Fréttablaðið - 07.12.2005, Blaðsíða 54
Toppurinn að
vera í teinóttu
Davíð Oddsson þykir hafa komið
mynduglega fram í nýju hlut-
verki seðlabankastjóra. Merkja
menn að það sé létt yfir honum
um leið og hann þykir tala af
festu um stefnu bankans. Öll sól-
armerki eru um það að hann
kunni vel að meta nýtt hlutverk
og verður spennandi að fylgjast
með því hvort honum tekst með
tíð og tíma að öðlast Green-
spanska vigt sem yfirmaður
peningastjórnarinnar á Íslandi.
Annars hafa menn ekki tekið eft-
ir neinni stökkbreytingu í fari
þessa fyrrverandi forsætisráð-
herra landsins, nema hvað að
hann er kominn í teinótt jakka-
föt, en sem ráðherra var Davíð
venjulega í einlitum fötum. Tein-
ótt er tákn bankamannsins og
hefur enginn gengið lengra í því
en Björgólfur Guðmundsson
sem hefur tommu á milli teina.
Davíð er reyndar ekki enn svo
langt genginn á teinum banka-
heimsins.
Krjúpa á kné
Þótt flestir séu sammála um að
Davíð Oddsson seðlabankastjóri
hafi komið tiltölulega vel út þeg-
ar hann kynnti stýrivaxtahækk-
un Seðlabankans síðasta föstu-
dag og á fundi Viðskiptaráðs á
mánudaginn, heyrast auðvitað
raddir sem gagnrýna að ekki var
gengið lengra í þetta sinn. Verð-
bólgan sé langt fyrir ofan verð-
bólgumarkmið bankans og nauð-
synlegt hefði verið að fylgja síð-
ustu vaxtahækkun betur eftir.
Víki verðbólgan langt frá mark-
miðum þarf Seðlabankinn að
senda ríkisstjórninni skriflegar
skýringar. Í gamni er bent á að
nær væri að Davíð og félagar
kæmu fram opinberlega, leggð-
ust á hnén og bæðu þjóðina af-
sökunar. Þá hefðu stýrivextir
bankans verið hækkaðir um eitt
prósentustig en ekki 0,25.
Hin gömlu kynni
Fjárfestingar Íslendinga erlend-
is hafa á sér ýmsar hliðar. Ein
skondin og skemmtileg birtist í
Manchester Evening News. Þar
greinir frá því hvernig þrír fyrr-
um vinnufélagar hjá GMCA hafa
sameinast á ný eftir að starfs-
framinn hafði borið þá burt hver
frá öðrum. Ástæðan er að Lands-
bankinn hefur hafið starfsemi í
Manchester og þegar tveir fé-
laganna voru komnir til starfa
var auðvelt að ná í þann þriðja.
„Fyrirheitin um að sameinast
gömlum félögum í frumkvöðla-
starfi var of gott til að sleppa
því,“ segir David Lomax, sá sem
síðast réð sig til Landsbankans í
viðtali við Manchester Evening
News.
160 10,5% 30milljarða kaup félags Björgólfs Thors Björgólfs-sonar í evrópskum símafyrirtækjum. Stýrivextir Seðlabanka Íslands eftirhækkun á þriðjudag. milljóna hagnaður lykilstjórnenda KBbanka af 232 milljóna kaupum á hlutabréf-um bankanna.
SÍMANÚMER MARKAÐARINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@markadurinn.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@markadurinn.is Veffang: visir.is
B A N K A H Ó L F I Ð
01_20_Markadur lesið 6.12.2005 15:08 Page 2