Fréttablaðið - 07.12.2005, Blaðsíða 31
MIÐVIKUDAGUR 7. desember 2005
Hamraborg 7
�������������������������
������������������������������������
�����������������������������������������
��������������
����������������
�����������������
������������
�� ��������������
��������������������������������������������
��� ������������������ ���������������
���������
������������������������������������������
��������������������� �����������
Viltu veita þér og þínum forskot
í námi eða starfi?
Minnum á hin vinsælu gjafabréf Hraðlestrarskólans
“Enginn ætti að láta þetta framhjá sér fara. Á skipulegan og skjótvirkan hátt er hægt
að margfalda lestrarhraða án þess að það bitni á skilning. Samfara lestri er náms-
tækni sem nýtir aukin afköst lesturs og tryggir að það sem lesið er gleymist ekki.”
Þorvaldur H., 24 ára lögfræðinemi.
Gjafabréfið gildir á eitthvert þeirra
námskeiða sem haldið verður 2006
og hverju gjafabréfi fylgir 3.000 kr.
inneign inn á bók frá JPV-útgáfu.
Hægt er að panta gjafabréfið í síma 586-9400 og á www.h.is
...næsta námskeið 5. janúar 2006
Það er ekki nóg með að söng-
konan Eva Ásrún Albertsdótt-
ir haldi jól í desember eins
og flestir aðrir landsmenn,
heldur stendur hún líka fyrir
fjórum afmælisveislum á að-
ventunni.
„Ég á tvo litla menn sem eiga
afmæli í desember og núna eru
þeir orðnir svo stórir að ég get
ekki lengur haldið eina afmælis-
veislu fyrir þá báða og þar sem ég
held alltaf eina veislu fyrir vinina
og bekkjarfélagana og aðra fyrir
fjölskylduna eru þetta stundum
fjórar afmælisveislur sem ég
held í desember,“ segir Eva Ásrún
Albertsdóttir.
Yngri sonur hennar, Guðmund-
ur Þórir, verður átta ára 13.
desember og sá eldri, Valdimar,
verður ellefu ára á Þorláksmessu,
svo að jólahaldið hefur verið með
breyttu sniði síðasta rúma áratug-
inn hjá Evu Ásrúnu.
„Maður bara bætir þessu á allt
hitt, það er ekkert um annað að
ræða, og fyrir vikið verða jólin
aðeins öðruvísi,“ segir hún.
Eldri siður í fjölskyldu Evu
Ásrúnar er laufabrauðsgerð.
„Við erum fjórar systurnar og
við vorum vanar að hittast alltaf
og búa til laufabrauð fyrir jólin,
en síðustu árin hefur bara verið
svo mikið að gera hjá okkur að
við höfum einfaldlega ekki haft
tíma til þess,“ segir Eva Ásrún
og bætir við að samt sem áður sé
nú alltaf laufabrauð á borðum um
jólin heima hjá henni.
smk@frettabladid.is
Afmælisveislur í desember
Eva Ásrún Albertsdóttir söngkona. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Fjölskylduspil eru sívinsælar
jólagjafir, sérstaklega þegar
kemur að því að senda gjafir
til íslenskra vina og ættingja
erlendis.
„Það eru margir sem kaupa spil til að
senda til Íslendinga erlendis og núna
er til dæmis tuttugu ára afmælisút-
gáfan af Trivial Pursuit mjög vin-
sæl,“ segir Þórarinn St. Halldórsson,
nýbakaður eigandi Frí-
merkja- og myntversl-
unar Magna á Lauga-
veginum. Þórarinn tók
yfir af fyrrverandi
eiganda í október, en
verslunin hefur verið
á Laugavegi 15 síðan
árið 1979.
Íslensku spilin
Popppunktur, Hnefatafl og Kvik-
myndaspilið standa alltaf fyrir sínu.
Önnur vinsæl spil sem eru til í
íslenskri útgáfu eru Partý & Co. og
Mónópólí. Ný spil sem hafa vakið
athygli þessi jólin eru til dæmis
Sudoko spilið og Músagangur.
Fjölskylduspilin kosta á milli
1.500 krónur og 6.000 krónur.
„Það eru þó nokkrir sem hafa
komið til að kaupa spil, þetta eru
auðvitað þeir sem eru snemma í því
að kaupa jólagjafirnar,“ segir Þórar-
inn. Ef fólk ætlar að senda
spilin til útlanda verður
það að fara að flýta sér því
síðasti sendingardagur
til útlanda var í gær sam-
kvæmt Íslandspósti. ■
Í það minnsta
kerti og spil
Þórarinn St. Halldórsson, nýr eigandi Hjá Magna, með íslenska spilið Hnefatafl í fanginu.
Tuttugu ára afmælis-
útgáfa Trivial Pursuit.
JÓLATÓNLEIKAR VERÐA HALDNIR
Í LANGHOLTSKIRKJU Á SUNNU-
DAGINN OG VERÐUR ÁGÓÐANUM
VARIÐ TIL STYRKTAR BÁGSTADDRI
ÍSLENSKRI FJÖLSKYLDU.
Eyjólfur Kristjánsson,
Stefán Hilmarsson,
Kristjana Stefáns-
dóttir og Fjórar
klassískar eru meðal
margra tónlistar-
manna sem troða
upp á jólatónleik-
um í Langholts-
kirkju á sunnudag-
inn klukkan fjögur.
Einnig mun Gunnar
Eyjólfsson leikari
flytja hugvekju. Tilgangur tónleik-
anna er að safna fyrir ungri íslenskri
fjölskyldu sem á í miklum erfiðleik-
um um þessar mundir. Heimilisfað-
irinn, sem á þrjú börn, greindist með
krabbamein í andliti fyrir tveimur
árum og hefur verið frá vinnu síðan
og gengist undir margar erfiðar
aðgerðir og meðferðir. Kona hans
hefur líka stopult getað stundað sína
vinnu á tímabilinu. Það eru vinir
þeirra og velunnarar sem gangast
fyrir tónleikunum.
Til styrktar
fjölskyldu
Kristjana
Stefánsdóttir er
ein þeirra sem
fram koma á
tónleikunum.
Aðventu- og jólatónleikar
Kammerkórs Hafnarfjarðar klukkan
20 í Hásölum í Hafnarfirði. Gestur er
Bergþór Pálsson baritón.
Smekkleysa SM efnir til útgáfuhátíðar
kl. 21 á NASA við Austurvöll.
á jóladöfinni }
7. desember