Fréttablaðið - 04.11.2005, Page 27
Umsjón: nánar á visir.is
Framsókn lofaði einu skattþrepi
Valgerður Sverrisdóttir viðskiptaráðherra hélt
framsögu á ársfundi Rannsóknarseturs verslunar-
innar í gær. Hún ræddi vítt og breitt um verslun í
landinu. Þegar ráðherrann gerði sig tilbúna til
brottfarar sagðist hún ekki geta annað en tjáð sig
um fjölda skattþrepa í virðisaukaskattkerfinu.
Framsóknarflokkurinn hefði barist fyrir því í
stjórnarandstöðu á árunum 1991-1995 að komið
yrði á einu þrepi í virðisaukaskattskerfinu og von-
andi stefndi nú í að svo yrði. Ekki mátti betur
skilja en að Framsóknarflokknum hefði að ein-
hverju leyti orðið meira ágengt í stjórnarandstöðu
fyrir tíu árum en að ná fram eigin tillögum nú um
þessar mundir.
Fjölsóttur fundur
Fundur Rannsóknarseturs verslunarinnar í gær var
vel sóttur af mörgum þeirra sem láta sig mál af
þessum toga varða og mátti þar sjá helstu sérfræð-
inga á sviði skattamála og verslunar. Pétur H. Blön-
dal alþingismaður fylgdist með af áhuga, ekki síst
þegar kom að umræðum um fjölda skattþrepa.
Hann var að sjálfsögðu
fyrsti maður til að
bera fram spurning-
ar enda ekki
þekktur fyrir að
liggja á skoðunum
sínum né vera
feiminn við að afla
sér þekkingar.
Hann byrjaði fyrir-
spurn sína á því að
furða sig á því að eng-
inn fulltrúi frá Samfylk-
ingunni væri á fundinum
en þar á bæ hafa menn
ekki sparað stóru orðin
og lagt til að matar-
skattur lækkaði
hið snarasta.
MESTA HÆKKUN
ICEX-15 4.662 Fjöldi viðskipta: 617
Velta: 617 milljónir
-0,04%
MESTA LÆKKUN
MARKAÐSFRÉTTIR...
> Íslendingar, Færeyingar, Norðmenn
og ESB hafa náð samkomulagi um
stjórn veiða í kolmunnastofninum í N-
Atlantshafi. Ríkin skipta með sér leyfi-
legum heildarafla úr kolmunnastofnin-
um. ESB fær 30,5%, Færeyjar 26,1%,
Noregur 25,8% og Ísland 17,6%.
> Kaup innlendra aðila á erlendum
verðbréfum námu rúmum 9,5 milljörð-
um króna nettó í september, saman-
borið við 3,5 milljarða á sama tíma í
fyrra. Alls nema nettókaup innlendra
aðila á erlendum verðbréfum tæpum
66 milljörðum það sem af er ári.
> Fjármálaeftirlitið og Samkeppnis-
eftirlitið hafa samþykkt samning ríkis-
sjóðs og Landsbanka Íslands hf. um
kaup bankans á tilgreindum eignum
Lánasjóðs landbúnaðarins. Greiðslan til
ríkissjóðs nam rúmlega 2.662 milljón-
um króna.
26 4. nóvember 2005 FÖSTUDAGUR
Peningaskápurinn…
Actavis 43,50 +0,20% ...
Bakkavör 44,10 -0,50% ... FL Group 14,00 +0,40% ... Flaga 3,90
-3,20% ... HB Grandi 9,35 +0,50% ... Íslandsbanki 15,20 +0,00%
... Jarðboranir 22,00 +0,00% ... KB banki 592,00 +0,20% ... Kög-
un 53,80 +0,00% ... Landsbankinn 22,80 -0,40% ... Marel 64,50
+0,00% ... SÍF 4,34 -0,70% ... Straumur-Burðarás 13,90 -0,70%
... Össur 90,50 -0,60%
Og fjarskipti +1,27%
Mosaic Fashions +1,16%
Atorka Group +0,88%
Flaga -3,23%
Icelandic Group -1,58%
Straumur-Burðarás -0,71%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU:
Serafin Shipping eigna›-
ist yfir fimm prósenta
hlut í Icelandic Group í
skiptum fyrir hlut í Sjó-
vík. Lögbundnar uppl‡s-
ingar voru ekki sendar
Kauphöll Íslands.
Starfsmenn Fjármálaeftirlitsins
telja ekki tilefni til að aðhafast
neitt í máli Serafin Shipping, sem
eignaðist yfir fimm prósenta hlut
í Icelandic Group við sameiningu
við Sjóvík í vor. Þegar félag eign-
ast meira en fimm prósent í
skráðu félagi ber því að senda lög-
bundnar upplýsingar til Kauphall-
ar Íslands samkvæmt lögum um
verðbréfaviðskipti um flöggunar-
skyldu. Það var ekki gert.
Hlynur Jónsson, lögfræðingur
hjá Fjármálaeftirlitinu, segir
þetta niðurstöðu eftirlitsins eftir
að hafa skoðað málið. Aðspurður
hvort Serafin beri ekki að fara að
lögum segist hann hafa upplýsing-
ar sem gefi til kynna að lög hafi
ekki verið brotin. Þegar hann er
beðinn að útskýra það nánar
segist hann ekki geta tjáð sig um
einstök mál.
Icelandic Group er almennings-
hlutafélag og fá hluthafar sam-
kvæmt þessu ekki lögbundnar
upplýsingar um Serafin. Fjármála-
eftirlitið, sem á að fylgjast með að
leikreglur markaðarins séu virtar,
telur ekki tilefni til að aðhafast.
Í tilkynningu til Kauphallar-
innar frá Icelandic Group 23. júní
síðastliðinn segir að Serafin
Shipping hafi eignast 5,96 prósent
í Icelandic Group í skiptum fyrir
hlut sinn í Sjóvík. Birtist Serafin á
lista í Kauphöllinni yfir tíu
stærstu hluthafanna 10. júní.
Samkvæmt upplýsingum Frétta-
blaðsins var þeim hlut fljótlega
skipt á milli tveggja félaga; Ford-
ace Limited og Deeks Associates,
sem hvorugt átti meira en fimm
prósent.
Af orðum Hlyns má ætla að
Fjármálaeftirlitið geri ráð fyrir
því að hlutnum hafi verið skipt á
milli félaganna áður en að samein-
ingu Sjóvíkur og Icelandic kom.
Starfsmaður Fjármálaeftirlitsins
sagði í viðtali við Fréttablaðið 24.
júní síðastliðinn að Serafin hefði
verið skylt að flagga eftir samein-
inguna.
Viðskiptablað Fréttablaðsins
hefur upplýst að Ólafur Ólafsson,
stjórnarformaður Samskipa og
SÍF, var eigandi Serafin. Ekki er
vitað hver var eigandi Fordace
Limited og Deeks Associates.
Hlynur vildi ekki upplýsa hvort
Fjármálaeftirlitið byggi yfir
þeirri vitneskju. Séu hlutir skráð-
ir á fleiri en eitt félag í eigu sama
aðila ber að líta á hlutina sem eina
heild. bjorgvin@frettabladid.is
Fjármálaeftirlitið aðhefst
ekkert í máli Serafin
Rannsóknarsetur verslunarinnar
telur að frekar eigi að hækka virðis-
aukaskatt á matvæli en að lækka
hann. Þetta er meðal þess sem
kemur fram í nýrri skýrslu Rann-
sóknarsetursins um skattlagningu
vöru og þjónustu á Íslandi sem var
kynnt á ársfundi setursins í gær.
Höfundar skýrslunnar eru dr.
Jón Þór Sturluson, forstöðumaður
Rannsóknarseturs verslunarinnar,
og Björn Snær Atlason viðskipta-
fræðingur. Jón Þór kynnti í gær
niðurstöðu skýrslunnar og þar kom
meðal annars fram að skattleggja
ætti vörur í öfugu hlutfalli við verð-
teygni eftirspurnar en lægra þrep
virðisaukaskatts leggst einkum á
matvæli og nauðsynjavörur.
Þá kemur fram í skýrslunni að
stjórnvöld geti náð byggðamark-
miðum sínum með skilvirkari
hætti með því að fella niður inn-
flutningsgjöld og auka í staðinn
beingreiðslur til bænda því inn-
flutningstollar á landbúnaðarvör-
ur hér á landi snúist um byggða-
stefnu og fæðuöryggi landsins.
Í samanburði á tollum og skött-
um á Íslandi og í nokkrum Evrópu-
löndum kemur fram að skattlagning
er að jafnaði mest hér á landi. Mat-
vörur eru þar fremstar í flokki og
þar af sérstaklega landbúnaðar-
vörur. Árni M. Mathiesen fjármála-
ráðherra tók dræmt í hugmyndir
um að hækka virðisaukaskatt á mat-
væli og sagði að slíkt kæmi seint til
framkvæmda hér á landi. - hb
Leggja til hærri matarskatt
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf ]
VÍS kaupir meirihluta í
bresku tryggingafélagi
Vátryggingafélag Íslands hf.
hefur keypt 54 prósenta hlut í
breska tryggingafélaginu IGI
Group Ltd. Kaupverð hlutarins
er trúnaðarmál. Samhliða kaup-
unum hefur VÍS tryggt sér for-
kaupsrétt að stærri hlut í IGI
sem nemur 21 prósenti til við-
bótar þannig að eignarhlutur
VÍS getur orðið alls 75 prósent.
VÍS er fyrsta íslenska trygg-
ingafélagið til að kaupa meiri-
hluta í erlendu tryggingafélagi
en í lok september keypti VÍS
tæplega tíu prósenta hlut í
norska tryggingafélaginu Prot-
ector Forsikring.
IGI sérhæfir sig einkum í
eignatrygginum fyrir einstak-
linga og málskostnaðartrygg-
ingum en er alhliða tryggingafé-
lag. Starfsmenn IGI eru nær
sjötíu og er áætluð velta félags-
ins í ár um 2,5 milljarðar ís-
lenskra króna.
Eigendur og stjórnendur VÍS
hafa það að markmiði að gera
VÍS að alþjóðlegu forystufyrir-
tæki á Norðurlöndunum og í
Bretlandi á tilteknum sviðum
trygginga-, fjármála og öryggis-
þjónustu. ■
Skuldabréfaútbo› til Noregs
Markaðsviðskipti Íslandsbanka
luku í gær sölu á skuldabréfa-
útboði fyrir Havila Shipping
ASA. Bréfin voru seld til ís-
lenskra fagfjárfesta. Með skipta-
samningi við Íslandsbanka fær
útgefandinn 2.350 milljónir ís-
lenskra króna til fimm ára.
Hlutabréf Havila Shipping ASA
eru skráð í norsku kauphöllinni.
Þetta er þriðja verðtryggða
skuldabréfaútboðið í íslenskum
krónum sem Íslandsbanki gerir
á þessu ári fyrir erlend fyrir-
tæki. Hin tvö voru fyrir norska
sjávarútvegsfyrirtækið Aker
Seafoods og kanadíska sjávar-
útvegsfyrirtækið Clearwater. ■
STARFSTÖÐ ICELANDIC GROUP Hluthafar í Icelandic Group hafa ekki fengið upplýs-
ingar um Serafin Shipping, sem var sjötti stærsti hluthafinn. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
FRÁ FUNDINUM Í GÆR Pétur H. Blöndal alþingismaður lagði fram fyrirspurnir en fund-
inum stjórnaði Runólfur Ágústsson, rektor Viðskiptaháskólans á Bifröst. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Tölur miðast við kl. 15.06
26-27 viðskipti lesið 3.11.2005 15:49 Page 2