Fréttablaðið - 02.12.2005, Blaðsíða 44
44 28. janúar 2005 FÖSTUDAGUR
K Y N N I N G A R
í d e s e m b e r 2 0 0 5
Hagkaup Kringlan:
2. desember kl. 14.00-18.00
8. desember kl. 16.00-20.00
15. desember kl. 14.00-18.00
17. desember kl. 16.00-20.00
23. desember kl. 17.00-21.00
Hagkaup, Smáralind
2. desember kl. 14.00-18.00
15. desember kl. 16.00-20.00
2. desember kl. 17.00-21.00
Lyfja, Lágmúla
31. desember
Levante fæst í verslunum
Hagkaupa, Lyfju og Lyf og heilsu
Guðrún Arnfinnsdóttir er með
þriggja rétta jólamat á að-
fangadagskvöld. Hún útbýr öll
jólakortin sjálf og lýkur jóla-
undirbúningnum fyrir fyrsta
desember.
Guðrún Arnfinnsdóttir, matráðs-
kona hjá Krabbameinsfélagi
Íslands, er alltaf með sama jóla-
matinn á aðfangadagskvöld. Hún
og eiginmaðurinn elda tartalettur
í forrétt, hamborgarhrygg í aðal-
rétt og heimagerðan ís í eftirmat
en uppskriftin hefur þróast lengi
innan fjölskyldunnar. „Við höfum
verið með þetta síðan við byrjuð-
um að búa árið 1970,“ segir Guð-
rún sem ætlar að gefa lesendum
uppskriftirnar. Hún segist þó ekki
geta gefið tartalettuuppskriftina
þar sem þau slumpi svo mikið á
magnið að lesendur ættu erfitt
með að elda eftir henni.
Guðrúnu er ýmislegt til lista
lagt. Fyrir utan að vera afbragðs-
kokkur saumar hún talsvert og
hefur kennt föndur á ýmsum
námskeiðum. Handlagnin nýtist
henni svo sannarlega í jólaundir-
búningnum en hún gerir öll jóla-
kortin sjálf og mikið af jólapökk-
unum. Hún er þó ekki komin langt
af stað með undirbúninginn þetta
árið. „Ég hef aldrei verið svona
sein, ég er eitthvað svo afslöppuð
og róleg. Þetta verður þó komið í
lok nóvember,“ segir Guðrún sem
lýkur alltaf jólaundirbúningnum
áður en desember gengur í garð.
Jólamatur fjölskyldunnar
Guðrún Arnfinnsdóttir eldar alltaf hamborgarhrygg á aðfangadagskvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK.
FORRÉTTUR (FYRIR FJÓRA)
Rækjukokteill
300 g rækjur
tómatar
agúrkusneiðar
Sósa:
1 dós 18% sýrður rjómi
majones eftir smekk
3 msk mango chutney krydd
2 – 3 msk tómatsósa
1 tsk karrý
salt og pipar
Lýsing: Rækjurnar eru afþýddar og settar
í forréttaskálar ásamt agúrkusneið og
tómatsneið. Hráefni í sósuna er hrært vel
saman og sósan sett yfir rækjurnar, agúrk-
urnar og tómatsneiðarnar.
Skreytt með sítrónusneið og steinselju og
borið fram með ristuðu brauði.
AÐALRÉTTUR
HAMBORGARHRYGGUR
hamborgarhryggur
dijon sinnep
púðursykur
Lýsing: Setjið hamborgarhrygginn í
steikarpott með smá vatni í. Smyrjð dijon-
sinnepi á hrygginn og þekið hann vel
með því. Setjið lok á steikarpottinn, stillið
bakaraofninn á 180 gráður og steikið
hrygginn í um það bil eina klukkustund.
Takið þá steikarpottinn úr ofninum og
setjið púðursykur ofan á hrygginn og
þekið vel. Setjið hamborgarhrygginn
aftur inn í ofninn án þess að hafa lokið á
steikarpottinum. Steikið í 30 – 35 mínútur
við sama hita og áður. Steikingartími fer
svolítið eftir stærð hamborgarhryggjarins,
þessi tími er miðaður við 2 – 2,5 kg.
SÓSA:
Setjið soðið af hamborgarhryggnum í
pott og bætið vatni út í. Sósan krydduð
með því sem til er, gott er að setja í hana
súputeninga og kjötkraft. Síðan er venju-
leg brún sósa búin til.
MEÐLÆTI:
Sykurbrúnaðar kartöflur.
Rauðkál (nýtt) skorið niður, brúnað á
pönnu í smjöri eða smjörlíki og soðið í
vatni eftir að búið er að brúna það. Út
í vatnið er sett borðedik og sykur eftir
smekk.
Salat búið til úr þeyttum rjóma, niður-
skornum eplum og vínberjum.
Ora gulrætur og grænar baunir skemma
ekki fyrir.
EFTIRRÉTTUR
HEIMAGERÐUR ÍS
8 egg
250 g sykur
1 l rjómi
vanilla
brytjað suðusúkkulaði eða Toblerone
eftir smekk
Lýsing: Eggjarauðurnar og sykurinn eru
þeytt létt. Rjóminn þeyttur og blandað
saman við. Eggjahvíturnar stífþeyttar og
bætt varlega út í. Bragðefni (vanilla) og
súkkulaði sett síðast í. Þetta er síðan sett í
hæfilegt mót og fryst.
Gleðileg jól,
Guðrún Arnfinnsdóttir.
Kammerkórinn Hymodia kemur
fram á hádegistónleikum kl. 12.15
í Ketilhúsinu á Akureyri. Tónleika-
röðin nefnist Litlar freistingar og er
haldin í samvinnu við Einar Geirsson
landsliðskokk.
Hin hliðin á
Diddú verður
kynnt lands-
mönnum á tón-
leikum í Salnum
kl. 20.
á jóladöfinni }
2.desember
...um heilsu
á þriðjudögum í Fréttablaðinu.
Hafið samband við auglýsingadeild „Allts“
Síminn er 550-5000
markvissar auglýsingar
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
L†
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
E
H
F.
/S
IA
.I
S
-
PR
E
28
02
3
0
4/
20
05