Fréttablaðið - 04.11.2005, Page 70
FÖSTUDAGUR 4. nóvember 2005 29
Tilkynningar um merkisatburði,
stórafmæli, andlát og jarðar-
farir í smáletursdálkinn hér
að ofan má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is eða
hringja í síma
550 5000.
Íslandspóstur gaf í vikunni út tvær
frímerkjaraðir. Tveir algengustu
fuglar landsins skreyta tvö þeir-
ra en það eru grágæsin og starr-
inn. Grágæsin verpir á láglendi
um allt Ísland og er algengasta
gæsategundin hér á landi. Starrar
eru nýlegir varpfuglar hérlendis
en fyrst var vitað um verpandi
starra við Hornafjörð árið 1940.
Nú eru þeir algengastir
á suðvesturlandi þang-
að sem þeir komu árið
1960. Jón Baldur Hlíð-
berg teiknaði fugla-
myndirnar.
Hin frímerkjaröðin
er jólaleg. Frímerkin
tvö eru með epli og
grenitré og eiga að
vekja minningar um
jólin. Líklegt er að það
takist, því ekki aðeins
eru myndirnar í anda
jólanna heldur ilma
þau af greni-, epla- og
kanelilmi. Ilmurinn er
vægur en eykst ef yfir-
borð frímerkisins er strokið. Eplin
eru tilvísun í fortíðina þegar lítið
var um ávexti á
Íslandi. ■
Frímerki sem ilma af greni
ER SVO LOKKANDI Jólafrímerkin ilma af
greni, epli og kanel.
NÝKOMINN EN
ALKOMINN Starrin
verpti fyrst á Íslandi
árið 1940 en er
nú orðinn einn
algengasti fuglinn í
Reykjavík.
Hringurinn heldur árlengan
handavinnu- og kökubasar sinn á
Grand Hótel sunnudaginn 6. nóv-
ember klukkan 13.oo. Til sölu
verða margir fallegir, hand-
unnir munir og heimabakað-
ar kökur. Basarmunir eru til
sýnis í glugga Herragarðsins
í Kringlunni og Smáralind.
Jólakort félagsins árið 2005
verða einnig til sölu en allur
ágóði af fjáröflun félagsins
rennur í Barnaspítalasjóð
Hringsins. ■
Hringurinn á
Grand Hótel
HRINGURINN Allur ágóði rennur
í Barnaspítalasjóð Hringsins.
Börnin í leikskólanum Mána-
brekku héldu í vikunni upp á níu
ára afmæli skólans síns. Blásið var
til ýmissa skemmtiatriða í tilefni
dagsins og börn, starfsmenn og
foreldrar skemmtu sér hið besta.
Starfsmenn skólans hófu daginn
á því að klæða sig upp í búninga
og syngja Ég á gamla frænku, sem
vakti mikla kátínu meðal smáþjóð-
arinnar. Eftir hádegi hlýddu börn-
in á tónlistarmenn flytja íslensk
þjóðlög við góðar undirtektir.
Afmæli í
Mánabrekku
AFMÆLI
Karl Ágúst Úlfsson,
leikari og leikstjóri, er
48 ára.
FÆDDUST ÞENNAN DAG
1814
Eden Phillpotts rithöfundur.
1879
Will Rogers leikari.
1916
Walter Cronkite
fréttamaður.
1917
Gig Young leikari.
1918
Art Carney leikari.
ÉG Á GAMLA FRÆNKU Börnin skemmtu sér
vel á afmælinu.