Fréttablaðið - 07.12.2005, Side 10
10 7. desember 2005 MIÐVIKUDAGUR
BANDARÍKIN Bandaríski álrisinn
Alcoa, sem byggir álverksmiðju
á Reyðarfirði, er í fimmta sæti á
nýjum lista tímaritsins Business
Week yfir þau fyrirtæki sem þykja
hafa staðið sig best þegar kemur að
því að draga úr útblæstri loftteg-
unda sem meirihluti vísindamanna
telur sannað að hafi mikil áhrif á
hlýnun jarðar.
Viðurkenninguna fær Alcoa
fyrir að minnka útblástur PFC-gass
frá álbræðslum sínum um áttatíu
prósent en í efsta sæti listans er
iðnaðarframleiðandinn DuPont,
sem notar í dag sjö prósentum
minni orku til framleiðslu sinnar
en árið 1990.
Hin þrjú fyrirtækin á topp fimm
eru evrópsk; Olíurisinn breski BP,
hið þýska Bayer og BT í Bretlandi.
Bæði Alcan, sem á og rekur
álverið í Straumsvík, og Alcoa eru
einnig ofarlega á lista Business
Week yfir þau fyrirtæki sem leggja
hvað mesta áherslu á umhverfismál
og taka alvarlega á þeim innan síns
fyrirtækis. - aöe
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Sævarhöf›a 2 Sími 525 8000 www.ih.is Opi›: Mánudaga – föstudaga kl. 9:00-18:00 og laugardaga kl. 12:00-16:00
PAKKINN
250.000 kr. aukahlutapakki
N†R PATROL Á GJAFVER‹I OG fiRJÚHUNDRU‹ OG
FIMMTÍU fiÚSUND KRÓNA JÓLAGJÖF Í KAUPBÆTI.
A‹EINS 20 BÍLAR Á fiESSU TILBO‹I!
PATROL
JÓLA–NISSAN
350.000 KALL Í JÓLAGJÖF!
A‹EINS 20 BÍLARÁ fiESSU TILBO‹I!
KAUPAUKI100.000 kr.GJAFABRÉF HJÁ
STÓRI
Innifali›: 33" dekk, krókur og toppbogar.
Tegund Ver›
Patrol Luxury beinskiptur 4.090.000.-
Patrol Luxury sjálfskiptur 4.190.000.-
Patrol Elegance beinskiptur 4.390.000.-
Patrol Elegance sjálfskiptur 4.490.000.-
RÚSSLAND AFTARLEGA Á BÁTI Mengun
á borð við þá sem er í St. Pétursborg í
Rússlandi er algeng en sífellt fleiri fyrirtæki
hafa tekið umhverfismál alvarlegum tökum
og hafa minnkað mengun og eða nýta
endurnýjanlega orku eins og hægt er.
AFP.NORDICPHOTOS/AFP
SVÍÞJÓÐ Þrýstingur á Göran
Persson, forsætisráðherra Sví-
þjóðar, um að segja af sér fer
vaxandi eftir að yfirvöld voru
gagnrýnd fyrir að bregðast ekki
nógu hratt við flóðbylgjunni í
Indlandshafi í fyrra.
Sænskir fjölmiðlar vitnuðu
í gær í ævisögu hans frá árinu
1997 þar sem hann ræðir um það
hvers vegna stjórnmálamenn
eigi að segja af sér eða ekki.
„Við erum mörg, bæði stjórn-
endur og stjórnmálamenn, sem
höfum fengið á baukinn og samt
setið áfram. Það væri betra ef
fólk tæki hatt sinn og staf og
segði af sér. Oft tekur þá við
betra líf,“ segir hann í bókinni.
Persson hefur lýst því yfir
að hann segi ekki af sér í fram-
haldi af gagnrýni undanfarinna
daga. ■
Forsætisráðherra Svíþjóðar:
Ósamkvæmur
sjálfum sér
KJARAMÁL Aðeins einn félagi í
Blaðamannafélagi Íslands greiddi
atkvæði með nýjum kjarasamningi
félagsins við 365 ljósvakamiðla.
Alls tóku fjórir þátt í atkvæða-
greiðslunni og skiluðu hinir þrír
auðu. Það var þó ekki þetta eina
atkvæði sem réði því að samning-
arnir voru samþykktir því tuttugu
prósenta kjörsókn þarf svo að
greidd atkvæði ráði niðurstöðum.
Þar sem kjörsókn var nokkuð fjarri
þeim mörkum skoðast samningur-
inn samþykktur. Ræður því reglan:
Þögn er sama og samþykki.
Heldur fleiri greiddu atkvæði
um samning Blaðamannafélagsins
við 365 prentmiðla og Árvakur þó
kjörsókn væri aðeins rétt yfir lög-
legum mörkum. 204 voru á kjör-
skrá og greiddu 57 atkvæði eða 28
prósent. 42 (73,5%) sögðu já en 14
(24,5%) sögðu nei. Einn seðill var
auður.
Arna Schram, formaður Blaða-
mannafélagsins, segist gjarna
viljað að fleiri hefðu tekið þátt í
atkvæðagreiðslunni en lítur svo
á að félagsmönnum hafi almennt
hugnast samningurinn. „Ég geri
ráð fyrir að félagsmenn hafi kynnt
sér samningana fyrir fram og hlýt
að líta svo á að þögn sé sama og
samþykki.“ - bþs
Kjarasamningar Blaðamannafélags Íslands:
Aðeins einn sagði já
ARNA SCHRAM Formaður Blaðamanna-
félags Íslands.
Tímaritið Business Week verðlaunar fyrirtæki sem huga að umhverfismálum:
Álfyrirtækið Alcoa dregur úr útblæstri
JÓLALJÓS Í VARSJÁ Vegfarandi tekur mynd
af 72 metra háu jólatré í miðborg Varsjár
í gær. Tréð er smíðað úr málmrörum og
skreytt með um tveimur milljónum ljósa-
pera. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
BRETLAND, AP David Cameron var í
gær kjörinn leiðtogi breska Íhalds-
flokksins. Við kjör hans binda
flokksmenn vonir um að eiga betri
möguleika á sigri í næstu þingkosn-
ingum, eftir að hafa tapað þrisvar
í röð fyrir Verkamannaflokkinum
með Tony Blair í broddi fylkingar.
Cameron er 39 ára að aldri og
þar með einn yngsti flokksleiðtog-
inn í sögu Íhaldsflokksins en hann
er sá fimmti sem fer fyrir flokkn-
um í átta ár. Hann er einkaskóla-
genginn sonur verðbréfamiðlara.
Cameron var kokhraustur í fyrstu
yfirlýsingum sínum í hinu nýja
hlutverki; hann lýsti ríkisstjórn
Verkamannaflokksins sem „mönn-
um gærdagsins“ og hét því að
koma henni frá.
„Við höfum á brattann að
sækja,“ sagði hann þó, með eigin-
konuna Samönthu sér við hlið,
en hún gengur með þriðja barn
þeirra hjóna. „En ef við stöndum
saman, ef við höfum skýra sýn á
það hverju þarf að breyta ... getum
við verið uppbyggileg stjórnarand-
staða og við getum verið sú góða
ríkisstjórn sem þetta land sárlega
vantar,“ sagði hann.
Keppinautur hans um leiðtoga-
sætið, David Davis, fékk innan við
þriðjung atkvæða í póstkosning-
unni sem fram fór meðal 250.000
almennra félagsmanna í flokkn-
um. Hann tók ósigrinum með ró og
lýsti Cameron tilvonandi forsætis-
ráðherra.
Verkefnið sem bíður Camer-
ons er að reyna að endurheimta
fyrri sess Íhaldsflokksins, sem
hélt um stjórnartaumana í Bret-
landi megnið af 20. öldinni. Marg-
ir álíta flokkinn hafa staðnað og
ekki fylgt þeim breytingum sem
orðið hafa á bresku þjóðfélagi.
Stjórnmálaskýrendur telja nokkra
áhættu í því fólgna fyrir flokkinn
að velja Cameron til forystu í von
um að hann sé fær um að breikka
fylgi flokksins. Forréttindauppeldi
hans í vel þénandi menntamanna-
fjölskyldu og menntun í Eton og
Oxford þykja síður til þess fallin
að höfða til alþýðunnar. Eiginkona
hans er af aðalsættum. Sem stjórn-
málamaður hefur hann hins vegar
sýnt að hann kann lagið á að tala
til fólks og pólitískar áherslur hans
þykja miðjusæknar. „Við verðum
að breytast til að fólk geti treyst
okkur,“ sagði hann um eigin flokk.
Til dæmis væri það forgangsmál
að fjölga konum í honum.
audunn@frettabladid.is
Cameron blæs
til sóknar
Hinn 39 ára gamli David Cameron var í gær kjörinn
leiðtogi breska Íhaldsflokksins. Hann blés strax til
sóknar gegn Verkamannaflokknum.
SIGURGLEÐI David Cameron fagnar úrslitunum í leiðtogakjörinu í gær ásamt eiginkonu
sinni Samönthu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP