Fréttablaðið - 07.12.2005, Side 31

Fréttablaðið - 07.12.2005, Side 31
MIÐVIKUDAGUR 7. desember 2005 Hamraborg 7 ������������������������� ������������������������������������ ����������������������������������������� �������������� ���������������� ����������������� ������������ �� �������������� �������������������������������������������� ��� ������������������ ��������������� ��������� ������������������������������������������ ��������������������� ����������� Viltu veita þér og þínum forskot í námi eða starfi? Minnum á hin vinsælu gjafabréf Hraðlestrarskólans “Enginn ætti að láta þetta framhjá sér fara. Á skipulegan og skjótvirkan hátt er hægt að margfalda lestrarhraða án þess að það bitni á skilning. Samfara lestri er náms- tækni sem nýtir aukin afköst lesturs og tryggir að það sem lesið er gleymist ekki.” Þorvaldur H., 24 ára lögfræðinemi. Gjafabréfið gildir á eitthvert þeirra námskeiða sem haldið verður 2006 og hverju gjafabréfi fylgir 3.000 kr. inneign inn á bók frá JPV-útgáfu. Hægt er að panta gjafabréfið í síma 586-9400 og á www.h.is ...næsta námskeið 5. janúar 2006 Það er ekki nóg með að söng- konan Eva Ásrún Albertsdótt- ir haldi jól í desember eins og flestir aðrir landsmenn, heldur stendur hún líka fyrir fjórum afmælisveislum á að- ventunni. „Ég á tvo litla menn sem eiga afmæli í desember og núna eru þeir orðnir svo stórir að ég get ekki lengur haldið eina afmælis- veislu fyrir þá báða og þar sem ég held alltaf eina veislu fyrir vinina og bekkjarfélagana og aðra fyrir fjölskylduna eru þetta stundum fjórar afmælisveislur sem ég held í desember,“ segir Eva Ásrún Albertsdóttir. Yngri sonur hennar, Guðmund- ur Þórir, verður átta ára 13. desember og sá eldri, Valdimar, verður ellefu ára á Þorláksmessu, svo að jólahaldið hefur verið með breyttu sniði síðasta rúma áratug- inn hjá Evu Ásrúnu. „Maður bara bætir þessu á allt hitt, það er ekkert um annað að ræða, og fyrir vikið verða jólin aðeins öðruvísi,“ segir hún. Eldri siður í fjölskyldu Evu Ásrúnar er laufabrauðsgerð. „Við erum fjórar systurnar og við vorum vanar að hittast alltaf og búa til laufabrauð fyrir jólin, en síðustu árin hefur bara verið svo mikið að gera hjá okkur að við höfum einfaldlega ekki haft tíma til þess,“ segir Eva Ásrún og bætir við að samt sem áður sé nú alltaf laufabrauð á borðum um jólin heima hjá henni. smk@frettabladid.is Afmælisveislur í desember Eva Ásrún Albertsdóttir söngkona. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA Fjölskylduspil eru sívinsælar jólagjafir, sérstaklega þegar kemur að því að senda gjafir til íslenskra vina og ættingja erlendis. „Það eru margir sem kaupa spil til að senda til Íslendinga erlendis og núna er til dæmis tuttugu ára afmælisút- gáfan af Trivial Pursuit mjög vin- sæl,“ segir Þórarinn St. Halldórsson, nýbakaður eigandi Frí- merkja- og myntversl- unar Magna á Lauga- veginum. Þórarinn tók yfir af fyrrverandi eiganda í október, en verslunin hefur verið á Laugavegi 15 síðan árið 1979. Íslensku spilin Popppunktur, Hnefatafl og Kvik- myndaspilið standa alltaf fyrir sínu. Önnur vinsæl spil sem eru til í íslenskri útgáfu eru Partý & Co. og Mónópólí. Ný spil sem hafa vakið athygli þessi jólin eru til dæmis Sudoko spilið og Músagangur. Fjölskylduspilin kosta á milli 1.500 krónur og 6.000 krónur. „Það eru þó nokkrir sem hafa komið til að kaupa spil, þetta eru auðvitað þeir sem eru snemma í því að kaupa jólagjafirnar,“ segir Þórar- inn. Ef fólk ætlar að senda spilin til útlanda verður það að fara að flýta sér því síðasti sendingardagur til útlanda var í gær sam- kvæmt Íslandspósti. ■ Í það minnsta kerti og spil Þórarinn St. Halldórsson, nýr eigandi Hjá Magna, með íslenska spilið Hnefatafl í fanginu. Tuttugu ára afmælis- útgáfa Trivial Pursuit. JÓLATÓNLEIKAR VERÐA HALDNIR Í LANGHOLTSKIRKJU Á SUNNU- DAGINN OG VERÐUR ÁGÓÐANUM VARIÐ TIL STYRKTAR BÁGSTADDRI ÍSLENSKRI FJÖLSKYLDU. Eyjólfur Kristjánsson, Stefán Hilmarsson, Kristjana Stefáns- dóttir og Fjórar klassískar eru meðal margra tónlistar- manna sem troða upp á jólatónleik- um í Langholts- kirkju á sunnudag- inn klukkan fjögur. Einnig mun Gunnar Eyjólfsson leikari flytja hugvekju. Tilgangur tónleik- anna er að safna fyrir ungri íslenskri fjölskyldu sem á í miklum erfiðleik- um um þessar mundir. Heimilisfað- irinn, sem á þrjú börn, greindist með krabbamein í andliti fyrir tveimur árum og hefur verið frá vinnu síðan og gengist undir margar erfiðar aðgerðir og meðferðir. Kona hans hefur líka stopult getað stundað sína vinnu á tímabilinu. Það eru vinir þeirra og velunnarar sem gangast fyrir tónleikunum. Til styrktar fjölskyldu Kristjana Stefánsdóttir er ein þeirra sem fram koma á tónleikunum. Aðventu- og jólatónleikar Kammerkórs Hafnarfjarðar klukkan 20 í Hásölum í Hafnarfirði. Gestur er Bergþór Pálsson baritón. Smekkleysa SM efnir til útgáfuhátíðar kl. 21 á NASA við Austurvöll. á jóladöfinni } 7. desember

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.