Tíminn - 15.08.1976, Qupperneq 33
Sunnudagur 15. ágúst 1976
TÍMINN
33
lastmálnff1
TRETEX plastmálning myndar óvenfu sterka húð.
Hún hefur því framúrskarandi veðrunarþol. .
Slippfélagið íReykjavík hf jjÍK
MáiningarverksmiÖjan Dugguvogi ™
Símar33433og33414
þeim, en hópuðust allir i
miðjum bátnum. Þar lá
„höfðinginn”, ungi
negrinn, upp i loft á pall-
inum steindauður. Hinn
skrautlegi höfuðbúnaður
hafði fallið af honum og
lá niðri i bátnum, blóð-
ugur og sundurtættur.
Happaskot úr riffli frú
Alice hafði hitt foringj-
ann i hausinn og orðið
honum að bana.
Þegar svertingjarnir
vissu það, að foringinn
var fallinn, misstu þeir
allan áhuga á bardagan-
um. Til árásarinnar
komu þeir æpandi og
hrinandi, en nú reru þeir
hljóðlega heimleiðis.
Það liðu ekki meira en
10 til 15 minútur frá þvi
foringinn féll og þar til
allir striðsbátar voru
komnir að landi, og
svertingjarnir horfnir
inn i skóginn.
Sigurinn vannst á sið-
ustu stundu. Leiðang-
ursmenn hefðu ekki get-
að varizt mikið lengur.
Bardaginn hafði verið
grimmur. Af liði ofurst-
ans höfðu fallið 18 menn,
en 41 særzt meira og
minna. Skotsárið i öxl-
inni á Karli Stuart
reyndist ekki hættulegt,
en hann varð þó að
ganga neð hendina i
fatla i margar vikur og
bar sig illa, að geta ekk-
ert gert.
Eftir þennan harða og
mannskæða bardaga á
ánni Semliki var það
regluleg hvild að koma
út á hið kyrra stöðuvatn,
Albert Nyanza. Það er
um 200 km langt, en
ferðin yfir það reyndist
þó margar dagleiðir.
Sérstaklega af þvi að
margt þurfti að laga og
endurbæta eftir bardag-
ann, og svo þurfti oft að
lenda, til að afla vista
fyrir þennan mann-
fjölda.
Einn daginn, er þau
Árni, Berit og Mary
höfðu gengið á land til að
skyggnast eftir veiði-
dýrum i skóginum,
gengu þau yfir hálfþurr-
an lækjarfarveg. Þá
hrópaði Mary allt i einu:
„Árni! Sjáðu þennan
stein. Hann er svo sér-
kennilegur á litinn.”
Þetta var gulleitur,
glansandi steinn, álika
stór og strútsegg. Árni
tók hann upp og undrað-
ist, hvað hann var þung-
ur. Hann var áreiðan-
lega 20 til 25 kiló. „Þetta
hlýtur að vera gull,”
sagði Árni bæði i gamni
og alvöru. Ekki vildu
þær Berit og Mary trúa
þvi. Þeim kom þó saman
um það, að Arni skyldi
láta þennan sérkenni-
lega stein i bakpokann
og sýna Karli Stuart, er
þau kæmu aftur að bátn-
um.
Strax og Karl sá stein-
inn, sagði hann hiklaust,
að þetta væri gull og
honum virtist það meira
að segja óvenjulega
hreint gull i steininum.
Hann taldi, að steinninn
væri um tvö þúsund
punda virði (2000
sterlingspund —
36.000.00 gullkrónur).
Hin fátæka Mary var
allt i einu orðin stórrik.
Ofurstinn og Karl
þorðu ekki að láta neitt
vitnast um þennan gull-
fund meðal burðar-
mannanna, þvi að þeir
óttuðust, að þeir strykju
þá frá þeim og færu i
gullleit. Næsta dag
gengu þó allir hvitu
mennimir upp i þennan
farveg og svipuðust þar
um, en fundu engan ann-
an stein. (Nú á dögum
eru þama miklar gull-
námur, en þó mjög mis-
hittnar). Ofurstinn á-
kvað að halda áfram
ferðinni og láta ekki
truflast af neinum gull-
draumum. Þau héldu
þvi ferð sinni áfram.
Rétt áður en bátarnir
tóku land við norður-
enda vatnsins, fóm þeir
fram hjá mynni árinnar
Viktoríu-Nílar, en hún
fellur úr hinu mikla
Viktoríuvatni út i Albert
Nyanza, og er af mörg-
um talin upptök Nílar-
fljótsins. (Réttara er þó
talið, að upptök Nílar sé
áin Kagera, sem kemur
upp 4 gr. fyrir sunnan
miðbaug og fellur út i
Viktoríuvatnið).
Þegar vatnið þraut, lá
leiðin niður eftir
Hvitu-Níl og var fyrsti
áfanginn til þorpsins
Nimule. Þarna nefna
innfæddir menn
Hvitu-Nil Bahr el Gebel,
þ.e. Fjallsá eða Fjalla-
fljótið. í Hvitu-Nil er á
þessu svæði feikn af alls
konar dýrum, svo sem
nilhestum, nashyrning-
um og krókódilum, Oft
styggðu bátarnir stóra
hópa af krókódilum,
sem sváfu á sandeyrum
i fljótinu, en þutu með
mesta bægslagangi i
ána, er þeir urðu bát-
anna varir.
Fyrir neðan N imula er
Hvita-Nil alveg ófær
bátum á 200 km svæði,
vegna fossa og hávaða.
Ofurstinn skildi þvi bát-
ana eftir i Nimúle og var
nú lagt upp i landferð,
alla leið til Rejaf, en það
er þorp eða kauptún við
ána, þar sem hún verður
aftur bátfær. í byrjun
ferðarinnar hafði ofurst-
inn lagt svo fýrir, að þar
yrði til taks litill gufu-
bátur, sem flytti leið-
angursmenn norður til
Khartum. í þessari 200
km löngu ferð á landi frá
Nimule til Rejaf gerðist
ekkertsögulegt. Hinn 17.
janúar kom ferðafólkið
til Rejaf, og þar beið
þess fallegur, hvitmál-
aður gufubátur, sem hét
Ramses.
VII.
Norður Hvitu-Nii
1.
í Rejaf var leiðangur-
inn leystur upp. Allir,
sem eftir lifðu af burð-
armönnunum, skyldu
snúa aftur til Sanzibar
undir forystu hins
firausta og hugprúða
Omars, en ofurstinn,
Karl Stuart, frú Alice,
Maiy. Árni og Berit
skyldu halda ferðinni á-
fram norður Nil með
gufubátnum Ramses.
Skilnaðarstundin var al-
varleg og blandin sökn-
uði.
Þessi langa og erfiða
ferð og allt, sem hafði á
dagana drifið, bæði blitt
og stritt, hafði tengt
„hvitu” og „lituðu”
mennina sterkum bönd-
um, og þvi var skilnað-
arstundin tregablandin.
Ofurstinn hélt stutta
ræðu á arabisku og
þakkaði burðarmönnun-
um fyrir allt erfiðið og
óskaði þeim góðrar
heimferðar. Þvi næst til-
kynnti hann þeim, að
þeir fengju allir uppbót
Bændur. Safnið auglýsingunum.
Eignist þannig heimildaskrá. Auglýsing nr. 13-’76.
MF15
Heybindivél
MF
Mdbscy Ferguson
0 Mesta lengd/breidd: 450/237 sm.
% Sporvídd: 250 sm.
0 Þyngd:1340 kg.
% Afköst allt að 13 tonn/klst.
% Aflþörf dráttarvélar: 30 hö.
0 Sópvindan fylgir vel ójöfnum landsins.
# Vinnslubreidd sópvindu: 120 sm.
e Breidd sópvindu og vængja: 142 sm.
% Tindabil sópvindu: 10.1 sm.
# Gildleiki tinda sópvindu: 0.54 sm.
e Slaglengd stimpils: 71.1 sm.
# Stimpilhraði (aflúrtak 540 sn/mín) 81 slag/mín.
# Stærð bagga, breidd/þykkt: 45/35 sm. Lengd:
60—130 sm.
# Auðveld stilling á baggalengd.
9 Þéttleiki bagga auðveldlega stillanlegur.
# Öryggisbúnaður í 8 mikilvægum atriöum.
# Bútæknideildin á Hvanneyri hefur reynt MF 15.
Sjá Búvélaprófun nr. 472.
MF 15 er traustbyggð, einföld og afkastamikil hey-
bindivél.
MF gæðasmíð.
Leitiö upplýsinga um verð og greiðsluskilmála i
næsta kaupfélagi eða hjá okkur.
SUÐURLANDSBRAUT 32- REYKJAVlK • SiMI 86500- SiMNEFNI ICETRACTORS
Atvinna í sveit
Fjárræktarbúið á Hesti óskar eftir vönu
starfsfólki við búfjárhirðingu og innan-
hússtörf.
Reglusemi áskilin.
Upplýsingar i simstöðinni á Hesti.
Óska eftir að taka á leigu rúmgóðan, upp-
hitaðan
bílskúr í Kópavogi
Greiðsla eftir samkomulagi.
Upplýsingar i sima 40582 eftir kl. 19.