Tíminn - 15.08.1976, Blaðsíða 1

Tíminn - 15.08.1976, Blaðsíða 1
Áætlunarstaðir: Blönduós — Sigluf jörður Búðardalur — Reykhólar Flateyri — Bildudalur Gjögur — Hólmavík Hvammstangi — Stykkishólm- ur — Rif Súgandaf j. Sjúkra- og leiguflug um allt land Simar: 2-60-60 & 2-60-66 180. tölublað —Sunnudagur 15. ágúst—60. árgangur Stjórnventlar Olíudælur Oliudrif WMsSESSBBasm Síðumúla 21 Sími 8-44-43 íslenzkur eðlisfræð ingur vinnur að stór- merkri nýjung ílækn- isfræðinni sumarleyfi sinu, og i vikunni ræddi Tíminn við hann um tækið og möguleika þess, og birtíst við- talið i opnu blaðsins i dag. MÓL — Reykjavik. Um nokkurra ára skeið hefur islenzkur eðlis- fræðingur, Þorsteinn Halldórsson að nafni, unnið við smiði laser- geislatækis i Þýzkalandi ásamt nokkrum öðrum þarlendum vfs- indamönnum. Tæki þetta, sem er ætlað til notkunar i læknisfræð- inni, hefur vakið mikla athygli meðal visindamanna, enda þýðir tilkorna þess, að breytinga er að vænta innan læknisfræðinnar á næstu árum. Meðal margra kosta þessa tækis er að nú snertir lækninga- áhaldið ekki sjúklinginn, þannig að veiruflutningur getur ekki átt sér stað. Þá hefur lasergeisla- tækið þann eiginleika, aö með þvi er hægt að stöðva öran blóömissi, sem eitt út af fyrir sig er stór- merk framför, og þá sérstaklega i uppskurðum á þeim stöðum lik- amans, þar sem mikiö blóð fer um, eins og t.d. heilanum. Þá hefur þetta tæki mikið að segja fyrir þá, sem vantar blóð- storknunarefni en aögerðir á þvi fólki hafa hingað til verið mjög erfiðar og kostnaðarsamar. Um þessar mundir er Þorsteinn Halldórsson staddur á Isiandi i Þorsteinn Halldórsson. í dag Seyðis- fjörður Nú Hður óðum á sumarið og þvi fer að styttast sá tlmi, sem við getum tint blóm okkur til ánægju. Tima- mynd: Róbert. íslenzk iðnkynning: Látum íslenzkan iðnvarn- ing njóta sanngirni gébé-Rvik. — tslenzk iðnkynn- ing er samstarfsvettvangur sex aðila, sem hafa bundizt samtök- um um að stuðla að aukinni þekkingu þjóðarinnar á íslenzk- um iðnaði. — Það er u.þ.b. ár siðan að umræður hófust um stofnun islenzkrar iðnkynningar og höfðu iðnaðarráðherra og Félag Isl. iðnrekenda forgöngu um máliö, sagöi Pétur Svein- bjarnarson, en hann hefur verið ráðinn sem framkvæmdastjóri og raunar eini fastráðni starfs- maður tslenzkrar iönkynningar. Pétur sagði að slöan þá, hefðu staðið yfir umræður og undir- búningur, skýrsla gerð um vinnuáætlun og siðan hefðihann verið ráðinn og hafið störf 1 júli sl. — Ég hef unniö að þvi slðan að taka saman starfsáætlun, og er nú ákveðið að fyrsta islenzka iðnkynningaráðið byrji I sept- ember nk. og standi til septem- ber 1977. Arinu hefur verið skipt i þrjá megin starfsáfanga, sá fyrsti er frá september til ára- móta, annar frá áramótum tii 31. mai og sá þriðji frá 1. júni til 1. september 1977. —- Fyrsta stóra verkefniö sem Islenzk iðnkynning tekur fyrir hendur, er sýning sem hlotið hefur nafnið íslenzk föt 1976, sagði Pétur. Forsaga islenzkra fatasýninga er sú, að undanfar- in ár hafa verið haldnar fata- kaupstefnur, sem þó aöeins hafa verið fyrir innkaupendur verzl- ana og fyrirtækja. Hins vegar mun sýningin tslenzk föt ’76 vera opin almenningi og reynt verður aögefa sem gleggstyfir- lit yfir þennan iðnaö I dag. Pétur sagði aö allar likur bentu tíl að þetta yröi sú viöa- mesta sýning sinnar tegundar sem haldin hefur veriö hér á landi og nefndi sem dæmi, að á sl. ári var haldin fatakaup- stefna, þar sem um 12 fyrirtæki sýndu framleiðsluvörur sínar á Hótel Loftleiðum. — Sýningin íslenzk föt ’76, sem haldin verð- ur dagana 8.-12. september nk., veröur hins vegar haidin i Laug- ardalshöllinni, aðalsal, og þar munu yfir þrjátíu islenzk fyrir- tæki sýna. Á sýningunni, sem verður opin frá kl. 15-21 dag- lega, verða tvær tízkusýningar daglega, og verða þærsennilega þær aistærstu sem hér hafa ver- iö haldnar. Munu um 90 ,,inn- komur” eða „númer” veröa sýnd á hverri sýningu. Auk þíessa er einnig ráðgert að sýna islenzka skartgripi um leið. — Næsta stóra verkefniö á þessu fyrsta starfstímabili verður Dagur iðnaöarins, sagöi Pétur. Hann er ráðgeröur á nokkrum stöðum úti á lands- byggðinni, og I fyrstu umferð veröa eftirtaldir staðir fyrir valinu: Akureyri, Egilsstaðir, Borgarnes og Kópavogur. A þessum stöðum verða iðnfyrir- tæki og iðnaður kynnt sérstak- lega. Iðnfyrirtækin veröa opin almenningi og efnt veröur til umræðu með sveitarstjórnar- mönnum og alþingismönnum um þróun iðnaðarins með sér- stöku tilliti til hagsmuna við- komandi byggðarlaga. Þá verða ýmsir þættir Is- lenzkrar iðnkynningar i' gangi allt fyrsta iðnkynningarárið og má . þar nefna t.d. þrjár auglýs- ingaáætlanir i sjónvarpi. Hefst sú fyrst 8. sept. og stendur til 1. nóv. Þar verður komið á fram- færi almennum staðreyndum um islenzkan iðnað og mikil- vægi hans. Þá mun stefnt aö reglubundinni dreifingu á fræðslu- og upplýsingaefni um islenzkan iðnað til fjölmiöla. Veröur þar um að ræða ýmsar staðreyndir um islenzkan iðnað i dag, upplýsingar um einstakar iðngreinar, fyrirtæki og stofn- anir, sem starfa i iðnaði. Þá munu forsvarsmenn is- lenzks iönaðar i vetur koma á fjölmarga fundi hjá þjónustu- klúbbum, og ýmsum félaga- samtökum, þar sem þeir munu kynna islenzkan iðnað. Gert er ráð fyrir að þeir komi á um 100 fundi fyrir 1. júni 1977. Unnið er þegar að gert far- andssýningar, sem sett veröur upp á hinum ýmsu stöðum á iön- kynningartimabilinu. Þá er ráð- gert aö fimmta umbúöasam- keppnin fari fram á iðnkynn- ingarárinu og er nú unnið að undirbúningi hennar. Þá er ekki úr vegi að geta þess, að ráðgert er að efna til sérstakrar kynningarviku á matvælum i marz 1977. Kynnt veröa Islenzk matvæli og e.t.v. islenzkar hreinlætisvörur, auk þess sem komiö verður I rituðu máli á framfæri ýmsum stað- reyndum um isienzkan iönaö. Eins ogáður segir eru það sex aðilar, sem bundizt hafa sam- tökum um að stuðla að auk- inni þekkingu þjóðar- innar á Islenzkum iðnaðiog hafa þeir tilnefnt fulltrúa sina I verk- efnisráö, sem hefur umsjón með iðnkynningunni. Þessir sex aðilar eru: Félag lslenzkra iðn- rekenda, Iðnaöarráðuneytið, Landssamband iðnaðarmanna, Landssamband iðnverkafólks Hér er Pétur Sveinbjarnar- son að útvarpa umferðar- fræðsiu til vegfarenda. Frá starfi sinu við Umferðarráð hefur hann nú fengið ársleyfi til að veita „tslenzkri iðn- kynningu” forstöðu og er ekki óilklegt að hann þurfi einhvern timann að hafa samráð :við útvarpið I nýja starfinu. Neytendasamtökin og Samband Isl. samvinnufélaga. Formaður verkefnisráðsins er Hjalti Geir Kristjánsson. Þdtt margir leggi hönd á plóginn I höfuðstöövum iön- kynningar, þurfa allir þeir, sem hagsmuna eiga að gæta að leggj ast á eitt, ef eitthvaó af þvi starfi á «kki að falla I ófrjóa jörð. I fyrsta lagi þarf að vekja alls staðarumræöu um iönaöinn og gildi hans fyrir þjóðina og hvetja fólk tíl þess aö láta inn- lendan iðnvarning njóta sann- girni. I ööru lagi þarf aö hvetja fólk til þess að kynna sér þær staöreyndir, sem birtar verða á meöan á iðnkynningu stendur, fara á þær sýningar, sem haldn- ar verða og á fundi þar sem um- ræður verða um iönaöarmál.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.