Aukum valfrelsi borgarbúa Gísli Marteinn Baldursson býður sig fram í efsta sæti framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík gegn Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni. Gísli Marteinn segir að borgin hafi setið eftir á meðan viðskiptalífið og ríkið hafi nútímavæðst. Drifkraftur þessara breytinga hafi verið ný kynslóð fólks með nýjar hugmyndir. FRÉTTAVIÐTAL JÓHANN HAUKSSON johannh@frettabladid.is 1990 1994 1998 2002 40,6% 42,2% 41,4% 51,3% Sláandi heimildamynd og bók MEÐ MORÐINGJA OG FÓRNARLAMBI Í HANDRUKKUN Sigurður Bragi DV2x15 3.11.2005 20:37 Page 1
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.